Þjóðviljinn - 22.02.1984, Qupperneq 11
Miðvikudagur 22. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
íþróttir Víðir Sigurðsson
Gylfi og Hreinn Þorkelssynir hafa verið lykilmenn í góðum leikjum ÍR að
undanförnu. í gærkvöldi skoraði Gylfi (nr. 15) 40 stig gegn IBK og Hreinn
lék einnig mjög vel.
ÍBK illa statt
Barnwell
kemur ekki
John Barnwell þjálfar hvorki Val né landsliðið í knattspyrnu næsta
keppnistímabil. Englendingurinn kunni gaf afsvar í gær og þar með eru
málefni beggja komin í fyrra horf. Sérstaklega er þetta bagalegt fyrir
Valsmenn, óvissa með þjálfaramálin þegar undirbúningstímabilið stendur
yfir. Róbert Jónsson hefur séð um Valsliðið síðan Sigurður Dagsson hætti í
byrjun janúar og það ætti að vera nærtækast að gefa honum tækifæri.
-VS
Watford
óstöðvandi!
Sighvatur
og
Garðar
fyrstir
Breiðholtshlaup ÍR var haldið á
laugardaginn, en því hafði áður
verið frestað vegna ísalaga og var
sett inn í hlaupakerfið þegar fresta
varð Flóahlaupinu um helgina. Tíu
hlauparar mættu til leiks og urðu
fyrstu menn sem hér segir:
Karlaflokkur - u.þ.b. 17 km
mín.
1. Sighvatur D. Guðmundss. ÍR.61,35
2. GunnarBirgisson, ÍR........62,42
3. Bragi Sigurðsson, Ármanni..63,45
4. Magnús Haraldsson, FH......71,36
5. Guðmundur Ólafsson, ÍR.....74,48
Drengjaflokkur
1. Garðar Sigurðsson, ÍR......30.43
2. Viggó Þ. Þórisson, FH......34,01
3. Steinn Jóhannsson, ÍR......34,02
Firma- og
hópakeppni
Önnur firma- og félagshópa-
keppni KR í innanhússknattspyrnu
hefst mánudaginn 5. mars og lýkur
með úrslitakeppni mánudaginn 19.
mars. í flestum tilvikum lýkur
keppni í hverjum riðli samdægurs.
Þátttökutilkynningar skulu berast
eigi síðar en mánudaginn 27. febrú-
ar. Þátttökugjaldið er kr. 2.500 og
skal greiða það áður en dregið
verður í riðla. í þá verður dregið
þriðjudaginn 28. febrúar og mun
tímasetning leikja liggja fyrir
fimmtudaginn 1. mars. Allar nán-
ari upplýsingar veitir Steinþór
Guðbjartsson á skrifstofu Knatt-
spyrnudeildar KR í KR-heimilinu,
milli kl. 3 og 7 alla virka daga,
nema föstudaga milli kl. 5 og 7.
Sími er 27181.
Kraftlyft-
inganámskeið
Kraftlyftinganámskeið verður
haldið í Jakabóli í Laugardal í
Reykjavík næstu sex vikurnar, og
hefst í dag, miðvikudag. Æfingar
verða þrisvar í viku, mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 20.
Óskar Sigurpálsson sér um nám-
skeiðið, en hann er fluttur til
Reykjavíkur eftir nokkurra ára
dvöl úti á landi óg hefur hug á að
blása nýju lífi í kraftlyftingaíþrótt-
ina. Innritun fer fram á staðnum,
eða í sfma 39488.
Meistaramót
Meistaramót í frjálsum íþróttum
fyrir 14 ára og yngri fer fram 25. og
26. febrúar í íþróttahúsinu við
Strandgötu f Hafnarfirði og í Bald-
urshaga í Reykjavík. Keppni hefst
kl. 9.30 í Hafnarfirði á laugar-
dagsmorgun og kl. 10 á sunnu-
dagsmorgun í Baldurshaga.
Skráningarfrestur er til miðviku-
dagsins 22. febrúar og er gjald fyrir
hverja grein 25 krónur. Skráning-
um skal skila til Sigurðar og Magn-
úsar Haraldssona, Hverfisgötu 23
Hafnarfirði, síma 52403.
