Þjóðviljinn - 18.02.1984, Side 27

Þjóðviljinn - 18.02.1984, Side 27
Helgin 17. - 18. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27 Rán í Reykjavík í gœrkvöldi: Ógnaði leigubflstjóra og ÁTVR- starfsmönnum með haglabyssu - rœndi um tveimur milljónum við Laugaveg 77 Vopnaður karlmaður rændi um áttaleytið í gær, föstudagskvöld, um tveimur milljónum af starfsmönnum ÁTVR sem voru á leið í Landsbank- ann að Laugavegi 77, Reykjavík, til að leggja inn féð. Ræninginn var á leigubíl sem hann hafði stolið með því að ógna bíl- stjóranum með byssu. Um ellefuleytið í gærkvöldi hafði maðurinn ekki náðst þrátt fyrir mikla leit lög- reglunnar en bíllinn var þó fundinn. Málsatvik eru þau, eftir því sem næst verður komist, að rétt eftir hálft átta kemur maður gangandi að Hótel Sögu og tekur sér far með leigubifreið frá Hreyfli sem þar beið viðskipta. Maðurinn biður um akstur að Loftleiðahótelinu en skömmu áður en þangað var komið skiptir farþeginn um skoðun og lætur aka sér suðrí Nauthólsvík. Þar tekur maðurinn upp byssu, ógnar bílstjóranum og neyðir hann til að afhenda sér lykla að bifreið- inni. Ræninginn ekur síðan einn af stað en bílstjórinn gengur góðan spöl að Loftleiðahótelinu og hring- ir þar í lögreglu. Um áttaleytið kemur byssumað- urinn að Landsbankaútibúinu að Laugavegi 77 í þann mund að starfsmenn áfengisverslunarinnar Rœninginn enn ó- fundinn um miðnœtti - bifreiðinfannst í Brautarholti- ein- stœður atburður í ís- lenskri glœpamennsku á Lindargötu eru að fara með fé í bankann. Hann ógnar þeim með vopninu til að afhenda sér féð, um tvær milljónir, og ekur síðan burt. Lögreglumenn fundu leigubif- reiðina í Brautarholti síðar um kvöldið, mannlausa, og var svæðið þar í kring afgirt og leitað rækilega Vettvangur atburða: Laugavegur 77 - Nauthólsvík þegar Þjv. ræddi við Sveinbjörn Bjarnason varðstjóra um ellefu- leytið í gærkvöldi. Aukalið lög- reglu var kallað út til leitar. Varð- stjóri hafði ekki á reiðum höndum fjölda leitarmanna en sagði tugum skipta. Leigubifreiðarstjórinn sagði manninn hafa verið ódrukkinn. Á fimmtudagsnótt var brotist inn í sportvöruversiunina Vesturröst að Laugavegi 178 og stolið þaðan skotvopnum. Er talið hugsanlegt að ræninginn hafi verið þar að verki og komist þar yfir haglabyss- una. Segja má að þetta rán sé nær ein- stætt í sögu íslenskrar glæpa- mennsku, þarsem skotvopn hafa ekki verið tíðsén í farteski þjófa hingaðtil hér á landi. Ræninginn var enn ófundinn þegar Þjóðviljinn fór í prentun um miðnæturbil. _ m Guðmundur J. Guðmundsson eftir stjórnarfundinn hjá Dagsbrún í gœr: armönnum býr nú við taxta sem eru langt undir lágmarkslaunun- um sem eru 11.000. Verði lág- markslaunin hækkuð en tíma- kaupið látið sitja eftir mun þetta koma mjög illa niður á öllum eftirvinnu- og bónustöxtum hjá okkar fólki. Við gerðum það í at- vinnuleysinu 1968 að semja um hækkun á dagvinnukaupinu einu saman. Það hafði það í för með sér að næturvinnan fór úr 100% niður í 80% álag á dagvinnu og eftirvinnan úr 50 í 40%. Þetta höfum við ekki unnið upp ennþá. Okkar krafa er sú, að lægstu tax- tarnir í okkar samningum verði skornir af. Meinið í þessum samningum er hins vegar það að vinnuveitendur og rikisvaldið virðast stefna að því að flöt prós- enta verði látin ganga yfir allan stigann. Og síðan fái efstu hóp- arnir yfirborganir ofan á samn- inga. Það er þetta mynstur sem við viljum rjúfa. Örvænting