Þjóðviljinn - 04.02.1984, Síða 27
Helgin 4.-5. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Sjálfkjörið
hjá
járn-
iðnaðar-
mönnum í
Reykjavík
Þriðjudaginn 31. janúar sl. rann
út framboðsfrestur vegna stjórnar-
kjörs í Félagi járniðnaðarmanna í
Reykjavík. Aðeins einn listi kom
fram, borinn fram af trúnaðar-
mannaráði félagsins, og er hann
því sjálfkjörinn.
Stjórn félagsins verður því þann-
ig skipuð næsta starfsár:
Formaður Guðjón Jónsson,
varaformaður Tryggvi Benedikts-
son, ritari Kristinn Karlsson, vara-
ritari Jóhannes Halldórsson, gjald-
keri Guðmundur S. M. Jónasson,
fjármálaritari Gunnar Ólafsson og
meðstjórnandi Óli Stefáns Ru-
nólfsson.
Samband
byggingamanna
Frá 6. umferð skákmóts Búnaðarbankans: PiaCramling kíkir á stöðuna hjá Helga Ólafssyni gegn Jóni Kristinssyni. Helgi vann sína skák en Pia á
biðskák gegn DeFirmian. Sjá úrslitin í gær á síðu 13, - og viðtal við Piu á síðu 9. Mynd Atli.
Borgarstjórn í fyrradag
Styður
starfs-
menn
álversins
Fundur Framkvændastjórn-
ar Sambands byggiagamanna
hefur á fundi sínurn lýst yfir ein-
dregnum stuðningi við þá
kjarabaráttu sem sttrfsmenn
Alversins í Straumsvík eiga í við
svissneska auðhringinn Sviss
Aluminium.
Á fundinum, sem haldinn var 28.
janúar sl., var ennfremur fordæmd
sú afstaða ríkisstjórnarinnar að
fella úr gildi ákvæði samnings ís-
lenska ríkisins og Sviss Aluminium
um bann við aðild þessa erlenda
auðhrings að samtökum íslenskra
atvinnurekenda. Segir í frétt frá
Sambandi byggingamanna að á
það skuli minnt að þetta ákvæði
samningsins sem ríkisstjórnin hafi
nú fellt úr gildi hafi á sínum tíma
verið samþykkt af meirihluta Al-
þingis. Ekkert hafi breyst þannig í
grundvallaratriðum að réttlætan-
legt sé að ríkisstjórnin felli úr gildi
umrætt ákvæði. íslensk lög tryggi
að erlendum auðhringum beri að
fara að samningum um kaup og
kjör þó þeir standi utan samtaka
íslenskra atvinnurekenda. Því hafí
enga nauðsyn borið til að fella
ákvæðið niður.
Davíð ræðst á starfsmenn
Borgarskipulags
„Ekki í fyrsta skipti“, segir Sigurður Harðarson
- Það er auðvitað Ijóst að Davíð
Oddsson borgarstjóri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík er enn eina
ferðina að ráðast á starfsmenn
Borgarskipulags Reykjavíkur
vegna þess að þeir láta ekki stjórn-
ast af stefnu og tilskipunum Sjálf-
stæðisflokksins í skipulagsmálum
heldur af faglegum metnaði hverju
sinni, sagði Sigurður Harðarson
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
skipulagsnefnd Reykjavíkur.
í nóvembermánuði sl. spurði
Sigurður Harðarson þess í skipu-
lagsnefnd hvers vegna skipulag
Skúlagötusvæðis hefði verið aug-
lýst í nafni borgarverkfræðingsins í
Reykjavík en ekki Borgarskipu-
lags sem hingað til hefur séð um
slík mál. Davíð Oddsson svaraði
loks 23. janúar sl. og þar kom fram
Jafnréttisráð og Skýrslutæknifélag
íslands halda ráðstefnu um
Ahrif tæknivæðingar
á vinnumarkaðinn
með sérstöku tilliti til jafnréttis kynjanna
,Jafnréttisráð álítur að konur
verði mun frekar fyrir barðinu á
tæknivæðingu í atvinnulífínu held-
ur en karlar. Þess vegna stöndum
við að ráðstefnu um áhrif tækni-
væðingarinnar á vinnumarkaðin-
um með sérstöku tilliti til jafnréttis
kynjanna.“
Elín Pálsdóttir Flygenring fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs sagði í
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Spilakvöld á ný
Fyrsta spilakvöld Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík á þessum vetri
verður haldið í nýju flokksmið-
stöðinni Hverfisgötu 105, n.k.
