Þjóðviljinn - 03.01.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 3. janúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablót
Árshátíö og þorrablót Alþýðubandalagslns í Reykjavík verður laugardaginn
28. janúar 1984. Þegar eru bókanir tarnar að berast og eru menn hvattir til
að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu.
Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin laugardaginn
21. janúar nk,-
Glæsileg dágskrá með heimsþekktum skemmtikröftum. Látið skrá
ykkur sem fyrst til þátttöku hjá Ragnheiði í síma 23397 eða Óttari í
síma 21264. Nánar auglýst síðar.
Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið Grundarfirði
Opinn fundur
um sjávarútvegsmálin
Alþýðubandalagið í Grundarfirði boðar til fundar
um viðhorfin í sjávarútvegsmálum og kvótakerfið í
samkomuhúsinu í Grundarfirði
fimmtudagskvöldið 5. janúar næstkomandi kl.
20.30.
Framsögumaður Skúli Alexandersson alþingis-
maður. Fyrirspurnum svarað að aflokinni fram-
sögu.
Stjórn AB í Grundarfirði.
Skúli
Æskulýðsfylking Alþýöubandalagsíns
Ungt fólk í Kópavogi!
Jæja, nú kýlum við á að stofna eitt stykki Æskulýðsfylkingu AB. í
Kópavogskaupstað. Undirbúningsstofnsetningarmannfagnaðurinn
verður háður í Þinghól félagsmiðstöð AB. í Kópavogi. Félagsmiðstöðin
er í tölusettu húsi nr. 11 við Hamraborg. Fundurinn hefst kl. 20.30 að
stáðartíma. - Hópnefndarráð.
Auglýsing
frá ríkisskattstjóra
Vísitala jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr.9 gr. laga
nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkis-
skattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar
í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1984
og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða
við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta
árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár
eftir þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar
þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
Reykjavík 2. janúar 1984
Ríkisskattstjóri
Blaðberi
óskast strax
Frostaskjól
Granaskjól
Sporðagrunn
UODVIUINN Sími 81333
Til sölu
30 rúmlesta fiskiskip smíðað árið 1976. Allar
nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fisk-
veiðasjóðs Islands í síma 28055 og hjá Vald-
imar Einarssyni í síma 33954.
Tilboð óskast send Fiskveiðasjóði Islands
fyrir 16. janúar 1984.
Fiskveiðasjóður íslands
Maðurinn minn og faðir okkar
Þórarinn Sigurðsson
Hraunbrún 22, Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni föstudaginn 6. janúar
kl. 13.30.
Guðrún Sigurbergsdóttir
Einey Guðríður Þórarinsdóttir
Sigurbergur Þórarinsson.
Minning____________________
Sigríður Angantýsdóttir
verkakona
Kynni okkar Sigríðar hófust fyrir
tæpu ári. Við áttum þá samleið í
kvennabaráttunni, hittumst fyrst í
hópstarfi Kvennalistans fyrir síð-
ustu kosningar. Sigríður gaf sig af
heilum hug í þá baráttu, framlag
hennar var ómetanlegt. Hún miðl-
aði okkur af langri reynslu sinni og
þekkingu, m.a. á málefnum
kvenna í fiskvinnslu.
Aftur lágu leiðir okkar Sigríðar
saman, þegar við nokkrar konur
hófum undirbúning að ráðstefnu
um kiör kvenna á vinnumarkaðn-
um. I þann hóp var Sigríður sjálf-
sögð. Eftir ráðstefnuna fylgdi
undirbúningur að stofnun Samtaka
kvenna á vinnumarkaðnum í kjöl-
farið.
í öllu þessu starfi var Sigríður
einstaklega góður vinnufélagi.
