Þjóðviljinn - 22.02.1984, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 22. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Landsfundur Alþýðubandalagsins 1983:
Markaði stefnu í tölvumálum
„Fraru til þessa hafa karlmenn stýrt tækniþróuninni og tekið ákvarðanir sem snerta afdrif allra, en
sjónarmið kvenna gætir þar lítt“, segir m.a. í ályktun landsfundar Alþýðubandalagsins um sjálfvirkni og
tölvur.
Landsfundur Alþýðubanda-
lagsins 1983 samþykkti ítar-
legaályktun
um tölvu- og atvinnumál og
mun það eini stjórnmála-
flokkurinn á landinu, sem
markað hefur sér ákveðna
stefnu í þessum málum. Hér
á eftir fara helstu atriðin í
þessari samþykkt lands-
fundarins.
Tölvutæknin gefur fyrirheit um
aukna fjölbreytni í íslensku
atvinnulífi, meiri afrakstur af fram-
leiðslunni til skiptanna, styttri
vinnutíma, betra vinnuumhverfi og
stóraukin tækifæri launamanna til
meðákvörðunar á vettvangi vinn-
unnar. En andstæður þessara fyrir-
heita: meiri samþjöppun auð-
magns, einhæfari og firrtari vinnu-
aðstæður, ólýðræðislegri sam-
starfshættir eru einnig hugsanlegir
fylgifiskar tölvutækninnar. Samtök
íslenskra launamanna, og Alþýðu-
bandalagið sem höfuðmálsvari
þeirra á hinum pólitíska vettvangi,
standa nú frammi fyrir því erfiða,
en um leið heillandi, viðfangsefni
að ná undirtökunum í þeirri glímu,
sem snýst um það hvort tölvu-
tækninni verður beitt til arðráns og
samþjöppunar valds, eða hvort
hún verður virkjuð í þágu mannúð-
ar og jöfnuðar eins og hún hefur
allar forsendur til.
Tölvutæknin og sú sjálfvirkni í
framleiðslu og þjónustu, sem af
henni hefur leitt, er rökrétt fram-
hald fyrri stiga efnahags- og tækni-
þróunar iðnaðarþjóðfélagsins.
Hún mun því, þrátt fyrir ýmis sér-
einkenni, birtast okkur í atvinnulíf-
inu líkt og hver önnur tækni á tím-
um hraðrar hagræðingar og sjálf-
virkni.
Með innlendri þekkingu og hug-
viti ætti að vera unnt að nýta nýja
tækni til að leysa margháttuð verk-
efni í íslensku atvinnulífi og renna
þannig stoðum undir fjölbreytta
framleiðslu fyrir innanlandsmark-
að og til útflutnings. íslenskur raf-
iðnaður er hins vegar vanbúinn til
að taka á þessum verkefnum og er
því brýnt, að með stjórnvaldsað-
gerðum verði stuðlað að aukinni
notkun rafeindabúnaðar í atvinnu-
lífi landsmanna og innlend fram-
leiðsla, jafnt vél- sem hugbúnaður,
verði efld.
Tölvutæknin er hvorki góð né ill
í sjálfri sér, fremur en önnur tækni.
Notkun hennar mun spegla félags-
legt ástand og efnahagsleg og pólit-
ísk valdahlutföll í landinu. Fram til
þessa hefur þróun og aðlögun
tölvutækninnar verið í höndum at-
vinnurekenda og sérfræðinga
þeirra, og svo mun verða enn um
sinn.
Fyrirsjáanlegum afleiðingum
tækninnar getur verkalýðshreyf-
ingin mætt með samningum og
stjórnmálamennirnir með laga-
setningu. Fram til þessa hafa
stjórnvöld í litlum mæli beitt þeim
tækjum, sem þau hafa yfir að ráða
til þess að finna tölvutækninni
þann farveg, sem best mundi nýtast
í þágu íslensks atvinnulífs með
sérkennum þess og tækifærum.
