Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. janúar 1984 Landspítalinn: Fæðingum fækk- aði á síðasta ári Fæðingum fækkaði nokkuð á Landspítalanum á síðasta ári mið- að við árið 1982. Að sögn Gunn- laugs Snædals fæddust árið 1983 um 120 færri börn cn 1982. Hins vegar (jölgaði fæðingum um 60-70 á Fæðingarheimilinu miðað við 1982. Þess má geta, að árið 1982 var Fæðingarheimilið lokað um nokkurra vikna skeið en lokaði hins vegar ekkert í fyrra og er það skýringin á fjölgun fæðinga á Fæð- ingarheimilinu. Ekki hafa öil byggðarlög lands- ins skilað inn yfirliti til Gunnlaugs um fæðingar, og því kvað hann of snemmt að tjá sig um það, hvort fæðingum hafi fækkað eða fjölgað á síðasta ári. Af þeim gögnum sem hann hefði undir höndum mætti draga á ályktun, að þeim hefði fækkað, en nokkrir stórir staðir ættu eftir að skila yfirliti og því væri nákvæm tala ekki fyrir hendi enn. En Reykvíkingum áskotnaðist sem sé færri nýburar á síðasta ári en árið Álviðrœðunum verður ekki lokiðfyrirl. apríl Raunverulegir samningar tæpast komnir í gang „Það er mikill misskilningur að öðrum aðilanum vegni betur í þess- um viðræðum, einstaklingar meta árangurinn einfaldlega á mismun- andi vegu“, sagði Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, einn fulltrúa ríkisstjórnarinnar í samn- inganefnd hennar við Alusuisse. „Raunverulegsar samningavið- ræður eru tæpast komnar í gang“, sagði Guðmundur G. Þórarinsson. „Eftir að bráðabirgðasamkomu- lagið var gert, hafa fundirnir farið í að draga saman forsendur og upp- lýsingar sem nauðsynlegar eru til samningagerðarinnar. Eg vil nú ekki orða það svo að það muni sverfa til stáls, en línurnar munu skýrast á næsta fundi, þvíþað verð- ur fyrsti raunverulegi samninga- fundurinn.“ í síðustu viku hittust samninga- nefndir ríkisstjórnarinnar og Alus- uisse hér á landi og er næsti fundur fyrirhugaður í Sviss um miðjan fe- brúar, og sagði Tíminn um þann fund að þar myndi sverfa til stáls. Af ummælum fundarmanna í síð- ustu viku mátti ráða að þeir legðu misjafnt mat á gang viðræðnanna; íslensku fulltrúarnir sögðu að ekk- ert hefði gerst og viðræður væru vart hafnar, en þeir svissnesku voru ánægðir og töldu fundina ár- angursríka. „Menn gerðu sér vonir um að hægt yrði að ná lokasamkomulagi fyrir 1. apríl", sagði Guðmundur ennfremur, „en ég skal ekki segja hvort þetta tekst. Það getur verið að það þurfi að framlengja þann tíma eitthvað. Ég treysti mér ekki til að spá um hversu lengi, en ég vonast til að samningar náist á þessu ári“. Áður en núverandi ríkisstjórn var mynduð var ætíð stefnt að því að álverið greiddi að lokum endan- legt framleiðsluverð raforkunnar frá Landsvirkjun. í bráðabirgða- samkomulaginu sem gert var s.l. haust var hins vegar fallið frá því stefnumiði og ákveðið að miða við verð til annarra álvera. - Við hvaða orkuverð er nú mið- að og hafa samningamenn ríkis- stjórnarinnar fundið lægra orku- verð til álvera en gildir hér á landi? „Já, - við höfum fundið lægra verð“, sagði Guðmundur. „En það er ekki alltaf einfalt að finna réttu viðmiðunina. Orkuverð er mjög mismunandi með tilliti til kjara, verðhækkana, skilyrða fyrir af- hendingu og fleiri þátta. Mörg ál- ver eiga sín eigin orkuver og eru því ekki samanburðarhæf. Ég get ekki sagt neitt ákveðið um endanlega viðmiðun ennþá“. ÁI Sinfóníuhljómsveit íslands: Vínarkvöld í dag, fímmtudaginn 12. janúar er hið árlega