Þjóðviljinn - 03.01.1984, Síða 5
Þriðjudagur 3. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Minning__________________________
Leifur Unnar Ingimarsson
Fæddur 2. október 1935
Dáinn 18. desember 1983
„Hönd er stirð og hjartað
slcer ei meir.
Harpan þögnuð, brostinn
strengur hver“.
Þessar ljóðlínur Gunnars Dal
komu mér í hug við andlát vinar
míns Leifs Unnars.
Leifur fæddist í Reykjavík 2.
okt. 1935. Hann var tekinn í fóstur
á fyrsta ári af sæmdarhjónunum
Kristínu Sigtryggsdóttur og Halli
Pálssyni, sem þá bjuggu í Garði í
Hegranesi. Skömmu síðar brugðu
þau hjón búi og fluttust til Akur-
eyrar og þar ólst Leifur upp fyrstu
bernskuár sín.
Síðar fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur og bjó í Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg, en
Hallur fósturfaðir Leifs var þar
lengi fangavörður. Þar ólst Leifur
upp til fullorðinsára.
Kynni okkar Leifs hófust kring-
um árið 1960, í félagi sem við störf-
uðum báðir í. Skömmu síðar urð-
um við svo nágrannar í Kópavogi.
Síðan hefur vinskapur okkar hald-
ist óslitið, enda þótt Leifur flytti
um tíma í annan landshluta.
Leifur lagði gjörfa hönd á margt
á sinni fremur skömmu ævi, enda
fjölhæfur svo að með ólíkindum
má telja. Hann mun ekki hafa
hlotið aðra menntun en í
Samvinnuskólanum og svo skóla
lífsins. Menntun hans og meðfædd-
ir hæfileikar nýttust honum þó svo
vel, að hann gat leyst af hendi með
prýði ýmis störf, sem háskólam-
enntaðir menn hefðu mátt teljast
fullsæmdir af.
Hann var lengi deildarstjóri við
Iðnaðardeild SIS í Reykjavík og
munu margir minnast hans þaðan.
Síðar vann hann í Samvinnutrygg-
ingum í nokkurn tíma.
Þrátt fyrir það að hann leysti
þessi störf sín af hendi með prýði,
mun hann innst inni ávallt hafa haft
löngun til að hverfa úr borgar-
skarkalanum og lifa í meira sam-
ræmi við náttúruna. Sama má segja
um þáverandi konu hans Steinunni
Halldórsdóttur frá Helgastöðum í
Reykjadal, sem hann kvæntist 1.
jan. 1956.
Þau ákváðu þá að breyta til og
fluttu norður í Reykjadal og hófu
búskap að Pálmholti, sem er næsti
bær við Helgastaði, þaðan sem
Steinunn er upprunnin.
Þar bjuggu þau í nokkur ár, vafa-
lítið við margskonar erfiðleika,
bæði fjárhagslega og af öðrum
toga, enda ekki heiglum hent að
hefja búskap með lítil fjárráð, allra
síst fyrir borgarbúa óvanan
sveitastörfum.
Eftir nokkurra ára búskap á-
kváðu þau að selja jörðina og flytja
aftur í höfuðborgina.
Nokkru síðar stofnaði Leifur,
ásamt fleirum fyrirtækið „Tinnu“,
sem framleiðir og flytur út prjóna-
vörur. Leifur var framkvæmda-
stjóri þess fyrirtækis meðan honum
entist heilsa tii, en síðla árs 1982
varð hann að hætta því starfi vegna
heilsubrests. Nú nýlega hafði hann
svo tekið við starfi framkvæmda-
stjóra Landssambands sauma- og
prjónastofa á íslandi.
Síðastliðið sumar kynntist Leifur
svo eftirlifandi unnustu sinni, Dísu
Dóru Hallgrímsdóttur, ættaðri frá
Siglufirði. Þau voru nú að kaupa
sér góða íbúð og framtíðin virtist
blasa við þeim, en enginn ræður
sínum næturstað.
Vanheilsa Leifs hófst á árinu
1982 og síðla þess árs gekkst hann
undir mikla skurðaðgerð, sem
heppnaðist vel. í mars í fyrra fór
hann til Danmerkur í hættulega
geislameðferð, sem aðeins fáeinir
einstaklingar höfðu áður gengist
undir í heiminum.
Hann náði sér, að því er virtist,
allvel eftir þá meðferð, en seinni-
partinn í sumar sem leið fór hann að
tá viss sjúkdómseinkenni, sem
læknar töldu að væru afleiðing
geislameðferðarinnar. Enginn
bjóst þó við því að endalokin kæmu
svona fljótt, og læknar höfðu gefið
Leifi vonir um að ná fullri heilsu.
Leifur kom í heimsókn til mín
tveim dögum fyrir jól. Hann var að
vanda glaður og reifur og spjöll-
uðum við lengi saman. Hvorugan
okkar mun þá hafa órað fyrir því,
að við ættum ekki eftir að sjást oft-
ar í þessu lífi.
Leifur var einstakur hæfileika-
og mannkostamaður. Hann var
fjölhæfur listamaður, skáldmæltur
og hafa nokkur ljóða hans verið
birt á prenti. Hann var tónlistar-
unnandi og bæði söng vel og spilaði
á hljóðfæri. Einnig samdi hann lög,
sem sum hafa verið flutt opinber-
lega. Hann málaði myndir og skar
út í tré og allar smíðar léku í hönd-
um hans.
í góðum hópi var Leifur manna
glaðastur og hrókur alls fagnaðar.
Skapgerð hans var ljúf og mild og
hann lagði ávallt gott til allra mála.
