Þjóðviljinn - 30.07.1983, Síða 6

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Síða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.-31. júlí 1983 ÞJOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastióri: Guörún Guðmundsdóttir Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafssen. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sígurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, G.uðión Sveinbiörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. Handrita- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.' Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og áuglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. ritstjernargrein ur almanakinu Kissinger kominn á ról • Reagan Bandaríkjaforseti sendir herskip og her- menn í stórum stíl til Mið-Ameríku og ætlar bersýnilega að steypa vinstristjórn Sandinista í Nicaragua. Banda- menn jafnt sem andstæðingar Bandaríkjanna fylgjast með þessum stríðsleik með skelfingu, enda getur orðið stutt í mikið blóðbað. Bandaríska stórblaðið New York Times tekur allt leiðarapláss sitt í að rifja upp mistök og afbrot bandarískra stjórna í Rómönsku Ameríku í nær heila öld og lýsir þá meginhugmynd Reagans, að heimurinn sé að fara undir marxíska snjóskriðu hættu- lega ranghugmynd - rétt eins og þá Monroekenningu, sem lengi hefur flækt Bandaríkin í hernaðarævintýri í álfunni. • Enn er ekki víst að bandarískum her verði beitt gegn Nicaragua. En í því sambandi er rétt að minna á það, að Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra, hefur nýlega ver- ið settur yfir sérstaka Mið-Ameríkunefnd Reagans forseta. Og Kissinger hefur reynslu sem vekur sérstak- an ugg við núverandi aðstæður. Það var hann sem var höfundur þeirrar stefnu gagnvart Chile, sem leiddi til þess að herforingjar réðu af dögum forseta Chile, sósí- alistann Allende, og hrifsuðu völdin. Og það var hann sem réttlætti slíkar aðgerðir með því að „við getum ekki staðið hjá ef eitthvert land verður kommúnískt vegna ábyrgðarleysis eigin þjóðar“. • Chilebúar höfðu sýnt það „ábyrgðarleysi“, að kjósa sósíalista til forseta og Kissinger gerði sitt besta til að eyða niðurstöðum þeirra kosninga. CIA og auðhring- urinn ITT gerðu hvað þau gátu til að reyna að fá Chile - þingtil að viðurkenna ekki niðurstöður kosninganna 1970 og það var þá þegar reynt að koma af stað valda- ráni - var þá myrtur yfirmaður hersins, Schneider, sem þótti lýðræðisvinur. Pegar þetta tókst ekki var tekið til við að grafa undan starfsmöguleikum Allendestjórnar- innar á allan hátt. Stöðvaðar voru allar lánveitingar og öll bandarísk aðstoð við Chile (nema til hersins), áhrif Bandaríkjanna í Alþjóðabankanum og hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum voru notuð til að stöðva einnig lán- afyrirgreiðslu þaðan. CIA studdi stjórnarandstöðuna með ráðum og fé og bar m.a. kostnaðinn af langvinnu verkfalli vörubílstjóra, sem olli miklum erfiðleikum. Um leið var þess gætt að láta sem fæst uppi um þennan hernað, hylja hann í reykskýi kaldranalegs hlutleysis og gera Allendestjórninni þeim mun erfiðara fyrir um að virkja almenningsálitið í heiminum sér til stuðnings. • Þessi stefna ýtti mjög undir valdarán Pinochets 1973 - Það hefur ekki reynst mögulegt að sanna beina aðild Bandaríkjanna að því (eins og látið er að liggja í mynd Costa Gavras, Týndur) - en það kemur út á eitt: niður- staðan var sú sama. • Það eru margar hliðstæður við það sem nú var nefnt í stefnu Bandaríkjamanna gagnvart Nicaragua. Og vandræði þeirra í E1 Salvador sýnast hafa freistað Reag- anstjórnar til enn opinskárri valdbeitingar. Kissinger, sá sem hóf leynilegan lofthernað gegn Kampútseu, mun ekki hafa mikið samviskubit af því, svo mikið er víst. • Um þessar mundir er siðferðislegt og efnahagslegt gjaldþrot Pinochets í Chile deginum ljósara - og ekki tæki betra við ef byltingunni í Nicaragua yrði nú drekkt í blóði. Sá sigur kynni að reynast skammgóður vermir Reaganstjórninni, en það mun lítt stoða þá sem féllu fyrir hefndarþyrstum málaliðum sem áður þjónuðu Somoza einræðisherra. Slík þróun mála væri einnig mikið áfall fyrir lýðræðisöfl í Bandaríkjunum sjálfum. • Og nú keppast flestir við að gagnrýna Reagan og hans íið eða vara hann við. Nema hvað Morgunblaðið hefur ekki fengið málið enn. -AB. Jón og Gunna kaupa íbúð Jón og Gunna eru tæplega þrí- tug og eiga eina litla dóttur, hana Stínu sem er bara þriggja ára. Þau eru oröin þreytt á að leigja sér húsnæði, bæði vegna þess hve það er dýrt og einnig vegna óviss- unnar með að halda því. Þau hafa flutt þrisvar á 5 árum. Nú langar þau til að festa kaup á íbúð eins og gengur og gerist í þessu þjóð- félagi. Því ættu þau ekki að geta það eins og aðrir? Þar að auki telja þau sér trú um að þau séu í sæmilega vel borgaðri launa- vinnu (sem er þó kannski