Þjóðviljinn - 18.02.1984, Blaðsíða 5
Helgin 17. - 18. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Rúna hjá
Langbrók
Á mánudaginn var hófst í Gallerí
Langbrók við Lækjargötu kynning
á verkum Rúnu (Sigrúnar Guð-
jónsdóttur). Þar eru .til sýnis og
sölu leirmyndir, teikningar og
veggdiskar og eru öll verkin unnin
á sl. tveimur árum.
Um helgina er Gallerí Langbrók
opið kl. 14 - 18 báða dagana en
virka daga kl. 12 - 18.
Sýning í Nýlistasafninu
í dag, föstudag 17. febrúar, kl.
20.00 opnar sýning félagsmanna í
Nýlistasafninu Vatnsstíg 3B. Fé-
lagsmenn eru nú 75 taisins og á
safnið fjölda verka og gagna sem
hefur safnast þau 6 ár sem liðin eru
frá stofnun þess.
Síðastliðið haust jókst húsrúm
safnsins og verður nú sýnt í öllu
safninu. Aðallega verða sýnd stór
málverk og skúlptúrar. Einnig
verða sýnd verk sem nýlega hafa
borist safninu. Verkin eiga: Jón
Gunnar Árnason, Sigurður og
Kristján Guðmundssynir, Árni
Ingólfsson, Erlingur Páll Ingvars-
son, Róska, Arnar Herbertsson,
Hreinn Friðfinnsson, Magnús Páls-
son, Ólafur Lárusson, Grétar
Reynisson, Nina Tang, John M.
i Armleder og fleiri.
Sýningin opnar sem fyrr segir í
dag föstudag 17. febrúar og stend-
ur til 26. febrúar. Hún verður opin
daglega frá kl. 16 til 20.00.
Konur
messa
Á morguner konudagurog í því
tilefni flytur Helga Soffía Konráðs-
dóttir cand theol. predikun í Lang-
holtskirkju kl. 11 en sr. Agnes M.
Sigurðardóttir þjónar fyrir altari.
Sr. Agnes þjónar einnig fyrir altari
í Laugarneskirkju kl. 14, en Anna
Snorradóttir predikar
^nn je-tdxva1-
&***1
„n. ivdaðH1
Utsalan heldur áfram
þessa helgi.
o\aU^°rn'
“Setm da9sins' áViets\u a
B6^a"e?lÖe'9'n
íögsssí-
,VLOrLþe'u^orna'
þe9ar
HÖNNUNTIL
sýning á Kjarvalsstöðum dagana 10.-19. febrúar
•Ný íslensk skólahúsgögn - hönnuð með aukið heilbrigði
íslenskra barna að leiðarljósi.
•Ný skrifstofuhúsgögn — skrifstofustólar
tölvuborð
•Ný húsgögn úr beyki fyrir fundarsali og félagsheimili.
•Stacco-stóllinn í nýjum búningi.
Stjórnendur skóla og fýrirtækja og aðrir þeir sem láta sig varða
heilbrigði skólabarna og skrifstofufólks ættu ekki að láta þessa
sýningu fram hjá sér fara.
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6.SÍMAR: 33590.35110. 39555