Þjóðviljinn - 18.11.1983, Síða 15
Föstudagur 18/ nóvémber 1983 ÞJÓÐVILJINN M-SÍÐAÚIS
íþróttir Víðir Sigurðsson
Evrópuslagur í kvöld:
Hvað geraFH
ingamir í
„útileiknum”?
í kvöld rennur upp stóra stundin
hjá 1. deildarliði FH í handknatt-
leik . Kl. 20.30 leika þeir fyrri leik
sinn við Maccabi Tel Aviv frá ísrael
í IHF-keppninni. Það er „úti-
Þorgils Óttar gæti reynst ísraelum
skeinuhættur um helgina.
Helgar-
sportið
Handknattleikur
Ekkert verður leikið í fslands-
mótinu, nema hvað 2. flokkur karla
verður á ferðinni með „turnering-
ar“ alla helgina. Evrópu- og lands-
leikir eru í fyrirrúmi, ísland og
Bandaríkin leika landsleiki í
kvennaflokki kl. 19.15 f Laugar-
dalshöll í kvöld og kl. 15 á Selfossi á
morgun. FH mælir Maccabi frá ís-
rael í IHF-keppninni í Laugardals-
höll kl. 20.30 í kvöld og í Hafnar-
firði kl. 20 á sunnudagskvöldið. í>á
leika KR-ingar síðari leik sinn við
Berchem í Luxemburg á morgun.
Körfubolti
Úrvalsdeildin á fullu að vanda,
nú er það 7. umferð. Suðurnesja-
slagur verður í Njarðvík kl. 20 í
kvöld þegar nágrannarnir úr ÍBK
koma í heimsókn. Á morgun kl. 14
leika Haukar og Valur í Hafnarfirði
og er rétt að ítreka þá tímasetningu
því leikurinn átti upphaflega að fara
fram á sunnudagskvöld. Loks mæt-
ast ÍR og KR í Seljaskólanum kl. 20
á sunnudagskvöldið.
Prír leikir verða í 1. deild k venna.
Snæfell og Njarðvík leika í Borgar-
nesi kl. 19 í kvöld, Snæfell og 1R á
sama stað kl. 14 á morgun og loks
Haukar og KR í Hafnarfirði kl.
15.30 á morgun.
Blak
f kvöld mætast Völsungur og ÍS í
1. deild kvenna að Hafralæk og
hefst leikurinn kl. 20. ÍS-stúlkur
leika síðan við KA í Glerárskóla á
Akureyri kl. 14 á morgun. Á sunnu-
dagskvöld kl. 19 mætast síðan Vík-
ingur og Fram í 1. deild karla í
Hagaskóla og þar á eftir leika Vík-
ingur og Þróttur í 1. deild kvenna.
Frjálsar íþróttir
Fjórða vfðavangshlaup vetrarins
fer fram á Selfossi á morgun, laug-
ardag, og hefst kl. 14 á íþróttavell-
inum. Keppt verður í tveimur
flokkum, karlar hlaupa 10 km og
konur 4 km.
Badminton
Tveir þekktir unglingameistarar
frá Danmörku verða meðal þátttak-
enda í afmælismóti Víkinga sem
■haldið verður í Laugardalshöll á
morgun og sunnudag. Mótið hefst
kl. 13 á morgun og er reiknað með
mikilli þátttöku alls staðar að af
landinu.
Ieikur“ FH og fer hann fram í
Laugardalshöllinni, en síðari
leikurinn verður í Hafnarfirði kl.
20 á sunnudagskvöldið.
Sigri FH-INGAR ísraelana eru
þeir komnir í 8-liða úrslit keppn-,
innar þannig að til mikils er að|
vinna. Sem stendur er FH lang-
sterkasta lið hér á landi og er um
þessar mundir það eina sem á virki-
lega möguleika á að ná langt í Evr-
ópukeppni. Það sama gildir
reyndar um Maccabi, liðið mun
vera það langsterkasta í ísrael.
Leikurinn í kvöld er 35. Evrópu-
leikur FH sem fór fyrst í Evrópu-
keppni fyrir 18 árum. Sigurleikirnir
til þessa eru 13, jafntefli 2 en töpin
19. Vonandi tekst FH-ingum að
fjölga sigurleikjunum um tvo um
helgina.
Á undan, eða kl. 19.15, verður
„forleikur“ og hann ekki af lakara
taginu, landsleikur íslands og
Bandaríkjanna, sá annar í röðinni
en sá fyrsti var í gærkvöldi. Það
verður því sannkölluð handknatt-
leikshátfð í Höllinni í kvöld og
vafalítið streyma unnendur íþrótt-
arinnar þangað um kvöldmatar-
leytið. - VS
Góður sigur
Laugdæla
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
karla í körfuknattleik í gær-
kvöldi. IS vann Skallagrím 80:54 í
íþróttahúsi Kennaraháskólans og
Laugdælir unnu góðan sigur á
Grindvíkingum, 72:67, í Kefla-
vík. Staðan að þessum leikjum
loknum er þannig:
Fram........6 6 0 486:366 12
ÍS..........6 4 2 482:390 8
Grindavík...6 3 3 416:414 6
Laugdælir....4 2 2 282:257 4
ÞórAk........5 2 3 376:377 4
Skallagrímur.7 0 7 387:625 0
- GFr/VS
Staðan
Staðan í 1. deild karla í hand-
knattleik eftir sigur Stjörnunnar
á Víkingi í fyrrakvöld:
FH...........6 6 0 0 179:109 12
Víkingur.....6 4 0 2 133:126 8
Valur........6 3 1 2 129:127 7
Stjarnan.....6 3 1 2 111:127 7
KR...........6 2 1 3 107:101 5
Þróttur......6 2 1 3 121:131 5
Haukar.......6 1 1 4 118:137 3
KA...........6 0 1 5 1 05:146 1
Lítið er vitað um næstu leiki í
deildinni en heyrst hefur fleygt að
einhverjir fari fram á miðviku-
dagskvöidið.
