Þjóðviljinn - 20.12.1983, Síða 2

Þjóðviljinn - 20.12.1983, Síða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN JÓLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS 1983 góðu menn, sem vígðir eru tii þess að útbreiða og kenna boðskap frelsarans frá Nazaret sáu allt í einu, í gegn um ljósið sem kveikt var, að mikil hætta er á ferðum fyrir mannkynið allt. Þeir snérust gegn voðanum með öflugum friðarboðskap. Þeir boðuðu frið á jörðu sem einu lausnina, sem komið gæti til greina okkur öllum til bjargar. Fagnandi tók mannfjöldinn undir. Víðsvegar voru farnar friðargöngur miljóna manna og mótmælafundir voru haldnir gegn kjarnorkuvá. Fólk hópað- ist út á götur og stræti og bað um frið, hrópaði um frið. Svo öflug varð þessi hreyfing að sumir valdsmenn breyttu um tón í ræðum sínum. Þannig getur enn hið góða sigrað. Það er ekki nýtt í veraldarsögunni að fram hafa komið boðberar sann- leikans, hins góða og fagra. Þeir hafa komið þegar mest á reið, þegar hættan var mest. Þeir hafa þrýst á rofann, sem kveikir ljósið, ljós guðs, sem lýsir um alla jörð. Við skulum hafa þetta hug- fast á þessum jólum og ganga í lið með þeim, sem útbreiða eftir mætti kenn- inguna um frið á jörðu. „Frið læt ég eftir hjá yður.Minn frið gef ég yður“ sagði Jesús og frá er sagt í guðspjalli Jóhannesar 14. kap. 27. versi. Jólin eru friðarhátíð. Þau koma til okkar þegar vetrarmyrkrið er svartast. Þau eru hátíð frelsarans, sem fæddist um þessar mundir í þennan heim. Þá var kveikt á friðarljósi þessa heims, ljósi sem aldrei má slokkna og aldrei slokknar ef við stöndum um það vörð. Það er ljós hins góða, ljós guðs, en hann er allsstaðar nálægur ef við leitum hans og viljum þiggja gjafir hans án eigingirni og sjálfselsku. Á þessum jólum sem nú fara í hönd, skulum við sameinast þeim tugmiljón- um manna um allan heim, sem biðja um frið, frið, frið. Guð gefi okkur öllum gleðileg jól. Stefán H. Halldórsson JÓLIN eru tími hvíldar og friðar. í tilefni þeirra sendir Alþýðusamband íslands launafólki og samherjum þess óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. I Jólahugleiðing eftir Stefán H. Halldórsson Tíminn líður. Sumarið er gengið hjá garði og haustið að baki. Við erum nú stödd í mesta skammdegi ársins, í vetrarveðrum, stundum stríðum. En ef við höfum augun opin sjáum við af og til í heiðan himin með tindrandi stjörn- um og bragandi norðurljósum. Allt í kring um okkur er sjáanleg undrafeg- urð náttúrunnar. Jafnvel íregninu, sem fell.ur í dropatali á stéttina eða á gang- stíginn heima. Jafnvel í storminum sem þýtur við gluggann má heyra mar- graddaða hljóma. Allt er þetta okkar heimur, okkar tilvera, ljúf og þýð eða hörð og grimm en alltaf fögur. Við lifum og hrærumst í þessum heimi, sem guð gaf okkur í upphafi. Sem guð gaf okkur segi ég. Og hvers vegna segi ég það? Jú, vegna þess að allt, sem okkur er gefið er frá guði komið, hinu ósegjanlega volduga og góða afli, sem í öllu alls staðar býr. Við sjáum það ekki með okkar augum. En við finnum það ef við leitum og beitum hugarorku okkar til þess. Því fleiri sem saman koma og stilla huganum að sama marki til bænar um betra og fullkomnara líf, þeim mun meiri verður árangurinn. Dr. Helgi Pjeturss, sá mikli vísindamaður kallaði þetta stillil- ögmálið. Eitt er víst og staðfest af mörgum að með hugarorku einni sam- an geta menn gert ótrúlega hluti. Ég hef aldrei heyrt talað um það, að hægt sé að beita þessu afli til þess að gera öðrum illt eða valda skaða. Það er því allt af hinu góða og frá guði komið. Guð er hið góða afl, sem getur bjargað frá böli og illum tíðaranda, bjargað villtum hugsunum og athöfnum manna. Ef við reynum að kveikja ljós, þá notum við til þess eldfæri eða straum- rofa. Með öðrum hætti kviknar ekki ijós og við sitjum áfram í myrkrinu. Hið sama gildir um guðsljósið. Ef mað- urinn er orðinn svo fullkominn og máttugur í allri sinni tæknivæðingu að hann þarf ekki framar að leita til æðri máttarvalda, þá heldur hann áfram að sitja í myrkri ótta og skelfingar við sín eigin verk. Við höfum dæmin fyrir augunum. Alltaf er verið að setja upp fleiri og fleiri drápstæki, fullkomin tækniundur, sem eytt geta öllu lífi á jörðinni á svipstundu. í skugga þessar- ar óheillaþróunar og við þessar aðstæð-' ur sest vonleysi og kvíði að miljónum manna. Af þessum sökum breytist at- ferli og hugsun manna ósjálfrátt. Eng- inn getur verið glaður undir þrúgandi ótta, sem lamar alla frjálsa hugsun. Hér breytir engu um þó að fávísir menn reyni að réttlæta ástandið eins og það er nú. Aldrei, aldrei á sögulegum tíma hefur heimurinn verið í meiri hættu en nú. Þetta eru staðreyndir sem allir vita en sumir vilja ekki skilja. Stefán H. Halldórsson Enginn sigrar í þeim hildarleik, sem framundan er. Enginn af valds- mönnum heimsins mun sigra. Þeir hafa engir reynt að kveikja á Ijósi guðs. Þess í stað hafa þeir látið blind gróðaöfl leiða sig með svipuðum hætti og Hitler gerði fyrir 50 árum. Man enginn lengur þá tíð, þær hörmungar sem heimurinn leið fyrir tilverknað blindra afla? Sömu öflin eru enn að verki. Aðeins önnur andlit og umfram allt önnur og þúsund sinnum hættulegri tækni. Um margra áratuga skeið hafa starf- að veikburða friðaröfl í heiminum. Þau hafa ekki átt upp á pallborðið hjá ráð- andi öflum þjóðanna. En nú alveg á síðustu tímum bættist þeim öflugur liðsauki. Hinn frjálslyndari armur kirkjunnar tók undir friðarboð- skapinn. Einhver hefur komið við rof- ann og kveikt ljós í myrkum heimi. Þeir

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.