Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 15
•í.vjsL , jy*'s,‘n r.i‘! V/’i-lí /OOl ? - /«!';* U Fimmtudagur 12. janúar 1984' ÞJÓÐVILJINN — SÍ£)A 15 RUV 1 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leiktimi. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Torfi Ólafsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Skóladag- ar“ eftir Stefán Jónsson. Pórunn Hjartar- dóttir les (4). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) 10.45 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.15 Suður um höfin. Umsjón: Þórarinn Björnsson. 11.45 Tónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup" eftir Torthildi Þorsteinsdóttur Hólm Gunnar Stefánsson les (13). 14.30 Á frívaktinni. Sigrun Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Jörg Baumann og Klaus Stoll leika Dúó í D-dúr fyrir selló og kontrabassa eftir Gioacchino Rossini / Gunnar Kvaran leikur Svítu nr. 1 i G-dúr fyrir selló eftir Johann Sebastian Bach / Rögnvaldur Sigurjónsson leikur etýður, vals og ballöðu eftir Frédéric Chopin. 17.10 Síðdegisvaka. 18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson flytur. 19.50 Við stokkinn. Stjórnendur: Guðlaug Maria Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdóttir. Þórhallur L. Sigurðsson (Laddi) f einu af mörgum gerfum sínum. 20.00 Leikrit: „Frost á stöku stað“ eftir R.D. Wingfield. Þýðandi: Karl Ágúst Úlfsson. Leikstjóri: Benedikt Árnason. Leikendur: Helgi Skúlason, Hákon Waage, Andri Clausen, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurjóna Sverrisdóttir, Kristján Viggósson, Saga Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Örn Árnason, María Sigurðardóttir, Þórhallur L. Sigurðs- son og Kristján F. Magnússon. 21.40 Einsöngur i útvarpssal: Eiður Á. Gunnarsson syngur sjö lög úr „Svana- söng" Schuberts; Daníel Daníelsson þýddi Ijóðin. Ólafur Vignir Albertsson leikur á pí- anó. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Ljóð og mannlíf. Umsjón: Einar Arn- alds og Einar Kristjánsson. Lesari með um- sjónarmönnum: Sigriður Eyþórsdóttir. 23.00 Siðkvöld með Gylfa Baldurssyni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. JB e!“i o — RUV 2 Arnþrúður Karlsdóttir, einn af morgun- hönum annarrar rásar. 10-12 Morgunvaktin. Alltaf er sama fólkið á vaktinni. Þetta hljóta að vera miklir morg- unhanar. 14-16 Jón Axel og Pétur Steinn sjá um þáttinn. Ungir strákar sem áður hafa verið með þætti á Rás 1. 16- 17 Rokkrásin. Snorri Skúlason og Skúli Helgason, nemendur Mennta- skólans í Reykjavík, sjá um rokkið. 17- 18 Vinsælu gömlu rökklögin, valin af Berta Möller söngvara og löggu. Húsnæðisfrumvarpið Tilrœði við láglaunafólk Rétt fyrir jól fengu launþegar hér á landi ljótan jólaglaðning, en þá lagði félagsmálaráðherra fram nýtt frumvarp tii laga um Húsnæðisstofnun ríkisins. Gengur þetta frumvarp á skjön við þau félagslegu markmið sem Framsóknarflokkurinn byggir, eða réttara sagt byggði á, því að með stjórnarforystu í leiftursókn- arstjórn þeirra Alberts, Geirs og Steingríms er komin mikil slag- síða á félagshyggju Framsóknar- flokksins. Þykir mér þetta fruntvarp ólíkt því sem ég hélt að félagsmálaráð- herra vildi, þ.e. að bæta kjör þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu, og er líklegt að krumla Alberts skattpíningarráð- herra hafi komið þar nærri. Það alvarlegasta við frumvarp- ið er, að þeir sem kaupa íbúð í verkamannabústöðum verða að borga út 20% af heildarverði íbúðar