Þjóðviljinn - 03.09.1983, Qupperneq 3
Helgin 3.-4. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Sovéskar herflugvélar
granda farþegaþotu
Fólskuleg árás sovéskra herflugvéla á
suðurkóreska farþegaþotu sem olli dauða
allra þeirra 269 manna sem um borð í
henni voru, hefur valdið mikilli reiði og
ólgu um öll Vesturlönd. Hafa menn að svo
komnu ekki fundið nokkra minnstu skýr-
ingu á þessu athæfi, enda hafa frásagnir
Sovétmanna af þessum atburði naumast
verið annað en loðin ósannindi.
Fréttaskýring
Flugvélin skotin niður
Eftir því sem nú er best vitað
gerðust atburðirnir á þennan hátt.
Suðurkóreska farþegaþotan, sem
var á alþjóðlegri flugleið frá Anc-
horage í Alaska til Seoul á mið-
vikudaginn, villtist inn í lofthelgi
Sovétríkjanna við Kamtchatka-
skaga. Erfitt er að segja hvernig á
þessari villu stóð, en flugleiðin á
þessum slóðum aðeins um hundrað
kílómetra frá lofthelginni, þannig
að ekki þarf mikið út af að bera til
að flugvél berist þangað. Um
klukkan 16 að íslenskum tíma urðu
Sovétmenn varir við farþega-
þotuna, og fylgdust þeir með henni
á ratsjárskermum í tvo og hálfan
tíma, en jafnframt voru orrustu-
þotur sendar á eftir henni.
Um klukkan 18.30, þegar flug-
vélin var komin fram hjá suður-
odda Sakhalin-eyju og stefndi yfir
Japanshaf í átt til Kóreu, skutu so-
vésku orrustuþoturnar hana niður.
Segjast Bandaríkjamenn hafa hler-
að samtöl stjórnenda á jörðu niðri
við flugmenn orrustuflugvélanna
og hafi þeir þrisvar gefið fyrirmæli
um að skotið yrði á suðurkóresku
vélina og þrisvar hafi flugmennirn-
ir tilkynnt að þeir væru búnir að
hleypa af. Samkvæmt þessu hefur
þremur eldflaugum verið skotið og
er það í samræmi við frásögn skip-
verja á japönsku fiskiskipi við
strendur Sakhlin-eyju, en þeir
segjast hafa heyrt þrjár spreng-
ingar og séð þrjá blossa.
Sovéskar leitarflugvélar voru
síðan sendar á vettvang, og var
síðar tilkynnt að þær hefðu séð
olíubrák í sjónum á þessum
slóðum. Er því líklegast að flugvél-
in hafi týnst í hafið og allir farþegar
hennar látist samstundis.
Um borð í farþegaþotunni voru
269 menn, 29 manna áhöfn og 240
farþegar af ýmsum þjóðernum,
m.a. um þrjátíu Bandaríkjamenn
og tuttugu Japanir. Einn farþeg-
anna var bandarískur fulltrúa-
deildarþingmaður, Lawrence
McDonald, demókrati frá Georg-
íu, sem var einn af hatrömmustu
andstæðingum Sovétmanna á
bandaríska þinginu og jafnframt
einn af leiðtogum „John Birch
samtakanna", sem berjast gegn
kommúnistum. Lawrence McDon-
ald var búsettur á íslandi um skeið,
hann var kvæntur íslenskri konu og
átti þrjú börn.
Yfirklór
Sovétmanna
Nokkru eftir atburðinn tók so-
véska fréttastofan Tass að senda út
fréttir um hann, og voru þær bæði
loðnar og mótsagnakenndar.
Kjarni þeirra var á þá leið að ó-
þekkt flugvél, án ljósa, hefði tví-
vegis rofið sovéska lofthelgi og
ekki ansað neinum viðvörunum.
Hefðu orrustuþoturnar verið send-
ar í veg fyrir hana, en hún hefði eigi
að síður farið áfram sína leið.
Bandaríkjamenn vísuðu þessum
skýringum þegar á bug, töldu ó-
sannindi og yfirklór, og kröfðust
menn þess um öll Vesturlönd að
Sovétmenn gerðu hreint fyrir sín-
um dyrum. Víða voru sovéskir
sendifulltrúar kvaddir á fund
stjórnvalda, en þeirgátu ekkert um
málið sagt.
Seint í gær, föstudag, birti So-
vétstjórnin loks nýja tilkynningu
um atburðinn, og viðurkenndi þá
að „viðvörunarskotum" hefði ver-
ið skotið á suðurkóresku farþega-
þotuna, en jafnframt var því haldið
fram að hún hefði greinilega verið
á njósnaflugi í sovéskri lofthelgi.
Sagði í tilkynningunni að flugvélin
hefði flogið í tvær klukkustundir
yfir Kamtchatka-skaga, og greini-
lega af ásettu ráði, og hefðu flug-
mennirnir hundsað allar tilraunir
sovéska hersins til að koma á tal-
sambandi við þá. Tilgangurinn
hefði augljóslega verið sá að ná sér-
stökum upplýsingum með því að
nota farþegaflugvél tii njósnanna.
Loks hefði viðvörunarskotum ver-
ið skotið að vélinni yfir Sakhalin-
eyju, og síðan hefður Sovétmenn
fylgst með henni nokkra stund
þangað til hún flaug út úr því svæði,
sem ratsjárkerfi þeirra náði til.
