Þjóðviljinn - 15.02.1984, Page 9
Miðvikudagur 15. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Glæpurinn
og
eigendur
hans
Núverandi nkisstjórn finnst spít-
alareksturinn í landinu dýr, og það
hefur mörgum fundist á undan
henni. Þessi ríkisstjórn datt hins
vegar ofan á þá afleitu spamaðar-
hugmynd að láta sjúklinga greiða
einhvern hluta kostnaðar sjálfa
með beinum hætti, í stað þess að
hingað til hafa allir landsmenn
greitt þennan kostnað með fram-
lögum til almannatrygginga. Þetta
er einn af hornsteinum velferðar-
þjóðfélagsins, og það fór að vonum
að fólkið í landinu kvað þessa hug-
mynd niður.
Rangtúlkun Þorsteins
Sumum vinum ríkisstjórnarinn-
ar þótti vont að láta drepa mál fyrir
henni með þessum hætti, og finnst
þeir verði að hefna ósigursins. Þor-
steinn Pálsson og síðar Morgun-
blaðið völdu þá leið að veitast að
Svavari Gestssyni fyrir að hafa ætl-
að að láta gamalmenni borga fyrir
sig á spítölum, ekki bara nokkra
daga heldur ævina á enda. Þarna er
verið að rangtúlka ákvæði í lögum
um málefni aldraðra, sem fjallar
um dvalarkostnað á stofnunum
fyrir aldraða.
Lögin um málefni aldraðra eru
hin mætustu lög, og ég get ekki
unnt Svavari þess, þótt mér sé
meinalaust til mannsins, að eiga
þennan glæp einn. Ég vil að við hin
sem áttum þátt í honum, fáum að
eiga okkar hlut.
Upphafs mennirnir
Upphafsmennirnir voru í nefnd,
sem samdi það frumvarp, sem varð
að lögum í árslok 1982. Það voru
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir for-
maður Sóknar, tilnefnd af Alþýðu-
sambandi íslands, Þórarinn V.
Þórarinsson, tilnefndur af vinnu-
veitendasambandi íslands. Hrafn
Sæmundsson, prentari, Pétur Sig-
urðsson alþingismaður og Páll Sig-
urðsson ráðuneytisstjóri tilnefndir
af heilbrigðisráðherra, Gunnhildur
Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri
tilnefnd af Öldrunarfræðafélagi ís-
lands og Adda Bár Sigfúsdóttir til-
nefnd af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga.
Þessi hópur á höfundarrétt að
glæpnum. Næst kemur ríkisstjórn-
in, sem ákvað að leggja frumvarpið
fram, síðan allir þeir sem fengu
frumvarpið til umsagnar og gerðu
ekki athugasemdir við umrædda
grein og loks þingheimur allur, sem
samþykkti frumvarpið samhljóða.
Hvað er það svo, sem allt í éinu nú
rúmi ári eftir samþykkt laganna er
svo skelfilegt, að það er verra en
nokkur sjúklingaskattur?
Veruleg hœkkun
á vasapeningum
Það eru ákvæði 26. gr. sem
kveða svo á að sjúkratrygginga-
deild Tryggingastofnunar ríkisins
eða ríkissjóður skuli greiða kostn-
að við vistun á dvalarstofnunum
aldraðra, en þessar stofnanir eru
samkvæmt skilgreiningu laganna:
Dvalarheimili, hjúkrunarheimili
eða hjúkrunardeildir og sjúkra-
deildir. Að fengnu umboði frá vist-
manni á Tryggingastofnunin síðan
að innheimta hjá lífeyrissjóði vist-
manns eða vistmanni sjálfum upp í
dvalarkostnaðinn, en þó með þeim
takmörkunum að vistmaður á dval-
arheimili haldi alltaf eftir 25%
Svavar Gestsson á ekki heiðurinn
einn af ,,glæpnuni“.
tekna eða fái 1950 kr. á mánuði, sé
ekki um tekjur að ræða eða svo
lágar að 25% þeirra nái ekki þess-
ari upphæð. Á sama hátt skal vist-
maður á hjúkrunarstofnun halda
Adda Bára
Sigfúsdóttir
skrifar:
eftir 15% tekna eða fá til eigin
þarfa 1330 kr. sem lágmarksupp-
hæð á mánuði. Hér er um verulega
hækkun á svokölluðum vasapen-
ingum að ræða úr 742 kr. á mánuði
í 1950 kr. eða 1380 kr. og því var
ákveðið að taka þá hækkun í áföng-
um, og láta lagagreinina ekki taka
gildi, fyrr en hækkun vasapeninga
væri að fullu komin fram.
Af hálfu ASÍ á Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir höfundarrétt á „glæpn-
um“.
