Þjóðviljinn - 01.10.1983, Side 22
22 SÍÐA ^ ÞjÖÐVlLjIbfN Héígin'Ú-^2’ Ótöober Í983 “
um helgina
leiklist
Leikfélag Reykjavíkur
Sýningar á Forsetaheimsókninni
hefjast aftur í dag, laugardag.
Verður sýnt kl. 23.30 í Austurbæj-
arbíói.
Þjóðleikhúsið
Skvaldur er sýnt áfram við fögnuð
áhorfenda. Gert grín að öðrum
gamanleikjum.
Leikfélag Kópavogs
Gúmmí-Tarsan er frumsýndur í
dag, laugardag. 20 manns koma
fram í sýningunni.
myndlist
Myndlist: i
Kjarvalsstaðir
Sýningin í minningu Sigurjóns Ól- !
afssonar á Kjarvalsstöðum stend- j
ur út næstu viku. Þar er að verki ;
hinn kunni Septem hópur, sem i
Sigurjón var þátttakandi í meðan I
hans naut við. Sýningin er opin frá i
kl. 14-22.
Gallerí Lækjartorg
Sýningu Sigrúnar Ólsen og Ge-
orgs Fray lýkur um þessa helgi.
Opið frá kl. 14-22.
Ásgrímssafn
Haustsýningin stendur nú yfir.
Opið á sunnudögum, þriðjudögum
og fimmtudögum frá kl. 13.30-
16.00.
Listasafn alþýðu
Nú um helgina lýkur sýningu á i
Vetrarmynd. Þar sýna Bragi Hann- j
esson, Baltasar, Magnús Tómas- j
son og Þorbjörg Höskuldsdóttir. !
Opið frá kl. 14-22 um helgina. j
Djúpið '
Niðri í Djúpinu stendur yfir sýning ;
Dags Sigurðarsonar og verður hún
opin til 2. október. Djúpið er sem i
kunnugt er náið tengt veitinga- !
staðnum Horninu.
Gallerí Landbrók
Ásrún Kristjánsdóttir sýnir silki- í
þrykk og Elísabet Haraldsdóttir ;
keramikmuni. Sýningin verðuropin j
um helgar frá kl. 14-18 og virka :
daga frá kl. 12-18.
tónlist
tónlistarskólinn Akureyri
Sýning Samúels Jóhannssonar á :
málverkum, teikningum og grafík í l
húsi tónlistarskólans að Hafnar- j
stræti 81 stendur til 2. október.
i
ýmislegt_______________________|
MÍR-salurinn
Á morgun sunnudag kl. 16 verða j
sýndar 3 stuttar kvikmyndir í MÍR- |
salnum sem lýsa heimsóknum ís- j
lenskra stjórnmála- og mennta- i
manna til Sovétríkjanna fyrr á J
árum. Afar forvitnilegar myndir j
meðal annars úr för árið 1954 og ;
þegar Geir Hailgrímsson fór austur
fyrir nokkrum árum.
Norræna húsið - Gerðuberg
Samtök áhugamanna um kvik- j
myndagerð eiga afmæli um þessar !
mundirogerþessminnstmeðsýn- '
ingum norrænna verölaunakvik- i
myndá. í dag verða sýndar nor- !
rænar verðlaunakvikmyndir í Nor- i
ræna húsinu kl. 14 og á morgun ,
verða sýndar íslenskrar kvikmyndir
kl. 15 i Menningarmiðstöðinni j
Gerðubergi.
Á mánudagskvöld kl. 21 verðatón-
leikar í Norræna húsinu með tríó-
inu Aldrei aftur (Bergþóra, Pálmi
Gunnars og Tryggvi Hubner) og
norska fiðluleikaranum Svein
Nymo. Þau spila aftur í Gerðu-
bergi á miðvikudagskvöld.
Félagsheimili Fáks
Félag harmonikkuunnenda heldur
skemmtifund á morgun, sunnudag
frá kl. 15.00.
Kattavinafélagið
Á Hallveigarstöðum hefst í dag,
laugardag kl. 14 kökubasar og
flóamarkaður Kattavinafélagsins.
Safnahúsið
á Selfossi
Sýning á
heimilis-
iðnaði
í gær opnaði Heimilisiðnað-
arfélag íslands í samvinnu við
„Kvenfélagasamband sunn-
lenskra kvenna" sýningu á
j heimilisiðnaði í Safnahúsinu á
Selfossi. - Sýningin er opin nú um
helgina frá kl. 14-22 báða dag-
ana.
Sýningarmunir eru fengnir að
láni hjá 34 einstaklingum auk
nokkurra muna úr safni og versl-
íslenskur heimilisiðnaður er til
sýnis á Selfossi um helgina.
un félagsins.
Á sunnudag kl. 16 verður sér-
hannaður fatnaður úr íslenskri ull
sýndur. - Aðgangur er ókeypis.
Úr leikritinu Gúmmí-Tarsan sem Leikfélag Kópavogs frumsýnir í dag. j
Leikfélag Kópavogs frumsýnir í dag
GúmmíTarsan
í dag, laugardaginn 1. október
frumsýnir Leikfélag Kópavogs
söngleikinn Gúmmí-Tarsan. Þýð-
inguna annaðist Jón Hjartarson
upp úr samnefndri bók Ole Lund
Kirkegárd, sem náð hefur mikl-
um vinsældum á öllum Norður-
löndunum fyrir bækur sínar.
Um 20 manns koma fram í sýn-
ingunni sem sett er upp á lifandi
hátt með tónlist og söngvum.