en það var 10% áður. Það hefur í för með sér að sá sem fær úthlutað fjögurra herbergja íbúð þarf að snara út 400 þúsundum króna í stað 200 þúsunda áður og erspurning, hvernigfólk með 141 þúsunda króna meðalárstekjur geti reitt þá upphæð frant. Einnig er fleirum t.d. námsmönnum og húsnæðissamvinnufélögum m.a. Búseta veittur réttur til lán- veitinga úr Byggingasjóði verka- manna án þess að séð sé fyrir auknu fjármagni til sjóðsins. Þetta hefur það í för með sér að minna fé verður veitt í Verka- mannabústaðakerfið en verið hefur, en það er eina von fjölda fólks til að losna út úr vítahring húsaleiguokursins. Má því segja að frumvarpið sé skref afturábak og verður laun- þegahreyfingin að slá skjaldborg um þessi réttindi sín, gegn fram- sókn „leiftursóknarfrjálshyggju- liðsins“ í stjórnarflokkunum gegn frjálsum lýðréttindum hins vestræna þjóðskipulags. Ekki er þó allt slæmt sem í hinu nýja húsnæðismálafrumvarpi er. Frumvarpið, ef að lögurn verður, kemur frekar en gömlu lögin gerðu í veg fyrir allskonar brask með Verkamannabústaðina sem því miður hefur alltof oft við- gengist og þekki ég unt það nokk- ur dæmi. Þess vegna er nýja frumvarpið ekki alslæmt. Skora ég á fyrrverandi flokks- bróður ntinn, hæstvirtan félags- málaráðherra Alexander Stef- ánsson að breyta frumvarpinu • þannig að fólk borgi aðeins 10% út í Verkamannabústöðunum en ekki 20% eins og gert er ráð fyrir í nýja frumvarpinu og er það að- eins sjálfsagt af félagshyggju- flokksmanni að gera það í þeirri harkalegu aðför að andlegu heilbrigði og lífshamingju fólks sem virðist vera „primus motor“ hjá vissum öflum í þjóðfélaginu. Virðingarfyllst. Jóhann Þórhalísson kennari Mín skoðun Lengst af hefur það verið skoðun mín, að allir menn séu bornir jafnir. Þó misjafnlega gangi með jafnréttið síðar í lífs- hlaupinu, væri það önnur saga. Því miður er þetta ekki lengur rétt, því þegar við fæðingu, er nýburanum mismunað, með mis- jafnlega háum greiðslum, vegna fæðingarorlofsforeldranna. Þessi rangindi bitna auðvitað þegar, á hinu nýfædda barni, með því að sá tími sem foreldrið getur verið frá vinnu, er skertur miðað við þá sem fá hæstu orlofsgreiðslurnar. Þó hygg ég, að enginn geti borið á móti því að barnsfæðing sé sami viðburðurinn í lífi fólks, hvort sem móðirinn er í B.S.R.B., B.H.M. eða bara kornung skóla- stúlka, sem ekki hefur viljað þiggja þá þjónustu að láta eyða fóstri sínu. En svona eru nú lögin og regl- urnar er manni sagt. Mér er bara ómögulegt að átta mig á því, hvernig gáfaðir, og í flestum til- fellum góðir menn, geta sest nið- ur og samið svona ólög. Hitt má svo auðvitað skoða og deila um, hversu háar þessar orlofs- greiðslur eigi að vera. En sam- kvæmt ofangreindum rökum eiga þær að vera jafnháar í krónutölu til allra kvenna. Sömu laun í fœðingaorlofi til allra kvenna Ég vil því skora á þá menn sem til þess hafa vald, að lagfæra þeg- ar þessi mistök, sem greinilega hafa orðið við gerð þessara laga. Það er ósköp einfalt, og ekki far- ið fram á mikið, semsagt: Sömu laun í fæðingarorlofi til allra kvenna. Sjúklingaskatturinn Og þar sem ekki er nú á bæta- ndi óréttlætið og ójöfnuðinn í þessu þjóðfélagi, ofbýður manni þessi umræða stjórnvalda um sjúklingaskattinn. Auðvitað á að spara í opinberum rekstri. En , það á ekki að gerast með þeim hætti að draga fólk í dilka, eins og stjórnarandstæðingar bentu á og rökstuddu í sjónvarpsþættinum Þingsjá sem fjallaði um þessi mál. Vald peninganna er mikið