Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 7
Víða liggja
gullskipin
Það er víðar en á Skeiðarár-
sandi sem forn gullskip liggja.
Nú í sumar er fransk-egypskur
leiðangur að störfum á Abukir-
flóanum undan ströndum Eg-
yptalands en þar á hafsbotni
liggur Miðjarðarhafsfloti Napó-
leons Bonaparte sem Englend-
ingar undir stjórn Nelsons flot-
aforingja sökktu eina dimma
ágústnótt árið 1798. Um borð í
skipunum eru miklir fjársjóðir
m.a. sem rænt hafði verið á
eynni Möltu. Þeim er ætlunin að
ná upp. Og á franska tundur-
spillinum Vinh Long sem tekur
þátt í björgunarleiðangrinum í
sumar stendur enginn annar en
Napóleonsjálfuríbrúnni. Það
er að vísu ekki Napóleon mikli
heldur Loðvík Prins Napóleon,
69 ára gamall, en langalangafi
hansvarbróðirkeisarans. Þar
sem hann stendur og virðirfyrir
sér egypsku ströndina segir
hann um tilfinningar sínar:
„Persónulegaerégmjög
hrærður að fá að taka þátt í
þessu".
Abukir-flóinn liggur fyrir austan
Alexandríu og sex kílómetra
undan ströndinni hafa leifar hins
mikla flota verið uppgötvaðar af
sérfræðingum. Það er svo fransk-
egypskur rannsóknarleiðangur
undir stjórn djúpkafarans og kvik-
myndagerðarmannsins Jacques
Dumas sem vinnur nú að því að ná
upp því sem heillegt er í skipunum.
Og það kann að verða ómaksins
vert því að auk yfir 2000 ára gamals
rómversks íláts, sem þegar hefur
komið upp úr sjónum, hafa komið
munir sem örugglega eru úr flagg-
skipinu L’Orient. Má þar nefna
fallbyssur, vopnakistur, ankeri,
skipshluta og jafnvel eldhúsáhöld.
Upphaf hins franska flotaleið-
angurs var það að Bonaparte hers-
höfðingi, þá 29 ára gamall, safnaði
saman miklum flota og herafla í
Toulon. í flotanum voru m.a. um
300 flutningaskip, 13 herskip og 7
freigátur. Og um borð í þessum
skipum voru 55 þúsund manns, þar
af 30 þúsund hermenn. Þar voru
þúsund stórskotaliðsfallbyssur og
700 hestar. Þessum mikla flota var
stefnt til Egyptalands og var ætlun-
in að hernema það til þess að loka
leið Breta til hins ríka Indlands.
Á leiðinni til Egyptalands var
Malta hernumin en þar hafði svo-
kölluð Jóhannesarregla ráðið ríkj-
um síðan 1530 og safnað að sér
miklum fjársjóðum. Voru látnar
greipar sópa á eynni og ránsfengur-
inn fluttur um borð í flotann.
Breski flotinn undir stjórn Hor-
atio Nelsons leitaði hins vegar uppi
þennan mikla franska flota og að
Helgin 30.-31. júlf 1983 ÞJÓÐVÍLJggN - SÍÐA 7
Sjóorrustan á Abukir-flóa.
Arið 1798 var
miklum frönskum
flota sökkt undan
strönd Egypta-
lands og nú er
verið að bjarga
fjársjóðum sem
sukku með
skipunum
kvöldi 1. ágúst 1798 fann Nelson
hann þar sem hann lá fyrir akker-
um undan ströndum Egyptalands.
Mikill hluti af her Napóleons var
þá genginn á land til að hernema
Kairó en samt sem áður var fjöldi
hermanna enn um borð. Flotafor-
ingi Frakka, Bruey aðmíráll, taldi
víst að Bretar mundu fyrst gera á-
rás í morgunsárið en þar skjátlaðist
honum. Nelson laumaðist í næt-
urmyrkrinu með nokkur skip milli
franska flotans og lands og gerði
síðan umsvifalaust árás úr tveimur
áttum. Þetta kom Frökkum í opna
| skjöldu og flestum fallbyssunum
var stillt upp á þeirri hlið skipanna
sem sneri frá landi. L’Orient,
flaggskip franska flotans, var þá
stærsta skip í heimi og stolt Frakka.
