Þjóðviljinn - 30.07.1983, Síða 22

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Síða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.-31. júlí 1983 um helgina um helgina Jazzað viku fyrir göngu Jazzinn verður við völd í Stúdent- akjallaranum í kvöld. Þar leika af fingrum fram Tómas R. Einars- son bassaleikari, Reynir Sigurðs- son víbrafónleikari og Sigurður Flosason saxófónleikari. Er jazzunnendum sem dvelja í bænum um helgina bent á að gangan í Stúdentakjallaranum er sérdeilis heppileg æfing fyrir Friðargönguna miklu 6. ágúst næstkomandi.- Nefndin. Gallerí Lœjartorg Opin sýning ’83 í Gallery Lækjartorgi hefst í dag sýning er ber heitið „Opin sýning ’83“ en hugmyndin er að út ágústmánuð verði verk lista- manna sem sýnt hafa í G.L. ásamt verkum í eigu Gallery Lækjar- torgs til sýnis og sölu. „Opin sýning ’83“ hefst á því a$ til sýnis verða nýjustu verk Jó- hanns G. af sýningu hans sem haldin var í G.L. 2.-10. júlí s.l. ásamt eldri verkum hans og verk- um í eigu Gallery Lækjartorgs. Verður síðan skipt um verk á sýn- ingunni eftir hendinni. Frá 15,- 20. ágúst n.k. verður sýningin til- einkuð „Reykjavíkurviku", en 18. ágúst á Reykjavíkurborg 197 ára afmæli og er ætlunin að hafa myndverk tengd Reykjavíkur- borg til sýnis. Opið verður virka daga frá kl. 14-18 og sunnudaga kl. 14-22. Aðgangur ókeypis. Skoðunar- ferðir náttúru- verndar- félagsins 6. ágúst Skordýr og skordýrafána skoð- uð. Erling Ólafsson, dýrafræðingur. 13. ágúst. Skordýr og garðagróður, skoðað verður samspil skordýra og gróð- urs. Jón Gunnar Ottoson, dýrafræð- ingur 20. ágúst Skoðaðar verða lágplönturnar mosar, sveppir og fléttur. Hörður Kristinsson, grasafræð- ingur. 27. ágúst Kynnt verður jarðfræði Reykja- víkur og nágrennis. Sveinn Jakobsson, jarðfræðing- ur. 2.-3. september Farin verður einstæð skoðunar- ferð. Nánar kynnt seinna. 10. september Gróður og dýralíf í fjoru, farið verður í fjöru á Kjalarnesi. Karl Gunnarsson, þörungafræð- ingur. Farið ■ verður í ferðirnar frá Norræna húsinu alla laugardaga kl. 1.30. Verð 150 kr. frítt fyrir böriy Islenskur víkingur, stífir mat sinn úr hnefa. Við hlið hans bljúg eigin- kona! Anna Elísabet Borg og Krist ján Jónsson í einu atriða Ferðaleik- hússins í Tjarnarbíói. Ferðaleikhúsið Þetta er fjórtánda sumarið sem Ferðaleikhúsið stendur fyrir leiksýningum í kvöldvökuformi fyrir erlenda ferðamenn á ís- landi, en einnig hefur leikhúsið farið með sýningar víða erlendis, til Bandaríkjanna tvisvar, og á Edinborgarhátíðina í Skotlandi og síðast til West End í London. Þessi uppfærsla á Light Nights er nokkuð breytt frá því sem áður hefur verið. Hún er stærri í sniðum og leikmyndin er nú tví- skipt, annars vegar baðstofa frá síðustu aldamótum og hins vegar víkingaskáli. Light Nights sýnigarnar hafa ekki fyrr verið færðar upp í Tjarnarbíó, en það er mun stærra húsnæði en leikhúsið hefur haft til umráða undanfarin sumur. Sýningarkvöld verða fjögur í viku, það er á fimmtudags- föstudags- laugardags- og