Þjóðviljinn - 30.07.1983, Qupperneq 26

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Qupperneq 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILjÍNNj Helgin 30.-31. júlí 1983 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Sumarferð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra Að þessu sinni liggur leiðin í sumarferð Alþýðubandalagsins ð Norðurlandi vestra á einn fegursta og sérkennilegasta stað landsins: gljúfrin í þjóðgarðlnum við Jökulsá á Fjölium: Hljóðakletta, Hólmatungur og Ásbyrgi. Ferðin hefst fyrir hádegi Iaugardaginn30. júlíog er miðað við sameiginlega brottför frá Varmahlíð kl. 10. Hópferðir verða frá öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra og veita umboðsmenn ferðarinnar upplýsingar á hverjum stað. Farið verður um Akureyri, Mývatn og Grímsstaði, Ásbyrgi og þaðan upp með Jökulsá vestan megin. Gist verður tvær nætur í tjöldum við Hljóðakletta og efnt til fagnaðar eins og venja er með dagskrá og fjöldasöng. Nægur tími ætti að gefast til skoðunarferða um Gljúfrin á sunnudeginum en á mánudag verður ekið um Tjörnes og Húsavík heim á leið. Þátttakendur hafi með sér tjöld, nesti og annan viðlegubúnað. Þátttökugjald er kr. 1000 en hálft gjald fyrir þátttakendur 14 ára og yngri. Umboösmenn ferðarinnar eru: Siglufjörður: Svava Baldvinsdóttir s. 71429, Sigurlína Þorsteinsd. s. 71406. Sauðárkrókur: Bragi Skúlason, s. 5245, Rúnar Backmann, s. 5684 og 5519. Hofsós: Gisli Kristjánsson s. 6341. Varmahlíð: RagnarArnaldss.6128. Blönduós: Sturla Þórðarson s. 4356 og 4357, Vignir Einarsson s. 4310. Skagaströnd: Ingibjörg Kristinsd. s. 4790. Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson s. 1348, Elísabet Bjarnadóttir s. 1435. Þátttaka er öllum heimil Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra Alþýðubandalagið í Hveragerði SUMARFERÐALAG Alþýðubandalagsfélag Hveragerðis fer sína árlegu sumarferð 12.-14. ágúst n.k. í samstarfi við nágrannafélög sín á Suðurlandi. Að þessu sinni verður farið um Húnavatnssýslu. Gist verður tvær nætur á Hvammstanga í svefnpoka- plássi ásamt góðum samkomusal. Laugardaginn 13. ágúst verður ekið fyrir Vatnsnes og síðan hringveginn um Vatnsdal. Á þessum leiðum eru margir áhugaverðir staðir, hvort heldur sem um er að ræða að ganga á fjörur í fyrirfram þöntuðu sólskini, eða þá að skoða Hvítserk eða telja Vatnsdalshóla svo eitthvað sé nefnt. Farið verður frá Hveragerði föstudaginn 12. ágúst klukkan 3 e.h. Fararstjóri verður Halldór Höskuldsson. Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst til eftirtalinna: Hveragerði: Ingibjörg sími 4259 Selfoss: Kolbrún sími 1714 Guðrún sími 4518 Vestmannaeyjar: Ragnar sími 1177 Sigurður sími 4332 Þetta fólk gefur allar frekari uþþlýsingar. Þægileg og ódýr ferð fyrir fólk á öllum aldri. Allir velkomnir. Alþýðubandalagsfélag Hveragerðis Vinningsnúmer Dregiö hefur verið í happdrætti Foreldra °g kenn- arafélags öskjuhlíðarskóla 20. maí 1983. Þessi númer hlutu vinning 1. VöruúttektfráPfaffkr. 15.000 nr. 6172 i 2. Vöruúttektfrá Pfaff kr. 15.000 nr. 11639 3. VöruúttektfráPfaff kr. 10.000 nr. 9035 4. VöruúttektfráPfaffkr. 10.000 nr. 11207 i 5. VöruúttektfráPfaffkr. 5.000 nr. 8839 6. VöruúttektfráPfaffkr. 5.000 nr. 11806 ! 7. VöruúttektfráPfaff kr. 5.000 nr. 8661 8. VöruúttektfráPfaffkr. 5.000 nr. 11063 I 9. VöruúttektfráPfaffkr. 5.000 nr. 3644 10. VöruúttektfráPfaff kr. 5.000 nr. 8498 11. Vöruúttekt frá Pfaff kr. 5.000 nr. 3251 12. VöruúttektfráPfaffkr. 5.000 nr. 10589 13. Vöruúttekt frá Pfaff kr. 5.000 nr. 7030 14. VöruúttektfráPfaff kr. 5.000 nr. 4574 Vinninga má vitja í símum: 15999 (María Ólafsson), 17711 (Jónína Halldórsdóttir). Þökkum veittan stuðning. I I Hópferðir í AKUREYRI: Friðargönguna 6. ágúst Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni 96 - 25520 Hóþferðir eru áformaðar í friðar- gönguna 6. ágúst, sem fer af stað frá Keflavík um 8.30. NESKAUPSTAÐUR: Valur Þórarinsson 97 - 7690 SUÐURLAND: Ármann Ægir Magnússon 99 - 4260 HÖFN HORNAFIRÐI: Heimir Þór Gíslason 97 - 8426 NORÐURLAND EYSTRA: Sveinn Rúnar Hauksson 96-41479 ÍSAFJÖRÐUR: Ragnheiður