Þjóðviljinn - 03.09.1983, Page 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.-4. september 1983
notað og nýtt
Ein sorgleg saga
af vinstrisinnanum
og kynlífsbylgjunni
Eftir aö hafa lagt firnalega á hiö
vinstrisinnaða taugakerfi sitt í
tíu ár meö
hugmyndafræðipælingum og
allsherjarþátttöku í
Hreyfingunum áttaði hann sig á
því eftir martraðir og svitakóf að
æskan var liðin og með henni
ástríðan og löngunin. Hann
vaknaði klukkan sex að morgni
meðfrumhvataöskurámunrii,
greip Málgagnið og fór að lesa
um nýjustu vinstribylgjuna:
kynlífsbylgjuna.
Sem betur fór mátti hér og þar
lesa um þaö hvernig menn höföu
með „sálrænu nuddi“, „gestaltter-
apíu“, „heilsufæði" eða gamaldags
greddu vakið upp aftur svæfðar
langanir sínar. Með því að virkja
leifarnar ef eðlislægri andúð á
áhrifavaldi höfðu þessar mann-
eskjur lokað augum fyrir flokkn-
um, hugmyndafræðina, Marx og
Lenín og öðrum óljósum feðra-
ímyndunum til þess að kasta sér í
hvers annars faðm með fífldirfsku
þess sem brennur í skinninu eftir
lausn. Það var að sönnu ekkert tal-
að um ást heldur hin sjálfsögðu
mannréttindi beggja kynja til blæ-
brigöaríks kynlífs. Hér var um líf-
fræðilega uppreisn að ræða sem var
sjálfhverf vegna þess að í henni fól-
ust mótmæli þrælsins eftir margra
ára ófrelsi.
Ég líka, stundi hann og skalf af
tilhugsun um sjálfan sig sem titr-
andi útfrymi Wilhelm Reich,
sveipað í blátt Ijós stjörnuþoku
fullnægjunnar.
Og hann tók námskeið í tantra-
jóga, rifjaði upp ástaljóðin sem
hann samdi árið 1968, Ias bækur
um Allsherjarfullnægjuna og hugs-
aði um lærin á flokksfélaga Rósu.
Og hann gladdist yfir því að það
gengu öflug taugaboð frá heila
hans og niður - og öfugt. Pólitískir
samherjar skömmuðu hann fyrir
skort á félagshyggju en þeir urðu
honum óverulegir eins og allt ánn-
að meðan á þessari endurfæðingu
stóð.
Og hann ýtti frá sér þeirri freist-
ingu að finna sér einhverja pólit-
íska réttlætingu fyrir fullnægingu
vissra frumþarfa og bauð Rósu í
bíó. Þau sáu njósnamynd og átu
lakkrís. Og undir áhrifum eigin
orgongeisla, vel kryddaðrar pissu
og hinna ópólitísku handa Rósu
fékk hann 35 ára að aldri sína fyrstu
allsherjarfullnægingu - að vísu
ekki nema treikvart. Jafnvel hin
kapítalrökvísa spennitreyja hans
sprakk eins og sést af því að hann
samþykkir hugsunarlaust hið
ómögulega með treikvartupplifun
hins Algjöra.
Svo fluttu þau Rósa inn á neðri
hæð í raðhúsalengju, fengu sér
lítinn Citroén, fengu sér dregla á
gangana, fengu sér arin í stofuna og
eitt barn. í þessari röð. Hér var um
að ræða ólýsanlega framvindu til
hins normala, hins miðjuleitandi
borgaralega lífsmáta, til hinnar af-
brigðilegu meðalmennsku. Bak-
sveifla frá kommúnuhyggju til
kjarnafjölskylduendurfæðingar
innan fjögurra hárra veggja.
Hann þvoði upp og keyrði gam-
aldags barnavagn meðfram Tjörn-
inni og þau Rósa skiptust á um að
vera kynferðilegt andlag í fullkom-
lega andfélagslegu syndafalli.
Skilurðu það ekki, sagði hann
við gamlan vin, sem sat enn ríg-
bundinn í sálrænni kvöð óendan-
legra pólitískra funda, skilur þú
ekki, að byltingin byrjar í þér sjálf-
um, inni í þér, í þínu holdi sjálfu.
