Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 12. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir
Hodgson
áfram á
Siglufirði
Englendingurinn Bill Hodgson
hefur verið ráðinn þjálfari hjá 2.
deildarliði Siglfirðinga í knatt-
spyrnu þriðja árið í röð. Undir
hans stjórn komst KS í 2. deild fyrir
tveimur árum og hélt velii þar sl.
sumar og vel það. Siglfirðingar
hafa misst Hafþór Kolbeinsson,
sinn besta mann, til KA á Akureyri
og óvíst er hvað Björn Ingimarsson
gerir, en hann er fluttur á höfuð-
borgarsvæðið. Þá kvað Runólfur
Birgisson, formaður KS, hættu á
að þeir misstu fleiri leikmenn. Aft-
ur á móti væri mjög líklegt að Jón
Orvar Arason, markvörðurinn
öflugi úr Sandgerði, gengi til liðs
við KS, og ekki væri loku fyrir það
skotið að fleiri leikmenn bættust í
hópinn fyrir vorið. - VS
Leikdagar
ákveðnir
Leikdagar íslenska landsliðsins í
undankeppni HM í knattspyrnu
hafa verið ákveðnir. Byrjað verður
hér heima gegn Wales 12. septemb-
er í haust, leikið ytra við Skota 17.
október og Wales 14. nóvember. A
næsta ári, 1985, koma Skotar 28.
maí og Spánverjar 11. júní og ís-
land leikur sinn síðasta leik, á
Spáni, þann 22. september 1985.
Weissflog
sigursœll
Jens Weissflog frá Austur-
Þýskalandi sigraði í fjórðu skíða-
stökkskeppni heimsbikarsins í röð
á Ítalíu í gær. Hann stökk 87 og
90,5 m og var eini keppandinn til að
fara yfir 90 metra markið. Horts
Bulau frá Kanada varð annar og
Klaus Ostwald frá Austurríki
þriðji. -VS
Fyrstu stig
Sandgerðinga
Don Howe.
Howe ráðinn
Don Howe var í gær ráðinn fram-
kvæmdastjóri enska knattspyrn-
ufélagins Arsenal og stýrir hann
liðinu út þetta keppnistímabil.
Howe hefur haldið um
stjórntaumana til bráðabirgða síð-
an Terry Neill var rekinn í desemb-
er og undir hans stjórn er Arsenal
ósigrað í 5 deildaleikjum. Hann
hefur verið þjálfari hjá Arsenal
samtals í 14 ár.
-VS
Enska bikarkeppnin:
Norwich heimsæk-
ir Tottenham
Úrslit eru ráðin um 30 sæti af 32 í
4. umferð ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu. Fjögur réðust í gær-
kvöldi og þá eiga einungis eftir að
mætast Scunthorpc-Leeds og
Coventry-Wolves í þriðja sinn.
Merkasta niðurstaðan varð sú að
Tottenham mætir Norwich á
heimavelli Tottenham, White Hart
Lane, í London, en þessi lið unnu
leiki sína í gærkvöldi.
Úrslit urðu þessi:
Norwich City-Aston Villa.....3-0
Oxford United-Burnley........2-1
Tottenham-Fulham.............2-0
W.B.A-Rotherham United.......3-0
Fulham átti í fullu tré við Totten-
ham til að byrja með og engu mun-
Dalheim eina
5?
viðmiðunin“
„Við höfum ekkert frétt um þetta
ísraelska lið, það gæti þess vegna
verið mest allt landsliðið þeirra, en
ég hef ekki trú á að það sé eins slakt
og andstæðingar FH fyrr í vetur.
Eina viðmiðunin er sú að Maccabi
EI Zion sló út sænsku bikarmeistar-
ana Dalheim í 2. umferð og þótt
Dalheim leiki í 2. deild í Svíþjóð
gefur það vissar vísbendingar,“
sagði Þorvarður Höskuldsson hjá
handknattleiksdeild KR í samtali
við Þjóðviljann.
Báðir leikir KR og Maccabi í 8-
liða úrslitum Evrópukeppni bikar-
hafa í handknattleik fara fram hér á
landi, sá fyrri í Laugardalshöllinni
annað kvöld, sá síðari á sunnudags-
kvöldið. Möguleikar KR hljóta að
teljast all góðir þótt liðið eigi nokk-
uð erfitt uppdráttar á yfirstandandi
íslandsmóti. ísraelarnir voru vænt-
anlegir hingað í gærkvöldi en Þor-
varður reiknaði ekki með að verða
mikils vísari um þá, hann hefði
beðið þá um að taka með sér mynd
af liðinu en þeir töldu sig tæpast
hafa tíma til að fara í myndatöku!
