Þjóðviljinn - 04.02.1984, Qupperneq 17
Helgin 4.-5. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Minning
Kristrún Óskarsdótdr
F. 20.9. 1947-D. 31.10. 1983
Sú hörmulega fregn barst okkur
Stykkishólmsbúum, mánudaginn
31. okt. s.l. að einn skelbátanna
væri að farast vestur við Bjarn-
eyjar. Það spurðist fljótt inn á vinn-
ustaði og heimili í þorpinu, hvaða
bátur það væri. í hugann koma
nöfn þeirra einstaklinga, sem eru
skipverjar á Haferni S.H. 122, þar
þekkjum við hvert nafn, hvern
Kristrún stundaði fjölbreytt
störf fyrir utan heimilisstörfin, svo
sem verslunar- og skrifstofustörf
og flestar gerðir fiskvinnslustarfa,
en sjómennskuna tók hún fram yfir
flest annað. Það sést á þessari upp-
talningu að hún stöðvaðist ekki
einungis við hin hefðbundnu
kvennastörf, þar sem jafnrétti var
hennar hjartansmál og hún lét
I minningu
Kristrúnar Óskarsdóttur
um Kristrúnu Óskarsdóttur og tengdason hennar,
Ingólf Kristinsson, sem fórust með m/b Haferni frá
Stykkishólmi 31.10. 1983
Niðdimma nótt,
nú verður björgin í hafdjúpið sótt.
Enginn þarf örbirgð að líða
ástvinir bíða.
Ólgandi sœr,
óhug á gjörvalla byggðina slœr.
Berst nú frá hafinu harmur
hnípinn er hvarmur.
Hverfula líf,
hvar er þín örúgga vissa og hlíf
þeirra er um hafdjúpið halda
haustdaga kalda.
Upprenni sól,
eilífa guðsmóðir vertu þeim skjól
þeim, sem nú sitja í sárum
sveipaðir tárum.
Gefi þeim ró
guðsonur Jesús á krossinum dó.
Verði hann skjól þeirra og skjöldur,
skakki hann öldur.
Einar Steinþórsson og Gréta.
skipverja, því að í litlu sjávarþorpi
er stutt á milli heimila og náin
tengsl, ættingja, vina eða á félags-
legu sviði. Brátt fréttist að þrem
skipverjum hefði verið bjargað,
Guði sé lof fyrir það, svo hófst hin
vonlausa bið og leit, þrjá skipverja
hafði hafið heimt, þau voru Pétur
Jack, IngólfurKristinssonog Krist-
rún Óskarsdóttir, hennar minn-
umst við hér.
Okkar kynni af Kristrúnu voru
tengd félagsmálum fyrst í stað, síð-
ar kom margt annað til er treysti
vináttuna. Kristrún var fædd 20.
september 1947 í Stykkishólmi, ein
fjögurra barna Kristínar Þórðar-
dóttur frá Miðhrauni, Miklaholts-
hreppi og Óskars Ólafssonar frá
Söðulsholti í Eyjahreppi. Kristrún
ólst upp hér í Stykkishólmi að
undanteknum 2 árum í Hveragerði
og hefur verið hér samfleytt frá 13
ára aldri.
1*1
UTBOÐ
■ ff-R
^ >V> A
'V
Tilboð óskast í eftirtalið fyrir Hitaveitu Reykjavíkur.
1. Stofnlögn í Suðurgötu milli Hringbrautar og Tún-
götu.
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 22. febrúar 1984
kl. 11. f.h.
2. Selás, stofnlögn 2. áfanga. Tilboðin verða opnuð
fimmtudaginn 23. febrúar kl. 11 f.h.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
verkin tala. Kristrún sýndi fljótt
áhuga á félagsmálum, sérstaklega
verkalýðsmálum, mætti vel á fundi
og var ófeimin við að láta skoðanir
sínar í ljós; því var hún kosin til
trúnaðarstarfa snemma á sinni
starfsævi í Verkalýðsfélagi Stykkis-
hólms, í trúnaðarmannaráð og síð-
ar varaformaður um margra ára
skeið. Þá var hún kosin á síðasta
þing ASÍ sem fulltrúi Verkalýðsfé-
lags Stykkishólms, þar sem eftir
henni var tekið sem glæsilegum
fulltrúa verkafólks og minnist ef-
laust margt verkafólk hennar það-
an.