og alls- Fólki er mismunað strax við fæðingu. staðar. Það teygir loppur sínar meira að segja inn á sjúkrastofn- anirnar sem yrði þó enn frekar með því að leggja á þennan skatt. Ef við skoðum þessa umræðu alla mjög vel, áttum við okkur á því, að eina leiðin frá þessari geigvæn- legu stefnu ríkisstjórnarinnar, er að efla Alþýðubandalagið svo mjög, að stefna þess megi betur njóta sín í þjóðfélaginu framveg- is. 0639-2784 ÁG. Um lesendabréf Raddir þjóðfélagsþegnanna eru mikilvægar í öllum málum. Þjóðviljinn hefur mikinn áhuga á að heyra frá fólki. Skoðanir og ábendingar eru vel þegnar í þess- um dálki sem ber yfirskriftina „frá lesendum“. Nú viljum við skora á þig les- andi góður, að hringja til okkar í síma 81333 eða skrifa okkur. Láttu okkur vita hvað þér liggur á hjarta. Við mununi leggja áherslu á að birta bréf og upphringingar sent til okkar koma ef þau eru rituð undir fullu nafni. Birting nafna er þó ekkert skilyrði nema þegar _deilt er á ákveðna nafngreinda einstaklinga. Ef lesendur óska svara við spurningum sínum verður þeirra leitað og munu birtast jafnhliða bréfunum. Laddi í aðal- hlutverki Fimmtudaginn 12. jan. kl. 20.00 verður flutt í útvarpinu sak- amálaleikritið Frost á stöku stað eftir hinn kunna enska leikrita- höfund R. D. Wingfield. Þýðing- una gerði Karl Ágúst Úlfsson en leikstjóri er Benedikt Árnason. Efni leiksins er í stuttu máli þetta: Ókunnur maður, sem ekki vill segja til nafns, hringir í neyðar- síma lögreglustöðvarinnar í Denton og tilkynnir að stúlka hafi orðið fyrir árás úti í Denton- skógi þá um nóttina. Þetta er upphaf heldur ónæðis- samrar viku hjá Frost leynilög- reglumanni og samstarfsmönn- um hans því fleiri óhugnanlegir atburðir fylgja í kjölfarið. Leikendur eru: Þórhallur L. Sigurðsson, Kristján Franklín Magnús, Helgi Skúlason, Hákon Waage, Andri Örn Clausen, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurjóna Sverr- isdóttir, Kristján Viggósson, Saga Jónsdótir, Pálmi Gestsson, Örn Árnason og María Sigurðar- dóttir. bridge Bridge er margslungiö spil, þvi flókn- ara, eðlilega, sem menn eru lesnari i fræðunum. Eftirfarandi spil kom fyrir í „léttum dúr“ á Sendibílastöðinni: Norður S K9752 H - T 97643 L G72 Vestur Austur S DG S 10843 H 107643 H AKD9852 T 85 T - L KI083 L D5 Suður S A6 H G T AKDG102 L A964 N/S voru með „kveðjur á öllum" og runnu því greiðlega í 6 tígla. A/V mátu varnarmöguleika sína góða og slepptu því fórninni. Suður (Baldur Bjartmarss.) var því sagnhafi og útspiliö hjarta. Baldur gerði sitt besta, trompaði, tók trompin. Þá tvo efstu í spaða og trompaði spaða. Þegar liturinn brotnaði ekki sá Baldur aðeins örlitla glætu. Hann tók lauf ás og spilaði meira laufi og vestur vildi tryggja sinni hlið slaginn, svo hann stakk upp kóng. I lagi, svo langt sem það nær. Aðeins meiri rútina í spilinu hefði fært N/S unnið spil án nokkurra varnarmis- taka. Laufin þurfa aöeins að vera 4-2 með skiftum háspilum eða KD. Farið er inn í borö á tromp níu og spaöa enn spilað og trompað. Nú er laufi spilað og er þá sama hvor varnarspilara á slaginn. Tekið skal fram að sagnhafi „sá" lausnina sjálfur eftirá. Þetta spil er að sjálfsögöu „beint upp úr bókinni". Það færir sín laun að vera lesinn í Bridge, sem i öðrum fræðum. Tikkanen í stríði og ástum er allt leyfilegt en oftast of dýrt. Gœtum tungunnar Sagt var: Þessi vegur er mikið lengri en hinn. Rétt væri: ... miklu lengri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.