Þjóðviljinn - 01.10.1983, Síða 17

Þjóðviljinn - 01.10.1983, Síða 17
Gœðiogverð sem koma á óvart! SAMBANDSVERKSMBJANNA Á AKUREYRI Opið hus i mennmgarmiðstoðinm Gerðubergi nk. laugar- dag 1. október kl. 15.00 Kynnir: Vernharður Linnet. Dagskrá: 1. Páll Pálsson les úr væntanlegri skáldsögu sinni, um Hlemmæskuna. 2. Símon ívarsson leikur á gítar. 3. Elísabet Þorgeirsdóttir les frumort Ijóð. 4. Ólafur Haukur Símonarson les úr nýrri skáldsögu sinni „Vík milli vina“. 5. Sigrún V. Gestsdóttir syngur með undirleik Hrefnu Eggertsdóttur. Kaffistofan opin fyrir og eftir. Allir velkomnir Aðgangseyrir kr. 20 fyrir fullerðna. ABR Brelðholts Helgin 1,—2. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Ásrún og Elísabet ásamt nokkrum skúlptúrum þeirrar síðarnefndu sem ; gerðir eru úr grófum steinleir. Ljósm.: Magnús. Hofmóðugar gyðjur og Brekkufjall Spjallað við Ásrúnu Kristjánsdóttur og Elísabetu Haraldsdóttur sem nú sýna í Gallerí Langbrók Tvær ágætar listakonur sýna nú verk sín í Gallerí Langbrók og eru verk þeirra ákaflega ólík. Þær eiga það þó sameiginlegt að vera báðar í langbrókahópnum og eru auk þess gamlar skólasystur úr Myndlista- og handíðaskólanum. Þetta eru þærÁsrún Kristjánsdóttirog Elísabet Haraldsdóttir. Við hittum þær stöllur að máli í vikunni til að forvitnast dálítið um list þeirra. - Þú ert með silkiþrykk, Ásrún. Mér er sagt að þú notir dálítið óvenjuleg vinnubrögð í myndum þínum? - Já, ég held að þau séu nýjung hér á landi. Ég vinn fyrst grunninn á bómullarefni eða dúk, spreyja hann alla vega og mála, framkalla síðan og strauja. Þá er ég komin með það sem ég ætla að vinna með silkiþrykkaðferðinni. í stað þess að raða hinum ýmsu formum á ákveð- inn veg breyti ég stöðugt um þann- ig að engin mynd verður eins. Þannig er ekki urn endurþrykk að ræða heldur er hver mynd með sínu sniði. Með þessu móti er vinnslan skemmtileg allan tímann og ég upplifi mig aldrei sem vélmenni. Ég nota líka liti sem liggja ofan á efninu en smjúga ekki í gegn. Myndirnar eru síðan settar á kart- on, rammaðar inn og settar undir gler. - Og hvert er myndefnið? - Ég reyni að ná fram hreyfingu eða streymi í hverri mynd og þær eru fígúratífar. Þetta eru gjarnan berir stífir karlar sem halda á van- máttugum konum eða hofmóðugar gyðjur sem halda á fána o.s.frv. - Eruþettaeinhverjarhugsýnir? - Já, þetta eru draumkenndar myndir og kannski dálítið súrreal- ískar. - En þú, Elísabet? Þú ert í leirn- um. - Já, ég vinn allt úr grófum stein- leir. Þetta eru lágmyndir og skúlp- túrar, mest landslagsstemmningar og áhrifin eru frá Brekkufjalli í Borgarfirði. - Þú býrð á Hvanneyri. Finnst j þér ekkert há þér sem listamanni að búa úr leið frá megin- straumnum? - Bæði og. Ég er alltaf hrædd um að missa af einhverju í bænum, sér- staklega á veturna. Annars var gaman að flytja út á land og prófa það, ég er svo mikið borgarbarn. - Voru ekki viðbrigði að flytja frá Vínarborg og beint á Hvann- eyri? - Það voru ofsalega mikil við- brigði, sérstaklega af því að skiptin voru um haust. - En hvað veldur því að einmitt þið tvær sýnið saman? - Við erum náttúrulega gamlar bekkjarsystur og svo er líka spenn- andi að sýna saman af því að við vinnum svo ólíkt. - Ásrún: Upphaflega vann Elsa í fíngerðan postulínsleir en ég var með stór myndverk. Það hefði passað vel saman en nú hefur þetta snúist við. Ég fór yfir í smærri verk- in en Elsa fór að vinna í grófan steinleir. Andstæðurnar eru því meiri en upphaflega var áætlað. Annars kom mér á óvart hvað var þó margt sameiginlegt þrátt fyrir allt t.d. þetta streymi í myndunum hjá okkur báðum. - Er ekki dálítið erfitt um efnis- öflun, Elísabet, þegar búið er á Hvanneyri? - Það er svolítið mál því maður þarf að eiga efni á lager og stundum þarf að sérpanta efni frá útlöndum t.d. í glerung. Það getur orðið tímafrekt að bíða eftir því. í Vín þurfti aldrei að eiga neitt á lager því að þar er allt við hendina. - Hvernig gengur fyrir ykkur að lifa á listinni? - Enginn af okkar kynslóð lifir af listinni en það er mikil lífsfylling í því að fást við sköpun. Það er peningalegt tap en það vinnur sig upp með ánægjunni. - Að lokum. Hvernig gengur með Gallerí Langbrók? - Við vorum nýlega að fjölga hópnum upp í 24 og vonumst til að fá við það meiri fjöibreytni. - Þess skal að lokum getið að Gallerí Langbrók er í Bernhöfts- torfu og sýningin er opin virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18. - GFr ERANN ENN ÁNORÍ og Húsgagnahöllin í Bíldshöiða ei stútíull ai noiðanvörum. Góðum vöium á góðu verði, sem íjúka út jaínharðan. Á hverjum degi fyllum við í sköiðin ettii iöngum. Á boðstólum: Gallabuxur, úlpur, peysur, sokkar, skór í öllum regnbogans litum og mörgum gerðum og barnaíatnaður alls konar. Enniremur: Kvenkápur, kjólar, pils og tiskuvörur úr ull. Líka: Herraíöt, stakar buxur, stakir tweed jakkar, írakkar og eínisbútar. Þar að auki: Teppabútar, áklœðiseíni og gluggatjöld, buxnaeíni, einlitt og teinótt terylene og gullíalleg ullarteppi á gjatverði. Einnig: Teppagœrur, mokkaskinn í mörgum litum, mokkaíatnaður og ____________________mokkahúíur._____ nDTto Og auðvitað: ^000*Máaudag kl. 13 - 18 Garn, m.a. í stórhespum, loðband og lopi. Þiiðjudag ti. 13 - ia Miðvikudag il. 13 - 18 Strœtisvagnaierðir írá Hlemmtorgi: Leið 10.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.