Þjóðviljinn - 01.10.1983, Blaðsíða 19
Helgih 1.-2. októbcr 1983 ÞÍÍH)VILJIi4n - SÍÐA 19
leikana. Það er alltaf eitthvað sem
glatast þegar verið er að hljóðrita
tónleika. Tónleikar geta verið góð-
ir þó allt „sound“ og allur hljóð-
færaleikur sé ömurlegur, einnig
geta hljómleikar verið lélegir þó
allt sé eins gott og hægt er að hugsa
sér. Það er engan veginn hægt að
segja hvernig góðir tónleikar eiga
að vera. Á Sprelllifandi næst ágætis
stemning og ekki er hægt að kvarta
yfir hljóðfæraleiknum og „sound-
inu“. Sem sagt pottþétt hljóm-
leikaplata sem sýnir þann „stand-
ard“ sem Mezzo eru komnir á.
Því má svo bæta við í lokin að
von er á nýrri plötu með Mezzo nú
um áramótin. Vonandi tekst strák-
unum að spj ara sigennbeturíEng-
landi og halda áfram á sömu braut,
ekki skortir þá hæfileikana.
JVS.
íí
,/k kústi i
Aldrei aftur og Svein Nymo
Norrœna húsinu
Það var ljúf stund sl. laugardag í
Norræna húsinu þar sem Aldrei
aftur flutti efnisskrá sína ásamt
Svein Nymo, norskum fiðluleikara
sem hér er staddur á vegum Berg-
þóru Árnadóttur og Þorvaldar
manns hennar. Aldrei aftur er „ó-
rafmögnuð“ sveit, kassagítarar 2
og konrabassi, sem sagt „á kústi",
eins og hljómlistarmenn hafa
stundum þýtt orðið accoustic (acc-
oustic guitar er kassagítar).
A dagskrá Aldrei aftur eru lög
sem Bergþóra Árnadóttir hefur
samið við ljóð þekktra og óþekkt-
ari íslenskra skálda, bæði af eldri
plötum hennar og svo splunku-
nýrri, sem út kom fyrir viku og
nefnist Afturhvarf. Þá syngur
Pálmi Gunnarsson nokkur lög, t.d.
Graða-Rauð Magnúsar Eiríksson-
ar og Hótel Jörð Tómasar. Auk
þess leikur Tryggvi Hubner gítar-
leikari sóló-númer í upphafi dag-
skrár sem undirrituð missti því
miður af umræddan laugardag.
Um þessar mundir státar tríóið af
norskum fiðluleikara sem kemur á
daginn að er ekkert blávatn. Svein
Nymo heitir hann. Saman flytja
þau semsagt dagskrána á kassagít-
ara, kontrabassa og fiðlu. Þessi
ljúfa strengjatónlist fer vel í og með
eyrum eftir stress vikunnar. Þá eru
textarnir ekkert slor og Bergþóra
skilar þeim vel eins og hennar er
vani.
Norsarinn á líka sitt „sólóspott" í
gömlum norskum þjóðlögum, t.d.
brúðarvalsi, og djassrokkuðu
djammi með Pálma og Tryggva,
meðan Bergþóra setti klemmu á
einn af gíturunum, auk þess sem
hann töfraði fram nokkrar perlur í
samleiknum með hinum, t.d. í
Eldinum Bergþóru og Steins.
Flott.
Semsagt hægt að hafaða notalegt
í Norræna húsinu á mánudags-
kvöld kl. 9 og Gerðubergi á mið-
vikudag. Svein Nymo mun síðan á
förum til síns heima uppúr því.
A.
r
Ymislegt á döfmni
Nokkrir punktar
frá Bridgesambandinu
Aðalfundur Bridgesambands ís-
lands, verður haldinn helgina 27.-
28. október nk. Einhver vand-
kvæði virðast vera í starfssemi B.í.
til að mynda liggur ljóst fyrir að nv.
forseti, Kristófer Magnússon, gef-
ur ekki kost á sér áfram og óvíst
hver tekur við af honum.
Að vísu verður að játa, að vand-
ræði af þessari tegundinni, hafa oft
áður verið fyrir hendi. En það er
fleira sem spilar inn í, og munu
málin vonandi skýrast fyrir aðal-
fundinn.
Efnt verður til íslandsmóts í tví-
menning í kvennaflokki og blönd-
uðum flokki (karl og kona saman)
helgina 21.-23. október nk., og
mun skráning þegar hafin í þessi
tvö mót. Á síðasta keppnistímabili
var efnt til íslandsmóts í sveita-
keppni í kvennaflokki, sem tókst
með ágætum og vonandi munu
þessi mót öll vinna sér fastan sess í
mótshaldi á vegum Bridgesam-
bandsins í framtíðinni.
Annasamt verður í landsliðsmál-
um næsta ár. Á dagskrá eru alla
vega þrjú mót, Norðurlandamót í
opnum flokki næsta sumar, Evr-
ópumót í yngri flokki einnig næsta
sumar og loks olympíumót í opnum
flokki næsta haust. Ljóst er, að vel
verður að halda á málum, þannig
að besta liðið hverju sinni fari utan
til keppni. Og það jöfn eru okkar
bestu pör í dag, að ekki sýnist á-
stæða til annars, en að menn fái að
spreyta sig í þessum efnum sem
öðrum, á jöfnum grundvelli.
