Þjóðviljinn - 03.09.1983, Page 2

Þjóðviljinn - 03.09.1983, Page 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.-4. september 1983 skammtur Af Billy Graham Þaö var einhvern tímann fyrir óralöngu, aö þessi skrítna öfugmælavísa varö til: Á Mogganum er mikið puð menn þar trúa ekki á guð. En eitt er víst og það er það. að Þjóðviljinn er kristið biað. Tæplega var viö því aö búast aö nokkur lifandi sála tæki minnsta mark á þessum samsetningi, frekar en þessari gömlu góöu: Þar sem ei til sólar sést á sandi hús ég reisi. í upphafi er allra best umhugsunarleysi. En það undarlega skeði, hvort sem það nú var vísukorninu að þakka eður ei, aö guörækni stórjókst í Mogganum eftir aö því hafði veriö haldið fram, í fram- angreindri vísu, að Þjóðviljinn væri kristilegra blaö en Morgunblaðið. Morgunblaöiö fór sem sagt að birta reglulega boð- skap Billys nokkurs Grahams, bandrísks predikara, sem mér er sagt aö sé á góöum vegi með aö verða heilagur maður í lifanda lífi, vegna guðhræöslu, mann- vits, sannleiksástar, kærleiks og spádómsgáfu. Skoöanir Sjálfstæðismanna og -kvenna mótast aö sjálfsögöu talsvert af þeirri hugmyndafræði og stefnu- mótun, sem birtist í Morgunblaöinu, og er þar vafa- laust fengin skýring á því, sem margir hafa undrast, hvers vegna Hvatarkonur, sem margar eru bæöi aö- laðandi og eigulegar, eru ófáanlegar til aö bindast samtökum viö aðrar konur um að reyna að koma í veg fyrir þaö að lífinu á jörðinni veröi tortímt. Það skeði semsagt í hinni vikunni um leiö og fimm vígdrekar Natóherjanna sigldu inná ytri höfnina í Reykjavík í kurteisisheimsókn, að konur efndu til mót- mælafundar á Lækjartorgi, vel aö merkja ekki til að mótmæla Nató, heldur svona einsog til aö impra á því aö vetnissprengjur væru óæskilegar í samskiptum manna. Aö þessum fundi stóöu: Samtök um kvenna- lista, Landssamband Framsóknarkvenna, Friðarhóp- ar: Alþýðubandalagskvenna, Sambands Alþýöu- flokkskvenna, Kvennaframboösins í Reykjavík og Fóstrufélagsins. Heima sátu aftur á móti: Hvatarkonur og Lands- samband Sjálfstæöiskvenna. Róttækar, friðelskandi konur lögðu þessa fjarvist auðvitað strax útá versta veg og hefur því síðan verið haldið fram, fullum fetum, að Sjálfstæðiskonur eigi enga ósk heitari en þá, að heimsbyggðin og allt sem lífsanda dregur verði sprengt í loft upp sem allra fyrst, óskadraumur þeirra sé semsagt að tortíma lífinu á jörðinni í kjarnorkustyrjöld. Sjálfstæðiskonur segja aftur á móti að þetta séu nú ýkjur, þæf hafi einfaldlega ekki viljað vera með, vegna þess að slagorð fundarins hafi ekki samrýmst utanrík- isstefnú Sjálfstæðisflokksins. En í gegnum þetta sjáum við karlmennirnir, sem höfum þá sérstöðu umfram konur að hafa einkarétt á því að efna til stríða og koma í veg fyrir þau. Við sjáum að Hvatarkonurog aðrar Sjálfstæðiskon- ur hafa í Morgunblaðinu lesið pistla Billys Grahams um stöðu konunnar í samfélaginu og tekið þá sem vísbendingu um stefnumótun Sjálfstæðisflokksins. Billy Graham, spámaður Moggans, kennir það nefni- lega umbúðalaust að konur eigi yfirleitt ekki að vera að skipta sér af því, sem þeim kemur ekki við, eða svo vitnað sé í hann orðrétt: „Maðurinn á að vera höfuð konunnar að sínu leyti eins og Kristur er höfuð safnaðarins. Manninum ber að veita forstöðu í andlegum efnum. Látið hann síðan stjórna, eins og æðstaprest og þér verðið honum til aðstoðar". Mér er nær að halda að meginástæðan til þess, að Hvatarkonur sáu sér ekki fært að sækja friðarsam- komu kvenna á Lækjartorgi, sé eftirfarandi tilvitnun úr Biblíunni, nánar tiltekið úr fyrra bréfi Páls postula til Kórintumanna: Konur skulu þegja á safnaðarsamkomum, því að ekki er þeim leyft að tala, heldur skulu þær vera undirgefnar, eins og líka lögmálið segir. En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eigin- menn sína heima. Því það er ósæmilegt fyrir konur að tala á safnaðarsamkomum (1. Kor. 14. 