Vanefndir
núverandi stjórnar
Fyrsta áfangahækkun var ákveð-
in um líkt leyti og Svavar Gestsson
lét af störfum heilbrigðisráðherra,
og síðan ekki söguna meir. Núver-
andi ríkisstjórn hefur greinilega
ekki heimilað sínum heilbrigðis-
ráðherra frekari hækkun vasapen-
inga. Ef hér væri um það að ræða,
að gamalmenni ættu samkvæmt
þessum lögum að greiða stærri hlut
í rekstrarkostnaði dvalarstofnana
en þeir nú gera, gæti ríkisstjórnin
sparað með því að láta þessa grein
koma til framkvæmda þegar í stað,
og engin gæti skammað hana fyrir
það. Þetta væri óskaleið til sparn-
aðar. Þessi leið er þó ekki reynd
vegna þess að það hallar á ríkissjóð
en ekki hina öldruðu í þessu dæmi.
Allur vafi tekinn af
Pétur Sigurðsson alþingismaður
hafði framsögu fyrir nefndaráliti
heilbrigðis- og trygginganefndar
neðri deildar þegar lögin voru til
afgreiðslu. Hann sagði m.a.: „Það
kom fram athugasemd um að skilja
mætti 26. gr. þannig, að ef aldraður
einstaklingur þyrfti á sjúkrahúsvist
að halda þyrfti hann að borga fyrir
þá vist sjálfur. Til að taka af allan
vafa um að til þess sé ekki ætlast
var bætt inn í frumvarpið þessum
orðum „Um dvöl á spítaladeildum
sem ætlaðar eru til skammtímavi-
stunar gilda ákvæði laga um al-
mannatryggingar“.“ Þ.e. sú vist er
sjúklingi að kostnaðarlausu.
Hinn aldraði hafi
rýmri fjárráð
Tvær ástæður lágu til þess að
Pétur Sigurðsson varði „glæpinn“
á Alþingi.
nefndin sem samdi frumvarpið
vildi breytingu á greiðslu kostnað-
ar á dvalarstofnunum aldraðra. í
fyrsta lagi er það óeðlilegt að ein-
staklingur þurfi að reita hvern sinn
eyri til að greiða dvöl á dvalarheim-
ili, en verði hann síðan svo las-
burða að hann þurfi á hjúkrunar-
vist að halda þá skuli hann fá til sín
óskert þau eftirlaun eða aðrar tekj-
ur sem hann kann að hafa. Gamal-
mennið í körinni hefur venjulega
litla ánægju af peningum til eigin
þarfa, en auðvitað vænkast hagur
væntanlegra erfingja við flutning
gamalmennis á sjúkradeild, og það
getur verið hagur stofnana að hafa
vistmenn sína á sjúkragjaldi.
Nefndinni fannst réttara að hinn
aldraði sjálfur hefði rýmri fjárráð
meðan heilsa væri það bærileg að
hann gæti dvalist á venjulegu dval-
arheimili og notið nokkurs af því
sem lífið hefur uppá að bjóða,
fremur en að viðhalda núverandi
fyrirkomulagi.
Greiðslumátinn
sé hinn sami
í öðru lagi er eðlilegast að
greiðslumátinn á öllum dvalar-
stofnunum sé sá sami, og þegar
fram líða stundir og lífeyris-
greiðslur hækka er eðlilegt að líf-
eyrisgreiðslur standi undir kostn-
aðinum við það að lifa lífinu svo
lengi sem lifað er, og að því marki
sem þær greiðslur nægja.
Ég held enn að nefndin, ráðherr-
ann, umsagnaraðilarnir og þing-
mennirnir hafi haft rétt fyrir sér og
ég vil að við eigum þennan glæp
sameiginlega um alla framtíð.
„Lögin um málefni aldraðra eru hin mœtustu lög, og ég get
ekki unnt Svavari þess, þótt mér sé meinlaust til mannsins,
að eiga þennan glcep einn. Ég vil að við hin, sem áttum þátt
í honum, fáum að eiga okkar hlut. “
Höfðingleg gjöf til hjartasjúklinga:
205 þús. kr.
til tækjakaupa
Fimmtudaginn 9. febrúar af-
henti formaður Lionsklúbbsins
Víðars, Landssamtökum
hjartasjúklinga gjöf að upphæð
205 þús. kr. í Lionshúsinu við
Sigtún að viðstöddum forsvars-
mönnum beggja aðila ásamt
blaðamönnum. Gjöf þessi er sú
stærsta sem Landssamtökum
hjartasjúklinga hefur borist frá
einum og sama aðilanum.
Fjárhæðarinnar öfluðu
Lionsmenn með merkjasölu
dagana 10. og 11. desember s.l.
Um það bil 20 klúbbfélagar
tóku þátt í merkjasölunni og
þegar upp var staðið höfðu
rúmlega 6000 merki verið seld.
Þess má geta að Lionsklúbbur-
inn Víðarr er einn yngsti klúbb-
ur sinnar tegundar hér í borg-
inni.
Stjórn Landssamtaka hjarta-
sjúklinga notar kærkomið tæki-
færi til að þakka þessa höfðing-
legu gjöf og flytur Lionsklú-
bbnum Víðari bestu óskir um
bjarta framtíð og góða sigra í
baráttunni við sjúkdóma þá
sem mannskæðastir eru í dag.
-V.A.
Egill Thorarensen formaður Lionsklúbbsins Víðars afhendir Ingólfi Viklorssyni formanni Landssamtaka
hjartasjúklinga gjöfina.