Þjóðviljinn - 03.09.1983, Síða 22

Þjóðviljinn - 03.09.1983, Síða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVlLjINN helgin 3.-4. september 1983 um hclgína Sölusýning I dag opnar sölusýning 4ða árs nema Myndlistar- og handíðaskóla Islands til styrktar ferðasjóðs vegna námsferðar þeirra til Ítalíu. Er sýningin haldin á Básum Lauga- vegi 21 og hefst sumsé í dag kl. 9 og stendur yfir til kl. 19 í kvöld. Þarna er um að ræða æskuverk í dag meistaranna og auðvitað til sölu á vægu verði. Samtímis sýningunni verður selt kaffi og vöfflur með rjóma á hóf- legu verði og ennfremur verður fló- amarkaður á planinu fyrir utan húsið. Mikið um að vera að Lauga- vegi 21 í allan dag. Mánudagskvöld í Kvosinni Listarmnmklúbbur Bandalag íslenskra listamanna hyggst endurvekja starfsemi lista- mannaklúbbs í Reykjavík. Hug- myndin er, að fyrsta mánudags- kvöld hvers mánaðar komi lista- menn saman í „Kvosinni" (Rósen- bergskjallaranum), sér til and- legrar og líkamlegrar hressingar. Aðgang að listamannaklúbbnum eiga allir í félagatali B.Í.L., og einnig er þeim heimilt að taka með sér gesti á meðan húsrými leyfir. Klúbburinn opnar mánudags- kvöldið 5. september n.k. kl. 20.00. Elísa og Hallgrímur í dag laugardaginn 3. september kl. 14.00, opna Elísa Jónsdóttir og Hallgrímur Helgason samsýningu í húsinu við Stýrimannastíg númer 8. _ Á efri hæðinni sýnir Hallgrímur 88 ágætar teikningar unnar á A4- blöð og í kjallara og garði sýnir Elísa keramik og postulínsmuni. Sýningin, sem verður opin frá kl. 14.00-22.00 um helgar og kl. 16.00-22.00 alla virka daga, stend- ur til ellefta þessa mánaðar. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. myndlist_______________________ Kjarvalsstaöir Skipulagssýning í austur-forsal. I tengslum við Norræna bygginga- daginn var Borgarskipulagi Reykjavíkur með sýningu á Kjar- valsstöðum. Sýningin verður opin almenningi fram á sunnudags- kvöld, 4. septemger. Starfsmenn Borgarskipulagsins munu kynna sýninguna og efni hennar á sunnudaginn kemur kl. 16.00 Hagsmunafélag myndlistar- manna opnar sýningu á verkum félagsmanna á laugardaginn kem- ur. Sýningin verður í vestursal, for- sal, fundarsal og í garðinum um- hverfis Kjarvalsstaði. Listasafn alþýðu Ingiberg Magnússon og Sigurður Þórir með sýningu sem stendur til 11. september. Myndlistarskólinn á Akureyri Bragi Ásgeirsson með grafíksýn- ingu. Bókasafn ísafjarðar Málverk og grafík eftir Daða Guðbjörnsson. Til 3. sept. Nýja íþróttahúsið á Akureyri Sýning fimm manna frá Akureyri og Reykjavík. Nýja málverkið. Listmunahúsið Eyjólfur Einarsson með sýningu. Allt til sölu. Opið um helgina frá tvö til tíu. Fjórða árs nemendur MHÍ Listamennirnir Elísa og Hallgrímur á tröppum hússins Stýrimannastígur 8 þar sem þau opna sýningu í dag. Stýrimannastígur 8: Sýning Ljósmyndasafnsins hf Myndir úr verslunum Nú stendur yfir í sýningarsalnum Bólvirki í Versluninni Álafoss, Vesturgötu 2, sýning á gömlum ljósmyndum úr verslunum. Sýningin var opnuð í sambandi ivið Iðnsýninguna ’83 í þeim til- gangi meðal annars að tengja saman verslun og iðnað og sögu þessara atvinnugreina. Þarna eru meðal annars sýndar myndir innan úr ýmsum verslun- um, sem áberandi voru í Reykjavík á fyrri hluta aldarinnar og má þar nefna Verslunina Edinborg, Skó- verslun Lárusar G. Lúðvíkssonar, Véla- og Raftækjaverslunina Heklu og Verslun Marteins Einars- sonar. Sýningin, sem er opin á al- mennum verslunartíma, er á veg- um Ljósmyndasafnsins h/f, Flóka- götu 35 og mun standa til 16. sept- ember næstkomandi. Norræna húsið Gallerí Lækjartorg Aðalsteinn Vestmann með sýn- ingu á vatnslitamyndum. Lokar 4. sept. Básar Laugavegi 21 Fjórða árs nemendur MHl með söl- usýningu í dag. Opið 9-19 í dag. Stýrimannastígur 8 Elísa Jónsdóttir og