Þjóðviljinn - 03.01.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.01.1984, Blaðsíða 1
DJÚÐVIUINN „Þjóðin má aldrei gleyma sinni fortíð“, sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands m.a. í ávarpi sinu á nýjársdag. Sjá 9 januar þriðjudagur 49. árgangur 1. tölublað Þessi myndarlega bygging er einskonar forstofa að húsasamstæðu þeirri sem íslenskir aðal verktakar eiga við Vesturlandsveg, en þar hefur fyrirtækið fjárfest gróða sinn á liðnum árum í steinsteypu. Allar vélar, tækiog varahlutitilstarfsemisinnarflyturfyrirtækiðinntollfrjálstog enginn aðili i landinu hefur eftirlit með þeim innflutningi. (Ljósm.: -eik). Hver er innflutningur íslenskra aðalverktaka? Enginn veit neitt Hver vísar á annan og engin svörfást Eitt stærsta fyrirtæki lands- ins, íslenskir aðalverktakar á Keflavíkurflugvelli, flytur inn öll sín tæki, bifreiðar, hjólbarða og varahluti tollfrjálst. Samt sem áður hefur enginn aðili á íslandi yfirlit yfír það hve mikið magn aðalverktakar flytja inn til landsins. Þjóðviljinn leitaði til tollyfírvalda, varnamáladeildar, ríkisendurskoðunar og Hagstofu íslands og í ljós kom að enginn fylgist með þessum tollfrjálsa innflutningi. Að sögn Hannesar Guðmundssonar hjá Varnarmáladeild er það samkvæmt milliríkjasamningi íslands og Banda- ríkjanna varðandi fyrirtæki sem vinna fyrir hernámsliðið að íslenskir aðal- verktakar njóta þessara hlunninda. Það vekur hinsvegar furðu í þessu sam- bandi að enginn aðili í landinu fylgist með þessum innflutningi. Hjá fulltrúa tollstjóra í Reykjavík fékk Þjóðviljinn þær upplýsingar, að skjöl varðandi innflutning aðalverk- taka færu til varnamáladeildar, þar sem skrifað væri uppá þau og varan síðan afhent samkvæmt þeirri uppáskrift. Hannes Guðmundsson í varna- máladeild sagði þetta rétt vera, en varnamáiadeild hefði ekki hugmynd um hve mikill þessi innflutningur væri og benti á að tala við tollyfirvöld á Keflavíkurflugvelli. Ólafur I. Hannesson fulltrúi lög- reglustjóra á Keflavíkurflugvelli, sem jafnframt er tollstjóri, sagði embættið ekki hafa tölur um innflutt magn, þær lægju áreiðanlega ekki á lausu, en benti þó á þann möguleika að ríkisendur- skoðun hefði þessar tölur. Hjá ríkisendurskoðun ræddi Þjóð- viljinn við Sigurjón Ágústsson. Hann sagði að tollpappírar yfir innflutning aðalverktaka væru að sjálfsögðu innan um aðra íslenska tollpappíra, en óger- legt væri að leita í þeim stafla til að finna þetta úí. Sagði Sigurjön engar tölur liggja á lausu yfir þennan inn- flutning. Síðasta hálmstráið var svo Hagstof- an, en þar gaf Hildur Thorarensen okk- ur þær upplýsingar að hjá Hagstofunni . væri ekki skráður tollfrjáls innflutning- ur, aðeins tollskyldur. - S.dór. Starfsmaður í „ríkinu“ leysir frá skjóðunni Auglýsmgar í útibúunum Umboðsmenn gefa afgreiðslumönnum vín og fá sínar tegundir auglýstar í staðinn! Umboðsmenn áfengistegunda til- kynna stundum verslunarstjórum þjá „ríkinu“, að þeir ætli að gefa afgreiðslufólki flösku af tilteknu áfengi. í staðinn er tegundin sett á áberandi stað í augsýn viðskipta- vina eða þá að afgreiðslumenn bendi sérstaklega á þessa tegund. I>etta er í grófum dráttum gangur þess kerfis sem umboðsmenn hafa komið sér upp hjá „ríkmu“, segir starfsmaður sem unnið hefur við afgreiðslu hjá „ríkinu“ bæði í Reykjavík og úti á landi. Afgreiðslumaðurinn lýsir í við- tali við Þjóðviljann gagnkvæmu greiðakerfi á bakvið borðin í „rík- inu“. Maðurinn mótmælir þeirri fuilyrðingu forstjóra ÁTVR að auglýsingar þekkist ekki í verslun- unum. Hann segir frá alls konar gjafavörum sem afgreiðslufólk fær frá umboðsmönnum auk áfengis. Þá eru þess dæmi að umboðsmenn bjóði í veislur til að „kynna“ teg- undir sínar. Barþjónum og af- greiðslumönnum er þá gjarnan boðið. Þannig tíðkast margháttuð auglýsingastarfsemi sem hingað til hefur verið stungið undir stól hjá saksóknara ríkisins þrátt fyrir skýlaus ákvæði í lögum um bann við auglýsingum á áfengi. -óg. Sjá bls. 2 Dr. Jakob Jónsson sýnir í þessu alþýðlega verki mannlegt innsæi og guðfræðilega yfir- sýn, segir séra Gunnar Kristjánsson á Rcyni- völlum í umsögn um Tyrkja-Guddu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.