Þjóðviljinn - 18.02.1984, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 18.02.1984, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17. - 18. febrúar 1984 DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Augiýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. ’ Bíistjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsia, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent hf. ritst Jer nargrei n Mannréttindaskerðing Þjóðviljinn hefur margsinnis vakið máls á því að stjórnvöld Stefndu markvisst að því að stöðva smíði verkamannabústaða. Það hefur að vísu ekki verið sagt beinum orðum í opinberum plöggum, en fjárlagatölur iog loðið orðalag ráðherra hafa eindregið bent í þá átt. Og nú kemst Alexander Stefánsson félagsmálaráð- herra ekki lengur upp með að hylja sig reykskýjum eða 'bjarga sér fyrir horn með innistæðilausum ávísunum á : Seðlabankann. Hann hefur gefið fyrirmæli um að ! hringt verði til stjórnmálamanna í verkamannabústöð- , um um allt land og þeim tilkynnt að umsamdar fram- ! kvæmdir í ár verði skornar niður um 25% og ekki verði samið um neinar nýjar íbúðir á þessu ári. Enn einu sinni ræðst ríkisstjórnin að tekjulægsta hópn- um í þjóðfélaginu. Mikið hefur verið um það talað að sá hluti þjóðarinnar sem stendur frammi fyrir hreinni ör- birgð sé stór, ef til vill ekki nema svo sem 10 til 20 % heildarinnar. Bygging íbúða í verkamannabústaðakerf- inu hefur einmitt miðað að því að rétta hlut þessa hóps og tryggja honum þau mannréttindi að geta komið yfir sig þaki. Ríkisstjórnin byrjaði á því að tilkynna um hærri útborgun og verri lánakjör hjá Byggingarsjóði verkamanna. Atlögunni er nú fylgt eftir með niður- skurði og stöðvun nýframkvæmda. Síðustu þrjú árin, eða eftir að nýju húsnæðislögin voru sett fyrir tilstilli Alþýðubandalagsins og verka- lýðshreyfingarinnar, hefur verið byrjað á 200 - 300 íbúðum í verkamannabústöðum á ári. Þegar hefur ver- ið samið um 5-600 íbúðir eins og mál standa í dag og eru þær á ýmsum stigum undirbúnings og framkvæmda. Ákvörðun félagsmálaráðherra þýðir að hætt verður við 350 - 400 íbúðir og sú markvissa uppbygging sem átti að tryggja tekjulægsta hópnum öruggt húsnæði með sam- felldu átaki á þessum áratug hefur verið stöðvuð. Það eina sem getur hindrað að þetta tilræði við láglauna- fólkið í landinu nái fram að ganga er það að verkalýðs- hreyfingin setji sem skilyrði fyrir undirskrift samninga að stjórnvöld standi við áætlanir um verkamannabú- staði. Smánarkjarastefna Öldruðum og öryrkjum hefur síður en svo verið hlíft við arðráns- og kjaraskerðingarstefnu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Nú er svo komið sam- kvæmt upplýsingum Kjararannsóknarnefndar að kaupmáttur lífeyristryggingabóta er komin niður í það sem hann var síðustu ár viðreisnarstjórnarinnar 1969 - 1970. Það var eitt af verkum vinstri stjórnarinnar 1971 - 1974 að leiðrétta þau smánarkjör sem aldraðir og öryrkjar höfðu búið við undir stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks um langt skeið. Milli áranna 1982 og 1983 hefur kaupmáttur elli- og örorkulífeyrisbóta verið skertur um 21% en frá meðaltalinu 1982 til loka árs 1983 um 27.2%. Smánarkjarastefna ríkisstjórnarinnar bitnar harðast á þeim sem eru varnarlausastir og hafa verst kjör fyrir Byrjað neðan frá Það er mikið rætt um hagræðingu frá hinu opinbera. Flest af því sem kemur til framkvæmda af því tagi er í þá veru að klipið er af hlut hinna lægst launuðu. Það er byrjað neðan frá, fækkað í störfum og kjörin skert. Nýjasta dæmið er fyrirskipun um að breyta vaktafyrir- komulagi á geðdeildum ríkisspítalanna til þess að hægt sé að klípa af starfsmönnum 4 % álag, sem er svipað og hinn frægi launarammi ríkissjórnarinnar. Á sjúkrahús- um landsins stendur einnig yfir herferð til þess að skera niður launagreiðslur til ræstingarfólks. Þar kemur fram