Þjóðviljinn - 22.02.1984, Page 1
Blaðauki um
sjávarút-
vegsmál
Bls. 9-20
febrúar
miðvikudagur
49. árgangur
44. tbl.
ASÍ + VSÍ: Já
Dagsbrún: Nei
Heildarhœkkun launa um 7%
Lágmarkslaun 12.660 og
11.509
Fjórðungur fulltrúa sat hjá
- 5 á móti
Frétt Þjóðviljans 24. januar
staðfest
#223**
Frá blaðamannafundi ASÍ og VSÍ í húsi Alþýðusambandsins í gærkvöldi: Ragna Bergman, Björn Þórhallsson og Asmundur Stefánsson úr samninganefnd ASÍ, Magnús Gunnarsson,
Hjalti Einarsson, Davíð Scheving Thorsteinsson og Kristján Ragnarsson frá VSÍ og Júlíus Valdimarsson frá Vinnumálasambandi Samvinnufélaganna. Innfelld er mynd af forsíðufrétt
Þjóðviljans frá 24. janúar sl. Ljósm. eik.
Um kl. 13.00 í gærdag undirrit-
uöu forystumenn Alþýöusam-
bands Islands og Vinnu-
veitendasambands íslands
nýja kjarasamninga með fyrir-
vara um samþykki félaga.
Samningurinn var ræddur ýtar-
lega áfundi formanna ASÍ síö-
degis í gær. Um fjórðungur
fundarmanna sat hjá viö at-
kvæðagreiðslu um samninginn
en 5 greiddu atkvæði á móti. í
hópi andstæðinga samnings-
ins var Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dags-
brúnar.
Ilinn nýi kjarasamningur gerir
ráð fyrir 5% launahækkun við
undirritun. Síðan komi 2% áfanga-
hækkun 1. júní, 3% 1. september
og 3% 1. janúar 1985. Samningur-
inn gildir til 15., apríl á næsta ári en
launaliðum hans er hægt að segja
upp 1. september í haust eða 1.
janúar. Gerist það falla tvær síð-
ustu áfangahækkanirnar niður.
í þessum kjarasamningi er sér-
stök áhersla lögð á láglaunahóp-
ana. Lágmarkstekjutrygging verð-
ur 12.660 krónur fyrir þá sem hafa
náð 18 ára aldri og hafa unnið sam-
fleytt í 6 mánuði í sömu starfsgrein.
Annars verður tekjutryggingin
11.509 krónur. Taxtakaup hækkar
ekki eins og tekjutryggingin sem
þýðir að öll eftirvinna verður lægra
hlutfall af dagvinnu en áður var.
Grunnur til útreiknings á bónus
verður áfram hlutfallslega sá sami
og nú er.
Að auki gerir kjarasamningur-
inn ráð fyrir 306-330 miljón króna
tilleggi frá ríkissjóði í formi sk. fé-
lagsmálapakka og hefur ríkis-
stjórnin í meginatriðum lýst sig
sammála þeim úrbótum. Þar er
m.a. gert ráð fyrir tekjutengdum
barnabótaauka, 12.000 krónur á
ári fyrir hvert barn. Fari tekjur ein-
stæðs foreldris upp fyrir 150.000
kr. á ári skerðist aukinn um 6.67%
fyrir hvert tugþúsundið í tekjum.
Mark hjóna er 220.000 kr. á ári. Þá
verði hækkun á óafturkræfum
barnalífeyri og mæðralaun hækka í
750 kr. á mánuði.
Eins og áður sagði telur ríkis-
stjórnin sig geta fallist á þessar fé-
lagslegu aðgerðir, enda séu útgjöld
ríkissjóðs þeirra vegna innan
ramma fjárlaga. Hefur Vinnuveit-
endasambandið lagt til að tekna til
þessara úrbóta verði aflað með því
að minnka niðurgreiðslur en þá
hækkar verð á mjólk og kjöt-
vörum, ASÍ hefur lagt til að út-
flutningsuppbætur á landbúnaðar-
afurðir verði lækkaðar.