Ingunn Bernótusdóttir gnæflr yfir bandarísku vörnina og skorar með þrumufleyg. Mynd: Magnús.
„Sigurinn kom sann-
arlega á óvart”
„Þessi sigur kom mér svo sannar-
Iega á óvart. Við áttum ekki von á
að sigra þetta bandaríska lið og
stefndum einungis að því að halda í
við þær. Sóknarleikurinn gekk vel
upp og vörnin var mjög sterk. Við
stefnum á annan sigur í leiknum
annað kvöld, og ég er mjög bjart-
sýn á að það takist,“ sagði Erla
Rafnsdóttir, fyrirliði kvennalands-
liðsins í handknattleik í samtali við
Þjóðviljann í gærkvöldi. Hún og
stöllur hennar höfðu þá lagt Banda-
ríkin að velli í Seljaskóla 23:22, í
fjörugum og hörkuspennandi leik.
Leikurinn var hnífjafn lengst af.
Bandarísku stúlkurnar gerðu tvö
fyrstu mörkin en ísland svaraði
með fjórum og leiddi nánast allan
fyrrihálfleik. Ihléivarstaðan 11:9,
fslandi í hag.
Bandaríkin jöfnuðu, 12:12, í
upphafi síðari hálfleiks og síðan var
jafnt upp að 16:16. Þá náði ísland
forystu sem ekki var látin af hendi
eftir það, komst í 21:18 og síðan
23:20 tveimur og hálfri mínútu fyrir
leikslok. Bandarísku stúlkurnar
skoruðu tvö síðustu mörkin og
voru í hörkusókn þegar flautað var
til leiksloka. Vel sloppið en sann-
gjarn íslenskur sigur þegar á
heildina er litið.
Leikurinn var virkilega góður og
sýndur ágætis handknattleikur á
löngum köflum. Besti kvenna-
leikur sem undirritaður hefur séð.
Liðin voru mjög áþekk og allt
stefnir í tvo hörkuspennandi lands-
leiki í kvöld og á morgun.
Viðar Símonarson er greinilega
á rétti leið. íslenska liðið lék agað-
an og yfirvegaðan handknattleik
með stórgóðu línuspili en 16 mark-
anna komu af línu eða úr horni.
Erla Rafnsdóttir, Erna Lúðvíks-
dóttir og Guðríður Guðjónsdóttir
áttu langbestan leik. Erla grípur
allt í Iínunni, Erna býr yfir
sprengikrafti og Guðríður er ógn-
andi, fiskaði þrjú víti sjálf og á góð-
ar línusendingar. Ingunn Bernót-
usdóttir náði sér þokkalega á strik
þegar á leið og Kristín Pétursdótt-
ir, Oddný Sigsteinsdóttir og Mar-
grét Theódórsdóttir sýndu ágæta
takta.
Mörk íslands: Guðríður 8(5), Erla 6, Erna
4,lngunn 2, Kristfn 2 og Margrét 1.
Mörk USA: Jónes 8, Wright 4, Wynn 3,
Hale 3, Lindsay 2, Stinger 1 og Stone 1.
Rögnvaldur Erlingsson og Stefán Arn-
aldsson dæmdu ágætlega.
- vs
1. deildin í sundi um helgina:_
Þrjú komin heim frá
N orðurlöndimum
Þrjú íslcnsk ungmcnni sem
dvelja erlendis eru komin heim til
að taka þátt í 1. deild bikarkeppn-
innar í sundi sem fram fer í Sund-
höll Hafnarfjarðar um helgina.
Þau eru Ragnheiður Runólfsdóttir
frá Akranesi sem dvelur í Svíþjóð,
Tryggvi Helgason frá Selfossi sem
þar hefst einnig við og Kristín Guð-
mundsdóttir úr Ægi sem býr í Dan-
mörku.
Keppnin hefst kl. 20.20 í kvöld
og heldur áfram kl. 15 á !au irdag
og á sama tíma á sunnudag. Fimm
lið eru í 1. deild, Ægir, Selfoss, ÍS,
Njarðvík og SH, en síðastnefnda
félagið kom uppúr 2. deild. Ár-
mann hefur þegar tryggt sér 1.
deildarsæti næsta vetur og leysir af
hólmi liðið sem neðst verður eftir
sundspretti helgarinnar. Reiknað
er með hörkukeppni, um met og
stig, þar sem megnið af besta sund-
fólki landsins mætir til leiks í Firð-
inurn.
Knattspyrnudómarar tóku sig til í vikunni og útncfndu fallegasta
mark sumarsins í 1. deildinni. Fyrir valinu hjá þeim varð sigurmark
Páls Ólafssonar gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í ágúst. Páll skaut
þá óvæntu skoti af vítateigshorni í bláhornið fjær á Breiða-
bliksmarkinu og Þróttur sigraði þar með 3-2. Sá sigur vóg reyndar
þyngst í að Þróttarar héldu sæti sínu í 1. deildinni. Á myndinni að
ofan tekur Páll við sinni viðurkenningu úr hendi fulltrúa Þýsk/
islenska verslunarfélagsins sem hefur undanfarið ár verið dómur-
um innan handar með auglýsingar og ýmsa starfsemi.
- VS