Tölvur, atvinnulíf
og sjálfvirkni
Tölvutæknin hefur ekki aðeins
áhrif á innlendan vinnumarkað,
heldur og á samskipti okkar við
önnur ríki. Allar þjóðir, sem við
höfum viðskipti við eða erum í
samkeppni við, taka tölvutæknina í
þjónustu sína í vaxandi mæli. Þær
breytingar, sem má geta sér til að
fylgi þessum nýju atvinnuháttum,
munu gerast hraðar en dæmi eru til
um áður. Ýmis störf munu úreld-
ast, önnur munu taka verulegum
breytingum og ný störf munu verða
til. Sífellt styttri tímaskeið tækni-
nýjunga og sívaxandi sjálfvirkni
ýta undir meiri hreyfanleika á
vinnumarkaðnum. Því fylgir sú
hætta, að þeim muni fjölga, sem
ekki finna störf við sitt hæfi, jafnvel
gæti þróunin kallað fram áður
óþekktar hagsmunaandstæður á
meðal launamanna. Við þessari
hættu verður að bregðast með
skipulegu upplýsingastarfi, kröfum
um meðákvörðunarrétt og ráðstöf-
unum, sem tryggj a besta undirbún-
ing ungmenna á leið út á vinnu-
markað og rétt annarra hópa, sem
kunna að standa höllum fæti t.d. á
sviðum, þar sem tölvutæknin leiðir
til þess, að þörfin fyrir vinnuafl
stórminnkar.
Mikil tilfærsla í atvinnulífinu og
uppbyggingu þess raskar einnig
æskilegu jafnvægi milli byggðar-
laga, nema stjórnvöld beiti þeim
ráðum, sem þeim eru tiltæk til að
verjast því.
Kostnaðarhlutfall milli fjárfest-
ingar og vinnuafls ræður miklu um
hraða tæknibreytinga. Verkalýðs-
hreyfingin og málsvarar hennar
verða að beita öllum styrk sínum til
þess að koma í veg fyrir að skamm-
sýnir einkaaðilar, sem stjórnast af
von um skjóttekinn gróða, verði
látnir ráða ferðinni, með þeim af-
leiðingum, að þeir safni gildum
sjóðum, en samfélagsheildin sitji
eftir með hina raunverulegu út-
gjaldaliði: atvinnuleysi og félags-
lega og efnahagslega röskun.
Náist ekki samningar milli aðila
vinnumarkaðarins er Alþýðu-
bandalagið viðbúið því að beita sér
fyrir löggjöf um, að atvinnurek-
endum verði gert skylt að hafa
samráð við viðkomandi verka-
lýðsfélög um leið og athugun hefst
á því, hvort ný tækni skuli tekin
upp á vinnustað. Tryggja verður
meðákvörðunarrétt starfsmanna
og verkalýðsfélaga um hvaða þarfir
á að uppfylla, hvernig tækni skuli
nota, hve hratt hún skuli tekin í
notkun og livað skuli gert til að
koma í veg fyrir kerfisbpndna
skráningu upplýsinga um starfs-
menn, sem atvinnurekendur miðli
sín á milli.
Áhrif tœkniþróunar
Ör tækniþróun á sér nú stað á
íslandi og mun hér sem annars
staðar valda mikilli röskun á vinnu-
markaði. Störf munu leggjast nið-
ur, önnur breytast og ný verða til.
Margt bendir til þess að neikvæðar
hliðar þessara breytinga bitni frem-
ur á konum en körlum. Þar veldur
mestu hefðbundin verkaskipting
milli karla og kvenna á vinnumark-
aðnum.
Þau störf sem mest mun fækka í
vegna tölvuvæðingar á næstunni
eru störf ófaglærðra í iðnaði og al-
menn störf í skrifstofu- og við-
skiptagreinum, - störf sem konur
vinna nú að miklum meirihluta og
sem um leið eru stærsti hluti þeirra
starfa, sem konur inna af hendi
utan heimilis. Á sama tíma vex til-
hneiging til að hagræða vinnutíma
eftir þörfum atvinnurekenda og
bjóða konum aðeins hlutastörf,
greidd með hluta af launum.
Ný störf sem orðið hafa til á
vinnumarkaðnum í kjölfar tölvu-
tækni og sjálfvirkni eru fyrst og
fremst á sviðurn, þar sem karlar
ráða nú ferðinni. Þau nýju störf
sem koma í hlut kvenna reynast
einhæf og illa launuð. Þá munu nú
einnig í ríkari mæli opnast mögu-
leikar til launaðrar heimavinnu,
sem hafa skiljanlegt aðdráttarafl
fyrir foreldra. Hætt er þó við að
slíkt tilhögun festi enn í sessi kyn-
greint vinnumynstur og tvöfalt
vinnuálag kvenna valdi félagslegri
og faglegri einangrun.
Jákvæðar hliðar tæknibyltingar
nútímans gætu komið fram í
aukinni framleiðni og styttri vinnu-
tíma með óskertum launum sé vel á
haldið. Fram til þessa hafa karl-
menn stýrt tækniþróuninni og
tekið ákvarðanir sem snerta afdrif
allra, en sjónarmiða kvenna gætir
þar lítt. Fjárfest hefur verið í tækj-
um og búnaði án tillits til hagsmuna
starfsfólks eða teljandi samráðs við
samtök þess.
