Þjóðviljinn - 03.09.1983, Síða 12

Þjóðviljinn - 03.09.1983, Síða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.^». september 1983 Hluti myndlistarmannanna, frá vinstri: Kristján Guðmundsson, Ólafur Lárusson, Tumi Magnússon, Þór Elís Pálsson og Jón Örn Ásbjörnsson. Stórsýning að Kjarvalsstöðum Slíkar sýningar eru ferskar og frjó- Hagsmunafélag myndlistarmanna opnar sýningu í dag í dag laugardaginn 3. september, klukkan 16.00, hefst sýning Hagsmunafélags myndlistarmanna, aö Kjarvalsstöðum. Veröur sýningin opin til 18. þessa mánaðar, frá klukkan 14.00- 22.00 alla daga. Þátttakendur í sýningunni eru hátt á fjórða tug talsins og sýna velflestir fleira en eitt verk, eða allt að fimm verkum hver. Eru verkin af ólíkri stærð og gerð og þekja vestursal, ganga og fundarsal. Einnig verða höggmyndir á túninu kringum salarkynnin. Fyrir utan hefðbundin málverk og höggmyndir, verða framdir gjörningar (Performance), sýnd myndbandaverk (Video), hljóð- verk (Audio) verða framin og sýndar verða kvikmyndir. Einnig eru á sýningunni uppsetningar (In- stallation) og umhverfisverk (En- vironment) alls konar. Hér er því um mikla fjölbreytni að ræða í vali efniviðar og aðferða. Hagsmunafélag myndlistar- manna er yngsta félagið í Sam- bandi íslenskra myndlistarmanna. Hins vegar er það hið næstfjöl- mennasta. Það var stofnað árið 1979 og var aðalmarkmið þess að hópa saman myndlistarmönnum, sem af einhverri ástæðu voru ekki í öðrum myndlistarfélögum. Annað markmið félagsins var að sameina öll félög myndlistarmanna í heildarsamtök og náðiþaðmark- mið fram að ganga 15. nóvember 1982. Þá var stofnað Samband ís- lenskra myndlistarmanna (SÍM) og eru nú 6 félög innan þeirra vé- banda. í Hagsmunafélagi myndlistar- manna eru ungir listamenn í meirihluta, fólk sem leggur stund á myndlist, í víðtækasta skilningi. En einnig eru innan vébanda félagsins myndlistarmenn, yngri og eldri, sem stundað hafa myndlist um langt skeið, en ekki notið mikillar skólagöngu né haft tækifæri til að sýna verk sín á öðrum vettvangi. Tilefni sýningarinnar er að stuðla að viðgangi félagsins, sem átt hefur í erfiðleikum með að fá viðurkenningu yfirvalda á starfi sínu. Hingað til hefur félagið ein- ungis verið til á pappírnum, en nú skal láta reyna á alvöru félags- manna. Einnig gefst hér gott tæki- færi til að koma á framfæri verkum og vinnu listamanna, sem nýlagðir eru út á braut myndlistar. Á því er enginn vafi, að stórsýn- ingar af því tagi sem nú er opnuð á Kjarvalsstöðum, eru verðugur vettvangur fyrir myndlistarmenn, sem sýna vilja breidd nútímalistar. sýnmgar eru ferskar og frjó- ar og er skemmst að minnast þeirra tveggja stórsýninga, sem settu svip sinn á bæjarmenninguna á liðnum vetri: UM-sýningin á Kjarvalsstöð- um og Gullströndin andar, að Hringbraut 119. Þær sýningar vöktu verðskuldaða athygli og líf- legar umræður um myndlist al- mennt. Er það von aðstandenda sýningar Hagsmunafélags mynd- listarmanna, að þessi sýning sem nú opnar að Kjarvalsstöðum verði enginn eftirbátur þeirra. Sýningarnefnd þessarar sýningar skipa þeir Þór Elís Pálsson, Tumi Magnússon, Ólafur Lárusson, Jón Örn Ásbjörnsson og Halldór Björn Runólfsson. Sýningunni fylgir veg- leg sýningarskrá í bókarformi með upplýsingum og myndum eftir alla sýnendur. HBR erlendar baekur Vígbúnaðar- kapphlaupið Brian Easlea: Fathering the Unthinka- ble Masculinity. Scientistsand the Nuclear Arms Race. Pluto Press 1983. Brian Easlea hóf feril sinn sem starfsmaður við kjarnorkurann- sóknir í Brasilíu á miðjum sjöunda áratugnum, og þar ákvað hann að hverfa frá þeim störfum vegna þess að hann komst að þeirri niðurstöðu að kjarnorkuvopn væru ekki nauð- synleg til þess að verja vestræna menningu gegn árásar- og ein- ræðisstefnu Sovétríkjanna. Hann vitnar í umsagnir Einsteins um hættuna sem stafar af feigðarflani Bandaríkjanna í kjarnorkuvígbún- aði, sem drægi allan heiminn á eftir á sömu braut og einungis væri hægt að forðast ósköpin með því að gjör- breyta stefnu Bandaríkjanna á þessu sviði, með pólitískum aðgerðum innan þeirra. Easlea