Þjóðviljinn - 30.07.1983, Side 18

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.-31. júlí 1983 „Ef einhver heldur að ég sé hræddur þá er eitthvað að” dægurmál (sígiid?) Áöur en við lögðum af stað leituðum við eftir stuðningi hjá MFA (Menningar og fræðslu- sambandi alþýðu). Því eins og þú veist er yfirleitt allt dýrt í kringum svona ferðalög. Hvað um það þessari beiðni okkar var hafnað á þeirri forsendu að við værum of gagnrýnin í garð verkalýðs- hreyfingarinnar. Málið var að sögusvið kabarettsins, Klaka- fjörður, þótti líkjast einu ágætu sjávarplássi um of. Það mátti nefnilega ekki vitnast að verka- lýðsforinginn í þessu plássi var líka einn helsti búðareigandi staðarins.Nú þegar í harðbakka sló lét hann hagsmuni þeirra sem hann átti að gæta sigla sinn sjó og hugsaði um það eitt að verða ekki fyrir áfalli sjálfur. Þetta mátti ekki spyrjast og því fór sem fór. Blm: Kom þessi afstaða MFA ykkur á óvart? Tolli: Nei, verkalýðsforystan gerði allt sem í hennar valdi stóð til að brjóta baráttusamtök far- andverkafólks á bak aftur. Við fengum í gegn lög um úr- bætur á hýbýlum farandverkaf- ólks. í lögunum var gert ráð fyrir því að húsnæði farandverkafólks yrðu mannabústaðir. Atvinnu- rekendur fengu aðlögunartíma en hann er nú að renna út og mér vitandi hefur ekkert verið að- hafst. Og meðan verkalýðshreyf- ingin þrýstir ekki á um aðgerðir verða engar úrbætur gerðar. Þetta er allt á sömu bókina lært. Ekkert gert. Fyrir suma er nóg að hafa lög sem eru ekki ann- að en orðin tóm. Herlög ríkis- stjórnarinnar um bann við verk- föllum og lögin um kaupránið hefðu í flestum löndum, þar sem lýðræðishefðin er gömul, orsak- að borgarastyrjöld. Hér sitja allir með hendur á pung og glápa út í loftið. Forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar eru hreinir og klárir aumingjar og láta bjóða sér hvað sem er. Drengirnir frá Chicago Blm: Hefurður trú á því að þessi plata, Boys from Chicago, komi til með að hafa einhver áhrif? Tolli: Ekki ein og sér en hún getur átt þátt í því að breyta skoð- unum einhverra. Vonandi sem flestra. Margt smátt gerir eitt Viðtal við Tolla Kristins um nýja plötu, Strákana frá Chicaco stórt. Menn mega ekki líta á ein- stök tré heldur horfa á allan skóginn. Platan er innleg í baráttu líðandi stundar. Hún er fulltrúi minna viðhorfa og reynslu sem er sameiginleg reynslu fjölda ann- arra. Einstaklingurinn getur haft á- hrif ef hann vill. Við getum ekki sífellt verið að varpa ábyrgðinni yfir á aðra og allra síst á tímum eins og þeim sem við lifum á í dag. Ef einstaklingurinn vill hafa áhrif þá getur hann það. Menn mega ekki vanmeta mátt sjálfs sín og allra síst í dag þar sem við erum að falla á tíma. Við verðum öll að láta heyra í okkur áður en Albert Guð: Ef einhver er hræddur.... Ég var búinn að mæla mér mót við Þorlák Kristinsson, eða Tolla í einu húsi hér í bæ kl. hálf ellefu að kvöldi til þann 25. síðastliðinn. Ekki var stundvísin alveg upp á það besta í þetta sinn hjá honum því hann mætti ekki fyrr en um ellefu. Þegar hann lét loks sjá sig afsakaði hann sig með nokkrum vel völdum orðum. Þegar við erum búnir að koma okkur fyrir þá rétti hann mér textablaðið að plötu sinni. Það fyrsta sem ég rak augun í var „Klakafjarðarblús" og „Kyrriátt kvöld við fjörðinn". Ég spyr Tolla að því hvort þessi lög hafi ekki verið hluti af stærri heild. Tolli: Við fórum af stað með ka- barett hér um árið sem nefndist Klakafjarðarblús. Þetta var fá- mennur hópur sem stóð að þessu og ferðuðumst við á nokkra staði og sýndum kabarettinn fyrir hálf- tómum og tómum húsum. Ikarus og Megas. Frá vinstri: Kommi, Megas, Beggi, Tolli og Bragi Tolli: Platan er innlegg í baráttu líðandi stundar „projektinu“. Það getur allt gerst. Blm: Er þessi hátíð eitthvert