Þessi tilkynning var lesin upp í
sovéska sjónvarpinu í enda frétta-
tímans. Um svipað leyti var birt
tilkynning í sovéska sendiráðinu í
París, en Gromyko utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna á að koma til
Frakklands í opinbera heimsókn í
næstu viku, og sagði þar að Banda-
ríkjamenn hefðu hafið „hysteríska
áróðursherferð" gegn Sovétríkjun-
um. Talað var um slys á óþekktri
flugvél, sem tvívegis hefði rofið so-
véska lofthelgi, en hvergi var á það
minnst að Sovétmenn bæru nokkra
ábyrgð á slysinu. Telja ýmsir frétta-
skýrendur að ástæðan fyrir því hve
Sovétstjórnin dró á langinn að gefa
einhverja skýringu á atburðinum
hafi verið sú að ráðamenn voru í
Svæðið þar sem atburðirnir gerðust.
óvissu um það hvernig þeir ættu að
meðhöndla málið. Hins vegar vildu
þeir koma í veg fyrir að það leiddi
til þess að Frakklandsferð Grom-
ykos yrði frestað eða henni aflýst.
Hroðalegur
glæpur
Nú er augljóst að ekki er vitað að
svo stöddu um nánari atvik þess að
suður-kóreska flugvélin var skotin
niður við strendur Sakhalin-eyjar.
Ekki er vitað hvert hún hafði villst
né hvers vegna, og ekki eru heldur
neinar upplýsingar um það hvort
hún var skotin niður án viðvörunar
eða hvort flugmaðurinn neitaði að
hlýðnast einhverjum fyrirmælum
sem Sovétmenn gáfu. En taka
verður skýrt fram að ekkert getur
réttlætt á minnsta hátt þennan
hroðalega glæp, - og heldur ekki
það þótt einhverjir trylltir stríðs-
menn á Kamtchatka-skaga hafi
látið sér detta í hug að farþegaþot-
an kynni að vera í njósnaflugi. Hér
er um að ræða svo alvarlegan at-
burð að honum verður að mótmæla
kröftuglega.
En þetta er ekki aðeins glæpur
heldur og líka glópska. Það er
hrein ögrun við venjulega skyn-
semi að slík mistök séu gerð, hvaða
pótintátar Sovétríkjanna, herfor-
ingjar eða pólitískir foringjar, sem
kunna að bera ábyrgð á þeim. Nú
er vitað að Kamtchatka-skagi er
eitt helsta víghreiður Sovétríkj-
anna og er hann þéttsetinn hvers
kyns herstöðvum, eldflaugaskot-
pöllum, flotastöðvum, kafbáta-
lægjum og öðru, og auk þess hafa
verið talsverðar viðsjár á þessum
slóðum undanfarna mánuði. En
Sovétmenn vita, eða ættu að vita,
að Bandaríkjamenn fylgjast með
öllu brambolti þeirra úrgervitungl-
unt, og þurfa tæpast á neinu
njósnaflugi að halda, því síður að
senda þangað klunnalega farþeg-
aþotu.
Gegn
eigin
hagsmunum
Hins vegar er harla ólíklegt að
urn hrein mistök sé að ræða, þar
sem Sovétmenn viðurkenna sjálfir
að þeir hafi fylgst með flugvélinni í
a.m.k. tvo klukkutíma, og orrustu-
þotur þeirra komu svo nálægt
henni að flugmen þeirra gátu séð
hana. Augljóst má því telja að á-
rásin hafi veriö gerð að athuguð
máli. Þess vegna verða menn að
leita ítarlegri skýringa. Vel getur
verið að Sovétmenn hafi mis-
reiknað sig svona hrottalega: þeir
hafi skotið vélina vísvitandi niður
til þess að sýna mátt sinn og megin
og bægja öllu farþegaflugi langt
burt frá þessu svæði svo þeir ættu
auðveldara með að auka hernaðar-
brölt sitt, en ekki gert sér grein
fyrir því í fáfræði sinni - því að
ritskoðun og upplýsingahömlun
Sovétríkjanna keniur um síðir
niður á valdamönnunum sjálfum
og veldur því að þeir gera sér tak-
markaða grein fyrir viðhorfum
utan landsins - hvaða afleiðingar
árásin myndi hafa. Svo gæti jafnvel
verið um að ræða framtak einhvers
herforingja, sem vildi koma KGB-
manninum Andropov í bobba.
„Quem deus perdere vult...“,
„ef guð vill tortíma einhverjum,
sviptir hann þann mann fyrst vit-
inu". Hver sem raunveruleg á-
stæða þessa atburðar kann aö vera,
þá er augljóst að fátt er jafn líklegt
og þessi árás til að vekja reiði
manna gegn Sovétmönnum og efla
jafnframt hernaðaranda í Banda-
ríkjunum. Sovétmenn hafa sýnt
það t.d. með innrásinni í Afghan-
istan, að friðarvilji þeirra er ýms-
um takmörkunum háður, en gera
má þó ráð fyrir því að það sé hags-
munamál þeirra að vígbúnaðar-
kapphlaup risaveldanna hægist eða
stöðvist. Með aðgerðum eins og á- |
rásinni á suðurkóresku farþega- !
þotuna vinna þeir því beint gegn j
sínum eigin hagsmunum.
e.m.j. i
60.000
GESHRHAFA
HEIMSÖrrSÍNINGUNA
JÚ* IÐNSYNING
19/8-4/9
I LAUGARDALSHÖLL
m
FÉLAG ÍSLENSKRA ÐNREKENDA 50 ARA