Þjóðviljinn - 22.02.1984, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJOÐ,yilf.IINN Miðvikudagur 22. febrúar 1984 .
SamkomulagiÖ — samkomulagið - samkomulagið — samkomulagið — samkomulagið - samkomulagið .
Ásmundur Stefánsson:
Skásti
kosturínn
- Við hrópum ekki húrrafyrir
þessum samningum, en það
var mat okkar að þessi kostur
væri betri en að efna til átaka á
vinnumarkaðinum sem hugs-
anlega hefðu getað skilað betri
árangri. Ég vil taka það fram að
þessi samningur felur ekki í sér
mat á hinum réttmæta hlut
launafólks í þjóðartekjunum að
okkar mati, en við teljum að
þessi samningur eigi að tryggja
sama kaupmátt á þessu ári og
var á síðasta ársfjórðungi árs-
ins 1983.
- Þá tel ég að með samningi
þessum sé gerð alvarlegri tilraun en
áður hefur verið gerð til þess að
rétta hlut þeirra sem verst eru settir
í þjóðfélaginu, sagði Ásmundur
Stefánsson forseti Alþýðusam-
bands íslands á blaðamannafundi
sem Alþýðusambandið og Vinnu-
veitendasambandið boðuðu til í
húsi Alþýðusambandsins í gær.
Sagði hann að formannafundur að-
ildarfélaga ASÍ hafi lýst yfir stuðn-
ingi sínum við samninginn með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
gegn 5.
Ásmundur sagði að samningur-
inn fæli í sér um 13% kauphækkun í
heild á samningstímanum, sem er
til 15. apríl 1985, en hins vegar væri
gert ráð fyrir liðlega 10% hækkun
framfærsluvísitölu á árinu 1984. Þá
benti Ásmundur á að ákvæði í
samningnum sem gæfu möguleika
á uppsögn þann 1. september 1984
og 1. janúar 1985 verði verulegar
breytingar á forsendum hvað varð-
ar verðlagsþróun.
-ólg
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ þingar hér með þeim Magnúsi L. Sveinssyni og Birni Þórhallssyni á
formannsfundi ASÍ í gær. Ljósm. ólg.
Benedikt Davíðsson formaður Sambands byggingamanna:
Sátum hjá við at-
kvæðagreiðsluna
„Við byggingamenn ákváðum að
sitja hjá við atkvæðagreiðsluna á
formannafundinum í gær um þenn-
an nýja samning. Sambandsstjórn
okkar mun svo koma saman á
laugardaginn og taka afstöðu til
þess hvað við komum til með að
gera“, sagði Benedikt Davíðsson
formaður Sambands bygginga-
manna eftir formannafundinn í
gær.
„Þegar bráðabirgðalögin voru
sett vorum við byggingamenn með
allt öðruvísi samning en aðrir.
Hann var til 3ja ára og átti að taka
ákveðnum breytingum á samnings-
tímanum. Við höfðum því fengið
lítið fram af ákvæðum okkar samn-
ings þegar bráðabirgðalögin öðluð-
ust lagagildi frá alþingi og öllum
kjarsamningum þar með í raun rift.
Okkar kjör hafa því farið talsvert á
mis miðað við það sem samningar
almennu verkalýðsfélaganna
kváðu á um. Þetta gerir það að
verkum að við erum í allt annarri
stöðu en aðrir til að afgreiða málin.
Við töldum að ekki væri fullreynt
um það gagnvart okkar viðsemj-
endum að unnt reyndist að fá fram
lagfæringar. Þess vegna vildum við
ekki taka afstöðu til þessa samn-
ings fyrr en við teldum það
fullreynt. Málið er því í biðstöðu
hvað okkur varðar amk. fram yfir
sambandsstjórnarfundinn á laug-
ardaginn,“ sagði Benedikt Dávíðs-
son formaður Sambands bygginga-
manna að lokum.
- v.
Jón Kjartansson Vestmannaeyjum:
Urðum að sam-
þykkja þetta
„Þetta er cins og allir sjá mór-
alskur og pólitískur ósigur fyrir
hreyfinguna. Hins vegar er einnig
ljóst að áróðurslega stæði verka-
lýðshreyfingin afar höllum fæti ef
hún hafnaði þessum samningi því
þar með væri hún að hafna
15.5% hækkun til hinna lægst
launuðu í þjóðféiaginu“, sagði
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja í
samtali í gær.