framhald af rokk gegn her? Tolli: Já það má segja að þetta sé ósköp eðlilegt framhald af því. Blm: Reynist þér ekkert erfitt að semja texta? Tolli: Ekki get ég sagt það, nóg er að hafa smá rythma og örlítið af myndrænni hugsun. Blm: Áttu einhvern uppá- haldstexta á plötunni? Tolli: Þessu er nú erfitt að svara, ég get bent á texta sem er sæmilega settur saman en svo er dýpri tilfinning í öðrum og þeir eru mér kærari. Nei, ég get ekki svarað þessu. Blm: Hvers vegna er platan tví- skipt, annars vegar rafmögnuð lög og hins vegar órafmögnuð? Tolli: Upphaflega átti platan að vera órafmögnuð, aðeins söngur og kassagítar. Það átti fyrst og fremst að reyna að koma þeirra sannfæringu til skila sem að baki liggur. Því ég er hvorki góður gítarleikari eða söngvari. Við fórum síðan að bæta inn á upptökurnar hljóðfærum og það var eins og þá opnaðist nýr heimur. Það myndaðist mjög góð stemming hjá strákum sem ég fékk til aðstoðar og það var ansi hraustlega gert hjá þeim að semja þessi lög á svo stuttum tíma því þeir höfðu aldrei leikið saman áður. Blm: Á textablaðinu og á plöt- unni nafngreinir þú og syngur um ýmsa landskunna menn. Ertu ekki smeykur um að það kunni að draga einhvern dilk á eftir sér? Nú glotti Tolli ógurlega. Best að nota sömu orð og „snillingur- inn“ hann Albert Guð. „Ef ein- hver heldur að ég sé hræddur þá er eitthvað að“. kjarnorkusprengjunum rignir yfir okkur. Blm: Hefur það aldrei hvarflað að þér að fara að starfa heill og óskiptur að verkalýðsmálum? Tolli: Gerast atvinnupólitíkus? Nei, þessari spurningu hefur skotið upp í kollinn en allt annað hefur orðið ofaná. Auk þess held ég að ég nái betri árangri með því að standa fyrir utan hinn hefð- bundna vettvang. Blm: Hvers vegna var nafnið Ikarus valið á hljómsveitina? Tolli: Það kom tvennt til. Ör- lög strætisvagnanna og gríska goðsögnin. Það er alveg maka- laust að kaldastríðshræðslan skuli enn vera svona sterk að vörur framleiddar í Austur- Evrópu skuli vera stimplaðar ó- nothæfar aðeins fyrir það eitt að vera frá Austur-Evrópu. Ekki svo að skilja að ég sé neinn aðdá- andi þess stjórnskipulags sem þar ríkir. Þetta sjónarmið að allt sé vont sem kemur að austan en allt gott sem kemur að vestan sýnir mætavel þá tvíhyggju sem nú rík- ir í íslenskum stjórnmálum og yfir höfuð á Vesturlöndum. Blm: Nú bendir nafnið á plöt- unni til ákveðins skóla í hag- fræði... Tolli: Rétt er það. Þessir Chic- agóihagfræðingar, þeirra fylgis- menn og sú hugmyndafræði sem þeir boða er hinn nýi fasismi. Hann er ekki klæddur í neina ■m töfrandi einkennisbúninga. Heldur birtist hann í jakkafötum, hvítum flibba og línuritum. Hér á landi eru allt of margir sem að- hyllast þessa nýju trú. Sjálfstæð- isflokkurinn með fólk eins og eins og Albert Guðmundsson og Ragnheiði Helgadóttur sem vilja „afsósíalisera“ þjóðfélagið. Þau ætla sér að snúa klukkuna til baka og eiga þá ósk heitasta að lenda inn í 19. öldina þar sem hægt var að arðræna hina vinnandi stétt af- skiptalaust. I áróðursstríði núverandi ríkis- stjórnar er alið á menntahatri og vinnuþrælkun. Öllu því sem mið- ur hefur farið í þjóðfélaginu sé háum launum verkafólks að kenna. Mikið voðalega hlýtur hinn almenni verkamaður að vera þrúgaður af sektartilfinn- ingu þessa dagana, hugsaðu þér hann er með heilar 10 þúsund krónur á mánuði. Það er allt hon- um að kenna, ef marka má aðgerðir ríkisstjórnarinnar, hve ástandið er hörmulegt í landinu, hann er að fara með þjóðfélagið til helvítis. Friðarhátíð Blm: Ætlar Ikarus að halda einhverja tónleika á næstunni? Tolli: Við munum troða upp 10. september í Laugardalshöll- inni á friðarhátíð sem þar verður haldin. Annars er aldrei að vita við hverju má búast frá Ikarus

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.