Gunnarsdóttir 94 - 4294 EGILSSTAÐIR: Sigrún Benediktsdóttir H: 1228 V: 1283 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Magnús Stefánsson 97 - 5211 BÚR: Stanslaus vinna og fiskurinn alltaf aö smækka Mikil vinna hefur verið hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur í júlí- mánuði og hafa togarar BÚR ekki fiskað jafnmikið í tvö ár. Nær stanslaus vinna hefur verið í fiskiðjuverinu og unnið til klukkan tíu öll kvöld. Undanfarna þrjá laugardaga hefur einnig verið unn- ið í húsinu, en verkalýðsfélögin veittu ekki undanþágu til vinnu í dag að undanskilinni saltfiskverk- uninni. Magnús Magnússon, yfir- verkstjóri, kvað 3000 kassa verða geymda til þriðjudags og þeir ættu von á togara á miðvikudag þannig að útlit er fyrir áframhaldandi mikla vinnu hjá fólkinu. Fólkinu veitir áreiðanlega ekki af laununum, en taxtar verka- lýðsfélaganna ná ekki lágmarks- tekjutryggingunni, sem nú er 10.539 krónurá mánuði. Við þetta bætist síðan bónus-álag, sem getur numið allt að mánaðarkaupi hjá þeim duglegustu. Fólk í fiskiðju- verinu felldi á fundi hjá sér að Unglingarnir í saltfiskverkun BÚR halda áfram að púla meðan aðrir landsmenn hvfla sig um helgina. (Ljósm. -eik). vinna í dag, en unglingarnir í salt- fiskverkuninni ákváðu að vinna í dag. Aflinn, sem togarar BÚR koma með, er sóttur á Vestfjarðamið og er hann mjög smár. Magnús kvað mikið af smáfiski vera í aflanum og sér sýndist mikið af ókynþroska þorski. Magnús sagði, að nú væri svo komið að flökunarvél, sem keypt var á 6. áratugnum til að flaka aflann sem þá barst á land, er nú notuð á einungis 70-80 fiska á dag, svo mjög hefði fiskurinn smækkað. „Það er orðin hending að sjá almennilegan fisk“, sagði Magnús að lokum. ast Póstur og sími Stofngjald kr. 2982 í hækkar úr kr. 3500 Póstur og sími hefur nú fengið heimild til 18% gjaldskrárhækkun- ar. Gildir hin nýja gjaldskrá fyrir símann frá 1. ágúst en fyrir póstinn frá 1. sept. Breytingar á símagjöld- um eru einkum þessar: Stofngjald hækkar úr kr. 2.982 í kr. 3.500 og símnotandi greiðir fyrir talfæri og uppsetningu tækja. Gjald fyrir umframskref fer úr kr. . 1,14 í kr. 1,35 og ársfjórðungsgjald fyrir heimilissíma úr kr. 484 í kr. 575. Venjulegt flutningsgjald fyrir síma á sama gjaldsvæði hækkar úr kr. 1.491 í kr. 1.750. Þá hafa verið ákveðin gjöld fyrir bílasímaþjónustu, þ.e. símtöl til og frá bílastöðvum og handstöðvum með handvirkri þjónustu. Stofn- gjald er kr. 3.500 fyrir hverja stöð og afnotagjald kr. 575 árs- fjórðungslega. Afgreiðslugjald er kr. 3,90 fyrir hvert samtal og mín- útugjald kr. 7,80 fyrir hverja byrj- aða mínútu innanlands. Ofan á allt þetta bætist svo bless- aður söluskatturinn. - mhg. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Vinnugleði um verslunar- manna- helgina Hvar veröur hinn sósíalíski æskufjöld um komandi verslunarmannahelgi? Að sjálfsögöu viö leik og störf á landssvæði sínu í Sauðadölum. Á þeim stað áformar Æskulýðsfylking Abl. byggingu nýs skála ungra sósíalista og fyrsta skóflustungan verður tekin um næstu helgi. Dagskrá verður eitthvað á þessa leið: Föstudagskvöld 29. júlí: Tjaldað í jaðri Svínahrauns og sungnir baráttu- söngvar. Laugardagur 30. júlf: Vettvangskönnun um hádegið. Lóðin okkar hreinsuð, brunarústir gamla skálans fjarlægðar og gamlar girðingar teknar Uþp. Laugardagsganga um fjöll og firnindi undir leiðsögn gjörkunnra manna. Sameiginleg grillveisla. Kvöldvaka undir stjórn hins góðkunna Tarsans. Sunnudagur 31. júlf: Hátíðardagskrá eftir hádegið á við það sem best gerist. Fyrsta skóflustungan tekin að nýja skálanum. Pólitísk þredikun. Frjálsíþróttamót á vegum íþróttadeildar ÆF. Grillið kynt og vakað um kvöldið. Athuglö: Þátttakendur verða sjálfir að koma sér og sínu á staðinn, spyrjið til vegar hjá Litlu kaffistofunni ef þið eruð ekki viss um staðháttu. Takið með nesti og nýja skó. Þeir sem þannig eru lundaðir, geta slepþt því að tjalda, en litið við á svæðinu um bjartan dag. Nánari uþplýsingar á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins. Æskulýðsfylklng Abl.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.