sunnu- dagskvöldum og hefjast sýning- arnar kl. 21.00. Light Nights sýn- ingarnar eru sérstaklega færðar upp til skemmtunar og fróðleiks enskumælandi ferðamönnum. Efnið er allt íslenskt, en flutt á ensku, að undanskildum þjóðlag- atextum og kveðnum lausavís- um. Meðal efnis má nefna: þjóð- sögur af huldufólki, tröllum og draugum, gamlar gamanfrásagn- ir og einnig er lesið úr Egilssögu. Á milli atriða eru sýndar skyggn- ur af verkum þekktra listamanna og jafnframt eru fluttar upptökur af íslenskri tónlist. Allt talað efni er flutt af Krist- ínu G. Magnús. leikkonu Yfirlitssýning Yfirlitssýning á þætti íslands í Norrænu menningarkynningunni í Bandaríkjunum var opnuð á ís- afirði í síðustu viku. Sýningin er unnin af mennta- málaráðuneytinu og Menningar- stofnun Bandaríkjannaogverður opin fram til l.ágúst. Frá ísafirði fer sýningin til Borgarness. Kjarvalsstaðir Meistari Kjarval 1 góðum félagsskap Tvær stórar myndlistasýningar eru nú á Kjarvalsstöðum. í Kjarvalssal er sýning á málverk- um frá Þingvöllum eftir Jóhannes S. Kjarval 44, myndum, sem flestar eru í einkaeign, og hafa ekki sést opinberlega fyrr, alla- vega ekki síðustu áratugi, - og er eins víst að bið verði á því að þær verði sýndar aftur opinberlega. Þá er einnig á sýningunni starfs- ferill Jóhannesar S. Kjarval í máli og myndum, þ.e. eftirprentanir, kort og Ijósmyndir í 25 römmum. I vestursal er sýning á listaverk- um í eigu Reykjavíkurborgar, sem keypt hafa verið 1980-1983, samtals 80 verk. málverk, vatns- litamyndir, teikningar, grafík- verk, vefnaður og skúlptúr. Eru þetta verk eftir 55 íslenska lista- menn, sem keypt hafa verið á sýningum í Reykjavík undanfarin þrjú ár. Verk þessi prýða annars hinar ýmsu skrifstofur og stofnanir Reykjavíkurborgar. Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-22 fram til 21. ágúst. tónlist Dómkirkjan: Sunnudagstónleikar verða að vanda haldnir i Dómkirkjunni nú um helgina. Er það organisti kirkjunnar. Marteinn H. Friðriksson, sem leikur á orgel og hefjast tónleikarnir kl. 17.00. Aðgangur er öllum ókeypis. Stúdentakjallari v/Hringbraut: Jazztónleikar [ kvöld. Upphitun fyrir Friðargöngu um næstu helgi. myndlist Norræna húsið Sumarsýning á verkum ÁsgnYns Jóns- sonar í kjallara. ( anddyri er sýning á fslenskum sjófuglum. Listasafn Einars Jónssonar: Safnið er opið daglega frá 13.30 -16.00, nema mánudaga. Nýlistasafnið: Magnús V. Guðlaugsson sýnir málverk í stærri salnum og Marleen Buys sýnir myndverk úr ýmsu efni í minni sal. Sýn- ingarnar eru opnar virka daga kl. 16 - 22 og 14 - 22 um helgar. Sýningunum lýkur 31. júli. Gallerí Vesturgata 17. Sölusýning á verkum 15 félaga úr List- málarafélaginu. Opið virka daga frá 9- 18. Gallerf Grjót, Skólavörðustíg 4a. Sölusýning á skartgripum, grafík, leir- munum, málverkum, skúlptúr hand- prjóni og fl. Opið virka daga frá 12-18. Heilsuhællð Hveragerði. ÓlafurTh. Ólafsson á Selfossi sýnir olíu og vatnslitamyndir fram til 