Þjóðviljinn - 03.06.1983, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 03.06.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNJ Föstudagur 3. júní 1983. Grace Jones hér Bridge Það er ansi neyðarlegt í tvímenning, stundum, að spiia andstæðingana upp úr skónum og stela „heim" óhugnanlegum samning, og uppgötva síðan að skorblaðið hefur sína skoðun á hlutunum. Frá spilak- völdi hjá Bridgefélagi Breiöholts. N gefur, i: Norður S 43 H 10864 T A63 LG1086 Austur S A108 H AG7 TKG9 L A752 Suður S KD75 H 95 T D852 L K93 N-S voru spilarar til alls vísir, en þetta kvöld hafði gengið treglega. Norðri fannst þvi orðið tími til að „gera eitthvað" (..eins og oft áður). Hann ákvað að vekja á 1- grandi, meö 5 punktana. - „Eins og í Prec- ision, eða svoleiðis," sagð'ann. Austur passaði, hlakkandi (það sást svosem...) og Suður 2-lauf. Það var passað út, þótt Austri þætti það sárt. Suður sat hugsi. Nú, útspilið var hjarta og litnum var spil- að í þrígang. Suður trompaði. Spilaði tígli á ás og tígli sem Austur vann með kóng. Það virtist tilvalið að reyna smáspaða. Kóngur. Nú tók sagnhafi á tígul dömu og hélt síðan áfram með 13. tígulinn. Vestur kastaði spaða, .. .en sagnhafi trompaði í borði með áttu. Austur mátti missa einn spaða.. Hjarta-10 þá og þótt Austri liði nú sjáanlega illa, trompaði hann og S trompaði betur. Lítill spaði og A var inni á ás. Næst kom tromp undan ásnum („ef fé- lagi á dömu..) og stakur kóngur átti slaginn. Spaði trompaður í blindum og nú varð Austri að orði: Sama hvað ég geri, og að svo mæltu undirtrompaði hann í 12. slagl Vægast sagt, furðulegt allt saman. Austur virðist hafa sannfærst um að sagn- hafi ætti tromp-drottninguna, úr því hann „sleppti" svíningunni! Nú, 90 hlaut að vera dágóð tala, og alveg áreiðanlega úr þvi N-S áttu hana. Skorblaðið hélt nú ekki. Súlu af 300-200 og 100 í N-S sýndi það. Það má því segja sem svo, að þjófnaður- inn hafi heppnast vel, en ránið komist upp. A-V á hætti Vestur S G962 H KD32 T 1074 L D4 Skák Karpov að tafli - 147 abcde fgh Ljubojevic - Karpov Hver er besti leikur svarts? Staöan kom upp í 3. umferð alþjóðlega mótsins í Manila og á þessu augnabliki var Karpov með 'h vinning úr 2 skákum. ( þessari stöðu hitti hann á bráðsnjalla leið: 31. ..exf3! 32. Rxf3 (Svartur gat ekki leikið 32. Dxc5 vegna 32. - Hxe1 + 33. Hxe1 (ef 33. Dg1 þá 33. - fxg2+ 34. Kh2 Bd6 mát!) fxg2+ 34. Kh2 Bxc5 og svartur vinnur.) 32. ..Dxc2 33. Dxa6 Bxf3 34. gxf3 Hxe1 + 35. Hxe1 Rh5! (Með hótununum 36. - Rg3+ og 37. - Bc5+.) 36. He8 Df2! 37. Hxf8+ (Eini varnarmöguleikinn, en hann dugar þó skammt.) 37. ..Kxf8 38. Da3+ Ke8 39. Da4+ Ke7 40. Db4+ Kf6 41. Dd6+ Kg5 42. De5+ Kh6 - og Ljubojevic gafst upp. Ekki vann Karp- ov fleiri skákir í móti þessu. Hann gerði jafntefli i þeim þrem skákum sem eftir voru. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Torre 4’/2 v. 2. Karpov 3 v. 3. Ljubojevic 2'b v. 4. Browne 2 v. Grace Jones veitti ljósmyndaran- um góðfúslega leyfi til að smella af nokkrum myndum í flýti fyrir utan flugstöðina í Keflavík í gráum og heidur svölum sumar- morgni. Myndir SG. Það var aldeilis fótaferðin á okkur Sævari Guðbjörnssyni út- litsteiknara, en að þessu sinni ljósmyndara, í gærmorgun, þegar við lögðum í’ann til Keflavíkur til að reyna að ná mynd af hinni sér- stæðu söngkonu Grace Jones, sem væntanleg var með flugi frá henni Ameríku kl. 5.45. fyrir há- degi. En það var óguðlegur fótaf- erðartími hjá fleirum þennan morgun, og jafnvel enginn hátta- tími í skynsamlegri fjarlægð þar á undan hjá sumum. Grýlurnar Grýlur okkar þar Grýlurnar í Flughöfninni í Kefla- vík í gærmorgun, eldsnemma og eidhressar (...svefngalsi, sagði einhver): Ragnhildur, Linda, Inga Rún, Herdís. Þær voru að leggja af stað í hljómleikaferð um Skandinavíu og áttu að spiia strax um kvöldið í Kaupmannahöfn. Ljósm.SG voru á förum til Danmerkur og áttu að mæta kl. 6.00 (líka fyrir hádegi) á Keflavíkurflugvelli og fékk því helmingur þeirra að fljóta með Þjóðviljapakkinu, ásamt ósköpunum öllum af drasli sem Grýlur hafa með sér í Skand- inavíuferð til þriggja vikna. Eins gott að þær gerðu ekki ráð fyrir lengri dvöl, því að allir fóru hrey- fingarlausir til Keflavíkur nema bflstjórinn, sem gat hreyft aðra höndina og allir sauðirnir voru svo heppnir að bensínfóturinn lenti á milli bensíngjafarinnar og gítartöskunnar...og komst liðið því rétt í tæka tíð á áfangastað þar sem baksætisbflstjóranum tókst að smokra hnakkanum upp á bremsuna. Verandi á síðustu stundu, „smeygði“ Sævar sér út úr bifr- eiðinni með myndavél á magan- um, en skildi eftir sig marbletti á sumu af innihaldi bflsins og hvarf. ...Hrúgan úr bflnum sorteraðist í Grýlur og þeirra hafurtask með erfiðismunum ærnum, og allir búnir að gleyma Grace þarna í suddalegu morgunsárinu... nema Sævar, sem rétt náði í skottið á henni áður en hún lagði af stað til Reykjavíkur. Þar skemmtir hún í kvöld í Sigtúni, en annað kvöld, laugardag, í Safarí. Miðar eru seldir í hljómplötuverslunum Fálkans og svo við innganginn, ef einhverjir miðar verða þá eftir. Við getum hinsvegar sagt af reynslu gærdagsins að það er þægilegra og árangursríkara að vera ekki á síðustu stundu. Góða skemmtun. A

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.