Þjóðviljinn - 04.02.1984, Blaðsíða 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. febrúar 1984
Svavar
Guðmundur
Haraldur
Verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins
Aðalfundur
4. febrúar
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins
verður haldinn um næstu helgi, laugardaginn 4. febrúar, í
flokksmiðstöðinni að Hverfisgötu 105. Hefst fundurinn kl.
13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu þeir Guðmund-
ur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins
og Haraldur Steinþórsson varaformaður BSRB hafa fram-
sögu um stöðuna í kjaramálunum og formaður flokksins,
Svavar Gestsson, mun hafa framsöguerindi um efnið:
Verkalýðshreyfingin, fagleg og pólitísk.
Félagar í Verkalýðsmálaráði Alþýðubandalagsins og all-
ir stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að fjölmenna.
Verkalýðsmálaráð
Alþýðubandalagið:
Konurí AB
Miðstöð kvenna minnir á aðalfund Verkalýðsmálaráðs Alþýöubanda-
lagsins sem hefst kl. 13.30 í dag, laugardag að Hverfisgötu 105. Allir
launþegar í AB hafa seturétt á fundinum. Fjölmennum.
Miðstöð kvenna
Konur
Rabbfundur í kvennahóp ABK þriðjudag 7.
Allar konur velkomnar.
febrúar kl. 20 í Þinghól.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði,
Garðabæ og á Seltjarnarnesi.
Þorrablót.
Sameiginlegt þorrablót Alþýðubandalagsfélaganna í Hafnarfirði,
Garðabæ og á Seltjarnarnesi verður haldið laugardaginn 18. febrúar á
Garðaholti.
Skemmtunin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Miðar verða seldir hjá:
Garðabær: Guðmundur: 43956, Hafnarfjörður: Ina: 51531, Sólveig
Brynja: 53642, Seltjarnarnes: Gunnlaugur: 23146.
Kaupið miða sem fyrst. Mætum hress og kát.
Skemmtinefndin.
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Næstkomandi laugardag 4. febrúar kl. 15.00 mun Garðar Sigurðsson
hafa framsögu um stjórnmálaviðhorf líðandi stundar að Kirkjuvegi 7,
Selfossi.
Viðtalstími þingmannsins hefst að veitingum innbyrtum.
Stjórnin
Alþýðubandalagið á Akureyri:
Ðæjarmálaráð
Fundur veröur í bæjarmálaráði mánudaginn 6. febrúar kl. 20.30 í
Lárusarhúsi. Fundarefni: 1. Fjárhagsáætlun, 2. Dagskrá bæjar-
stjórnarfundar. Fundurinn er opinn öllu Alþýðubandalagsfólki.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Spilakvöld
Loksins, loksins! Hin vinsælu spilakvöld á þriðjudagskvöldum eru að
hefjast á nýjan leik. Fyrsta spilakvöldið verður n.k. þriðjudagskvöld kl.
20.30 að Hverfisgötu 105. Þetta er fyrsta kvöldið í þriggja kvölda
keppni en veitt verða verðlaun fyrir hvert kvöld. Steingrímur Sigfús-
son, alþingismaður kemur og segir fréttir frá alþingi í kaffihléi. Allir
velkomnir! Nefndin
Æsku lýðsfy I k ing Al þýðubandalagsins
Ungir Akureyringar
Nú stofnum við Æskulýðsfylkingu Alþýðubandalagsins á Akureyri.
Stofnfundurinn verður 11. febrúar í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18. Á
fundinn mæta Guðbjörg Sigurðardóttir, Óttarr Magni Jóhannsson úr
stjórn Æskulýðsfylkingarinnar og Steingímur Sigfússon, alþingismað-
ur. Munu þau kynna Æskulýðsfylkinguna, starf, stefnu, markmið. Allir
ungir sósíalistar eru velkomnir. Undirbúningshópar
Óttar Möller fyrrverandi
forstjóri Eimskips h.f.
F áránlegt
að halda því fram að ég sé að
kaupa hlutabréf ríkisins í Eimskip.
„Þetta er hreint fáránlegt í Helg-
arpóstinum, að ég sé að kaupa
hlutabréf ríkisins til þess að komast
i stjórn Eimskipafélagsins. Ég hef
aldrei heyrt neitt fáránlegra og hef
þegar haft samband við blaðið til
að leiðrétta þessa fásinnu“, sagði
Óttar Möller fyrrverandi forstjóri
Eimskips h.f. en í Helgarpóstinum
er sagt að hann sé maðurinn sem
fjárfestingafyrirtæki er að vinna
fyrir með kaup á hlutabréfum
ríkisins í Eimskip h.f.