15. ágúst. Þrastarlundur. Valtýr Pétursson er með 10. sýningu sina „off Broadway‘‘. Opiö fra 9-23.30. Gallerí Langbrók: Sýning á glervörum eftir Sigrúnu Einars- dóttur og Sören Larsen og stendur til 7. ágúst n.k. Mokkakaffi: Italski málarinn Ricardo Licato sýnir myndverk sín. Stúdentakjallarinn: Ljósmyndasýning bandarlsku listakon- unnar Jane Reed frá Boston stendur til loka júlímánaðar. íslenskar blómarósir í Árbæjarsafni taka opnum örmum á móti borg- arbúum sem ekki ieggja leið sína úr bænum um helgina. Árbæjarsafn er opið á laugar- dag og sunnudag kl. 13.30-18. Á sunnudag kl. 14 verður farið í gönguferð um Elliðaárdal með kunnugum leiðsögumanni og kl. 16 sama dag verður dúett fyrir fiðlu og lágfiðlu í safninu. Sigur- laug Eðvaldsdóttir og Helga Oddrún leika. Kaffiveitingar eru í Eimreiðarskemmunni vegna viðgerðar á Dillonshúsi. Tónleikar Fimmtudaginn 4. ágúst næstkom-; andi verða haldnir tónleikar á; Kjarvalsstöðum og hefjast þeir kl. 20.30. Flytjendur eru Guðný Ás- geirsdóttir sem leikur á píanó ásamt Jóni Aðalsteini Þorgeirs- syni sem leikur á klarinettu. Á efnisskráni eru sónötur fyrir þessi hljóðfæri eftir Frances Poulanc, C. Saint Saiies og Jóhannes Brahms. "^Þau Guðný og Jón halda nú sína fyrstu tónleika hérlendis en hafa oft komið fram í Vínarborg við mjög góðan orðstír. Má geta þess að þau starfa bæði sem tón- listarkennarar við Franz Schu- bert Conservatorium í Vínar- borg. Sumartónleikar í Skálholtskirkju Helga leikur á sembal Um verslunarmannahelgina hefjast „Sumartónleikar í Skál- holtskirkju“. Verða tónleikar laugardag, sunnudag og mánu- dag kl. 15.00 og síðan þrjár helg- ar í ágúst. Fyrstu tónleikahelgina (versl- unarmannahelgina) mun Helga Ingólfsdóttir leika einleik í sembal. 6. og 7. ágúst flytja Mic- hael Shelton og Helga Ingólfs- dóttir verk fyrir barokkfiðlu og sembal eftir J.S. Bach. 13. og 14. ágúst mun Arnaldur Arnarson flytja einleiksverk á altgítar eftir J.S. Bach og J. Dowland. Síðustu tónleikahelgina sem verður 27. flelga Ingólfsdóttir semballeikari og 28. ágúst mun Manuela Wiesl- er flytja einleiksverk fyrir flautu eftir M. Marais, Magnús Blöndal Jóhannsson og Sven Erik Back. Eins og fyrr segir hefjast sumartónleikar með sembaltón- leikum Helgu Ingólfsdóttur. Á efnisskrá hennar eru þrjú ein- leiksverk eftir J.S. Bach: Prélú- día og fúga í B-dúr, frönsk svíta í Es-dúr og ítalski konsertinn. Að- gangur að tónleikunum er ókeypis. Messað er í Skálholt- skirkju sunnudgagkl. 21.00. Ólafur Th. í Djúpinu , Um þessar mundir stendur yfir : sýning á vcrkum Olafs Th. Olafs- sonar, í Djúpinu við Hafnarstræti í Reykjavík. Ólafur Th. lauk námi frá Mál- aradeild Myndlista- og handíða- skóla íslands vorið 1981. - Er þetta fyrsta einka sýning í Reykjavík. - f haust hyggst hann leggja stund á frekara nám við myndlistaskóla í Vín. Sýningu Ólafs Th. í Djúpinu lýkur miðvikudaginn 3. ágúst. Er hér um sölusýningu að ræða og er aðgangur ókeypis.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.