Einnig var Kristrún formaður
Alþýðubandalags Stykkishólms
um árabil, en hún var vinstrisinnuð
í stjórnmálum, þó hún hefði ekki
neinar kenningar á lofti heldur léti
brjóstvit og réttlætiskenndina
ráða. í þessunt tveim félögum var
Ég minnist daganna sem liðu
alltof fljótt og ýmissa lítilla atvika
sem eru þó svo stór í minningunni.
Það var setið við gluggann og horft
á smáfuglana í móanum byggja sér
bú, stundum farið og athugað hvað
liöi í litlu hreiðrunum. LJm bónda
einn las ég, sent jörðin elskaði svo
mikið að þegar hann gekk um túnið
sitt, þá lögðust stráin að iljum hans
og sóleyjarnar kepptust við að
halla sér upp að leggjum hans. Eins
var með Kristrúnu, hún unni nátt-
úrunni í allri sinni dýrð. Hún var
glöð og innileg. Það er undarlegt
að hugsa til þess að eiga ekki eftir
að sjá eldhúsdyrnar opnast og
hevra glöðu röddina þína og sjá
brosið sem yljaði um hjartað. Að
eiga ekki eftir að ganga með þér
um nótt og gleðjast yfir miðnætur-
sólinni. Þú sem alltaf hafðir svo
mikið að starfa, en áttir þó alltaf
nægan tíma til að gefa vinum þín-
um, sem eru svo margir og á öllum
aldri.
Elsku Kristrún mín, í sumar ætla
ég að ganga unt fjöruna okkar og
hlusta á nið hafsins. Ég ætla að
hlusta á öldurnar sem svæfðu þig
þeint svefni sem allir eiga eftir að
sofna. Þú hvílir nú í faðmi eyjanna
sem þú elskaðir í hinni helgu gröf
hafsins. Við þökkum þér allt sem
við höfum átt saman og ég og fjöl-
skylda mín kveðjum þig unt sinn.
Sú stund kemur að vinir þínir
leggjum á það djúp sem þú hefur
nú kannað og náð landi. Á þeirri
strönd munum við öll sameinast að
nýju.
Elsku Eyþór, Óskar og Inga
mín, þú sem missir á einu auga-
hennar kraftur, þá var hún um-
boðsmaður Þjóðviljans í Stykkis-
hólmi í mörg ár, þessi störf vann
hún af áhuga og trúmennsku og
studd til starfa af sinni fjölskyldu.
Kristrún var gift Eyþóri Ágústs-
syni vélstjóra og eignuðust þau tvö
elskuleg börn, Óskar og Ingveldi,
hjá þeim er hugurinn þessa dag-
ana, hjá feðgunum er fengu þessa
voða fregn á síldarmiðin fyrir
austan land og hjá dótturinni ungu
er missti svo mikið, en unnusti
hennar Ingólfur var meðal þeirra
er fórust, einnig hugsurn við til for-
eldra Kristrúnar systkina og alls
tengdafólksins, með ósk um að
tíminn græði sárin, megi aftur vora
í sál og sinni.
Fátæklegar línur duga skammt
harmi gegn, en minningin vermir
því eigi sjaldan hittum við þau
hjónin Kristrúnu og Eyþór á
glöðum stundum, því áhugamálin
fóru oft saman, hvort heldur var í
stjórnmálum eða smábátum og
eyjalífi, en slíkar minningar eru
minnisvarði sem seint brotnar.
Þó að skammdegisskuggar grúfi
yfir þessa dagana, er það ósk okk-
ar, að aftur verði bjart um
Breiðafjörð.
Við kveðjum þig Kristrún með
þakklæti.
Þínir vinir,
Pálína og Einar Karlsson,
Stykkishólmi.
Vinarkveðja
Ég sakna þín, ég syrgi
farinn vin,
í sálu þinni fann ég dýpsta
hljóminn
er hóf sig yfir heimsins
dœgur-glys.
A horfna tímans horfi ég
endurskin
ég heyri ennþá glaða,
þýða róminn
frá hreinni sál með hárra
vona ris.
St.St.
