Þjóðviljinn - 03.06.1983, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. júní 1983.
Stund milli stríða. Þær mínútur sem gos lá niðri í Grímsvötnum og mökkurinn hvarf varð Öræfajökull allsráðandi í auðninni. Séð til suðausturs yfir eldstöðina. Ljósm.-Atli.
Á LEIÐ TIL GOSSTÖÐVANNA
Hér stígur gufumökkurinn hátt til lofts og suður undan honum má sjá öskugeirann sem nær 6-7 km lengd. Þar sem mökkurinn stígur upp heitir Vestri
Svíahnúkur. Á Eystra Svíahnúki má grilla í skála Jöklarannsóknafélagsins sem örlítinn svartan blett. Ljósm.-Atli.
í plássleysi og argaþrasi í pólitík-
inni vill fallegt myndefni oft víkja af
fréttasíðum Þjóðviljans. Og þá
kemur gamla kenningin: Það þýðir
ekkert að vera að birta myndir frá í
gær! Við ætlum að brjóta hana hér
og nú og birta nokkrar fallegar loft-
myndir sem ljósmyndari Þjóðvilj-
ans, Atii, tók á leið til gosstöðvanna
i Grímsvötnum á sunnudaginn var.
Ekki er hægt að ímynda sér feg-
urra ferðaveður en við fengum.
Flugstjóri var Hörður Guðmunds-
son hjá Flugfélaginu Örnum á ísa-
fírði og hann lét sig ekki muna um
að leggja lykkju á leið sína til að
verða við óskum farþeganna um að
sjá hin og þessi fjöll og jökla úr
háloftunum. Með okkur í vélina
slógust 7 Garðbúar. Þeir búa á
Gamla Garði, en ekki þeim Nýja
og tóku skýrt fram að það mætti
ekki misskiljast. Einn af þeim hafði
unnið Kortsnoj, sögðu þeir og voru
hreyknir af. Ekki fylgdi það sög-
unni í hverju þeir kepptu!
En textinn verður ekki lengri ef
myndirnar eiga loks að fá eitthvert
pláss hér á síðum blaðsins.
-ÁI
,J>etta er faiiegasti jökuli í heimi“, sagði Olgeir Sigmarsson, jarðfræðinemi og benti okkur á
Múlajökul. Þarna skríður hann fram úr Hofsjökli í reglulegri tungu og jökulgarðarnir, sem
hann hefur ýtt á undan sér sjást greinilega. Ljósm.-Atli.
>>Fljúgið með Örnum“ á hún að heita þessi mynd, sögðu ferðaféiagar okkar. Frá vinstri:
Hörður Guðmundsson, flugmaður ísafirði, Stefán Steinsson læknanemi, Einar Jónsson
sagnfræðinemi, Helgi Laxdal, verkfræðinemi, Sigurður Torfi Jónsson, félagsfræðinemi,
Ingo Wershofen, islenskunemi frá Berlín, Olgeir Sigmarsson, jarðfræðinemi og Erlingur
Þorsteinsson, viðskiptafræðinemi. Ljósm.-Atli.