Þjóðviljinn - 30.07.1983, Side 17

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Side 17
útisamkomur Atlavík '83 Stuðmenn og Grýlur ásamt Flosa Ólafs- syni. Hliómsveitakeppni og fl. Gestlr hvattir til að skemmta sér án áfengis en varist gráa fiðringinn! Galtalækur Bindindismótið að venju. Dansbandið. Tívolí fyrir börnin, Laddi og Jörundur og fleiri. Þangað fara þorstaheftir! Þjóðhátíð i Eyjum Einsi kaldi á staðnum ásamt Hallbirni kántrí og Galdraköllum. Sprangað í björgum og setið við varðeld. Gaukurinn '83 Þar verður stokkiö á stöng að gamalli hefð. Deild 1, Kikk, Kaktus og Lótus leika við hvern sinn fingur og Svart og sykur- laust verður með uppákomur. Borgarfjarðargleði Sannkölluð Upplyfting tyrir alla. Böll að Brún og I Brautartungu. Tjaldstæði og samkoma i Húsafelli. Jöklagleði Arnarstapi er staðurinn á Snæfellsnesi og Start hljómsveitin. Ball í Dalabúð með áhöfninni á Halastjörnunni. Það er harka í gömlu mönnunum! Laugahátíð Þingeyingar sletta úr klaufunum á Laugum og berja Egó og Bubbi Mort- hens taktinn. Á sunnudag kemur Sumargleðin syngjandi og þá ætti að hýrna yfir margri þingeyskri snót! ANGLO-CONTINENTAL EOUCATIONAL GROUP ENSKUNAM í ENGLANDI Vikulega - næst 24. júlí. Lágmarksdvöl 3 vikur. 20 - 26 - 32 tímar á viku fyrir fólk á öllum aldri. Sérherbergi á einka- heimilum - fæöi innifalið. Verð frá 25.000 kr. Örfá sæti laus. Bæklingar sendir. FERÐASKRIFSTOFA KJARTANS Gnoðarvogur 44 sími 91-86255 A Starfsmaður óskast til að hafa umsjón með starfsemi félags- miðstöðvar fyrir unglinga sem fyrirhugað er að opnuð verði í Kópavogi seinni hluta ágúst- mánaðar. llmsóknareyðublöð liggja fyrir á Félagsmálastofnun Kópavogs Digranesvegi 12. Umsóknarfrestur er til 8. ágúst. Nánari upplýsingar veita félagsmálastjóri og tóm- stundafulltrúi í síma 41570. Tómstundaráð. Innflutningur bifreiða Minnkar um meira en helming Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar hefur veruieg minnkun orðið á innflutningi á bifreiðum á fyrra helmingi yfírstandandi árs miðað við sama tíma í fyrra. Þá voru alls 6.883 bifreiðar tollaf- greiddar en 3.336. nú. Flokkast þær þannig eftir tegundum: Nýjar fólksbifreiðar 2.708, not- aðar 153 eða 2.861 bifreið alls. Nýjar sendibifreiðar 171, not- aðar 16, alls 188. Nýjar vörubifreiðar 209, not- aðar 39, alls 248. Annars konar bifreiðar nýjar (björgunarbifreiðar, sjúkrabifreið- ar, snjóbifreiðar, dráttarbifreiðar o.fl. 17, notaðar 231 eða 248 alls. ^ - mhg Aukinn út- flutningur á hrossum Útflutningur á hrossum hefur nú aftur aukist að talsverðum mun. Að sögn Birnu Baldursdóttur hjá Búvörudeild SÍS hefur 131 hross verið flutt út á þessu ári en fyrstu 7 mánuði sl. árs voru þau aðeins 64. Flest hafa hrossin farið til Nor- egs en einnig til Svíþjóðar, Dan- merkur, Vestur-Þýskalands, Austurríkis, Sviss, Frakklands og Belgíu. Af þessum hrossum eru 6 stóðhestar. Nú í ágúst fara svo 5 hestar til Bandaríkjanna og verða þeir sendir sjóleiðis, en farið er nú íj vaxandi mæli að flytja hrossin með' skipum í stað flugvéla. - mhg Ástand vega um helgina Að undanförnu hefur verið lagt kapp á að hefía og lagfæra þjóðveg- ina fyrir þennan mesta umferðar- tíma ársins og því eru þeir með besta móti. Um fjallvegina er þetta að segja. Uxahryggir og Kaldidalur: Færir öllum bílum. Steinadalsheiði: Jeppafær og fólksbílafær sé ekið með gát. Tröllatunguheiði: Fær öllum bílum. Steingrímsfjarðarhciði: Mjög blaut og talin ófær. Þverárfjall, milli Húnavatns- sýslu og Skagafjarðar: Fært öllum bílum. Kjalvegur: Fær jeppum og stærri bílum. Sprengisandur, milli Sigöldu og Bárðardals: Fær jeppum og stærri bílum. Skagafjarðarleið: Fær jeppum og stærri bílum. Eyjafjarðarleið: Ófær. Vegur milli Laugafells og Kiða- gils: Ofær. Vegur í Herðubreiðarlindir og Öskju: Fær jeppum og stærri bílum. Gæsavatnaleið: Talin ófær. Vegur í Kverkfjöll: Fær jeppum og stærri bílum. Vegur úr Fljótsdal