„Á þessum fundi voru skiptar
skoðanir en það breytir engu því
að samningurinn var samþykktur
á formannafundi ASI í gær með
yfirgnæfandi meirihluta. En það
sem t.d. fiskvinnslufólkið hlýtur
að vera óánægt með er að eftir-
vinna verður mun lægra hlutfall
af dagvinnutekjum með þessum
samningi og að grunnurinn sem
bónusinn er reiknaður af er
áfram alltof lágur.Þessi mikladag-
vinnutekjutrygging kemur því
fólki að engum notum. En ég vil
taka það fram að samninganefnd
ASÍ hefur unnið afar gott starf ef
tekið er tillit til þess hversu lítinn
bakhjarl hún í raun hafði“. - v.
Þorsteinn Pálsson:
- Við teljum að þessi samningur
feli í sér ábyrga lausn kjaramála
miðað við ríkjandi aðstæður og
miðað við þau markmið sem Vinn-
uveitendasambandið hefði sett sér
við upphaf samninganna, sagði
Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins á blaðamannafundinum í
gær. Við gerðum okkur grein fyrir
því að ekki var hægt að leysa vanda
allra með þessum samningum, en
hér hefur megináherslan verið lögð
á að bæta hlut þeirra sem verst eru
settir.
Þeir Hjalti Einarsson, Kristján
Ragnarsson og Davíð Scheving
Thorsteinsson sem allir sitja í
stjórn VSÍ lögðu áherslu á það að
Vinnuveitenþasambandið myndi
ekki semja um neinar aukaþókn-
anir til annarra hópa, og að það
væri forsenda þessa samkomulags
að það næði til allra hópa þannig að
vinnufriður héldist í þjóðfélaginu.
-ólg
Ég er ánægður
,^Ég er ánægður með að það skuli
hafa tekist að tryggja vinnufrið.
Það er ákaflega mikilvægt og mikið
afrek miðað við þau umbrot sem á
undan eru gengin“, sagði Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins og fyrrum framkvæmda-
stjóri VSÍ í gær.
„Það er ljóst að með þessum
samningum er gengið út á ystu nöf
miðað við þær efnahagslegu að-
stæður sem við búum við“, sagði
Þorsteinn ennfremur, „en ég
treysti því að aðilar vinnumarkað-
arins geri sér grein fyrir að þeir
bera ábyrgð á þessum samning-
um.“
Þorsteinn sagði að það hefði
alltaf legið fyrir af hálfu stjórnar-
flokkanna að þeir væru tilbúnir til
að ræða við aðila vinnumarkaðar-
ins um tilfærslu innan ramma fjár-
laga í þágu þeirra sem verst eru
settir með aðgerðum á sviði
trygginga- og skattamála. „Það er
enginn rekstrarafgangur á fjár-
lögum“, sagði Þorsteinn, „og það
verða ekki lagðir á nýir skattar.
Það verður ákveðið í viðræðum við
aðila vinnumarkaðarins með
hvaða hætti fjármagn verður fært
til innan ramma fjárlaganna".
Þorsteinn sagðist ekki vilja
binda sig á neinn hátt varðandi
hvað skera ætti niður á fjárlögum,
- hann væri opinn fyrir öllum
leiðum. Hins vegar væri ljóst að
lágtekjufólkið ætti ákaflega mikið
undir því að aðilar vinnumarkaðar-
ins kæmu sér saman um tilfærsluna
og það væri á ábyrgð þeirra hvernig
þeir deildu hækkuninni.
-ÁI
Betra að vinna
samningslaust
Magnús E. Sigurðsson
,4>eUa er allt bölvað og enginn
vafi á því að bctra er að vinna
samningslaust en að búa við þetta
samkomulag", sagði Magnús E.
Sigurðsson formaður Félags
bókagerðarmanna er Þjóðvilja-
menn hittu hann eftir formanna -
fund ASÍ í gær.
Magnús kvað lítið ganga í
samningaumleitunum bókagerð-
armanna við atvinnurekendur
sína enda vildi Félag prentiðnað-
arins ekkcrt við þá tala fyrr en
heildarsamningar lægju fyrir.