Vínarkvöld Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Á efnisskrá verða sungin og leikin lög m.a. úr ýmsum Vínaróperettum eftir Strauss, Kalman, Lehár, Stolz o.fl. Úr óperettunni Leðurblökunni verður sungin Csardas, sem aldrei hefur verið sunginn áður svo að vit- að sé Stjórnandi Vínarkvöldsins verð- ur Herbert Mogg. Hann er Vínar- búi í húð og hár. Hann er fæddur þar, stundaði nám við Tónlistarhá- skólann þar og fyrsta starf sitt fékk hann við Scala-leikhúsið í Vín. Síð- ar starfaði hann við Volkstheater og Theater in der Josephstadt. Á árunum eftir 1960 var hann óperu- og óperettustjórnandi við ýmis leikhús í Vestur-Þýskalandi, en frá 1970 hefur hann verið aðalhljóm- sveitarstjori og frá 1977 listrænn forstjóri Raimund-leikhússins í Vfnarborg. Hann hefur stjórnað mjög mörgum þekktum hljóm- sveitum í Evrópu, svo sem Sinfóní-' uhljómsveit austurríska útvarpsins í Vín, Mozarteum-hljómsveitinni í Salzburg, þýsku ríkishljóm- sveitinni og sinfóníuhljómsveit út- varpsins í Berlín, ríkisóperuhljóm- sveitunum í Sofíu og Budapest o.fl. Herberg Mogg á sæti í stjórn C.M. Ziehrer-stofnunarinnar í Vín og hefur verið sæmdur hinu gullna heiðursmerki austurríska lýðveld- isins. Sópransöngkonan, Siegiinde Kahmann, sem er einsöngvari á tónleikunum, er fædd í Dresden í Þýskalandi og stundaði nám við Tónlistarháskólann í Stuttgart. Strax að námi loknu varð hún fast- ráðinn óperusöngvari við óperuna í Stuttgart og síðar við óperurnar í Kassel, Graz, Vín og Múnchen. Hún hefur sungið víða í Evrópu, m.a. á hinum árlegu tónlistarhátíð- um í Salzburg og Edinborg og auk þess mikið í útvarp og sjónvarp. Árið 1977 fluttist Sieglinde til ís- lands og hefur oft sungið á tón- leikum með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og komið fram á fjölda ann- arra tónleika. Hún hefur sungið í Þjóðleikhúsinu aðalhlutverk í óp- erettunni Kátu ekkjunni eftir Le- hár og óperunni Bohéme eftir Puccini og gert upptökur fyrir út- varp og sjónvarp. Sieglinde starfar sem kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík. Karlakór Reykjavíkur mun að- stoða hljómsveit og einsöngvara við flutning nokkurra laganna. ' - mhg Sinfónían stillir strengi sína fyrir Vínarkvöldið. Lokaátak í söfnun E1 Sahador nefndarinnar Frá því fyrir jól hefur El Salvador-nefndin á íslandi staðið fyrir fjársöfnun til skólabarna á frelsuðu svæðunum í El Salvador. Jólagjöf til barna í El Salvador. Það sem safnast rennur óskipt til kaupa á kennslugögnum. Kennarasam- band Islands og Hið íslenska kennarafélag standa að mestu undir kostnaði vegna söfnunarinn- ar, kosta m.a. útgáfu lítils bæklings um frelsuðu svæðin og lestrarher- ferð kennarasambands El Salvador þar. Andvirði bæklingsins rennur líka óskipt í söfnunina. Söfnunarbaukar og bæklingar voru sendir trúnaðarmönnum í hundrað skólum um allt land. Skil eru farin að berast og virðast undir- tektir hafa verið góðar. Það sem safnast verður sent út nú í lok janú- ar og er því nauðsynlegt að fara að ljúka söfnuninni. Setja má söfnunarfé og andvirði bæklinga inn á bankareikning 303- 25-59957, merkt jólasöfnun til barna í E1 Salvador. Hafi bækling- arnir ekki selst allir má senda þá á eftirfarandi heimilisfang: Björk Gísladóttir, Baldursgötu9, kj., 101 Reykjavík. Á Reykjavíkursvæðinu geta fé- lagar í nefndinni sótt söfnunarfé og önnur gögn, þegar hentar. Hafið samband í síma: 78903 eða 19356.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.