- VS
aði að 2. deildarliðið tæki foryst-
una eftir 23 mínútur þegar Gordon
Davies þrumaði af fítonskrafti í
þverslá. Þá tók Tottenham loks við
sér og á 35. mínútu kastaði Gra-
ham Roberts sér fram í vítateig
Fulham og skallaði í gegnum
þvöguna í netið, 1-0. Aðeins sex
mínútum síðar voru úrslitin nánast
ráðin, Steve Archibald skoraði þá,
2-0, með hörkuskoti af stuttu færi,
og Fulham var aldrei líklegt til að
vinna upp þann mun.
Mick Channon, hinn 35 ára
gamli fyrrum landsliðmaður Eng-
lendinga, kom Norwich á bragðið í
fyrri hálfleiknum gegn Aston Villa.
I síðari hálfleik bættu þeir Peter
Mendham og Keith Bertschin og
Englandsmeistararnir 1981 og Evr-
ópumeistararnir 1982, Aston Villa,
eru þar með fallnir útúr bikar-
keppninni á fyrstu hindrun.
Oxford, efsta lið 3. deildar, held-
ur áfram sigurgöngu sinni og hefur
ekki tapað í þeim 12 bikarleikjuni
sem það hefur leikið á keppnis-
tímabilinu. Liðið fær nú heimaleik
í 4. umferð gegn 4. deildarliði
Blackpool. WBA átti ekki í vand-
ræðum með 3. deildarlið Rother-
ham og leikur heima gegn Leeds
eða Scunthorpe. -VS
KA sneri dæminu við
í síðari hálfleik
KA vann Þór 19:15 í fyrri leik
liðanna í Akureyrarmótinu,
meistaraflokki karla, í handknatt-
leik í fyrrakvöld. Þór leiddi 10:9 í
hálfleik en þegar tíu mínútur voru
eftir hafði KA náð yfirburðastöðu,
18:12, ekki síst fyrir framgöngu
Magnúsar Gauta í markinu sem
var besti maður vallarins.
Sigurður Pálsson skoraði 4 mörk
fyrir Þórsara, Guðjón Magnússon
og Gunnar M. Gunnarsson 3,
Baldvin Hreiðarsson og Kristinn
Hreinsson 2 og Hörður Harðarson
1. Magnús Birgisson skoraði 4
mörk fyrir KA, Jón Kristjánsson,
Erlingur bróðir hans og Sigurður
Sigurðsson 3 hver, Jóhann Einars-
son 2, Jóhannes Bjarnason, Ragn-
ar Gunnarsson, Logi Einarsson og
Þorleifur Ananíasson 1 hver.
- K&H/Akureyri
Islandsmótið í innanhússknattspyrnu 1984:
Tvískipt að þessu
Reynir úr Sandgerði fékk sín
fyrstu stig í 2. deild karla í hand-
knattleik á sunnudagskvöldið,
vann þá HK 23:21 í Digranesi í
Kópavogi. Óvænt úrslit sem vekja
vonarneista hjá nýliðunum sem eru
að leika í fyrsta skipti í 2. deild og
höfðu tapað fyrstu níu leikjunum.
Friðgeir
sá besti
Ólafsfirðingar völdu á dögunum
besta knattspyrnumann bæjarins
árið 1983. Fyrir valinu varð miðju-
maðurinn Friðgeir Sigurðsson sem
átti drjúgan þátt í velgengni
Leifturs sl. sumar en liðið vann þá
4. deildina. - VS
Dregið hefur verið í riðla í ís-
landsmótinu í innanhússknatt-
spyrnu sem haldið verður í tvennu
lagi í þetta skiptið, 21.-22. janúar
og 25.-26. febrúar. Leikið er í fjór-
um deildum karla og einni deild
kvenna en 64 lið taka þátt í karla-
flokki, 14 í kvennaflokki.
Þannig skipuðust lið niður í riðla
í hinum einstöku deildum:
1. deild:
A-riðill:
FH, Þróttur Reykjavík, Skalla-
grímur Borgarnesi og Siglufjörður.
B-riðiII:
Akranes, Víkingur Reykjavík,
Þróttur Neskaupstað og Keflavík.
C-riðill:
Týr Vestmannaeyjum, Fram,
KR og ísafjörður.
D-riðill:
Fylkir Reykjavík, Njarðvík,
Breiðablik og Valur.
2. deild:
A-riðill:
Léttir Reykjavík, Víðir Garði,
Austri Eskifirði og Reynir Sand-
gerði.
B-riðill:
Leiftur Ólafsfirði, Þór
Vestmannaeyjum, Ármann
Reykjavík og HSÞ-b Mývatns-
sveit.
C-riðiIl:
KA Akureyri, Afturelding Mos-
fellssveit, Stjarnan Garðabæ og
Grindavík.
D-riðiIl:
Þór Akureyri, Haukar Hafnar-
firði, Árroðinn Eyjafirði og Magni
Grenivík
3. deild:
A-riðill:
HSS Ströndum, Einherji
Vopnafirði, Víkingur Ólafsvík og
Bolungarvík.
B-riðiIl:
ÍR Reykjavík, Augnablik Kópa-
vogi, Súían Stöðvarfirði og Efling
S. Þingeyjarsýslu.
C-riðill:
Snæfell Stykkishólmi, Grótta
Seltjarnarnesi, ÍK Kópavogi og
HV Akranesi.
