Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 9

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 9
Helgin 30.-31. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Slæmt ástand sjávar og svifs fyrir Norður- og Austurlandi Dagana 11. og 12. júlí 1983 var á Hafrannsóknarstofnun- inni haldinn fundur sóvéskra og íslenskra haf- og fískifræðinga um ástand sjávar, þörunga, átu og kolmunna í hafínu milli Nor- egs og íslands í vor og sumar. eftir að sjá hvort sjó- og seiðarann- sóknir í ágúst breyti þar nokkru um. Fundinn sátu 5 Sovétmenn, og Svend-Aage Malmberg, sem stjórnaði fundi, Ingvar Hallgríms- son, Sveinn Sveinbjörnssson, Héðinn Valdimarsson og Erlendur Jónsson, sem er ritstjóri skýrslu- gerðar um niðurstöður fundarins fyrir fund Alþjóðahafrannsókna- ráðsins í Gautaborg í október n.k. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson Sovétmenn höfðu kannað hafið allt norðan frá Barentshafi og ’ suður með Noregi að Sheltlands- eyjum og Færeyjum og vestur að íslandi í svonefndum vorleiðangri og einnig milli íslands og Færeyja í kolmunnaleiðangri. Niðurstöður rannsóknanna voru þær helstar, að auk þess sem áður hefur verið tilkynnt um slæmt ástand sjávar og svifs fyrir Norður og Austurlandi í vor, þá nær kaldur Austur-íslandsstraumur mun lengra og austur og suður í haf í átt til Færeyja og Noregs en að venju. Áhrif þessa ástands í Austur- íslandsstraumi á kolmunnagöngur í sumar eru því taldar þær að göng- urnar verði fyrir austan Færeyjar og í norskri efnahagslögsögu að mestu leyti. Upplýsingar sovétmanna um veiðarnar hingað til í sumar og rannsóknir bæði Sovétmanna og íslendinga benda til þess. Mæl- ingar Sovétmanna sýndu á hinn boginn hlutfallslega mikil áhrif hlýsjávar við Norður-Noreg og í Barentshafi sem getur lofað góðu bæði fyrir útbreiðslu og afkomu loðnu og þorsks á þeim slóðum. Sambærilegar slóðir við ísland fyrir norðan og austan land lofa hins vegar ekki góðu um afkomu nytjafiska okkar á uppvaxtar- og ætisslóðum (kaldur sjór og ætis- snauður) ef að líkum lætur. Er þá Mengun veldur vaxandi fiskidauða í vötnum „Súr rigning“ frá iðnaðar- svæðum Evrópu og annar efnaúr- gangur valda nú vaxandi fiski- i dauða í ám og vötnum í Skandina- víu, segja þeir í Sambandi nor- rænna stangveiðifélaga, en það hélt ársfund sinn í Ulstrup í Danmörku í sl. mánuði. Fundurinn sátu af íslands hálfu þeir Gylfi Pálsson, skólastjóri og Karl Ómar Jónsson, verkfræðing- ur. Mættir voru veiðimálastjórar allra Norðurlandanna nema ís- lands. Fluttu þeir erindi um veiði- löggjöf landa sinna, framkvæmd þeirra og þær hættur sem steðjuðu að ferskvatnsfiski og sem m.a. j stafa af því, sem drepið var á í upp- [hafi þessa máls. Laxveiðar í sjó valda einnig áhyggjum og var þeim harðlega andmælt. íslensku fulltrúarnir fluttu tvö erindi. Sögðu þeir m.a. frá könn- un, sem gerð var með fulltingi fé - lagsvísindadeildar Háskólans á tómstundaiðju íslendinga, en hún leiddi í ljós að tæpar 50 þús. lands- manna segjast stunda stangaveiði fleiri en tvo daga árlega. íslendingarnir lögðu til að Nor- ræna sambandið stæði að gerð kvikmyndar um laxveiði í N- Atl- antshafi og Eystrasalti. Var sam- þykkt að fá Jón Hermannsson, j kvikmyndagerðarmann til að gera handrit og semja kostnaðaráætlun en síðan yrði leitað til Norðurlandaráðs um fjárstyrk til j kvikmyndagerðarinnar. Bækistöðvar Sambandsins eru í Vejle í Danmörku. Formaður þess j næstu 3 ár er norðmaðurinn Harald | Rödland. Formaður Landssam- bands stangveiðifélaga á íslandi er Birgir J. Jóhannsson, tannlæknir. ; - mhg SHELL- þjónusta umaltlandl Starfsfólk Skeljungs óskar öllum landsmönnum góðrar og ánægjulegrar verslunarmannahelgar. Við minnum á að Shell-stöðvarnar verða til þjónustu alla helgina um allt land. Auk bensíns og olíu höfum við á boðstólum fjölbreytt úrval af ferða- og bifreiðavörum og ýmislegt fleira. Lítið inn á næstu Shell-stöð. Góða ferð. Skeljungur h.f Fjölmargt fleira en bensín!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.