Það var búið 120 fallbyssum og
hafði þúsund manna áhöfn. Það
varð þegar í upphafi fyrir skoti svo
að eldur kom upp í því og síðan
sprakk það í loft upp og sökk. Áður
en eldaði af degi voru öll frönsku
herskipin sokkin eða mikið löskuð.
Með skipunum sukku fjársjóðimir
frá Möltu og að því er talið er her-
sjóður með þremur miljónum gull-
peninga. Kafararnir telja að flagg-
skipið L’Orient liggi á hafsbotni í
tveimur hlutum.
Franski leiðangursstjórinn,
Dumas, neitar því að það sé fyrst
og fremst gullið sem leitarmennirn-
ir sækist eftir en það er þó skýrt
tekið fram af egypskum yfirvöldum !
að ekkert það gull, sem finnast
kann, megi flytja úr landi.
Talið er að björgun verðmæta úr
hinum mikla franska flota sem
byrjar fyrir alvöru nú í ágúst geti
tekið nokkur ár og muni kosta á '
annað hundrað miljón íslenskra
króna. Skipin liggja að meðaltali á
um 12 metra dýpi en það sem gerir i
köfurunum sérstaklega erfítt fyrir
er það að framburður úr Níl hefur
grafið þau niður svo að þau eru
umlukin leðju sem er á sífelldri
hreyfingu vegna strauma.
(GFr - þýtt úr Spiegel).
10.ÁGÚST
I stafni: Kjartan Ragnarsson og
Guðrún Ásmundsdóttir
Siglt með ms. Eddu á miðvikudagskvöldi frá Reykjavík til Newcastle.
Ekið á laugardegi um sögusvið stór-
myndarinnar: „Fýkur yfir hæðir“, til
hinnar fornu og fögru borgar York
(Jórvíkur). Borgarmúrinn frá 13. og 14.
öld umlykur borgina enn í dag.
Shambles hverfið er frá því fyrir daga
Normanna. Smíð höfuðkirkjunnar York
Minster hófst þegar á sjöundu öld, þótt
hún hafi aðallega verið reist þegar
Sturlungaöld ríkti hér.
Á landnámsöld okkar var Jórvík ein
helsta bækistöð víkinga. Heil hús og
verkstæði þeirra frá árunum 867 tii
1066 hafa verið grafin upp og eru nú til
sýnis ásamt búshlutum, verkfærum og
vopnum forfeðranna frá þeim tíma.
í York verður gist í tvær nætur á afbragðs hótelum og ekið á mánudagsmorgni
til hins góða skips Eddu í Newcastle. Komið heim 17. ágúst.
9.500 kr.
Fyrir einnar viku ferð, gistingu,
allar ferðir og fararstjórn.
FJÖR UM BORÐ
MEÐ SKIPINU VERÐA í ÞESSARI FÖR:
Edda Björgvins
Helga Thorberg
Kjartan Ragnarsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Garðar Cortes
Jónas Þórir Þórisson
Bergþóra Árnadóttir
og hópur hennar:
Pálmi Gunnarsson,
Tryggvi Húbner
Gísli Helgason
Gengi 26.7'83
EIWREMUR:
Við minnum á að auk þessa
auglýsa eftirtaldar ferða-
skrifstofur margs konar ferðir
tengdar áætlunarferðum
ms. Eddu:
Ferðaskrifstofa F.Í.B.
Ferðaskrifstofa stúdenta.
Ferðaskrifstofan Atlantic.
Samvinnuferðir, Landsýn.
Æbragðsgóð greiðslukjör
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
GYLMIR