Þjóðviljinn - 04.02.1984, Side 6
» SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. febrúar 1984
MOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
\hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, hjelgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglysingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
rils<jjornararci n______________________
Munu orð standa?
Þrír ráðherrar hafa gefið yfirlýsingar. Orð þeirra eru
í hrópandi mótsögn. Innan ríkisstjórnarinnar er grund-
vallarágreiningur. Látum ráðherrana tala.
Sverrir Hermannsson í viðtali við Morgunblaðið:
„Ég geri mér ljóst að forsendur í fjárlögum nægja ekki
til að ná sáttum á vinnumarkaðnum.“
Steingrímur Hermannsson í viðtali við Þjóðviljann:
„Ég er sammála Sverri um að það sé ekki til neinn 4%
múr. Ég vil taka undir með Sverri um að þessa launa-
deilu verður að leysa með samkomulagi. Ég er mótfall-
inn hótunum um eitt eða annað.“
Albert Guðmundsson í viðtali við Tímann: „Ég átta
mig nú varla á þessum yfirlýsingum iðnaðarráðherra og
forsætisráðherra. Það lítur beinlínis út fyrir að þeir séu
að nota tækifærið til að losna við mig úr ríkisstjórninni.
Þeir segja þetta án þess að hafa nokkurt samráð við
mig, en samningamálin heyra undir fjármálaráðuneyt-
ið. Þessi orð eru ekki sögð með mínu leyfi.“
Steingrímur Hermannsson í viðtali við Morgunblað-
ið: „Ef samningar fara umfram 4% hækkun launa, þá
verður auðvitað erfiðara að ná markmiðum ríkisstjórn-
arinnar. Hins vegar verður það mat ríkisstjórnarinnar,
þegar samningar hafa tekist, hve alvarlegt það er.“
Albert Guðmundsson í viðtali við Morgunblaðið:
„Þetta er eins og þeir séu að biðja viðsemjendur mína
að fara út fyrir ramma fjárlaganna, sem yrði til þess að
ég hætti. Það er auðvitað ljóst að ef samið verður út
fyrir ramma fjárlaganna, sem er 4%, þá eru forsendur
fjárlaganna brostnar.“
Steingrímur Hermannsson í viðtali við DV: „Kjara-
samningar eru víðtæk og viðkvæm mál og það þarf
ákveðinn sveigjanleika. Þótt ríkisstjórnin hafi sett
markið við 4% almennar launahækkanir sé ég til dæmis
ekki að það kollvarpi öllu ef þær teygðust í 6%.“
Albert Guðmundsson í viðtali við Þjóðviljann þegar
hann var spurður hvað myndi gerast ef farið yrði yfir
4%: „Þá er ramminn farinn og ég líka.“ Og í viðtali við
Tímann: „Annað hvort eru menn trúverðugir í sínum
málflutningi og staðfastir og trúa því að þeir séu að gera
rétt eða þeir verða að fá sér aðra vinnu. Ef ég hef ekki
verið að gera rétt með því að framfylgja stefnu ríkis-
stjórnarinnar, þá segir það sig sjálft að ég á ekki heima í
ríkisstjórninni.“ Og að lokum í viðtali við Morgunblað-
ið: „Mér finnst eiginlega bæði forsætisráðherra og iðn-
aðarráðherra vera að biðja mig um að segja af mér með
þessum ótímabæru yfirlýsingum.“
Svo mörg eru orð ráðherranna. Ef þau standa getur
atburðarásin aðeins valið milli tveggja brauta. Annað
hvort verður samið um 4% og Albert Guðmundsson
verður áfram fjármálaráðherra. Eða samningar fela í
sér hærri tölu og Albert Guðmundsson segir af sér.
Ærið margir telja þó að ekkert mark sé takandi á
orðum Alberts og þess vegna hafi Steingrímur og Sverr-
ir valið þann kost að taka af honum völdin í samninga-
málunum.
Albert
og fréttamatið
í Aðalstrœti
Yfirlýsing Alberts Guðmundssonar um hugsanlega
brottför úr ríkisstjórninni var sett sem aukafrétt inni í
Morgunblaðinu. A útsíðum greindi blaðið frá atburð-
um sem það taldi merkilegri eins og t.d. 15% hækkun
hafnargjalda. Fréttamatið í Aðalstræti sýnir að stjórn-
endur Morgunblaðsins taka ekki mikið mark á orðum
Alberts.
Tarzan konungur apanna var
hetja í Hlíðunum uppúr 1960 og
strákana í ísaksskóla dreymdi
mikla dagdrauma þar sem við
sveifluðum okkur gegnum frum-
skóginn í leit að Jane. Einn úr
þessu gengi þróaði með sér frægt
Tarzanöskur sem aflaði honum
ómældrar virðingar meðal vina
og kunningja en olli fjölskyldu og
nágrönnum skiljanlega nokkurri
geðshræringu, enda mátti heyra
það frá Sunnubúðinni í Mávahlíð
langt yfir Miklubraut. En hann
gat aldrei losað sig við Tarzan,
síðast þegar til hans spurðist var
hann enn að leika frumskóga-
hetjuna, ævinlega með apahjörð í
kringum sig og kannski ekki
furða að hann skuli nú orðinn
frammámaður í Heimdalli.