Hallgrímur Helgason opna í dag samsýningu í húsinu Stýrimannastígur 8 í Reykjavík. Opið 14-22 um helgar en 16-22 virka daga. Opin til 11. september. Norræna húslð Norskir listamenn sýna, Vebjörg Hagene Thoe og Scott Thoe. Sýna veggteppi og málverk. Opið dag- lega frá 1-19 og lýkur sýningunni 13. september. Verslunin Álafoss Ljósmyndasafnið hf. sýnir gamlar Ijósmyndir úr verslunum. Opið á al- mennum verslunartíma fram til 16. september. Úlfarsfell Fánasýning Halldórs Ásgeirssonar á sunnanverðu Úlfarsfelli. Níunda laugardagsferð NVSV________________ Útí óvissuna Níunda laugardagsferð Náttúru- verndarfélags Suðvesturlands til kynningar á fyrirhuguðu Náttúru- gripasafni íslands verður óvissu- ferð, þ.e. það verður ekki gefið upp hvert farið verður fyrr en í byrjun ferðarinnar. Þessi ferð verður farin í stað annarrar sem fresta varð til 17.-18. september og verður það ellefta og lokaferð okk- ar að þessu sinni. Þátttaka íþessum laugardagsferðum okkar hefur ver- ið afargóð og greinilegt er að mjög almennur áhugi er fyrir því að stofnun sem veiti almenna náttúru- fræðslu með stórum sýningarsal, fyrirlestrum, ferðum, góka og tímaritakynningu, litskyggnu og myndbandasýningum og leigu o.s.frv., verði sem allra fyrst komið upp. Leiðsögumaður/menn verða að sjálfsögðu ekki kynntir fyrr en í byrjun ferðar. Farið verður að venju frá Nor- ræna húsinu kl. 1.30. Verð 150 kr., frítt fyrir börn. Komið verður til baka um kl. 7.00. Norskir listamenn í dag laugardaginn 3. sept. kl. 18 ' verður opnuð sýning tveggja norskra listamanna í sýningarsöl- um Norræna hússins. Það eru hjón- in Vebjörg Hagene Thoe, sem sýn- ir veggteppi og Scott Thoe, sem sýnir málverk. Þau eru búsett á Vesturvogey í Lófóten, þar sem þau vinna að list sinni og hafa t.d. unnið mikið að listskreytingum á opinberum byggingum og fyrir einkaaðila. Sýningin í Norræna húsinu verð- ur opin daglega kl. 14-19 og henni lýkur 13. sept. Ráðgert er að Scott Thoe haldi fyrirlestur í Norræna húsinu mánu- dagskvöldið 5. september kl. 20:30 og tali um listamenn í Lófóten. Nánar auglýst síðar. Frisenette aftur Frisenette, dávaldurinn heims- ember mun hann troða upp í Al- kunni, sem hér var á ferð í fyrra er þýðuhúsinu á ísafirði kl. 20.00, aftur kominn til íslands til að leika sunnudaginn 4. sept. kl. 21.00 í listir sínar fyrir landsmenn og gera Miðgarði í Skagafirði og á mánu- ofurlítið grín að þeim í leiðinni. dag mun verða sýning kl. 21.00 í Hann hóf sýningar 1. septemberog Nýja Bíói á Siglufirði. á morgun laugardaginn 3. sept- Þessir sýna um þessar mundir í Listasafni Alþýðu: Ingiberg Magnússon, Pjetur Hafstein Lárusson og Sigurður Þórir Sigurðsson. Ljósm. eik. Sýning í Listasafni alþýðu Málverk og Ijóð Nú stendur yfir í Listasafni al- þýðu við Grensásveg, myndlistar- sýning Sigurðar Þóris Sigurðs- sonar og Ingibergs Magnússonar, en verk hins síðarnefnda eru mynd- skreytingar við Ijóð í nýútkominni bók Pjeturs Hafsteins Lárussonar, í djúpi daganna. Sýning þessi opnaði um sl. helgi og stendur yfir til 11. september. Að sögn Sigurðar Þóris voru til- drög hennar þau að þegar þeir Ingi- berg og Pjetur ákváðu að gefa út ljóðabókina leituðu þeir stuðnings Álþýðusambandsins og var hann veittur með því að ASÍ keypti á- kveðinn hluta upplagsins og það skilyrði jafnframt sett að myndirn- ar yrðu til sýnis í sal Listasafns al- þýðu. Þar sem um stóran sal er að ræða varð það að ráði að myndir Sigurðar yrðu einnig til sýnis. Myndir Ingibergs eru 28, þar af 25 grafíkverk úr ljóðabókinni. Myndir Sigurðar eru 34, 20 olíum- álverk og 14 myndir með blandaðri tækni. Á sunnudag verður uppákoma í tengslum við sýninguna, en þá munu þeir bræður Haukur og Hörður sýna hreyfilist.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.