Jamm. Það er þinn kroppur sem er
kúgaður. Þú heldur, að þú getir
sigrað óvininn herfræðilega og
hugmyndafræðilega, en meðan þú
og aðrir smíða sér baráttuaðferðir
til að berjast við framsókn borgara-
legra gilda þá kúgar borgaraskap-
urinn þig í sexinu.
En samt skein sólin yfir eld-
flaugakerfin og Reagan og Thatc-
her og aðrir íhaldsdelar söfnuðu
miljónum hins þögla meirihluta
með skelfilegum hraða um þær
hugsjónir, sem með órökvísu eðli
sínu höfðu lagt grundvöllinn að
fasismanum á þriðja áratugnum.
Og þetta lagðist smám saman
þungt á hug hans, rétt eins og píanó
væri lagt á maga hans. Og bylgjur
hins frelsandi holds Rósu fóru að
vekja upp með honum sjóveiki.
Hann byrjaði aftur að reykja
hass eftir morgunmat til að fela
slæma samvisku sína. Og í sam-
skiptahópi nýfrjálsra karla brotn-
aði hann saman með nýfrelsuðum
tárastraumi og viðurkenndi, að
hann hefði slitnað frá sínu pólitíska
akkeri og snerist vitundarlíf hans
eingöngu um hann og Rósu og svo
um aðrar konur, guð hjálpi oss.
Allsherjarfullnægjan var nú
komin aftur niður í áttatíu prósent.
Hann hafði frá æskuárum í
hreintrúarsamfélagi vinstrimanna
orðið sér úti um þroskaða synd-
armeðvitund en allt það voru smá-
munir miðað við það sem hann nú
upplifði. Eftirsamfarabölsýni of-
sótti hann þegar hann - enn með
endurlausnaróp Rósu í eyrum -
laumaðist um nætur til skrifborðs
síns þar sem hann rótaði með
skjálfandi höndum í gömlum fund-
argerðum, drögum að greinum og
svo framvegis.
Herra minn sæll og trúr, stundi
hann. Þetta tungutak! þessi strang-
leiki, þessi rökvísi, þessar glæstu
kröfur!
Hann hvolfdi í sig heimabruggi
og hugsaði með titrandi hjarta til
þess, að hann væri undir tvöfaldri
skothríð, hann væri varnarlaus og
persónulaus aumingi sem flæktist
blindur milli skotgrafa hinnar pó-
litísku framvarðarsveitar annars-
vegar og skotgrafa kynlífs og sjálfs-
upplausnar hinsvegar. Á einskis
manns landi...
AB stældi og endursagði.
sunnudagskrossgátan
387
1 2 3 5 3 fe 9 8 V 4 10 II 5 12
B V 2 14 3 15 9 V II lí /0 á V 19 T8
12. 10 4 19 8 19 $ 12 20 17 7 « 3 21
21 20 nn 12 II « 4 IS Pi 3 8 7 8 II II
20 V 1 b II V 10 H 2 14 « 1 15 V
V 22 15 il 15 14 14 V 7 V 24 1 15 12 15
23 25 9 ll 19 % 2 llV 15 V 3 8 rs
r? II 1/ 5É 3 9 V 27 IS )4
12 1« IS 5 "L ‘S P u isr 4 V 5 2« /9 15
% 12 li '°Ó V 24 15 19 15 19 15 3 V 5
3 23' 4 15 12 2 19 19 V 2 3 8 II II
5 10 9 1 /« 8 k> T~ II 20 V .9 3o X
25 B 9 pn V 2 to IS 2 19 15 3 2 .1 28
AABD ÐEÉ FGHIÍJKLMNOÓPRSTUUVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
fisktegund. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 387“. Skilafrest-
ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
23 3 27 9 /? Lf- 2 1/ /.2 8
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp.
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum. t.d. getur a aldrei komið í stað áog öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu
383 hlaut Eiríkur Jensson,
Bústaðavegi 65. Lausnar-
svarið var Vindheimar.
Verðlaunin að þessu sinni
er bókin „Að haustnótt-
um“ eftir Knut Hamsun,
en það er Almenna bókafé-
lagið sem gefur út.
KNUT HAMSUN