Örlög ráða högum manna og nú
hafa þau kallað til fundar við sig
mína kærustu vinkonu. Fyrir rúm-
um sautján árum kynntist ég KrisÞ
rúnu fyrst, það var í saumaklúbb
sem við nokkrar ungar konur
stofnuðum. Það var upphaf vináttu
sem óx og dafnaði með hverju ári
sem liðið hefur síðan, þannig að
undanfarin ár hafa verið sameigin-
leg á svo margan hátt. Þegar ég lít
til baka verður mér hugsað til allra
þeirra ánægjustunda sent við hjón-
in og reyndar fjölskyldan öll hefur
átt með Kristrúnu, manni hennar
og börnum. Varla hefur sú vika lið-
ið að við hittumst ekki á öðru
hvoru heimilinu og ræddum saman
urn allt sem okkur lá á hjarta. Og
allar þær unaðsstundir sem við höf-
um átt saman í sumarbústað þeirra
hjóna í Flatey.
Til minningar
Helfregnin barst, þii ert horfin á braut.
Minn hugur er klökkur í dag.
Ó, Drottinn, leggðu þeim líkn í þraut
er laust þetta reiðarslag.
Ég sakna þín, samherji, systir,
en svona er lífið á jörð;
þeir tápmiklu fara oft fyrstir,
í ferð þá, sem öllum er gjörð.
Er herja á harmarnir þungu
má hugurinn tak' af því mið,
að guðirnir œtla þeim ungu
athvarf við sína hlið.
Með innilegum samúðarkveðjum til allra aðstand
enda.
Jóhann H. Steinþórsson
léttstíg á grasinu og hendur hennar
voru alltaf nrildar, hvort sem hún
sinnti litlu barni, yljaði hendurell-
innar eða hlúði að hreiðri mófugls-
ins.
Vinátta og ástúð er það sem gef-
ur lífinu gildi og þessa kosti átti
Kristrún í ríkum mæli ásamt
bjartsýni og óbugandi kjarki.
Ég get aldrei þakkað það nóg-
samlega að fá að kynnast Kristrúnu
og eiga hana að vini. Ég þakka
Guði fyrir að hafa skapað hana og
foreldrum hennar fyrir að eignast
hana. Hvers vegna grípa örlögin í
taumana og stöðva þetta fagra líf?
Við getum spurt en fáum ekki svar.
Hvers vegna fékk hún ekki að lifa
lengur? Hún sem alltaf var svo full
af lífsgleði og starfsorku, alltaf svo
bragöi rnóður þína og einnig unn-
usta þinn: Guð styrki ykkur í þeirri
miklu sorg sem á ykkur er lögð.
Engin gröf er eins helg og hafið,
engin sorg svo mikil að hafið rúmi
ekki tár þín. Þar geymast þau og
perlur minninganna þróast í sálu
þinni, auka skilning þinn og gefa
þér mildan friö sorgarinnar. Þú
finnur minningarnar streyma um
sál þína. Þar áttu nokkuð sem eng-
inn tekur frá þér, sjóð sem þú getur
leitað til á erfiðum stundum.
Ykkur, fjölskyldum ykkar og
öllum þeim sem eiga um sárt að
binda vegna þessa sorglega atburö-
ar sendurn við einlægar samúðar-
kveðjur.
Drottinn blessi ntinningu hinna
látnu.
Guðrún og Baldur
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð fyrsta
áfanga Norðurlandsvegar um Eyjafjarðarleirur.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Fylling 46.000 m3
Grjótvörn 15.000m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóv. 1984.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vega-
gerðar ríkisins, Borgartúni 5,105 Reykjavík og á skrif-
stofu Vegagerðar ríkisins, Miðhúsavegi 1, 600 Akur-
eyri, frá og með mánudeginum 6. febrúar n.k. gegn
2.500 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eða
breytingar skulu berast Vegagerð ríkisins skriflega
eigi síðar en 13. febrúar.
Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í
lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar
ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík eða Miðhúsavegi 1,
Akureyri fyrir kl. 14.00 hinn 20. febrúar 1984, og kl.
14.15 sama dag verða tilboðin opnuð á þeim stöðum
að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska.
Reykjavík, í janúar 1984.
Vegamálastjóri.