Óttar sagði að hann hefði á sín-
um tíma hætt störfum hjá Eimskip
h.f. af heilsufarsástæðum. Hann
gæti ekkert frekar nú staðið í stór-
ræðum og hann benti jafnframt á
að hann hefði fyrir löngu getað ver-
ið komin í stjórn félagsins hefði
hann kært sig um.
„Ég taldi það ekki viðeigandi að
forstjóri fyrirtækisins sæti í stjórn-
inni og því tók ég ekki sæti þar.
Eins vil ég benda á að ég á ekki til
það fjármagn sem þarf til þessara
bréfakaupa enda þótt ég eigi nóg
fyrir mig og mína. Mér er því alveg
óskiljanlegt hvað vakir fyrir þeim
er skrifar þessa frétt og hann hafði
ekki einu sinni fyrir því að tala við
mig og spyrjast fyrir um rnálið",
sagði Öttar Möller að lokum.
Sá sem keppir við Eimskip h.f.
um bréf ríkisins í gegnum fjárfest-
ingafélagið er því ófundinn enn eða
hvað?
-S.dór
1 einum hinna mýmörgu og umdeildu leiktækjasala í Reykjavík.
Borgarstjórn samþykkir enn einn leiktœkjasalinn:
Nóg komið
segir barnaverndarnefnd, sem vill banna þá
U
Meirihluti borgarstjórnar, 11
Sjálfstæðismenn og Kristján Bene-
diktsson, Framsóknarflokki, sam-
þykkti á fimmtudagskvöld að leyfa
nýjan leiktækjasal í Aðalstræti 8
(Fjalakettinum). 8 fulltrúar minni-
hlutans auk Margrétar S. Einars-
dóttur, Sjálfstæðisflokki, voru á
móti. Barnaverndarncfnd hefur
eindregið lagst gegn opnun þessa
nýja staðar og reyndar lýst yfir
þeirri skoðun að banna eigi þessa
leiktækjasali alfarið.
Nýi leiktækjasalurinn, sem
Viggó V. Sigurðsson rekur hefur
hlotið nafnið „Freddabar" og er í
næsta húsi við annan leiktækjasal í
Aðalstræti 10, elsta húsinu í
Reykjavík. í umsögn barnavernd-
arnefndar frá 10. janúar um
„Freddabar“ segir að húsakynni
bjóði ekki upp á þann fjölda leik-
tækja sem fyrirhugaður er og að
nefndin telji nóg komið af leik-
tækjasölum í miðborg Reykjavík-
ur.
24. janúar sl. fjallaði nefndin
enn um leiktækjasali og þá var
samþykkt eftirfarandi bókun: „Nú
hefur fengist nokkur reynsla af
rekstri sala af þessu tagi og telur
nefndin hana renna stoðum undir
þá skoðun sína að banna eigi alfar-
ið þessa starfsemi. Nefndin beinir
því þeim tilmælum til borgarstjórn-
ar að hið fyrsta verði hugað að
endurskoðun 81. gr. lögreglusam-
þykktar Reykjavíkur" (sem fjallar
um leiktækjasali).
í liðinni viku sendu bæði félagas-
málaráð og barnaverndarnefnd
bréf til lögreglustjóra vegna leik-
tækjasala. f þeim er farið fram á af
gefnu tilefni að strangt eftirlit verði
haft með þessari starfsemi, einkum
hvað varðar aldurstakmörk og að
staðirnir verði sviptir rekstrarleyfi
efbrögðeru að brotum. í félags-
málaráði er nú til skoðunar til-
laga frá Guðrúnu Ágústsdóttur og
Guðrúnu Jónsdóttur um að setja á
laggirnar sérstaka nefnd sem end-
urskoði reglur um leiktækjasali.
-ÁI
Arshátíð ABK
veröur haldin laugardaginn 4. febrúar í Þing-
hól Hamraborg 11.
Húsið opnað kl. 20.30. Allir fá glas af bollu.
Barinn opnaður kl. 20.35 og þá veröur T ars-
an mættur á staðinn (Jane kemur ekki).
Kl. 21.30 mun Guðmundur Hallvarðsson
leika á gítar auk fleiri listamanna.
Á miðnætti verður boðið upp á Picadillo de la
costa lostæti, beint frá Mexico, og glas af
suðrænu rauðvíni. UndirborðumflyturBald-
urÓskarssonléttatölu.
Síöan syngjum við fullum hálsi, fremjum
samkvæmisleiki og skellum okkur í dansinn
til kl. 03.
, w tónlist viö allra hæfi.
Margrét Óskarsdóttir verður veislustjóri.
Verð kr. 200.*. Pantið miða í símum: 45306, 43294, 40163
Alþýðubandalagið í Kópavogi