Þjóðviljinn - 01.10.1983, Page 11

Þjóðviljinn - 01.10.1983, Page 11
Þetta sýnir að vígið hefur þá þegar á 13. öld verið búið að fá nafn sitt. En hvers vegna fóru þeir með Órækju einmitt á þennan stað til að pynda hann? Sennilega vegna þess að í hugum manna hefur Surtshellir tengst óhugnaði. Það hefur verið hluti af pyndingunni. Æ vintýrahellirinn Við klöngrumst nú niður af vígis- brúninni og höldum inn í aðalhell- inn yfir grjótruðninga og slétta stíga þess á milli. Við göngum lengi með kyndla á lofti og munduð ljósker. Hér er svartamyrkur og eins gott að kunna fótum sínum forráð. Eftir langa mæðu sér í birtu og við komum í svokallað miðop. Það er ekki kleift, en stór snjóskafl er í því miðju. Hann hefur ekki bráðnað í allt sumar. Hingað liggur útgönguleiðin að baki vígisins. Við sjáum inn í opið uppi við stóra vörðu sem hlaðin hefur verið nær upp í brún. Og enn höldum við inn í sortann. Og enn er langur gangur þar til lýsir á ný og við komum að síðasta opinu. Hér er hægt að ganga upp og við finnum til viss léttis að eiga þessa útgönguleið, enda erum við farin að lýjast. Ég tek síðustu myndirnar sem ég á eftir á filmunni. En það hefði ég ekki átt að gera því að síðasti hluti Surtshellis sem við eigum nú eftir er fegurstur þeirra allra. í honum mestöllum er rénnslétt ísgólf með þunnu lagi af vatni víða ofan á og ekki erum við komin langt er verða á vegi okkar forkunnar falleg ískerti eða ísfingur sem standa upp úr gólfinu. Er við lýsum á þessa stauta glitra þeir eins og gimsteinar og speglast á undurfagran hátt í vatninu. Við göngum eins og í leiðslu innar og innar. Þetta er sannkallaður ævintýraheimur. Loftið er hélað og lognið er ískalt. Við erum stödd í sjálfri klakahöll- inni. Við göngum langan spöl uns við komum að urð mikilli og hand- an hennar er slétt gólf og á því miðju er varða. Þetta er varðan sem þeir Eggert Ólafsson hlóðu fyrir rúmum 200 árum og hann lýsir í ferðabók sinni. Hér stendur hún enn, en ekki er unnt að greina að innsigli þeirra sé á sínum stað. Vopnalág Við snúum nú við og förum upp við innsta opið, sem áður er lýst, og erum áttavillt þegar upp er komið. Allur Surtshellir mun vera um 1,6 km á lengd og hann er sannarlega þess virði að vera skoðaður, en þá verða líka ljósfæri að vera með í för og helst kunnugur maður. Gangan um hellinn tók á 4. tíma. Það er drjúgur spölur að bílnum og við ákveðum að fara lengra upp í landið á honum eftir Hellisfitjum og koma þar að sem Hellismenn voru drepnir að því er þjóðsagan hermir. Þar heitir nú Vopnalág eða Umsátur og er löng lægð með skeifusniði, þekktur áningarstað- ur. Þorsteinn segir okkur að þegar hann kom þar fyrst hafi botn Vopnalágar verið rennsléttur og grasivaxinn, en nú eru bílar búnir að spæna upp jarðveginn svo að hann er farinn að blása upp. Mött- ull konungur eða Caterpillar? Á heimleiðinni fer ég að velta fyrir mér hvers vegna í ósköpunum fornleifafræðingar hafi ekki tekið mannvistarleifarnar í Surtshelli og gert á þeim rækilega fornleifarann- sóknf „elst mannvirki á íslandi þegar Öxarárfossi sleppir". - GFr Við Vígið. Undankomuleið Hellismanna. Hægt er að skríða inn í næsta helli inn af Víginu og þar opnast nýr geimur með útkomuleið. Við hleðsluna í Vígishelli. Þar hafa alit að 20 menn geta legið undir húðum eða jafnvel tjaldi. Allar heimildir benda til að Hellismenn hafi verið í Surtshelli á 10. öld. Helgin 1.—2. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Minning JóhannaBjarnadóttir Fœdd 29. júní 1889 - dáin 19. september 1983 Elskulegur nágranni - andbýl- ingur um tveggja áratuga skeið er horfin okkur, Jóhanna Bjarnadótt- ir frá Ásgarði. Aldrei hef ég kynnst ljúfari konu né betri og umburðar- lyndari við börn. Hún bjó að Skjólbraut 7 í Kópavogi í litlu húsi, sem alla tíð minnti mig á húsið hennar ömmu hennar Rauðhettu. Þegar drengirnir okkar voru að vaxa úr grasi og gerðust knatt- spyrnuhetjur sparkandi alla daga og fram undir miðnætti á öllum grasblettum í augsýn, opnuðust enn betur augu mín fyrir því, hve Jóhanna var hugljúf og umburðar- lynd kona. Þegar undirteiknaður rauk upp á nef sér við drengina vegna hirðuleysis þeirra og virðing- arleysis fyrir grasgeirum nágrann- anna, kom hún og kenndi mér lexíu í uppeldi barna, sem ég fæ henni aldrei fullþakkaða. Nú er þessi hugljúfi kennari minn í barnauppeldi allur. Ég ætla að ég mæli fyrir munn nágranna okkar - að minnsta kosti þeirra sem börn eiga á ýmsum aldri. Þakklæti okkar fyrir að hafa kynnst djúpviturri konu og einni þeirri umgengnisbestu sem þekk- ist, er utan enda. Hjálmar Ólafsson| Þegar undirritaður byrjaði að vinna við Þjóðviljann fyrir nær hálfum áratug, bjuggu í lítilli íbúð á þriðju hæð í húsi blaðsins að Skóla- vörðustíg 19 hjónin Jóhanna ! Bjarnadóttir og Jón Bjarnason, j sem þá var fréttastjóri Þjóðviljans. | Þau áttu eftir að verða góðkunn- i ingjar mínir, eins og raunar flestir sem unnu við blaðið á þeim tíma eða voru því nátengdir. Vafalaust hafa erfið skilyrði og vinnuaðstaða átt sinn þátt í samheldni þessa til- tölulega fámenna en trausta hóps. Að loknum vinnudegi, sem stundum var í lengra lagi, var oftj farið í kvöldkaffi til Jóhönnu, þó að komið væri fram yfir miðnætti. Þar' var alltaf heitt á könnunni og starfsmenn blaðsins velkomnir. Þá var stundum þröngt í litla eldhús- inu. Sérstaklega veit ég að ritstjór-' arnir, þeir Magnús og Sigurður, voru þar tíðir gestir. Og fyrir kom að undirritaður slæddist þar inn að kvöldlagi og nyti ánægjulegra stunda í þessum góða félagsskap. í þessum fáu línum verður ævi- ferli Jóhönnu ekki gerð nein skil. Raunar veit ég fátt um hennar ævi fram að þessum tíma. Hún var þá kona hátt á sextugs aldri, þegar ég kynntist henni fyrst. En ég minnist hennar sem góðs félaga með einstaklega trausta og þægilegá skapgerð. Veit ég þó að hún var nokkuð skaprík, eins og flest gott fólk. Fundum okkar bar ekki oft sam- an, eftir að hún flutti í litla húsið við Skjólbrautina. En nógu oft til að vita að hún mundi vel eftir okk- ur kunningjunum fra Skólavörðu- stíg 19 og hugsaði hlýtt til okkar. Nú þegar æviskeið þessarar 92ja ára konu er á enda runnið, vil ég þakka þessi gömlu kynni. Ekki að- eins fyrir mína hönd, heldur allra þeirra, sem á þessum árum unnu við Þjóðviljann. Og fyrir hönd blaðsins, sem hún alltaf hélt tryggð við. Jóhanna verður í dag jarðsett á sínum æskuslóðum í Dölum vestur. Blessuð sé minning hennar. Eiður Bergmann Hef flutt lækningastofu mína í Domus Medica, Egilsgötu 3. Engin breyting veröur á bókuöum tímum. Tímapantanir og viötöl í síma 11614. Ellen Mooney, húðsjúkdómalæknir. Innilegustu þakkir til allra þeirra sem veittu aðstoð, auðsýndu samúð og vinar- hug, vegna andláts og útfarar fööursystur minnar, Elínar Þorgerðar Magnúsdóttur Dunhaga 13, Reykjavík. Ingibjörg Magnúsdóttir og fjölsk. Itölsk sófasett Margar gerðir. — Leður- og tauáklæði. — Ótrulega lágt verð. Frá kr. 32.800 Einnig ítalskir leöurstólar Verð kr. 12.900 Húsgöqn og . . . .**. Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar sfmi se 900

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.