En Johnny Weissmúller sem
hetjulegast lék Tarzan og átti
ópið fræga, hana er nú ekki
lengur einn af oss. í byrjun árs
urðu fætur hans kaldir útí Kalif-
orníu og þeir sem ólust upp undir
handarjaðri þrjúbíóanna munu
ábyggilega minnast hans með
söknuði.
Johnny var einu sinni spurður
hvaða ráð hann vildi helst leggja
sporgenglum sínum, Tarzönum
seinni tíma. „Aldrei að sleppa
reipinu", svaraði hinn aldni
frumskógadrottinn, og var ekki
almennilega kominn útúr hlut-
verkinu, „ég sleppi aldrei reipinu
þegar ég sveifla mér um frum-
skóginn og ég er enn á lífi“.
Þó Verkamannaflokkurinn sé
enn á lífi einsog Johnny
Weissmúller áður en hann dó, þá
er orðið nokkuð ljóst að ein-
hversstaðar á för sinni um frum-
skóginn hefur hin roskna hetja
breskrar alþýðu illilega misst af
haldreipinu góða. Nýr og tiltölu-
lega vinsæll leiðtogi, Neil Kin-
nock, er að vísu tekinn við stjórn,
en þrátt fyrir það og endurtekin
glappaskot Ihaldsstjórnarinnar
uppá síðkastið („gengur á ban-
anahýðum“, sagði einn fjölmið-
ill) þá er flokkurinn fjarri því að
endurheimta sinn fyrri status
Tarzanskeiðið er búið
meðal hefðbundinna fylgis-
manna, til að mynda ungs fólks
og ákveðins hluta verkalýðsstétt-
arinnar.
f þetta má auðvitað spá frá
mörgum hornum, þó þykir mér
ein skýring merkust og kynni að
eiga erindi víðar. Hún er í stuttu
máli sú að sérstaða flokksins er
að nokkru leyti töpuð. Úrræði
hans skarast meir og meir við
aðra flokka og misræmið milli
orða og gjörða er nokkuð áber-
andi hjá honum sem ekki stýrir
mikilli lukku í stjórnmálum. Það
fólk sem ekki á sæti við pallborð
þjóðfélagsins sér hann þess vegna
ekki sem jafn sjálfsagðan fulltrúa
sinn og áður.
Þannig er til dæmis nokkuð
eðlilegt að hæstvirtir kjósendur
ruglist í ríminu þegar Verka-
mannaflokkurinn fordæmir
íhaldið grimmilega fyrir að vilja
hækka laun minna en nemur
verðbólgu, þvíþeim er auðvitað í
fersku minni að stjórn þess sama
Verkamannaflokks féll í kosning-
unum 1979 einmitt fyrir að hafa
framfylgt svipaðri stefnu.
Ekki hefur heldur tvístígandi
flokksins í þeim málum sem lúta
að kjarnorkuvopnum gert ímynd
hans afdráttarlausari. Arum sam-
an hefur landsþing flokksins sam-
þykkt að kominn í stjórn skuli eitt
hinna fyrstu verka vera að sparka
þessum illa séðu drápstólum útí
hafsauga. Þegar Verkamanna-
flokkurinn var síðast í stjórn bar
hins vegar ekki mikið á efndun-
um.
Össur Skarp
héöinsson
skrifar
Hér í Bretlandi er fátt um
meira slegist en nýju eldflaugarn-
ar sem Kanar hafa sett upp í
Greenham Common, og Verka-
mannaflokkurinn er náttúrlega
hávær í mótmælum sínum. Það
verður hins vegar ekki af honum
logið að síðasta ríkisstjórn hans
tók fyrstu ákvarðanirnar um
staðsetningu flauganna hér í
Bretlandi.
Fleiri dæmi, jafnstór og
jafnvond, mætti tína til sem ekki
baða Verkamannaflokkinn
beinlínis í ástúðlegu ljósi, og
skýra kannski af hverju svo margt
ungt fólk er sannfært um að það
skipti ekki máli hver er í stjórn,
allt er þetta sama gamla dótið
með sömu gömlu svörin.
Allt minnir þetta sorglega á
Johnny gamla Weissmúller þegar
hann léttgalinn var rekinn af elli-
heimilinu fyrir að hoppa um á
nærbuxunum og æpa og öskra
einsog í gamla daga. Hann var
ekki lengur Tarzan.
Sama gildir um sósíalíska
flokka sem skyndilega komast í
ríkisstjórn og fara að slást um
kaup við fólkið sem þeir áður
studdu, eða láta sér lynda erlend
herlið sem þeir andæfðu utan
stjórnar. Þegar búð er að sparka
þeim úr stjórninni komast þeir
fyrr eða síðar að raun um að það
tjóar ekki að góla einsog í gamla
daga. Þeirra Tarzanskeið er
endanlega búið.
Þeir hafa lagt sjálfa sig á mæli-
/ stiku reynslunnar og það tekur
enginn sama mark á þeim og
áður. Einlægni og góður vilji eru
dregin í efa og hljómgrunnur og
brautargengi á meðal alþýðu
manna minnkar að sama skapi.
Um stundarsakir er haldreipið
góða týnt, sérstaðan er í hættu.
Og það verða menn einfald-
lega að skilja.