34-36). Hvað sagði raunar ekki predikarinn forðum: Mætu konur munið það margt er brýnt að segja en kristin fræði kenna að konur skuli þegja. skráargatið Þeir eru líklega ekki margir íslendingarn- ir, fyrir utan forseta íslands, sem hafa fengið mynd af sér í News- week. Íslenski leikarinn, Viðar Eggertsson, nefndur Vidal Egg eða Mr. Egg, hefur heldur betur gert garðinn frægan í útlöndum, því hann hefur verið eitt aðal- númerið á Edinborgarhátíðinni að undanförnu. Og í síðasta liefti af Newsweek birtist mynd af honum og sagt frá sýningu hans, þar sem aðeins einn áhorfandi fær aðgang í einu. Miðaverðið á þessa nýstár- legu sýningu hefur stigið dag frá degi og aðsóknin sömuleiðis og hefur sýning hans nú verið flutt oftast allra sýninganna á hátíð- inni. Margir eiga bágt með að trúa því að Hrafn Gunnlaugsson hafi verið að gera kvikmynd í sumar, svo miklu hljóðara sem hefur verið um þessá mynd en fyrri mýndir Hrafns. Velta menn því fyrir sér hvort hann sé nú með nýtt her- bragð í huga í stað hins fyrra, sem hann notaði í „Okkar á milli“, þ.e. að drekkja öllum fjölmiðlum í frásögnum af myndinni. Var ekki nóg með að þar væru enda- laus viðtöl við hvern sem rak nef- ið inn í myndina um ágæti Hrafns en þegar til kom reyndust gagn- rýnendur og áhorfendur oftast á annarri skoðun. Spurningin er nú: Er þögnin nýjasta her- bragðið? / A Búðum á Snæfellsnesi verður um helgina samkoma kvennalistakvenna. Þar bera þingmenn og óbreyttir saman bækur sínar um kosninga- baráttu, þingstörf og kvenfrelsi; samkoman gengur undir nafninu kvennabúðir meðal aðstand- enda. Lausafregnir herma að eítt af umræðuefnunr á Búðum verði að koma upp sérstakri kvenna- eyju þarsem karlverur mættu ekki stinga niður fæti, og herma sömu heimildir að kvennalista- konur ágimist til þess ama Skjald- meyjareyjar í norðanverðum Breiðafirði. Er nú upp komið hið prýðilegasta þingmál fyrir hinn nýja þingflokk og hlakka margir til að heyra kvennalistakonu flytja jómfrúrræðu um Skjald- meyjareyjar. Helsti heimildar- maður slúðrara um þetta mál taldi hugmyndina um kvennaeyju stórsnjalla, en vildi að gengið yrði feti framar; því ekki að skipta landinu hreinlega í tvennt? Grýlurnar hafa nú tekið sér frí sem slíkar af ýmsum ástæðum og Herdís, sá góði bassaleikari, m.a.s. steinhætt! Linda trommari fer á næstunni í margfrestaða aðgerð vegna meiðsla í hné, en Inga Rún og Ragnhildur nota tímann á meðan í læri; sú fyrrnefnda á gít- ar, sú síðarnefnda hyggst kynna sér sem best elektrónísk hljóðfæri, eða hljóðgervla. Bassaleikarakandídat mun hafa fundist í einhverjum banka borg- arinnar, ogmun að sjálfsögu nota „fríið“ gjörla til að plokka strengina. Skúlagötubyggðin og framtíð hennar er nú undir hnífnum í borgarkerfinu og mið- ur geðslegar hugmyndir hafa komið fram í þeim efnum, m.a. 7 hæða íbúðarblokk, sem skyggja myndi á alla byggð fyrir aftan upp að Skólavörðuholti, og fleira í þeim dúr. Nú hefur heyrst, að íbúar á þessu svæði efni til st'ofn- unaríbúasamtakaíþvískyni m.a. að sporna gegn því að stein- steypubáknin veltist yfir hið frið- sæla Skuggahverfi. fbúasamtökin í borginni hafa á umliðnum árum látið margt gott af sér leiða og virðast kjörinn vettvangur fólks til að glíma við „kerfið“ þegar það ætlar að bólgna út. Mr. Egg í Newsweek.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.