Þjóðviljinn - 18.02.1984, Qupperneq 11
Helgin 17. - 18. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Franska TVG-lestin, sem tekin var í notkun árið 1981, getur náð allt að 380 km hraða á klukkustund en með þeim hraða væri hægt að komast
Keflavíkur á 8 mínútum. Lestin hefur rcynst frábærlega vel.
Hraðlest tilKeflavíkur
Ferðin tœki 10-15 mínútur ogþá mœttiflytja innanlandsflug á Keflavíkurflugvöll
Allaöldina hefurdraumurinn
um járnbrautarlestir öðru
hverju skotið upp kollinum á
íslandiog íbyrjun hennarvar
meira að segja stofnað heilt
tímarit af áhugamönnum um
slíkar lestir og var það kallað
Eimreiðin. Með nýrri sam-
göngutækni, svo sem flugi,
fór að halla undan fæti fyrir
járnbrautum sem samgöngu-
og flutningatæki og svo var
komið að þær voru almennt
taldar farartæki f ortíðari nn-
ar. En nú eru á ný að hefjast
gullöld lestanna með nýjum
og ákaflega hraðfara lestum
víða um heim. Má þar nefna
TGV-lestina í Frakklandi sem
hófaðgangamilli Parísarog
Lyon fyrir þremur árum og
getur náð allt að 380 km
hraða á klukkustund.
Flugvallarmál Reykjavíkur hafa
lengi verið í deiglunni og ýmsar
hugmyndir verið á kreiki til að
leysa jtau. Um tíma voru áform um
að leggja nýjan flugvöll á Álftanesi
og einnig hefur Kapelluhraun verið
nefnt í þessu sambandi. Ýmsir van-
kantar hafa þó komið í ljós á flug-
vallargerð á þessum slóðum, bæði
vegna byggðar sem fyrir er á Álfta-
nesi (þám. forsetasetursins) og
slæmra veðurskilyrða í Kapellu-
hrauni. Nú hafa þessar áætlanir
verið lagðar til hliðar og áformað
er að reisa nýja flugstöð á gamla
Reykjavíkurflugvelli og þar með
festa hann í sessi næstu áratugi.
Þetta er gert þrátt fyrir gagnrýni á
það hversu nálægt byggðinni hann
er. Hann veldur óþægindum vegna
hávaða og af honum er slysahætta.
Aðflugið að einni aðalflug-
brautinni liggur td. yfir gamla mið-
bæinn og gæti því einn góðan
veðurdag flugvél hlammað sér nið-
ur á Alþingishúsið og Dómkirkj-
una eða önnur stórhýsi.
Sumir hafa viljað flytja innan-
landsflugið á Keflavíkurflugvöll en
því hefur verið mótmælt, einkum
af utanbæjarmönnum sem mikið
þurfa á flugi að halda. Leiðin til
Reykjavíkur lengdist þá í mörgum
tilfellum um helming, þeas.
klukkutíma bílferð bættist við flug-
tímann sem sjaldnast er lengri en
klukkutími. Þetta væri líka óþægi-
legt ef fólk er komið til Keflavíkur
til að fljúga en hætt væri svo við
flug af veðurástæðum sem gerist
ærið oft í innanlandsfluginu.
Mál þessi mætti í raun og veru
leysa með mjög einföldum hætti og
ekki dýrari en að leggja nýjan flug-
völl. Það er með hraðlest milli
Keflavíkur og Reykjavíkur. Slík
lest leysti ekki aðeins flugvallar-
málið heldur hefði margs konar
annað hagræði í för nteð sér eins og
vikið verður að síðar í greininni.
Eins og fyrr var greint frá getur
franska TGV-lestin, sem hefur
reynst ákaflega vel og verið mjög
vinsæl þau þrjú ár sem hún hefur
verið rekin, náð allt að 380 km
hraða á klukkustund. Vegalengdin
milli Keflavíkur og Reykjavíkur
eru um 50 km og með þeim hraða
yrði slík lest ekki nema 8-9 mínútur
á leiðinni og þó hún nái ekki nema
200 km hraða að jafnaði væri hún
ekki 'nema 15 mínútur á leiðinni.
Það er skemmri tími en tekur að
aka frá Reykjavíkurflugvelli í
stærsta hverfið í Reykjavík:
Breiðholt.
TBV-lestin var 11 ár í hönnun og
eru nú fjölmargar þeirra í notkun
enda hafa Frakkar stefnt á útflutn-
ing þeirra. Þær ganga fyrir raf-
magni og heyrist mjög lítið í þeim.
Hver lest er 200 metrar á lengd
með 8 vögnum og eru engin skil á
mili vagnanna. Hún tekur 386 far-;
þega í stóla.
Ekki er mér kunnugt hvað það,
kostaði að kaupa slíka lest eða lest-!
ir og leggja spor fyrir hana en tæp-
lega tel ég að það verði dýrara en
að leggja nýjan flugvöll með til-
heyrandi mannvirkjum. Þar að
auki sparaðist mikið fé með því að
leggja Reykjavíkurflugvöll niður
og sameina hann Keflavíkurflug-
velli. Öll stjórnun ogöryggisútbún-
aður nýttust mun betur. Þyrfti t.d.
ekki nema eitt slökkvilið í stað
tveggja sem nú eru.
Þá ntá nefna að hraðlest milli
Keflavíkur og Reykjavíkur gerði
það að verkum að öll Suðurnes og
höfuðborgarsvæðið yrði eitt at-
vinnusvæði til niikils hagræðis fyrir
íbúana. Lestin leysti ekki aðeins
vanda flugsins heldur yrði hún
mikil samgöngubót. Hún gæti haft
viðkomu í Njarðvík, Straumsvík,
Hafnarfirði, Kópavogi og
Breiðholti.
Og þá er enn eitt ótalið. Hægt
væri að taka flugvallarsvæðið í
Reykjavík undir byggð og kærni
þar til sögu stórt, hagkvæmt bygg-
ingarsvæði á besta stað í bænum
með góðum tengslum við önnur
hverfi. Nýtt hverfi á flugvallarstæð-
inu og nágrenni hans. yrði til að
styrkja stöðu miðbæjarins og þar
að auki býður þetta svæði upp á
skemmtilega möguleika fyrir íbúa-
byggð. Mánefnaað Öskjuhlíðin og
falleg strandlengja er á svæðinu.
Hraðlest milli Reykjavíkur og
Keflavíkur er ntöguleiki sem flug-
ráð og önnur yfirvöld ættu að
skoða. Hann er alls ekki fjarstæðu-
kenndur þó að við íslendingar sé-
um óvanir járnbrautarlestum.-GFr
Cheerios eralveg ofsalega, æðislega,
-mjöggott!