Þjóðviljinn - 04.02.1984, Blaðsíða 4
'SÍé'A - Þ.íÖðVilÍÍnI^ He
’.pr
Sú er ástin heitust,
sem bundin er meinum,
er því best að unna ekki neinum.
Úr íslensku danskvœði
Skógar í Þorskafírði, fæðingarstaður Matt-
híasar Jochumssonar. Jörðina átti síðar
Jochum Eggertsson - Skuggi - en hann var
bróðursonur Matthíasar.
Jochum M. Eggertsson eða Skuggi
eins og hann kailaði sig var ágætt skáld
og liggur eftir hann töluvert af skáld-
skap og þýðingum ásamt býsna sér-
kennilegum fræðiritum.Hann átti ekki
langt að sækja skáldagáfuna því að
þjóðskáldið Matthías Jochumsson var
föðurbróðir hans og einnig eru mörg
fleiri þekkt skáld í þeirri ætt. Hér birt-
um við kafla úr rímu eftir Jochum:
Hlakkar og flýgur heimskan kunn,
hakkar og sýgur blóðgan grunn;
flakkar og lýgur fólks í munn
frakkar en smýgur vatn í brunn.
Hvar eru blysin? Bláa strönd!
Bylgjan er risin með sín grönd:
hamingjublysin, hlekki, bönd.
Hungruð og visin sál og önd.
Fannst mér í draumi gott þitt grjót;
gafst mér í laumi undir fót.
I örlagastraumi áttir nót,
í hennar flaumi sálubót.
Spannaði sunna rósarunn,
runn sem að grunni átti brunn,
brunn sem að kunni mýkja munn,
munn sem að unni þínum hlunn.
Faldanna los á Ijósri unn
lyftist sem gos í sefans brunn;
ið svífandi vos að sjafnar grunn,
safnast í bros á þínum munn.
í dúnmjúkum ymi sál mín sá
í sólroðahvimi mynd þér frá.
í dagganna gimi draum þinn má
og drifhvítu brimi ennþá sjá.
'innur og spinnur vonin greið
andann til handa þeim er beið;
)ldin til moldar fœlir seið,
hnur í kynnum aðra leið.
Harpan og boginn, heyrn og sýn,
hrœrist. Og loginn nœr til mín
Márinn er floginn! mild og fín
mænir á voginn stúlkan þín.
jrtinniswsrtfi ilharualdscns
Hvaða bær
er þetta?
Mynd af þessum burstabæ barst upp í hendurnar á Þjóðviljanum um daginn
en ekkert er vitað um hver bærinn er. Kannski getur einhver lesandi bætt
upp á sakirnar og hafi hann þá samband við Guðjón Friðriksson í síma
81333. Vindspjaldið á strompinum gæti kannski gefið vísbendingu um frá
hvaða landshluta bærinn er.
Félagsleg
og
lögfræðileg
ráðgjöf
veitt af
konum til
kvenna
á sér og væri nauðsynleg vegna þess að kon-
ur mæta annars konar vandamálum en karl-
ar. „Við sem að þessari ráðgjöf stöndum
eigum það sameiginlegt að vera óánægðar
með stöðu kvenna og viljum leggja okkar af
mörkum til að hagur þeirra verði sem mest-
ur og bestur. Við teljum kvennaráðgjöf
eðlilegt framhald þeirrar baráttu sem nú er í
gangi, þ.e. í pólitík, friðarbaráttu og launa-
baráttu. Vegna sameiginlegrar reynslu
kvenna teljum við æskilegt fyrir okkur að
hittast og ræða vandamálin sem fylgja
jafnréttisbaráttunni. Hvaða kona kannast
t.d. ekki við togstreituna um vinnu utan
heimilis og heima? Þetta og fleiri vandamál
eigum við allar og það eflir okkur að bera
saman reynslu okkar og bestu hugsanlegar
lausnir þeirra". -jp
Sigrún Benediktsdóttir lögfræðingur Kvennaráðgjafar. Þjóðviljamynd -eik.
Kvenna-
ráðgjöf
Kvennaráðgjöf hefur verið sett á
laggirnar og mun hafa aðsetur sitt í
Kvennahúsinu (Hótel Vík). Kvennaráð-
gjöfin er ekki á vegum neinna samtaka,
heldur hefur hópur 20 kvenna tekið sig
saman og komið ráðgjöfinni af stað.
Konurnar sem munu starfrækja ráð-
gjöfina eru félagsráðgjafar og félags-
ráðgjafarnemar, lögfræðingar og lög-
fræðinemar. Að jafnaði munu fimm
konur vera til viðtals í Kvennahúsinu á
þriðjudagskvöldum kl. 8-10.
Sigrún Benediktsdóttir lögfræðingur
Kvennaráðgjafar sagði Þjóðviljanum að
bæði yrði veitt félagsleg og lagaleg ráðgjöf.
„Við munum taka á móti konum og tala
við þær út frá þeirra sjónarhorni en ekki
eins og starfsmaður sem ræðir við skjól-
stæðingsinn“, sagði Sigrún. Hún benti jafn-
framt á að einnig væri hægt að hringja til
þeirra í síma 21500 eða skrifa til þeirra í
Kvennahúsið, Vallarstræti, 101 Rvík.
„Einnig er konum boðið upp á að koma og
ræða sín mál í hópum, skiptast á skoðunum
og hlusta hver á aðra því þannig munu þær
efalaust komast að því að þær eiga samleið
með mörgum öðrum“. Sigrún sagði að þau
erindi sem berast verði ekki skráð undir
nöfnum, auk þess benti hún á að ráðgjöfin
verði veitt öllum að kostnaðarlausu.
Sigrún sagði að ráðgjöf sem þessi ætti rétt
Póstkortið að þessu
sinnier affyrstu
myndastyttunni í
Rvík, nefnilega
Thorvaldsensstytt-
unni sem stóð upp-
haflega þar sem
stytta Jóns Sigurðs-
sonar á Austurvelii
er nú. Takiðeftir
girðingunni og
klæðnaði barn-
anna. Húsið til
vinstri er Isafoldar-
húsið sem enn
stendur.