mis- skilningur). Þeir sem vit hafa á fasteigna- markaðnum segja að verð á íbúð- um sé í lágmarki um þessar mundir og það sé jafnvel orðið ódýrara að kaupa gamla íbúð en að byggja sjálfur. Jón og Gunna trúa þessu enda vilja þau helst búa í gamla hverfinu sínu áfram. Þau komast fljótt að raun um það að verð á sæmilegum litlum íbúðum á jarðhæð, í kjallara eða risi, kannski 70-80 fermetra, er svona um 1200 þúsund krónur. Venjuleg greiðslukjör eru með þessu móti: Við undirskrift samnings eru oftast borgaðar um 200 þúsund krónur miðað við ofangreint verð. Fyrstu 6 mánuðina verður að reiða af hendi um helming heildarverðsins eða 400 þúsund til viðbótar. Næstu sex mánuði eða seinni helming ársins verður síðan að leggja fram 300 þúsund krónur og er þá búið að borga 75% af heildarverðinu. Það er kallað útborgun. Afgangurinn er síðan greiddur á 2-3 árum. Jón og Gunna fara nú að at- huga lánsmöguleika. Þau komast að því að hámarkslán frá hús- næðismálastjórn miðað við þess- ar aðstæður er 150 þúsund krón- ur, að sjálfsögðu verðtryggt. Það er fjórðungur af því sem leggja verður fram fyrstu 6 mánuðina en 1/6 af útborgun fyrsta árið. Upp- hæðin er 1/8 af heildarkaupverði litlu íbúðarinnar sem þau hugsa sér að kaupa. Hvernig á þá að fjármagna 7/8 hluta? Nú eru hjónkornin svo stál- heppin að eiga bæði aðgang að lífeyrissjóðslánum þó að þau séu ekki gömul að árum. Hann getur fengið 150 þúsund krónur en hún 200 þúsund krónur, allt að sjálf- sögðu verðtryggt. Þá eru þau með húsnæðismálastjórnar- láninu búin að öngla saman 500 þúsund krónum og finnst dágott við fyrstu sýn. Aðeins vantar 100 þúsund krónur til að hafa fyrir útborguninni fyrstu 6 mánuðina og e.t.v. er bara hægt að leggja fyrir 16.666 krónur á mánuði af laununum þetta hálfa ár til þess að endar nái saman. Þau geta jafnvel lagt helmingi lægri upp- hæð inn á IB-reikning í 6 mánuði og fengið svo lánað það sem upp á vantar. Þar fylgir að vísu sá böggull skammrifi að þau verða að borga lánið síðari helming árs- ins og skerðist þá greiðslugeta þeirra þá sem því nemur. Útborguð laun Jóns eru nú með yfirvinnu 20 þúsund krónur á mánuði og er þá búið að draga frá skatta og önnur gjöld en laun Gunnu eru samsvarandi 15 þús- und krónur. Það þykir þeim bara gott, eins og áður sagði, a.m.k. miðað við ýmsa jafnaldra sína sem þau þekkja. Þau eiga gamlan bílskrjóð sem þeim finnst nauð- synlegt að hafa til að keyra Stínu litlu til dagmömmunnar. Launin sem þau hafa til að kaupa mat, bensín, rafmagn, hita, síma, föt, dagmömmugjöldin, húsaleiguna og annað eru sem sagt 35 þúsund krónur. Að taka af þeim 16.666 krónur er því töluverður biti að kyngja. Að vísu losna þau við að borga húsaleigu þegar þau eru flutt í nýju íbúðina og um það munar nokkuð. Hins vegar þurftu þau að borga ár fyrirfram í húsaleigu á sínum tíma og eru ekki enn búin að borga upp vaxtaaukalán sem þau tóku til þess. En þetta er hægt með sparnaði. Svo kemur að seinni hluta árs- ins og þá vandast málið. Þau þurfa þá að punga út 300 þúsund krónum á 6 mánuðum eða 50 þús- Guðjón Friðriksson skrifar und krónum á mánuði. Þá er hætt við að 35 þúsund krónurnar fari fyrir lítið og ekki er útlit fyrir miklar launahækkanir ef fyrirætl- anir ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga. Hvað ber að gera? Taka skammtímalán í bönkum og steypa sér út í skuldafen? Taka að sér aukavinnu á kvöldin og um helgar? Þau gætu kannski aukið launin með því móti um 10-15 þúsund krónur en það dygði skammt. Og hvað þá um Stínu litlu og heimilislífið? Selja bílinn? Fyrir hann fengjust í besta falli 25 þúsund krónur. Jón og Gunna standa eiginlega ráðþrota frammi fyrir þessu dæmi. Og það gera fleiri. Hvað gerist næst hjá Jóni og Gunnu? Það kemur í ljós í næsta þætti er þing kemur saman í haust. Verða húsnæðislán hækk- uð og þá á annan hátt en að færa aðeins til fé frá verkamannabú- stöðum til almennra húsnæðis- lána? Margir halda að slík gervi- hækkun verði einu úrræði ríkis- stjórnarinnar þrátt fyrir fögur fyrirheit um allt að 80% lán. Hækkar verð á húsnæði eða held- ur það áfram að lækka? Sumir segja að verðbólgan muni minnka og þá verði boðin betri kjör með lægri útborgun heldur en hingað til hefur tíðkast. Munu versnandi lífskjör almennings minnka eftirspurn á húsnæði og hafa áhrif á verð þess? Kannski kemur þá tækifæri hinna ríku til að verða enn ríkari. Ein kenning- in gengur út á það að verði hús- næðislánin hækkuð verulega muni það strax segja til sín í hækkuðu verði á íbúðum þannig að Jón og Gunna sitji í sömu súp- unni áfram. Hvað sem þessum vangavelt- um líður bíðum við öll, sem ekki eigum þak yfir höfuðið, eftir betri húsnæðislánum. Og það gera Jón og Gunna með hana Stínu sína. Við bíðum eftir 80% húsnæðis - lánunum hans Gunnars Schram.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.