Það gefur að líta ýmsar athygl-
isverðar persónur, svo sem Tars-
an sjálfan og kærustuna hans,
einnig er þar hópur af öpum,
skógarpúki, krókódíll og galdra-
norn ásamt fullt af venjulegu,
skemmtilegu fólki.
Sagan fjallar um dreng sem
Ingunn
sýnirgler
Sýningu Ingunnar Benedikts-
dóttur á speglum og steindu gleri
í kaffistofu Norræna hússins, lýk-
ur nú um helgina. (2. okt.).
Aðsókn hefur verið mjög góð
og flest verkin selst.
Úr Skvaldri Þjóleikhússins
stenst ekki alveg samkeppni við
skólafélaga sína, hvorki innan
skóla né utan, og hvernig lífið
getur verið þeim sem svoleiðis er
ástatt fyrir.
En stráksi er heppinn, hann
hittir galdranorn og við það
breytist tilveran heldur betur.
Þessi sýning er fyrsta verkefni
leikfélagsins síðan hafist var
handa við breytingar á húsnæði
þess við Fannborg í Kópavogi.
Leikstjóri Gúmmí-Tarsans er
Andrés Sigurvinsson, leikmynd
og búninga hannaði Karl Aspe-
lund en Lárus Björnsson sér um
lýsingu.
I þessari sýningu verður frum-
flutt tónlist sem Kjartan Ólafsson
hefur samið við leikritið.
Þjóðleikhúsið
Skvaldur
Skvaldur eftir Michael Frayn
verður á dagskrá Þjóðleikhússins
nú um helgina, en leikritið var
frumsýnt um síðustu helgi við
stórgóðar undirtektir. 5. sýningin
verður laugardagskvöldið 1. okt-
óber og er uppselt á þá sýningu,
og 6. sýningin verður sunnu-
dagskvöldið 2. október. Skvald-
ur er, eins og fram hefur komið í
fréttum, glórulaus farsi, hláturs-
stykki sem gerir stólpagrín að'
leikhúsi og vondum gaman-
leikjum. Þetta verk hefur nú
fengið afar lofsama dóma
gagnrýnenda, enda er hér á ferð-
inni meistaralega samansett gam-
anleikrit. Leikstjóri er Jill Brooke
Árnason, en með hlutverkin
fara: ÞóraFriðriksdóttir, Gunnar
Eyjólfsson, Sigríður Þorvalds-
dóttir, Bessi Bjarnason, Rúrik
Haratdsson, Tinna Gunn-
laugsdóttir, Sigurður Sigur-
jónsson, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir og Þórhallur Sigurðsson.
Finnska vefnaðarsýningin á Kjarvalsstöðum hefur vakið athygli og er
það farandsýning sem farið hefur víða.
Kjarvalsstaðir
Um síðustu helgi var opnuð
stórglæsileg sýning á finnskum
vefnað á Kjarvalsstöðum. Þar
sýna fimm listakonur, þ.e. þrjár
kynslóðir textíllistamanna, í allt
35 verk sem öll eru unnin á síð-
ustu árum. Sýning þessi er far-
andsýning, sem hefur verið sett
upp á öllum Norðurlöndunum,
og vakið hvarvetna feikna át-
hygli. Þrjár listakvennanna komu
i jvain
Eyfirðingafélagið í Reykjavík
býður eldri Eyfirðingum í kaffi á
Hótel Sögu á morgun sunnudag
og verður húsið opnað kl. 1.30.
Á fyrri kaffidögum hefur oftast
verið opinn basar, þar sem marg-
víslegir munir hafa verið til sölu.
Eins verður að þessu sinni, en
fullyrða má, að aldrei fyrr hefur
úrval varnings á basarnum verið
gjafavara, sem konur í Eyfirð-
ingafélaginu leggja fram til
styrktar félaginu. Ætíð hefur öll-
um ágóða verið varið til góðgerð-
arstarfsemi og menningarmála
nyrðra.
Kammermúsíkklúbburinn
Tónleikar á morgun
Starfsár Kammermúsíkklúbbsins er að hefjast og á morgun sunnu-
daginn 2. október verða haldnir Beethoven tónleikar í Neskirkju'kl.
20.30 og eru flytjendur Erling Blöndal Bengtsson og Árni Kristjáns-
son.
Flutt verður tónverk eftir Beethoven fyrir cello og píanó: 1) Sónata
op. 5 nr. 2, 2) Tilbrigði op. 66 um lag Mozarts „Ein Madchen oder
Weibchen" úr Töfraflautunni, 3) Sónata op. 102 nr. 1 og 4) Sónata od
102 nr. 2. F'
Finnskurvefur
til landsins til þess að setja upp
sýninguna og vera við opnun
hennar: Eeva Renvall, Airi
Snellman-Hanninen og Kirsti
Rantanen. Kirsti Rantanen flutti
einnig fyrirlestur um listvefnað í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands.
Sýningin verður aðeins opin í
rúmar tvær vikur, eða til 9. októ-
ber. Verkin eru öll til sölu.
Sýningu Ragnars
Kjartanssonar
Lýkur um
helgina
Sýningu Ragnars Kjartans-
sonar í Listmunahúsinu lýkur um
helgina.
Á sýningunni eru um 50 verk,
lágmyndir og höggmyndir, en
sýningin er haldin í tilefni 60 ára
afmælis myndhöggvarans.
Sýningin er opin á laugardag
og sunnudag frá kl. 14.00-18.00.