Þjóðviljinn - 01.10.1983, Side 28
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra startsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins I síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Helgin 1.—2. október 1983
Slippfélagið í Reykjavík
Ölhim starfismöimum sagt upp
Öllum starfsmönnum Slippfélagsins {Rey kj avík sem eru á
sjöunda tug hefur verið sagt upp störfum frá og með næstu
áramótum. Var öllum starfsmönnum Slippfélagsins afhent
uppsagnarbréf I gær undirritað af nýráðnum aðstoðarfram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
f uppsagnarbréfinu til starfs-
manna segir að helstu ástæður upp-
sagnar af hálfu félagsins séu mjög
slæm afkoma síðastliðið ár og fyrir-
sjáanlegt sé að afkoman muni enn
versna á yfirstandandi ári. Vegna
þessa er aílt skipulag og allir starfs-
hættir félagsins nú í gagngerri end-
urskoðun. „Stefnt er að því að end-
urskipulagningu verði lokið sem
fyrst, væntanlegar lausar stöður
auglýstar lausar til umsóknar og að
endurráðning starfsfóiksins verði
lokið fyrir 1. desember næstkom-
andi“, segir í uppsagnarbréfinu til
starfsmanna sem Jón Sævar Jóns-
son aðstoðarframkvæmdarstjóri
undirritar.
í tilkynningu frá stjórn Slippfé-
lagsins sem Þjóðviljanum barst í
gær segir hins vegar að til að
tryggja hag félagsins og starfs-
manna þess í framtíðinni hafi verið
ákveðið að taka rekstur og aílt
skipulag innan félagsins til gagn-
gerrar endurskoðunar. Það séu
hinir almennu erfiðleikar í efna-
hagsástandi þjóðarinnar sem hafi
bitnað á Slippfélaginu, ekki síður
en örðum atvinnufyrirtækjum í
landinu.
-Ig-
Hallgrímur Sýlveríusson trúnað-
armaður starfsmanna í Slippnum
„Kom alger-
lega á óvart“
„Þetta kom okkur algerlega á
óvart, við höfum ekki heyrt um
þetta fyrr en við fengum uppsagn-
arbréfin í hendurnar. Auðvitað eru
menn hér ekkert hrifnir af þessari
sendingu“, sagði Hallgrímur Sýlv-
eríusson trúnaðarmaður starfs-
manna í slippnum hjá Slippfélaginu
þegar Þjóðviljinn ræddi við starfs-
menn þar i gær.
Verkamenn voru mjög undrandi
á þessum uppsögnum, næg vinna
væri í slippnum og frekar vantaði
starfsmenn en hitt.
„Við vitum ekki hvað þeir hugsa
sem stjórna þessu fyrirtæki. Að-
stoðarframkvæmdastjórinn sem
skrifar undir uppsagnabréfin er bú-
inn að starfa hér í 2 mánuði. Við
höfum fæstir séð hann sjálfan.
Manni hefði fundist eðlilegra að
þessi mál hefðu verið rædd við okk-
ur áður en uppsagnabréfum er út-
deilt á alla starfsmenn", sagði einn
verkamanna í slippnum. „Svona
lagað hefur aldrei gerst hér áður,
og menn voru algerlega óviðbúnir
þessu. Það er öllum sagt upp yfir
heilu línuna. Síðan ætla þeir að
velja úr hópnum. Hérna eru margir
búnir að vinna í tugi ára sem hafa
fengið uppsagnarbréf. Maður hélt
að svona lagað þekktist ekki
lengur", bætti starfsfélagi hans við.
Það var þungt hljóð í verjca-
mönnum sem blaðið ræddi við og
þeir sögðust ekki hafa hugmynd
hvað tæki við. Þessi mál yrði að
ræða í verkalýðsfélögum þeim sem
starfsmennirnir eiga aðild að, en
margir eru félagar í Dagsbrún.
„Það er einkennilega staðið að
þessu öllu. Við höfum fæstir séð
þennan mann sem er að segja okk-
ur upp vinnunni", sagði einn
verkamanna þegar við skildum við
hann í Slippnum í gær.
-Ig-
Starfsmenn Slippfélagsins lesa uppsagnarbréf sín í slippnum í gær. Frá v.: Oddur Ólafsson, Jón Guðmunds
son og Hallgrímur Sylveríusson trúnaðarmaður starfsmanna.
/
Uppsagnirhjá Alafossi
17 sagt upp í spunadeild
17 starfsmenn hjá spunadeild Ála- spunadeildinni fara í önnur störf flestir starfsmenn, þar af nokkrir
foss fengu uppsagnarbréf sl. innan fyrirtækisins. Allir þeir sem sem starfað hafa hjá fyrirtækinu
fimmtudag og í gær. Fimm aðrir úr fengu tilkynningu um uppsögn eru um nokkurra ára skeið. Atvinnuör-
yggi starfsmanna hjá Álafossi virð-
ist vera með lakara móti uppsagnir
blaða við 16 starfsmönnum sem
unnið hafa í svokölluðu treflaverk-
efni fyrir Sovétmarkað. Því verk-
efni verður lokið seinni part nóv-
embermánaðar.
Að sögn Guðjóns Hjaltasonar
framkvæmdastjóra hjá Álafossi
koma uppsagnirnar til af miklum
samdrætti í útflutningi á bandi fyrir
handprjón. Samdráttur var að sögn
Guðjóns mestur á tímabilinu maí -
september, og þar sem öll eftir-
spurn er komin fram í handprjóna-
bandinu sáum við okkur ekki ann-
að fært en að, segja upp þessu
starfsfólki “, sagði Guðj ón. - Jafnt
mun vera á komið með konum og
körlum í hópi þeirra sem fengu
uppsagnarbréfið. -hól.
MUNK) UNDIRSKRIFTASOFNUNINA
TRBlSRJM
3WNtNGSRE?T