Sú nýbreytni verður tekin upp á
næsta ári, að héðan mun fara sveit
á svokallað Bikarmót Norður-
landa, sem sænskt sórfyrirtæki
stendur fyrir. Fyrirtækið býður
einni sveit á þetta mót frá öllum
Norðurlandaþjóðum, alls 5 sveit-
um og loks verður 1 sveit frá þeim
sjálfum fyrsta árið. í framtíðinni
mun sjötta sveitin verða skipuð sig-
urvegurum frá árinu á undan. Nán-
ar síðar.
Miðvikudagsþœttir
aftur á dagskrá
Bridge á miðvikudögum, þáttur
með félagsfréttum o.fl. hefur hafið
göngu sína á ný og mun birtast
reglulega í vetur.
Því miður mun það vera á dag-
skrá hjá helgarblaðsmönnum í
Þjóðviljanum að takmarka
(minnka) „föstu" þættina í blaðinu
á næstu mánuðum og er ekkert
nema gott um það að segja. Les-
endum þáttarins er því vinsam-
legast bent á miðvikudagsþáttinn.
Allt efni sem berst blaðinu hefur
verið birt, og mun svo verða í fram-
tíðinni.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Haust-tvímenningskeppni fé-
lagsins hófst sl. miðvikudag, með
þátttöku 42 para. Spilað er í 3x14
para riðlum, og mun keppnin
standa í 4 kvöld. Eftir 1. kvöldið er
röð efstu para þessi:
stig
1. Ólafur Lárusson -
Hermann Lárusson 198
2. Hallgrímur Hallgrímsson -
Sigmundur Stefánsson 194
3. Georg Sverrisson -
Kristján Blöndal 191
4. Guðmundur Sveinsson -
Þorgeir P. Eyjólfsson 191
5. Helgi Nielsen -
Alison Dorseth 184
6. Guðlaugur R. Jóhannsson -
Örn Arnþórsson 182
7. Guðmundur P. Arnarson -
Þórarinn Sjgþórsson 181
8. Ásgeir P. Ásbjörnsson -
Guðmundur Sigurbergsson 179
9. Jón Baldursson -
Hörður Blöndal 176
10. Valgarð Blöndal -
Þórir Sigurstcinsson 173
Keppni verður framhaldið næsta
miðvikudag í Domus.
Frá TBK
Aðaltvímenningur TBK hefst
fimmtudaginn 6. október n.k. Spil-
að verður í Domus Medica og hefst
spilamennskan kl. 19.30. Keppnis-
stjóri verður Agnar Jörgenson.
Keppendur geta skráð sig í síma
83381 (Steingrímur), 78570 (Guð-
mundur), þá fer skráning einnig
fram hjá keppnisstjóra á keppnis-
stað.
Frá Bridgefélagi
Breiðholts
Hausttvímenningur félagsins er
hafinn og er spilað í 2 riðlum, alls
24 pör. Efstu pörin eftir 1. kvöld:
A-riðill: stig
1. Heimir Tryggvason -
GísliTryggvason 178
2. Anton Gunnarsson -
Friðjón Þórhallsson 176
3. Gunnlaugur Guðjónsson -
Þórarinn Árnason 175
4. Garðar Garðarsson -
Friðrik Jónsson 174
B-riðrill:
1. Tómas Sigurjónsson -
Hjálmar Pálsson 182
2. Kjartan Kristófersson -
Friðjón Margeirsson 169
3. Hjálmar Fornason -
Helgi Skúlason 169
4. Jósep Sigurðsson -
Þorvaldur Valdimarsson 165
Meðalskor 156.
Keppni stendur yfir í 3 kvöld og
er spilað í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Keppnisstjóri er Her-
mann Lárusson.
HAUSTTILBOÐ!
3. Bógur
4. Hnakkadrambur
5. Hryggur
7. Rifjasteik
10. Höm — Læri
11. Skanki og tær
140. - kr. kg. tilbúið í frystinn
Sundurhlutun séð utan frá
Ath!
Við seljum allt
lambakjöt á lága
verðinu - allan
október.
Komið -
hringið og fáið
upplýsingar.
1. Háls 6. Þríhyrningur
2. Herðakambur 7. Hali
3. Framhryggur 8. Háls
4 Þunnasteik 9. Bógur
5. Þykkasteik 10. Bógur
11 Skanki
12. Síða
13. Klumpur
14. Innanlærisvöðvi
15. Kviðstykki
16. Kvióstykki
17. Slag
18 Skanki
Sundurhlutun séð innan frá
1. Háls
2. Herðakambur
3. Hryggur
6 Þríhyrningur
7. Hali
11. Skanki
12. Síða
13. Klumpur
15. Kviðstykki
16 Kviðstykki
17. Slag
18. Skanki
19. Lundir
20. Bringa
21. Innanlærisvöðvi
129? kr. kg.
Flokkur U.N. I
Tilbúiö í frystinn
Ath. Biðjið um bók
Arnar og Örlygs
um nautakjöt og
svínakjöt og margt
skemmtilegt kem-
ur í Ijós.
OPIÐ A
LAUGARDÖGUM
KJOTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2.S.86SII