Þjóðviljinn - 22.02.1984, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 22. febrúar ,1984 ÞJÓÐVIUINN -.SÍÐA, 5
Torfusamtökin gera borginni tilboð:
Getum annast endurbætur
ef borgin kaupir húsið
segir Hallgrímur Guðmundsson, formaður
„Við væntum þess að tilboð okk-
ar verði tekið alvarlega og að menn
setjist niður og leiti leiða til að
bjarga Fjalakettinum frá niður-
rifl“, sagði Hallgrímur Guðmunds-
son, formaður Torfusamtakanna, í
gær. Torfusamtökin ítrekuðu s.l.
timmtudag tilboð sitt um að taka að
sér og kosta viðgerð á Fjalakettin-
um að því tilskyldu að borgin kaupi
húsið af núverandi eiganda.
Hallgrímur sagöi aö tilboð Torfu-
samtakanna byggðist á þeirri
reynslu sem þau hafa aflað sér nú
þegar af endurbyggingu og rekstri
gamalla húsa. Yrði slíkur samning-
ur að veruleika myndu Torfusam-
tökin yfirtaka húsið tímabundið
með leigusamningi. Þau fengju þá
endurleigurétt og að leigutíma
loknum yrðu allar endurbætur eign
Reykjavíkurborgar án endur-
gjalds.
„Ég tel vænlegast að opinberir
aðilar, ríkið og borgin kaupi Fjala-
köttinn“, sagði Hallgrímur, „en
síðan leigi Torfusamtökin eða sér-
stakt hlutafélag húsið af þeim til
10-15 ára, ábyrgist endurbyggingu
og afli fjár til hennar með endur-
leigu og hugsanlega fjársöfnun. En
til þess að af þessu geti orðið verða
menn að nota tímann vel, - frest-
urinn er aðeins til 1. mars, því þá
tekur borgarstjórn aftur á dagskrá
niðurrifsbeiðnina".
Svo sem skýrt hefur verið frá í
Þjóðviljanum áætlar byggingar-
deild borgarinnar að endurbætur á
Fjalakettinum muni kosta í kring-
um 40 miljónir króna og að kaup-
verð hússins sé á bilinu 12-20 mil-
jónir. Telur meirihluti borgar-
stjórnar 60 miljónir króna ofviða
borgarsjóði og í tillögu sem frestað
var s.l. fimmtudag er ábyrgðinni á
varðveislu hússins vísað yfir til
menntamálaráðuneytis og Þjóð-
minjasafns.
-ÁI.
Hallgrímur Guðmundsson formað-
ur Torfusamtakanna: ef borgin
kaupir Fjalaköttinn getum við ann-
ast endurbæturnar.
Sala Siglósíldar rœdd á Alþingi
„Boðar ekki
Þannig staðið að málum að ekki
samrýmist almennu viðskiptasiðferði
Sala Siglósíldar til einkaaðila er
algjörlega óþörf, og þjónar engum
öðrum tilgangi en að fullnægja yfir-
lýsingum forystumanna Sjálfstæð-
isflokksins. Vinnubrögð og máls-
meðferð við söluna eru fyrir neðan
allar hellur. Mikilvægar eignir
ríkisins eru seldar án þess að samið
sé um eðlilegt kaupverð, án nokk-
urrar staðgreiðslu og án þess að
lagðar séu fram eðlilegar trygg-
ingar og veð. Þetta sagði Ragnar
Arnalds m.a. á Alþingi í fyrradag
og kvað ráðgerða sölu á Siglósíld
ekki boða gott um sölu annarra
ríkisfyrirtækja.
Eiður Guðnason og Karl Steinar
Guðnason gagnrýndu einnig söl-
una á Siglósfld sem nú er fyrir Al-
þingi til staðfestingar. Eiður
Guðnason kvað þannig hafa verið
staðið að málum að ekki samrýmd-
ist almennu viðskiptasiðferði.