álítur að þátttaka Bandaríkjanna í síðari heimsstyrjöld hafi bjargað efnahagskerfi þeirra jafnframt sem það bjargaði Evrópu frá nasískum terror. Bandarískt hagkerfi byggist á eyðslu og stöðugri endurnýjun framleiðsluvaranna þar m.a. stöðugri endurnýjun og endurbót- um á kjarnorkuvopnum. Meðan þessi stefna er ráðandi verður kom- ist hjá fjölda-atvinnuleysi og kreppu. Iðnaðarsamsteypurnar og Pen- tagon eru nátengd, en það var sú staða sem Eisenhower óttaðist hvað mest. En hvað veldur þessu ástandi? Easlea telur að ástæðanna til þessa sé ekki einungis að leita í gróðahyggju, heldur liggi undirrót- in dýpra. Hann telur að kveikjunn- ar að vígbúnaðarkapphlaupinu sé að leita aftur á 16. og 17. öld, ekki síst í kenningum Francis Bacons um að menn geti sigrast á náttúr- unni og umhverfinu með rann- sóknum og vísindalegum aðferð- um, undirokað hana, á sama hátt og karlmaðurinn undirokar kon- urnar. Höfundurinn telur að karlaveld- ið hafi magnast á þessum öldum og einn þáttur þess hafi verið auknar galdraofsóknir, sem beindust svo til eingöngu gegn kvenfólki. Norn- in varð dæmi um hina óbeisluðu náttúru, náttúran sjálf var kven- kyns, jörðin og konan voru tengd, skilningur konunnar var jarðlægur og hvatir hennar og allt eðli var talið spillt, það varð að hemja þetta spiilta eðli og þessar myrku hvatir á sama hátt og menn sigruðust á nátt- úrunni og „tókust á við jarðveg- inn“ (eins og segir í auglýsingu frá jarðýtusölum í dagblöðum ný- verið). Óttinn við „femínu“ var óttinn við það óþekkta og ummyndaðist í hatur, allt veikburða var talið kvenlegt, sem ekki hæfði karl- mönnum, mildi og hlýja var ekki talin karlmannleg og lykilstörf kvenna, barnauppeldi, umsjón heimilisins og matargerð hæfði ekki heldur. Einföld dagleg störf voru sett á óæðri bekk. Bak við þetta felst óttinn við „anímuna" (Jung), sem býr í öllu karlkyns, sem býr í djúpum, sem aldrei verða krufin né skýrð með línuritum. Höfundurinn fjallar um skáld- sögu Mary Wollstonecraft Godwin Shelley, „Frankenstein“, en þar telur höfundur uppdregna mynd af karlmannaveldinu á ystu nöf. Vís- indamaður býr til veru „Franken- stein“, sem er hugsjón karlmann- sins, smátt og smátt breytist þessi vera í hreina ófreskju, sem veit allt getur allt og kemst allt, persónu- gerð framfara, sem leiða aðeins til glötunar, sálarlaus (animan) skepna, merkt dauða og djöfli. Nauðgun náttúrunnar hefnir sín gífurlega og svo getur farið að ör- lög Frankensteins verði örlög manna. Easlea rekur fjölmörg dæmi um afstöðu nútíma kjarnorku- vísindamanna til atvinnu sinnar, hún er fyrst og fremst spennandi, þeir töluðu um að „fæða bomb- una“ og þegar fyrsta tilraunin var gerð dönsuðu þeir af gleði yfir „fullburða fæddu barni". Samlík- ingar þeirra og orðaval á sér hliðstæðu í orðavali klámkjafta og dóna um kvenfólk. Höfundurinn nefnir fjölmörg dæmi um samtal þeirra og skrif varðandi undirbún- ing og gerð sprengjunnar og dá- sömun þeirra á sprengingunni yfir Nagasaki og Hiroshima „skýið hófst upp eins og öflugt stjörnu- hrap, virtist lifandi þar sem það hófst upp í óravíddir háloftanna. Þetta var iifandi vera, ný líftegund, sem var aö fæðu.'.t fyrir augum okk- ar“. Lýsingin á því þegar sprengj- unni var varpað út: „Litli drengur- inn (þ.e. bomban) þrýstist úr kviði B-29“. Og svo dansaði allur vísinda- mannaskarinn í Los Alamos, þegar fréttirnar bárust um „vel heppnaða aðgerð“, drakk kampavín og klæmdist. Karlmaðurinn hafði loks sýnt sig færan um að fæða af sér barn. Frankensteinar nútímans ráða ferðinni og hafa allan heiminn í taumi, hugmyndafræði þeirra mótar mat manna og afstöðu og bjálfalegar draumsýnir þeirra um al-hannaðan heim eru það sem koma skal. í lokakafla ritsins ræðir höfund- urinn um það sem gera þarf til þess að útiloka hættuna af gjöreyðingu, en hann telur hana byggjast á sljóu tilfinningarlífi og heimsku tækniró- bótanna, frankensteinanna, menn skyldu minnast þess að þeir eru hluti náttúrunnar og ef þeir gleyma því þá renna upp „vondir dagar“.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.