Með þessum samningum er stað-
fest frétt Þjóðviljans 24. janúar sl.
en í henni var sagt að ASÍ og VSÍ
væru að ganga frá samningum sem
fælu í sér 5% kauphækkun strax og
síðan 8% f áföngum á árinu. Það
eru nákvæmlega þær tölur sem
samið var um við undirritún í gær,
einum mánuði eftir að Þjóðviljinn
birti fréttina.
Ásmundur Stefánsson: ______
Hrópum ekki húrra
„Við hrópum ekki húrra fyrir
þessum samningum, en það var
mat okkar að þessi kostur væri
bctri en að efna til átaka á vinnu-
markaðinum. Ég vil taka það fram
„Ég tel að með þessum samning-
um hafi unnist mikill sigur fyrir
ríkisstjórnina og íslcnskt þjóðfélag
í heild“, sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra.
„Það er alltaf spurning hvað er
sprungið og hvað ekki“, sagði
ráðherrann um hinn margfræga
„ramma“ ríkisstjórnarinnar. „Við
munum ekki breyta genginu og um
að þessi samningur felur ekki í sér
mat á hinum réttmæta hlut launa-
fólks í þjóðartekjunum að okkar
mati, en hann á að tryggja
óbreyttan kaupmátt frá síðasta
áramótin höfðum við náð betri ár-
angri í baráttunni við verðbólguna
og það hefur skapað dálítið meira
svigrúm en ætlað var. Það er þó
ljóst að samningarnir eru nokkru
hærri en við höfðum talið skynsam-
legt og þeir munu setja verulegan
þrýsting á þann efnahagsgrundvöll
sem við viljurn halda.“ - AI
Sjá 2-3.
fjórðungi ársins 1983“, sagði Ás-
mundur Stefánsson á blaðamanna-
fundi í gær.
„Þá er hér gerð alvarlegri tilraun
en áður hefur verið gcrð til þess að
rétta hlut þeirra sem verst eru settir
í þjóðfélaginu sérstaklega.“
Ásmundur benti á að ákvæði
væri í samningnum um uppsögn
launaliða 1. september og 1. janúar
1985, að breyttum verð-
lagsforsendum, en samningurinn
gildir til 15. apríl 1985. Verð-
lagsforsendur samningsins er
10.4% hækkun verðlags á árinu
1984 og verður kauphækkunin um
13% á samningstímabilinu til 15.
apríl. ólg
S: . bls. 2-3
Steingrímur
Hermannsson:
Mikill sigur
Guðmundur J. Guðmundsson:_
Kjaraskerðingin
er negld niður
„Þessir samningar negla niður
kjaraskerðinguna frá síðasta ári.
Það er ekkert endurhcimt af
henni. Mér líst afar illa á þessa
samninga fyrir Dagsbrún. Það er
furðuleg ósvífni hjá fram-
kvæmdastjóra VSÍ að segja í
sjónvarpinu í gærkvöldi að ekki
verði rætt við Dagsbrún. Eftir-
vinnan lækkar um 40% niður í
17% og næturvinnan úr 80% nið-
ur í 50%. Þetta er stórt skref aftur
á bak. Ef á að nota niður-
greiðslupeningana til að borga
hliðarráðstafanir ríkisins þá er
cinfaidlega verið að láta launa-
fólkið greiða þærbætur igegnum
hækkað vöruverð.“
Á þennan hátt lýsti Guðmund-
ur J. Guðmundsson formaður
Dagsbrúnar kjarasamningum
ASI og VSÍ í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gærkvöldi. Guðmundur
sagði að fjöldi vinnustaðafunda
hefði verið haldinn í Dagsbrún og
einnig fundir með kjörnum við-
ræðunefndum frá einstökum
vinnustöðum. Það sé brýn nauð-
syn fyrir Dagsbrún að fá leiðrétt-
ingar til jafns við aðra. Það sé
ekki gert í þessum samningum.
óg
Sjá viðtal við Guðmund á bls. 3