sama tilhneigingin. Kynlíf er á síðustu árum orðið að hálfgerðri aukabúgrein hjá meirihluta bresku dagblaðanna, og nú er tæpast hægt fyrir heiðar- legan útlending að opna blað án þess að vera kominn upp undir axlir í leiðbeiningum um hvernig hann á að gera það á réttan hátt. Þó ekki sé í þessu mikið nýtt fyrir þá sem voru í sveit í Borgarfirðin- um, þá hjálpar þetta kannski ein- hverjum af þegnum Hennar Há- tignar til að brjóta af sér hlekki hins viktoríanska hugarfars sem enn leynast furðu víða í skúma- skotum heimsveldisins. Og sagði ekki Freud að ef kynlífið væri í lagi þá væri allt í lagi? Kannski Sjálfstæðisflokknum hefði verið nær að leysa vanda- mál sín með því að taka upp þessa ráðleggingu Freuds fremur en hið úrelta frjálshyggjuguðspjall Friedmans. Kynlífsbyltingin í breskum fjölmiðlum á þó ekki mikið skylt við ást þeirra á hinum freudísku teoríum, hér er nefnilega á ferð- inni sá innrætingariðnaður sem í nútímanum er hornsteinn far- sælla borgarastétta. Um nokkurt ■ skeið hefur það verið opinber stefna frú Margrétar og Ihalds- flokksins að hinu geigvænlega atvinnuleysi hér í landi megi tölu- vert létta með því að sannfæra vinnandi konur um að þeirra staður sé hjá börnum sínum og kalli inná heimilinu, en ekki útá vinnumarkaðnum. Með því er þess semsagt freistað að skapa vinnu fyrír atvinnulausa karl- menn. Flokksberserkir og ráðherrar hafa náttúrlega kyrjað þetta framsækna stef um langa hríð og dagblöðunum, sem flestöll fara í litlar felur með stuðning sinn við íhaldið, hefur verið snilldarlega beitt í þessari innrætingu. Bretar aftarlega á jafnréttismerinni. Með kyntöfra einsog glassúr í hinni glansandi kvenímynd sem innrætingariðnaðurinn fram- leiðir er konan allt í senn, ástrík móðir, iðjusöm eiginkona og síð- ast en ekki síst hinn eftirláti rekkjunautur. Og hún vinnur aldrei úti. Ráðleggingar um hvernig kon- an megi best þýðast maka sinn eru legíó, og framhaldsþættir blaðanna um hina fullkomnu eiginkonu virðast bókstaflega endalausir. Samkvæmt þeim er hin fullkomna eiginkona ævin- lega ljóshærð. Allan liðlangan daginn klæðist hún tæpast öðru en pínulitlum gegnsæjum nátt- kjól sem ekki má ná lengra en niðrá miðjan rass, hælaháu skóna tekur hún alls ekki af sér nema helst ef hún fer í bað, og ekki sér hún glaðan dag öðru vísi en með einsog hálfa málningarvöruversl- un í andlitinu. Einsog nærri má geta er náttúrlega mun skemmti- legra að skúra eldhúsgólf og skeina krakka í jafn glæsilegri múnderingu en ella. Áður en eiginmaðurinn kemur svo heim úr vinnunni slumpar hún á sig einsog hálfum lítra af ilmvatni, væntanlega á þá staði sem lykta verst, og hengir á sig nokkrar gegnsæjar taudruslur í viðbót. Össur Skarp héöinsson skrifar Ekki veit ég hvaða áhrif þessi ósköp hafa á kallvesalinginn þeg- ar hann kemur steinuppgefinn heim, en mig undrar hins vegar ekki að skilnaðir séu hér tíðir. Konan er með öðrum orðum gerð að brúðu í glæsilegum gjafa- vöruumbúðum, helst með kyn- töfrana lekandi utaná sér einsog glassúr. Hennar staður er heimil- ið, þarsem hún skal sjá um við- hald og endurnýjun vinnuaflsins, en vinna utan heimilisins er svik við börnin, eiginmanninn - og, síðast en ekki síst, kveneðlið. Þessi innræting dugar svo vel á yngri kynslóðina að flestar ungar stúlkur eru þess fullvissar að framtíðarhamingjan felst í því að ná sér í mann sem allra fyrst, sjá um börn og heimili, og svo nátt- úrlega vera til í tuskið þegar karl- inum rennur blóðið til skyldunn- ar. Það leikur því ekki nokkur vafi á að Bretar eru öllu betur aftar á jafnréttismerinni en frændur þeirra og afkomendur víkinga í norðri. Raunar er ástandið þann- ig að þær konur sem á íslandi fara herskáar útí kvennaframboð og þesskonar baráttu, þær myndu ekki einu sinni leiða hugann að slíku hér úti. Þær myndu grípa til vopna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.