Auglýst hefði verið að ríkisfyrir-
tæki yrðu seld með 20% útborgun,
en síðan gengið til samninga við
einkaaðila um útborgunarlaus
kjör. Þá hefði engum öðrum en
umræddum einstaklingum gefist
kostur á að ganga inn í kaupin, eða
bjóða betur. Karl Steinar tók í
sama streng og spurði um það
hvernig atvinnuöryggi verkafólks
hefði verið tryggt.
Ragnar Arnalds gagnrýndi fjöl-
mörg atriði í málsmeðferð iðnaðar-
íslenska hljómsveitin:
Tónleikar á
fímmtudag
Fjórðu tónelikar íslcnsku hljóm-
sveitarinnar á þessu starfsári fara
fram í Bústaðakirkju fimmtudag-
inn 23. febr., kl. 20.30.
Á tónleikunum verða flutt
gömul og ný tónverk frá Norður-
löndunum. Eísta verkið er fiðlu-
konsert eftir sænska tónskáldið Jo-
han Helmich Roman, (1694-1758),
sem oft er kallaður hinn sænski
Hándel. Hlíf Sigurjónsdóttir fer
með einleikshlutverkið. Yngsta
tónverkið á efnisskránni er nýtt,
Torrek, eftir Hauk Tómasson, f.
1960, samið sl. haust að tilhlutan
hljómsveitarinnar. Auk þess flytur
hljómsveitin svítu í 6 þáttum er Al-
bert Kranz vann úr ptanólögum
Edvards Griegs og nefndi Norska
svítu.
Sérstakur gestur hljómsveitar-
innar á tónleikunum er Sigríður
Ella Magnúsdóttir söngkona sem,
ásamt Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur píanóleikara, flytur sönglög
eftir tvö höfuðtónskáld Norður-
landa, Carl Nielsen og Jean Sibe-
lius.
Hlíf Sigurjónsdóttir nam fiðlu-
leik hjá Gígju Jóhannsdóttur og
Birni Ólafssyni. Að loknu ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík sótti hún framhalds-
nám við tónlistarháskólann í Blo-
omington í Indiana, háskólann í
Toronto og listaskólann í Banff.
Meðal erlendra kennara hennar
má nefna þá Franco Gulli, William
Primrose, Ruggiero Ricci, Igor
Oistrach og Menacem Pressler.
Hlíf er annr tveggja kons-
ertmeistara íslensku hljómsveitar-
innar.
Haukur Tómasson, höfundur
Torreks, stundaði nám í píanóleik
við Tónlistarskólann í Reykjavík
hjá Eygló Haraldsdóttur og Hall-
dóri Haraldssyni. Árið 1979 hóf
hann nám í tónsmíðum og nam síð-
an við tónfræðideild skólans í tvö
ár. Tónsmíðakennarar hans voru
þeir Þorkell Sigurbjörnsson og Atli
Heimir Sveinsson. Haukur stundar
nú framhaldsnám í tónsmíðum í
Köln. Nú á hálfu öðru starfsári hef-
ur íslenska hljómsveitin pantað og
frumflutt 7 ný tónverk og er Torrek
hið 8. Síðar á starfsárinu verða
frumflutt þrjú verk eftir Pál P.
Pálsson, Atla Ingólfsson og Mist
Þorkelsdóttur.
Stjórnandi á þessum tónleikum
verður Guðmundur Emilsson.
Af óviðráðanlegum orsökum
breytist efnisskrá tónleikanna frá
því sem auglýst var í upphafi.