Alþýðubandalagið telur eðlilegt
að atvinnurekendum verði gert
skylt að hafa fullt samráð um
tæknibreytingar við viðkomandi
verkalýðsfélög og að við ákvarðan-
ir sé tekið tillit til sjónarmiða og
hagsmuna kvenna og stuðlað að
því að brjóta niður múra kyn-
greinds vinnumarkaðar. Náist ekki
samkomulag þar að lútandi milli
aðila vinnumarkaðarins mun Al-
þýðubandalagið beita sér fyrir
nauðsynlegri lagasetningu.
Verða það forréttindi í framtíðinni að hafa laun? var m.a. spurt á fróðlegri ráðstefnu Jafnréttisráðs og
Skýrslutaeknifélags íslands sl. föstudag um áhrif tölvuvæðingar á atvinnulífið með tilliti til jafnréttis
gestir voru sammála um, að áhrifin munu verða mun
meiri á störf kvenna en karla og var vitnað til er-
lendra kannana til stuðnings þeim málflutningi. Má
þar nefna, að í Danmörku er talið að á næstu 10
árum muni 75 þúsund skrifstofustörf hverfa, en eins
og væntanlega mun kunnugt gegna konur þessum
störfum að ntiklum meirihluta. Þá telur verkalýðs-
hreyfingin í Bretlandi, að árið 1990 muni verða 20
prósent atvinnuleysi ( skrifstofustörfum þar í landi.
Upplýsingar þessar kontu fram í máli Lilju Ólafs-
dóttur.
En það þarf svo sent ekki að fara út fyrir land-
steinana, til þess að fá sönnun fyrir þessu atriði. 1
máli Lilju kont einnig fram, að þegar tölvuvæðing
hófst hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík hafi yfirvinna
horfið með öllu, en áætlað var að hún jafngilti 4
stöðugildum. Þetta þýddi léttari vinnu og betra
starfsumhverfi - en mun minni tekjur þegar á
heildina var litið. Þessunt störfum gegna konur.
Þá sagði Hrafnhildur Sigurðardóttir frá því, að
árið 1983 hafi konur verið 68 prósent þeirra, er
starfa í bönkum, og næstum helmingur þeirra er
undir þrítugu. Menntun kvennanna er mun minni
en menntun karlanna og sú staðreynd hlyti að vekja
ugg, um franttíð kvennanna, þegar tölvuvæðingin
væri annars vegar. Hrafnhildur sagði frá því að
reynslan frá Danmörku sýndi, að við tölvuvæðing-
una lentu leiðinlegri og einhæfari störf undantekn-
ingarlaust á konunum.
Fyrirlesarar voru sammála um, að stjórnvöld og
aðilar vinnumarkaðarins yrðu að stýra þróun tölvu-
væðingarinnar, og í sama streng tóku fulltrúar
stjórnmálaflokkanna og frá ASÍ og VSÍ. Að öðrum
kosti gæti komið að því, sem Jakob Sigurðsson orð-
aði með spurningunni: Verða það forréttindi að
hafa laun? aS(
kypjanna. (Ljósm.: Atli).
Tölvur og konurnar:
Þróuninni
vcrðiir að stýra
Áhrif tæknibreytingarinnar á atvinnulífið með til-
liti til jafnréttis kynjanna nefndist ráðstefna, sem
Jafnréttisráð og Skýrslutæknifélag íslands gengust
fyrir sl. föstudag. Ráðstefnugestir voru almennt
sammála um, að örtölvutæknin væri að haida
innreið sína hérlendis og jafnframt, að ekki ætti að
setja sig upp á móti henni. Spurning væri hins vegar,
hvemig stjórna mætti þessari þróun þannig að hún
komi öllum landsmönnum til góða.
Ráðstefnan var tvískipt. Voru annars vegar hald-
in erindi um áhrif þessara tæknibreytinga á atvinnu-
lífið og hins vegar héldu fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna stuttar tölur um stefnu síns flokks í þessum
málunt. Ennfremur kynntu Vinnuveitendasamband
íslands og Alþýðusamband íslands sína stefnu.
Þau sem fluttu erindi voru: Alexander Stefáns-
son, félagsmálaráðherra, Lilja Ólafsdóttir, deildar-
stjóri hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkur-
borgar, Jakob Sigurðsson, forstöðumaður tölvu-
■ deildar Flugleiða, Hrafnhildur Sigurðardóttir, skrif-
stofustjóri, og Gylfi Kristinsson, sem kynnti störf
nefndar er kanna áhrif tölvuvæðingarinnar á
atvinnulífið. Nefnd þessa skipa fimm karlmenn, og
skýtur það nokkuð skökl.u við, þar sent ráðstefnu-