Aldrei minnist ég þess að hann
hallmælti nokkrum manni, en
reyndi þess í stað að finna það
besta í öllum. Því eignaðist hann
vini hvar sem hann fór og engan
veit ég sem bar honum ekki góða
sögu.
Leifur hugsaði mikið um andleg
mál og var félagi í Guðspekifé-
laginu. Hin frjálsu leitandi viðhorf,
sem sannir guðspekinemar tileinka
sér óhjákvæmilega, voru honum í
blóð borin. Hann leit á allar kredd-
ur sem vott þess að ennþá ættum
við nokkuð ólært í að tileinka okk-
ur hin æðstu sannindi. Dvöl okkar
hér á jörðinni mætti líkja við skóla-
göngu. í þeim skóla eru margir
bekkir. Því er ekki hægt að ætlast
til þess, að þeir sem eru að hefja
sína fyrstu skólagöngu, leysi á við-
unandi hátt námsefni þeirra sem
lengra eru komnir. Enginn getur
sagt um það hvar hver og einn er
staddur í þeim skóla lífsins. „Dæm-
ið því ekki, svo að þér verðið sjálf
ekki dæmd“.
Við Leifur ræddum þessi mál oft
og nú hefur hann að líkindum feng-
ið svör við einhverjum þeirra
spurninga, sem brenna á vörum
leitandi manna.
Gamli vinur minn. Nú þegar við
kveðjum þig, trúum við að það sé
aðeins hinn ytri búningur, hismið,
sem við séum að kveðja. Við trúum
því að þú sért ennþá meðal okkar,
þó að andi þinn hafi lyft sér einni
tröppu ofar í stigann, sem við öll
eigum eftir að ganga, stigann sem
stefnir til hins eilífa.
Þrátt fyrir þessa trú, er þó harm-
ur kveðinn öllum þeim sem þekktu
Leif.
Ég og fjölskylda mín vottum ást-
vinum hans dýpstu samúð og biðj-
um þess að gjafari allra góðra hluta
styrki þá og styðji.
Ævar Jóhannesson.
Eíns og
hver önnur
himnasending
„Það er eins og hver önnur
himnasending að fá þessi
verðlaun núna þegar maður
er erlendis. Mann langar til að
nota tímann og sjá sig um og
þau gera mér kleift að vera
áhyggjulaus. Peningar eru
ákaflega nauðsynlegirfyrir rit-
höfunda því að þeir fá yfirleitt
svo lítið borgað fyrir verk sín
en þó þykir mér vænna um
þann hug sem á bak við liggur
því að ég lít svo á að verð-
launin séu staðfesting á að
maður sé íslendingur meðal
íslendinga og er ég þó þar
með ekki að dæma þá land-
ræka sem ekki fá þau“. Þetta
sagði Svava Jakobsdóttir rit-
höfundur í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær en hún dvelur nú
vetrarlangt í London. Hún
fékk á gamlársdag verðlaun
úr Rithöfundasjóði ríkisút-
varpsins að upphæð 100 þús-
und krónur.
Verðlaunaafhendingin fór að
venju fram í Þjóðminjasafninu að
viðstöddum forseta íslands,
menntamálaráðherra og fleiri
gestum. Foreldrar Svövu, þau sr.
Jakob Jónsson og Þóra Einars-
dóttir veittu þeim viðtöku fyrir
hönd hennar en dr. Jónas Krist-
jánsson, formaður úthlutunar-
nefndar afhenti þau.
Svava var spurð að því hvað
hún væri að fást við í London.
- Ég er með ritverk á undirbún-
ingsstigi en á þessu stigi er af-
Svava: Þó þykir mér vænna um þann hug sem á bak við liggur.
Stutt símtal við Svövu Jakobsdóttur
rithöfund sem fékk verðlaun úr
Rithöfundasjóði ríkisútvarpsins en
hún dvelur nú vetrarlangt í London
skaplega lítið hægt að segja um
það. Ég er ennfremur að búa mig
undir Svíþjóðarför en þangað var
mér boðið í upplestrarferð. Það
er í tilefni af norrænu bók-
menntaári. í þessari ferð, sem
tekur 10 daga, verðum við einn
rithöfundur frá hverju Norður-
landa og lesum upp a.m.k. tvisv-
ar á dag hér og hvar.
- Og þú nýtur að sjálfsögðu
leikhússlífsins í London?
- Já, f og með er ég líka í fríi þar
sem ég tók ekkert frí í sumar. Við
hjónin sækjum töluvert leikhús
enda er varla annað hægt í þessari
stórborg.
- Hvað hefurðu séð athyglis-
verðast?
- Ég verð nú að segja það að
mér finnst einna mest gaman að
sjá Englendinga leika Shakespe-
are. Það er upplifun út af fyrir sig.
- Og ein klassísk spurning að
lokum. Hvernig er veðrið í
London?
- Það er svona eins og dálítið
slæmt sumar á íslandi. Hér er 11
og 12 stiga hiti og við erurn ekki
farin að sjá snjó ennþá. Veðrið er
því afskaplega milt og gott en þó
sakna ég hitaveitunnar að
heimar..
-GFr
CNDURSKOÐUN OG R6IKNINGSSKIL SF
Hér með tilkynnist
að við höfum opnað nýja endurskoðunarstofu.
Veitt verður öll þjónusta á sviði
endurskoðunar og reikningsskila.
ar
CNDURSKOÐUN OG RCIKNINGSSKIl Sf
mUGflVéGUR 18 101 R€VKJflVIK SIMI 9127888 NNR2133 8362
LOGGILTIfi CNDURSKODCNDUR
eflNfl BflVNDÍS HflLLDÓRSDÓTTIfl
GUÐMUNDUfl ffllÐRIK SIGURÐSSON
JÓNflTflN ÓLflfSSON