Þjóðviljinn - 03.01.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.01.1984, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 3. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Myndmál komið út 3. hefti kvikmyndablaðsins Myndmál hefur nýverið litið dags- ins ljós. Myndmál hóf göngu sína fyrr á nýliðnu ári og er ætlað að flytja efni sem áhugavert telst í heimi kvikmynda og myndbanda, innanlands sem utan. í þessu jólablaði Myndmáls ættu kvikmyndaáhugamenn og aðrir unnendur bíómynda og mynd- banda að finna sitthvað við sitt hæfi. Óskar Þórisson skrifar ýtar- lega grein um kvikmyndaferil Da- vid Bowie, sagt er frá kvikmynd- inni „War Games“ og hversu nærri raunveruleikanum hún kemst,, fjallað er um eina bestu mynd Charlie Chaplin „Borgarljós", greint frá athöfnum Hrafns Gunn- laugssonar þessa dagana og komið inná jólamynd Sjónvarpsins „Hver er...“ sem Hrafn stýrði. Sagt er frá fyrirætlunum Þráins Bertelssonar og félaga, aðstandenda „Nýs Lífs“ um tökur tveggja bíómynda fyrir vorið og einnig geta lesendur fræðst um jólamyndir kvikmynda- húsanna en sjaldan hefur verið um I eins auðugan garð að gresja og þetta árið. Fyrir vídeóvini er birtur listi yfir nýtt efni á myndböndum og margt fleira má finna í blaðinu. íslend- ingur í áhrifa- stöðu Bandarísk fyrirtæki, sem sjá um | sölu og dreifingu á frystum matvæl- um hafa með sér samtök, sem ná til allra Bandaríkjanna. Skipta að- ildarfyrirtæki þeirra þúsundum. Á þingi samtakanna, sem haldið var í Chicago í haust, var Guðjón B. Ólafsson framkvæmdastjóri Iceland Seafood Corporation, kos- inn í stjórn samtakanna. Jafnframt var Guðjón kosinn í framkvæmda- nefnd og formaður sérstaks ráðs, sem fer með málefni veitingahúsa. -mhg Gunnsteinn Karlsson. Gunnsteinn biður að koma áleiðis þeim boð- um, að hefðu einhverjir undir höndum skjöl eða minjar, sem tengdust starfi eða sögu Sambands- ins eða samvinnuhreyfingarinnar, og vildu koma því frá sér í örugga varðveislu, þá væri safnið reiðubú- ið til að veita öllu slíku viðtöku. -mhg Skjalasafn Sambandsins Nokkur undanfarin ár hefur að undirbúa skráningu upplýsinga Sambandið komið fyrir skjölum um allt safnið fyrir tölvugeymslu. sínum, bókum og ýmsum öðrum Gunnar Grímsson, fyrrverandi minjum allt frá upphafi starfs síns kaupfélagsstjóri, vann ötullega að og fram á þennan dag á einum stað í þessum málum fyrstu árin en nú- safni í Holtagörðum. Núna er verið verandi forstöðumaður safnsins er Sérleyfisleið laus til umsóknar Sérleyfisleiðin Neskaupstaður - Eskifjörður - Reyðarfjörður - Egilsstaðir er laus til um- sóknar. Umsóknir skulu sendar Umferðarmáladeild, Umferðarmiðstöðinni, Reykjavík, fyrir 20. janúar 1984. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um bifreiðakost umsækjenda. Skipulagsnefnd fólksflutninga Umferðarmáladeild Meðferðarheimili einhverfra barna Trönuhólum 1, Reykjavík óskar að ráða starfsmenn til vaktavinnu sem fyrst. Þroskaþjálfa-, fóstru- eða önnur upp- eldisfræðileg menntun æskileg. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 79760. Þú getur .oróió cinn af m ymiungs- höfum á næstaári En til þess að það geti gerst þarftu að eiga miða. Hann kostar 100 kr. á mánuði. Eigir þú miða getur allt gerst. — það er bara spuming um heppni þína hvort og hvenær þú hlýtur vinning. Nú er hæsti vinningur 1 milljón. Hvemig væri að slást í hópinn. Við drögum þann 10. janúar. Happdrætti SÍBS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.