Hún tók aldrei að sér verkefni, án
þess að skila því til fullnustu, en
það er ómetanlegur kostur í barátt-
u,sem unnin er í tómstundum. Það
var þó ekki aðeins áreiðanleiki Sig-
ríðar, sem gerir hana ógleyman-
lega okkur samstarfskonum henn-
ar. Það var að sjálfsögðu fyrst og
fremst manneskjan Sigríður-glað-
vær, tillögugóð, jákvæð og hjálp-
söm, sem við minnumst með trega.
Kynnin voru stutt, en þau voru
góð. Eftir stöndum við einum góð-
um félaganum færri.
Við kveðjum Sigríði með sökn-
uði, konu, sem gekk ótrauð og
sigurviss til fylgis við réttlætismál-
stað eigin kyns.
Guðrún Jónsdóttir
Kaj-Munk kvöldi
Dagskránni um Kaj Munk, sem
fyrirhuguð var á dánardegi hans á
Freyr
„60-70% þjóðarinnar álíta... að
það sé þjóðhagslega hagkvæmara
að gefa út dagblöð og reka tísku-
verslanir en slá gras og framleiða
mjólk“, segir Þorkell Guðbrands-
son á Sauðárkróki í síðasta tbl.
Freys, en í bréfí til blaðsins ræðir
Þorkell um rekstrar- og afurðalán
til iandbúnaðarins, greiðsiuerfíð-
leika bænda og áróðurinn gegn
landbúnaðinum.
Jónas Jónsson búnaðarmála-
stjóri skrifar forystugreinina að
þessu sinni og nefnir: „Snúum vörn
í sókn“. Rætt er við Tómás Helga-
son frá Hnífsdal en hann á trúlega
stærra safn landbúnaðarbóka en
nokkur annar íslendingur. Birt er
erindi um hross og beitarmál, sem
Egill Bjarnason flutti á Landsþingi
L.H. Þórarinn Lárusson hjá Rækt-
unarfélagi Norðurlands ritar
greinina „Meðaltöl og stefnumörk-
un“. Þorkell Bjarnason og Páll
Bjarki Pálsson segja frá Stóðhesta-
stöð Búnaðarfélags íslands. í grein
um lurkakatla er bent á hagkvæmni
þess að nota úrgangstimbur til
kyndingar þar sem það er fyrir
hendi. Greint er frá ýmsum af-
greiðslum Framleiðsluráðs á fundi
þess23. nóv. sl. ogloks erljóð.sem
Egill Jónasson á Húsavík orti á að-
alfundi Kaupfélags Þingeyinga
1954. -mn8
Samvinnan
Síðasta hefti Samvinnunnar 1983
hefst á forystugrein ritstjórans
„Samtök almennings í landinu" og
er þar vikið að hinni þrálátu áráttu
Mbl. að reyna að koma auðhrings-
stimpli á samvinnuhreyfínguna.
Birtur er kafli úr bókinni
„Eysteinn í eldlínu stjórnmál-
anna.“ Sagt frá opnun Mikla-1
garðs, hinnar nýju stórverslunar
samvinnumanna. Gunnar Stefáns-
son ritar grein um þýska skáldið
Heine og hið fræga Loreleikvæði
hans. Birtar eru íslensku þýðing-
arnar á ljóðinu, eru þær ekki færri j
en 7 og hafa þar engir aukvisar lagt i
hönd að verki: Hannes Hafstein,
Steingrímur, Matthías, Gísli |
Brynjólfsson, Magnús Ásgeirsson,
Karl Isfeld og Þórir Bergsson. Birt-
ar eru myndir af þýðendunum.
Mikið má þó vera ef sú mynd sem
sögð er af Þóri Bergssyni er ekki af
Þórleifi Bjarnasyni rithöfundi. Birt
er þriðja verðlaunaritgerðin í verð-
launakeppni Sambandsins, „Sú
leið er ein til lífsins gæða“ og er hún
eftir Eyjólf Sturlaugsson. Sagt er
frá kaupfélagsstjórafundinum í ár.