Veikindaforföll koma í veg fyrir að
leikið verði verkið Valse Triste
eftir Jean Sibelius. Og Annemarie
Dybdal, einn aðal dansari Konung-
lega danska ballettsins, sem átti að
taka þátt í flutningi Tarantel eftir
Mogens Winkel Holm, er skuld-
bundin vinnuveitendum sínum til
að dansa á nýráðgerðum aukasýn-
ingum í Kaupmannahöfn. Hefur
því ekki fengist breytt. Stefnt verð-
ur að því að flytja Tarantel á næsta
starfsári. Er beðist velvirðingar á
þessu. - mhg.
gott“
ráðherra og taldi að góð lausn hefði
fundist á málum Siglósíldar í tíð
fyrrverandi ríkisstjórnar með
kaupleigusamningi við Þormóð
ramma. Nú hefði þeim kaupleigu-
samningi verið rift og fyrirtækin
skilin sundur að nýju. Það sýndi
best hvert vitið væri í þeirri ráðstöf-
un að kaupendur settu sem skilyrði
að fyrirtækið hefði áfram aðstöðu
og afnot af tækjum hjá Þormóði
ramma. Siglósfld hefði verið að
rétta úr kútnum, enda engin tilvilj-
un að kaupendur væru m.a. for-
ráðamenn Þormóðs ramma.
Sverrir Hermannsson færði þá
vörn helsta fyrir máli sínu að
kaupverðið 18 milljónir væri sem
næst skuldastöðu Siglósíldar, og á
þá hugmynd væri drepið í plöggum
iðnaðarráðherra fyrrverandi í sam-
bandi við fyrirhugaða sölu til
Þormóðs ramma. Ragnar Arnalds
benti hinsvegar á að framreiknað
væri það verð nú 20 milljónir króna
og með tilliti til stórbatnandi horfa
í rekstri Siglósíldar hefði opinber
nefnd metið eðlilegt kaupverð á
nærri 25 milljónir króna. Þing-
inenn Alþýðuflokksins minntu á að
margir töluðu um gjöf en ekki kaup
í tengslum við sölu Siglósíldar nú.
Sverrir taldi hinsvegar nauðsynlegt
að selja ódýrt til þess að nýir
eigendur gætu endurnýjað véla-
kost. Ólafur Jóhannesson spurði
hvað yrði um upphaflegan tilgang
Siglósíldar sem tilraunaverksmiðju
við söluna, og upplýsti Sverrir Her-
mannsson að ekki hefði þótt fært
að leggja tilraunakvöð á nýja kaup-
endur.
Sverrir Hermannsson kvað bæj-
arstjórn Siglufjarðar ekki hafa sýnt
málinu mikinn áhuga, líklega
vegna vangetu í fjármálum, en hún
hefði fengið gögn málsins í janúar
sl.. Ragnar Arnalds upplýsti að
bæjarstjórninni hefði verið stillt
upp frammi fyrir undirrituðum
kaupsamningi, sem hefði verið
dagsettur 1. j anúar sl.. Það væri allt
samráðið í málinu.
- ekh.
Arkitektar
álykta um stöðu
forstöðumanns
Borgarskipulags:
Staðan
verði
auglýst aftur
Á aðalfundi Arkitektafélags ís-
iands sem haldinn var á laugardag
var samþykkt einróma áskorun á
borgarráð Reykjavíkur um að aug-
lýsa aftur stöðu forstöðumanns
Borgarskipulags. Ástæðan er sú að
í auglýsingunni var í engu getið
hvaða menntunar eða reynslu kraf-
ist er. Umsóknarfrestur rennur út
29. febrúar.
Á aðalfundinum var einnig fjall-
að um Skúlagötumálið og samþyk-
ktu allir fundarmenn nema þrír
áskorun á Skipulagsstjórn ríkisins
um að staðfesta ekki byggð með
nýtingunni 2 fyrr en deiliskipulag
hefur verið gert af svæðinu.
Jes Einar Þorsteinsson var kjör-
inn formaður Arkitektafélags ís-
lands.
-ÁI.
Áttu við
GOLF *
ÞAKVANDAMAL
að stríða?
Betokem SUM gólfílögn
Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tíma. SUM gólfílögn hefur
verið í þróun í Þýskalandi, Svíþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru í upphafi og síðar hafa
komið fram.
Það hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
FILLC0AT
gúmmítdygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
IKl
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ilagningarefnum sem þola ótrúlegt
álag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið i sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.
EP0XY - GÓLF
HAFNARFIRÐI SÍMI 50538