D-riðill:
Leiknir Fáskrúðsfirði, Selfoss,
Stefnir Suðureyri og Tindastóll
Sauðárkróki.
4. deild:
A-riðill:
Neisti Djúpavogi, Vaskur Akur-
eyri, Hafnir og Stokkseyri.
B-riðiII:
Valur Reyðarfirði, Fram Skaga-
firði, Eyfellingur og Leiknir
Reykjavík.
C-riðiII:
Tálknafjörður, Hvöt Blönduósi,
Árvakur Reykjavík og Vorboðinn
Eyjafirði.
D-riðill:
Víkverji Reykjavík, Reynir Ár-
skógsströnd, Þór Þorlákshöfn og
Hveragerði.
Kvennaflokkur:
A-riðiIl:
Isafjörður, Stokkseyri, Akra-
nes, KA og Hveragerði.
Lava-loppet 1984:
„Góðar undirtekt-
ir erlendis frá66
Lava-loppet, skíðagangan alþjóðlega sem haldin var hér á landi í
fyrsta skipti sl. vetur, fer fram í Bláijöllum þann 7. apríl. Trimm-
nefnd ÍSI hefur þegar staðið fyrir talsverðri kynningu erlendis.
„Við reiknum með góðri þátttöku crlendis frá og búumst við um 200
þátttakendum í allt. Undirtektir ytra hafa verið mjög góðar og
eigum við t.d. von á stórum hópi frá Frakklandi, en þaðan kom
enginn keppandi í fyrra,“ sagði Astbjörg Gunnarsdóttir, formaður
Trimmnefndar ÍSÍ, í gær.
- VS
Ingemar Stenmark
75. sigur
Stenmark
Ingemar Stenmark vann sinn 75.
sigur í heimsbikarkeppninni á
skíðum í fyrradag er hann sigraði í
stórsvigi í Adelboden í Sviss. Hu-
bert Strolz frá Austurríki varð ann-
ar, Pirmin Zurbriggen frá Sviss
þriðji og Marc Girardelli frá Lux-
enrburg fjórði. Hjá Phil Mahre,
hinum bandaríska handhafa
heinrsbikarsins, gekk enn allt á
afturfótunum, hann féll í fyrri um-
ferð og var þar með úr leik.
Prentvillur
Prentvillupúkinn frægi geystist
hér um sali í gær og ataðist meira í
íþróttasíðunni en áður í ntanna
minnum. Einna mesta óskundann
gerði hann með því að breyta
Grenivík í Grindavík, 3. deildarlið
Magna er frá Grenivík eins og al-
þjóð veit. Þá lækkaði hann hæsta
skor vetrarins í handboltanum um
heil 9 mörk, Árrnann vann Ögra
49:18 en ekki 40:18. Loks ruglaði
hann úrslitum í ensku knattspyrn-
unni og felldi niður én rétt hljóðar
síðari málsgreinin ígreininni „Wat-
ford áfram" á þessa leið: Önnur
úrslit í gær: Birmingham-Sheff.
Utd. 2:0 (Harford og Wright
skoruðu), Newport-Plymouth 0:1,
Bristol City-Notts County 0:2,
Scunthorpe-Leeds 1:1, Swindon-
Carlisle 3:1, Wolves-Coventry 1:1
(Eves/Peake). Púkinn kom
reyndar víðar við en önnur brek
hans voru léttvægari.
sírnii
B-riðill:
Fylkir, Víðir, Breiðablik, Fram
og Víkingur.
C-riðill:
Armann Kirkjubæjarklaustri,
KR, Valur og Efling.
Að þessu sinni verður leikið eftir
breyttu fyrirkomulagi í karlaflokki
sem samþykkt var á ársþingi KSÍ f
desember. Engin úrslitakeppni
verður í 2. 3. og 4. deild, né heldur
um fall úr 1. deild. Þess í stað fer
efsta liðið í hverjum riðli beint upp
í næstu deild fyrir ofan en neðsta
liðið fellur viðstöðulaust í næstu
fyrir neðan. í 1. deild verður að
sjálfsögðu úrslitakeppni fjögurra
efstu liða um meistaratitilinn að
vanda, undanúrslit og síðan úrslita-
leikur. í undanúrslitum mætast
annars vegar sigurvegarar í A- og
D-riðlum og hins vegar í B- og C-
riðlum. Sigurvegararnir þar leika
síðan úrslitaleik mótsins. I kvenna-
flokki verður sama fyrirkomulag
og áður, sigurvegararnir í riðlunum
þremur leika einfaldlega stigak-
eppni urn íslandsmeistaratitilinn.
Breiðablik er núverandi fslands-
meistari, bæði í karla- og kvenna-
flokki. Keppt verður í kvenna-
flokki, 2. og4. deild 21.-22. janúar
og 1. og 3. deild 25.-26. febrúar.
- VS