Rínarsteinar nefnist frásögn eftir
Önnu Maríu Þórisdóttur. Ljóð eru
í ritinu eftir þá Sigfús Kristjánsson
og Valgeir Sigurðsson og smásaga
eftir Leif B. Lillegárd f þýðingu
Matthíasar Eggertssonar.
morgun 4. janúar hefur verið frest-
að. Guðrún Ásmundsdóttir leikari
undirbýr þessa dagskrá um hinn
mikla, danska prédikara og skáld,
sem myrtur var af nasistum fyrir 40
árum. Guðrún mun flytja hana
ásamt fleiri listamönnum í Hall-
grímskirkju við fyrsta tækifæri.
Þetta er einn liður í fjölbreyttu
Eiðfaxi
Út er komið síðasta hefti af
Eiðfaxa 1983. Árni Þórðarson ritar
forystugrcinina og ræðir þar m.a.
um erindi það, sem Egill Bjarnason
ráðunautur flutti á Landsþingi
L.H. og raunar er birt í blaðinu. I
grein Arna kemur m.a. fram, að
haustið 1982 voru sett á 53.649
hross. Fjórðungur þeirra var á
þéttbýlissvæðunum.
Ýtarlega er sagt frá Landsþingi
L.H. og rætt við fjóra fulltrúa þar,
þá Kristján Jónsson, Hóli í
Hvammssveit, Braga Björgmunds-
son, Bolungarvík, Þorstein Stef-
ánsson Dalvík og Gunnlaug Skúla-
son, Laugarási. Þá er áðurnefnt er-
indi Egils Bjarnasonar, sem hann
nefnir „Fjöldi hrossa og dreifing."
Kristinn Hugason kennari á Hól-
frestað
listalífi á vegum Listvinafélagsins,
en í byrjun aðventu hófst 2. starfsár
þess. Enn er hægt að gerast styrkt-
arfélagi, gíróseðlar liggja frammi í
kirkjunni og þá er hægt að fá
heimsenda.
Náttsöngur verður að vanda
sunginn annað kvöld í Hallgríms-
kirkju og hefst klukkan 22.00.
um skrifar um hrossrækt, (fyrri
grein) og fjallar þar einkum um
frjósemi. Viðtal er við þá kunnu
kempu og hestamann Þorgeir í
Gufunesi. ÓlafurR. Dýrmundsson
landnýtingarráðunautur skrifar um
innlendar hrossabeitartilraunir.
Sigurbjörn Bárðarson tekur saman
kappreiðaannál 1983. Jón Sigurðs-
son bóndi í Skollagróf á þarna smá-
grein er hann nefnir: „Leitið ekki
að hreyfingargetu hrossanna frami
í faxi“. Sagðar eru fréttir af hesta-
mannafélögum: Þyti í V-
Húnavatnssýslu, Fáki, Glað í
Dölum og Hring á Dalvík. Einar
Öder Magnússon, Gunnar Ágústs-
son og Hreggviður Eyvindsson
segja frá íslenskum hestum í Kana-
da. Erling Sigurðsson skrifar um
fjórðungsmótið á Melgerðismelum
í sumar. Enn eru í blaðinu ýmsar
styttri fréttir og ekki þarf að minna
á myndirnar. -mhg
Flensborgarskóli
Innritun í öldungadeild Flensborgarskóla fer
fram dagana 4. - 6. janúar kl. 14-18.
Innritunargjald er kr. 1700,-.
Skólameistari.
Réttindi til
hópferðaaksturs
Skipulagsnefnd fólksflutninga með langferð-
abifreiðum hefur ákveðið að auglýsa laus til
umsóknar réttindi til hópferðaaksturs á árinu
1984.
Umsækjandi um leyfi til hópferðaréttinda
skal í umsókn skýra frá bifreiðakosti sínum
þ.e. fjölda, stærð, gerð, aldri og skrásetning-
arnúmerum þeirra bifreiða, er hann ætlar að
nota til flutninganna.
Athygli er vakin á að sérleyfishafar þurfa
einnig að sækja um hópferðaréttindi.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1984.
Skipulagsnefnd fólksflutninga
Umferðarmáladeild