þriðjudagskvöld.
Byrjað verður að spila kl. 20.30,
en þetta verður fyrsta umferð í
þriggja kvölda keppni. Veitt verða
verðlaun fyrir hvert kvöld og einn-
ig aðalverðlaun.
Gestur á fyrsta spilakvöldinu
verður Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður en hann ætlar að segja
spilafólki fréttir frá Alþingi í kaffi-
hléi.
Steingrímur J. Sigfússon.
samtali, sem Þjóðviljinn átti við
hana vegna hinnar fyrirhuguðu
ráðstefnu, að ráðið hafi orðið
áþreifanlega vart við að konur
væru farnar að missa vinnu vegna
tölvuvæðingar. „Til dæmis hafa
sjálfvirkar símstöðvar leyst tal-
símaverði af hólmi. Við erum að
velta því fyrir okkur hver skylda
atvinnurekenda er; í þessu tilfelli
hvort Póstur og sími hafi einhverj-
ar skyldur við þá talsímaverði sem
missa vinnuna vegna nýrrar
tækni, “
Á ráðstefnunni, sem verður
haldin þann 17. febrúar á Hótel
Esju, verða flutt erindi um at-
vinnuhorfur kvenna hjá Skýrslu-
vélum, bönkum og víðar. Fjallað
verður um stefnu stjórnrhálaflokk-
anna, VSÍ og ASÍ í þessu máli og
stefna nefndar á vegum félags-
málaráðherra um tækni og at-
vinnulíf verður kynnt. _jp
sú skoðun hans að Borgarskipulag
og starfsmenn þess hefðu tekið ein-
dregnari afstöðu til Skúlagötu-
málsins en innan embættisskyldu
þeirra rúmaðist. Borgarfulltrúar
Alþýðubandalagsins lögðu af því
tilefni fram tvær fyrirspurnir á
fundi borgarstjórnar í fyrradag.
Þar var annars vegar spurt hvort
borgarstjóri drægi í efa rétt borgar-
stofnana til að hafa sjálfstæðar
skoðanir í málum og til að setja þær
fram, ef þær væru ekki í samræmi
við skoðun meirihluta sjálfstæðis-
manna. Hinsvegarvar borgarstjóri
spurður um það í hvaða atriðum
Borgarskipulag hefði gengið
lengra en rúmaðist innan embættis-
skyldu þeirra.
Við umræðurnar um svör Davíðs
Oddssonar á borgarstjörnarfund-
inum í fyrradag sagði Sigurður
Harðarson að borgarstjóri hefði
brugðist trúnaðarskyldu gagnvart
starfsmönnum Borgarskipulagsins
með því að dylgja um það að þeir
væru ekki starfi sínu vaxnir og létu
stjórnast af annarlegum og ófag-
legum sjónarmiðum. Sigurður
minnti á að Borgarskipulag ætti að
vera faglegur umsagnaraðili og
hvað umsögn starfsmanna þess um
Skúlagötuskipulagið varðaði væri
það að segja að hún befði verið
einstaklega vel undirbyggð og
studd ítarlegum rökum. Sama væri
hins vegar ekki hægt að segja um
umsögn borgarverkfræöings.
- Það er auðvitað fyrir neðan
virðingu Davíðs Oddssonar að ráð-
ast með þessum hætti á starfsmenn
Borgarskipulags. Spurningin er
auðvitað af hvaða hvötum Davíð
réðst svona ómaklega að Borgar-
skipulaginu. Var það pólitísk
hefnigirni vegna þess að starfs-
menn þar hafa þorað að hafa sjálf-
stæðar skoðanir í málum? Var það
gert til að gera Guðrúnu Jónsdótt-
ur forstöðumann þess tortryggi-
lega, en ráðningarsamningur henn-
arrennurút 1. aprílnk.? Eðaeref
til vill ætlun borgarstjórans að
eyðileggja uppbyggingu Borgar-
skipulagsins sem unnið var að í tíð
vinstri meirihlutans í borgarstjórn
og því verið að safna sprekum í
brennu Borgarskipulagsíns með
þessum hætti?, sagði Sigurður
Harðarson í samtali í gær.
- v.