Þjóðviljinn - 30.07.1983, Side 19

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Side 19
Helgin 30.-31. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Afli togara góður i juli Afli togara í júlí hefur verið ágætur að sögn heimildar- manna blaðsins. Þeir hafa mest verið á þorskveiðum í júlí og eru mislangt komnir með skrapdaga sína. Vinna í landi hefur því verið stöðug. Jón Páll Halldórsson fram- kvæmdastjóri Norðurtangans á ísafirði sagði togara á Vestfjörðum hafa fiskað almennt vel, „Það hef- ur verið jafn og góður afli“, sagði hann. „Þeir hafa mest verið á þorski undanfarið og gengið ágæt- lega en dró eitthvað úr eftir síðustu helgi. Grálúðan hjá línubátunum hefur hins vegar verið tregari og þeir fara að hætta á henni. Aðeins þrír línubátar af Vestfjörðum eru á grálúðu", sagði Jón Páll. Kristján Jóhannsson hjá íshúsfé- lagi ísfirðinga sagði að togarar þeirra hefðu báðir landað þrisvar í júlí og verið með góðan þorsk. Guðbjörg er búin að landa 686 tonnum í júlí og Júlíus Geirmunds- son 590. Þeir verða að taka 20 skrapdaga í júlí og ágúst og eiga þá flesta eftir. Vinna hefur verið mikil í húsinu og oft unnið á laugardög- um frá 7-12“, sagði Kristján. Einar Óskarsson hjá Útgerðar- félagi Akureyrar sagði. afla togar- anna vera upp og ofan en oftast sæmilegan. Þeir eru búnir að landa 1736 tonnum í mánuðinum. Uppá síðkastið hefur það verið þorskur, en hann er fremur smár, áður voru þeir á grálúðu. Vinna hefur verið stöðug í mánuðinum og einu sinni fékkst undanþága á helgarvinnu- banni, því vinna þurfti grálúðu á laugardegi. Kaldbakur landaði síð- ast 27. júlí og er kominn með 492 tonn í júlí, Sléttbakur landaði 25. júlí er kominn með 367 tonn. Harðbakur landaði síðast 20. júlí og er með 413 tonn og Svalbakur er kominn með 463 tonn en hann landaði síðast 18. júlí. Togarar Út- gerðarfélagsins eru allir með tvær landanir í júlí,“ sagði Einar Ósk- arsson. - EÞ. co fT % £ Ifra okkar vegna! ^JU^ERÐAR Nú geta friðarsinnar sungið Frið, já frið eftir Bjargeyju á Hofsstöðum Hér birtum við friðartexta sem Bjargey Arnórsdóttir á Hofsstöðum í Reykhólahreppi samdi við friðarlagið sem Nichole hin þýska varð fræg fyrir. Nú geta fleiri friðarsinnar sungið og sungið hátt, því flestir kannast við lagið: Lífið er ólgandi stormur og stríð stöðugt er beðið um friðsœlli tíð auðvaldsins hroki þó œðir veg sinn ataða vígaslóð. Björtustu vonir sem ölum við enn um eyðingu vopna og friðarins menn rcetast ef sameinuð sœkjum áfram og setjum þá markið hátt. Frið með þjóðum og frið með mönnum hve fagna myndum við friði sönnum en fregnir berast af brœðravígum og blóð til jarðar það streymir heitt. Við lifum ennþá og viljum lifa og Ijóð og sögur í nœði skrifa yrkja lendur og byggja borgir en brjóta ekki í kalda rúst. Angistin myrkvar hin mergsognu lönd morðingjar œða um sólgyllta strönd en fylkingu stœrri með friðarhugsjón fáum við myndað samt. Höfundurinn, Bjargey Arnórsdóttir ásamt fjórum stúlkum úr Austur- Barðastrandarsýslu sem sungu lagið á fundi Herstöðvaandstæðinga þar. F.v. Ingibjörg á Hríshóli, Inga Hrefna, Mýrartungu II og systurn- ar Unnur Björg og Bryndís úr Gautsdal. - Ljósm. GMÓ. Syngjum gleðinnar söng um friðinn söngur þagga mun vopnakliðinn kvœðin höfum við kunnað lengi komið fleiri og syngið með. Syngjum víðar og syngjum hœrra með söngnum náum til vina kœrra virkjum hópana vítt um löndin veljum friðinn en ekki stríð. Frið, já frið og frjálsa menn friðaröld við eygjum senn friðarljós um löndin skín friðar biðja börnin þín. • Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd • Sjálfsákvörðunarréttur þjóða sé virtur • Hlutleysi íslands-gegn hernaðarbandalögum • Friðlýsing N-Atlants- hafs Aldrei aftur Hiroshima! Skráning er í fullum gangi á skrifstofu SHA Frakkastíg 14, Reykjavík. Opið alla daga fram að göngu. Símar: 1 79 66 (sjálfvirkur símsvari skráir skilaboð þegar enginn er á skrifstofunni) og 2 92 12 FRIÐARG Rædumenn f Friðargöngu 33 verða: Ragnar Arnalds Stefánsson Þórunn Friðriksdóttir jóna Ósk Guðjónsdóttir Rúnar Armann Arthúrsson Sólrún Gísladóttir Vésteinn Ólason Vigfús Geirdal Hildur Jónsdóttir sr> Rögnvaldur Finnbogason Bergþóra Gísladóttir Steinbjörn Jacobsen, sérleg- Árni Björnsson ur gestur göngunnar frá Fær- Guðmundur Arni eyjum. Gangan er um næstu helgi laugardaginn 6. ágúst ANGA’83

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.