ríkir nú víða meðal láglaunafólks, og þær raddir heyrast að verkalýðshreyfingin hafi brugðist. Hefur verkalýðs- hreyfingin brugðist þessu fólki? - Ja, hvað er verkalýðshreyf- ingin? Er hún fólkið sjálft, eða er hún einhverjir toppar? Við höf- um reynslu af því hin síðari ár að verkalýðsfélögin úti á lands- byggðinni hafa ekki sýnt sam- stöðu þegar út í verkfallsbaráttu er komið. Það gerðist 1982. Hverjir brugðust þá? Ýmsar þjóðfélagsaðstæður gera það að verkum að erfiðara er að halda uppi virku starfi í félögunum en áður. Þá er það staðreynd að fólk er nú reyrðara í fjötrum afborg- ana en áður og það gerir verk- fallsbaráttuna erfiðari. Fólk hafði ekki eins miklu að tapa hér áður fyrr, sagði Guðmundur J. Guðmundsson að lokum. Samningsrétturinn liggur endanlega hjá félögunum Við í stjórn Dagsbrúnar teljum að félag okkar eigi siðferðislegan rétt á að samningar okkar verði teknir til gagngerðrar endur- skoðunar, og þá ekki hvað síst varðandi sérákvæði, þar sem hallað hefur á okkar félag á und- anförnum árum, sagði Guð- mundur J. Guðmundsson í viðtaii við Þjóðviljann eftir stjórnarfund sem haldinn var í Dagsbrún í gær. - Það hefur verið sótt að okkar félagi og okkur hefur verið synj- að um ýmis sjálfsögð réttindi sem bæði Verslunarmannafélag Reykjavíkur og opinberir starfs- menn hafa fengið. Þetta hefur meðal annars gert það að verkum að á vinnustöðum þar sem mörk- in á milli Dagsbrúnar og VR eru óglögg hagnast menn á því að ganga í Verslunarmannafélagið. Við erum ekki í neinni styrjöld við VR eða BSRB, en okkur finnst óeðlilegt að sömu réttindi skuldi ekki gilda fyrir sambæri- lega starfshópa á sama vinnustað. Þá hafa einnig orðið tækni- breytingar á mörgum vinnustöð- um okkar, sem gera það nauðsynlegt að samningar okkar verði stokkaðir upp. Við getum því ekki skrifað undir einhverja prósentuhækkun á laun og sleppt öllum okkar sérmálum. Verður Dagsbrún þá ekki í samfloti með ASÍ í samningun- um? - Við styðjum auðvitað bar- áttu ASÍ og BSRB fyrir sjálfsögð- um réttindamálum en samnings- Stjórn Dagsbrúnar undir lok fundarms í gær: Halldór Björnsson, Hjálmfríður Þórðardóttir, Óskar Ólafs- son, Þröstur Ólafsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Garðar Steingrímsson, Ólafur Ólafsson, Asgeir Kristvinsson, en Jóhann Geirharðsson hafði brugðið sér frá er myndin var tekin. (Mynd: Atli). rétturinn liggur endanlega hjá félögunum, og eins og ég sagði, þá getum við ekki boðið okkar félögum upp á einhverja flata prósentuhækkun án þess að tillit sé tekið til okkar mála. Við styðj- um það að komið verði til móts við þá verst settu með mæðra- launum og hækkuðum barnabó- tum til barnmargra fjölskyldna. En hins vegar erum við á móti þeirri stefnu sem ríkisstjórnin og Vinnuveitendasambandið hafa, að menn í fullri vinnu geti ekki lifað af launum sínum án hvers kyns bóta úr tryggingakerfinu. Hefur krafan um lágmarkslaun ekki verið til umræðu í ykkar röðum? - Jú, krafan sem Verkamanna- sambandið samþykkti um 15.000 króna lágmarkslaun var í sjálfu sér sanngjörn, því allir vita að erf- itt er að lifa af slíkum launum. Þessari kröfu hefur hins vegar alfarið verið vísað frá af vinnu- veitendum og ríkisvaldi og sannleikurinn er sá að hún mundi koma afar misjafnt niður á ein- stökum félögum og raska mjög hlutfalli á milli dagvinnu- og eftir- vinnutaxta. Megnið afDagsbrún-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.