að Snæfelli: Fær öllum bílum. Hellisheiði eystri: Talin jepp- afær. Vegur milli Borgarfjarðar eystri og Loðmundarfjarðar: Jeppafær. Mjóafjarðarvegur: Jeppafær. Vegur um Öxi: Jeppafær. Lakavegur: Jeppafær. Fjallabaksleið nyrðri: Fær fólks- bílum í Landmannalaugar að vest- an og í Eldgjá að austan. Annars fær jeppum og stærri bílum. Fjallabaksleið syðri: Jeppafær. Vegur úr Fljótshlíð í Hvanngil: Jeppafær. Vegur að Hrafntinnuskeri: Ófær. Nýlega er komið út þriðja heftið af Tímariti Máls og menningar á þessu ári. Þar er haldið upp á aldar- afmæli tékkneska rithöfundarins Franz Kafka og birtar fimm smá-, sögur eftir hann í þýðingu Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þor- valdssonar. Sögunum fylgir grein eftir Ástráð um þennan sérkenni- lega og mikilvæga höfund í bók- menntasögu þessarar aldar. Land- búnaðar- ráðherra ræður aðstoðar I þessu hefti birtist líka grein um söguna af henni Rauðhettu litlu eins og hún hefur varðveist í munn- legri geymd í heimalandi sínu, Frakklandi, eftir franska mann- fræðinginn Yvonne Verdier. Guð- rún Bjartmarsdóttir þýddi. Guð- bergur Bergsson skrifar um þjóðar- einkenni í myndlist, og Keld J»rg- ensen á grein sem hann nefnir Tákneðlisfræði og bókmenntir, um nýstárlegar leiðir í könnun bók- mennta sem á erlendum málum eru kenndar við semiotik. Ádrepa er eftir Gunnar Karlsson á greinar um Karl Marx í síðasta hefti. Að venju eru ljóð í heftinu, að þessu sinni eftir Vilborgu Dag- bjartsdóttur, ísak Harðarson, Lindu Vilhjálmsdóttur, Walt Whit- man og Leandro Urbina, hinir tveir síðastnefndu í þýðingum Sigurðar A. Magnússonar og Vésteins Lúðvíkssonar. mann Jón Helgason landbúnaðarráð- herra hefur nú ráðið sér aðstoðarmann. Er það Bjarni Guð- mundsson, kennari við Bænda- skólann á Hvanneyri. Bjarni stundaði á sínum tíma búnaðarnám á Hvanneyri. Þaðan hvarf hann til framhaldsnáms við landbúnaðarháskólann í Ási í Nor- egi og varð doktor þaðan 1971. Bjarni Guðmundsson Réðist síðan til kennslustarfa á Hvanneyri 1973 og hefur stundað kennslu þar til þessa. Munu aðal- kennslugreinar Bjarna hafa verið bútækni og fóðuröflun. Við óskum Bjarna til hamingju með væntanleg störf hans í ráðu- neytinu. _ mhg „Mikill áhugi á rækju hér eystra” „Við erum mjög ánægðir með árangurinn, en það er verst að þurfa að sigla alla leið á Kópasker til að landa rækjunni. Það er óhætt að segja að það er mikill áhugi á rækjuveiðum hér og margir íhuga þær fyrir næsta sumar", sagði Frið- rik Rósmundsson, skipstjóri á Vot- aberginu frá Eskifirði, sem undan- farið hefur verið á rækju á miðun- um útaf Reyðarfjarðardjúpi og á Héraðsflóadjúpi. Er þetta í fyrsta sinn sem bátur fer á þessar slóðir til rækjuveiða, en undanfarið hafa rannsóknarskip verið að kanna rækjuveiðina þarna og hafa niður- stöður verið mjög jákvæðar. „Við verðum áð landa rækjunni á Kópaskeri, því hér er enginn með vélar til að vinna. Rækjan er svo seld úr landi. Hér á Eskifirði eru menn mikið að velta fyrir sér möguleikum á að vinna rækjuna hér en best væri þó að sjóða hana um borð,“ sagði Friðrik. Votabergið fer nú í slipp í nokkra daga, en síðan sagði Friðrik að haldið yrði aftur á miðin. Rækj- an sem þeir hafa veitt hefur verið stór og góð, allt að 106 stykki í kílói og veiddust 10 tonn fyrstu fimm dagana. „Þetta er í fyrsta skipti í sögunni ■ sem við hér reynum við rækjuna og ég hef trú á að loðnuskipin, sem menn eru nú í hálfgerðum vand- ræðum með eigi eftir að snúa sér að rækjuveiðum“, sagði Friðrik. þs Helgin 30.-31. júll 1983 'ÞJÓÐVlLJlNN - SÍÐ4 17 TMM minnist Franz Kafka tækniskóli fi íslands Byggingadeild Þarf að ráða mann í tímabundið starf við námskeið í landmælingum. Um er að ræða 1/2 dags vinnu í 2-3 vikur í ágústmánuði. Upplýsingar veitir Guðbrandur Steinþórsson deildarstjóri byggingadeildar í síma 84933 kl. 10-12 í dag laugardaginn 30. júlí.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.