Getraunir
Aðeins tveir seðlar komu fram
með 11 rétta í 24. leikviku Get -
rauna og koma 195.170 kr. í hlut
hvors aðila. Þá voru 59 raðir með
10 rétta og 2.841 kr. í vinning fyrir
hverja.
Fátt getur bjargað Keflvíkingum
frá falli úr úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik eftir slæmt tap, 100-69,
fyrir ÍR í Seljaskólanum í gær-
kvöldi. Þeir verða nú að sigra Val
og Hauka í síðustu tveimur leikjun-
um til að eiga möguleika og jafnvel
er óvíst að það dygði til.
Leikurinn var jafn framan af en
þegar á leið fyrri hálfleik skildu
leiðir. ÍR var komið í 51-34 í hálf-
leik og skoraði síðan fyrstu 13 stig
seinni hálfleiks! Staðan orðin 64-34
og formsatriði að ljúka leiknum.
Undir lokin var kappsmálið síðan
að ná 100 stigunum, og það tókst
með körfu Kolbeins Kristinssonar
3 sekúndum fyrir leikslok.
Gylfi Þorkelsson var langbesti
maður vallarins, átti hreint stór-
kostlegan leik með ÍR. Sjálfsagður
í landsliðið með þessu áframhaldi
og á fárra færi að skora 40 stig í
úrvalsdeildarleik. Pétur Guð-
mundsson lék að mestu lýtalaust í
sókn og vörn en lét síðan skapið
fara með sig og var skipt endanlega
útaf um miðjan seinni hálfleik eftir
að hafa slegið til Keflvíkings.
Heppinn að fá ekki brottrekstur.
Hreinn Þorkelsson átti óhemju
yfirvegaðan og traustan leik og í
heild virkaði ÍR-liðið ákaflega
sannfærandi.
Jón Kr. Gíslason var besti maður
Keflvíkinga, en liðið var ákaflega
slakt eins og tölurnar bera með sér.
Breiddin er engin á úrvals-
deildarmælikvarða, en framtíðin
björt með alla þessa ungu stráka.
Pétur Jónsson, Þorsteinn Bjarna-
son og Guðjón Skúlason áttu allir
sæmilegan leik á köflum.
Stig ÍR: Gylfi 40, Pétur 21, Hreinn 18,
Kolbeinn 10, Benedikt Ingþórsson 6,
Bragi Reynisson 3 og Hjörtur Oddsson 2.
Stig ÍBK: Pótur 15, Þorsteinn 13, Guö-
Jón 12, Jón 11, Sigurður Ingimundarson 6,
Matti Stefánsson 6, Björn V. Skulason 4
og Hrannar Hóim 2.
Kristbjörn Albertsson og Davíð
Sveinsson dæmdu leikinn vel en
einkennileg var túlkun þeirra á
hvað er brottrekstrarsök og hvað
ekki.
Staðan í úrvalsdeildinni:
Njarðvík......17 13 4 1300-1205 26
Valur..........17 9 8 1414-1330 18
KR.............17 9 8 1252-1236 18
Haukar.........17 8 9 1247-1262 16
ÍR.............18 7 11 1403-1393 14
Keflavík.......18 6 12 1204-1383 12
Watford er á óhemju hröðu
skriði í deild og bikar í ensku
knattspyrnunni þessar vikurnar.
Liðið er talið einna líklegast til að
vinna bikarkeppnina, það er einnig
komið í slaginn um Evrópusæti í 1.
deildinni, skaust upp í áttunda sæt-
ið í gærkvöldi með frábærum sigri
gegn West Ham á útivelli í London,
4-2. Watford vermdi fallsæti fram-
an af í vetur en nú er öldin önnur.
Southampton vann einnig
sannfærandi útisigur, 3-0 í Ipswich,
en heimaliðið þar dregst æ meir
inní fallbaráttuna. Mikil hamskipti
á þeim bæ í vetur til hins verra.
Notts County og Tottenham léku
einnig í Nottingham og markalaust
iafntefli varð útkoman þar. í 2.
Ifeild er Grimsby komið í 3. sæti,
uppfyrir Man.City og Newcastle,
eftir 2-1 sigur á Derby County.
íslenska landsliðið í badminton
tekur þátt í Thomas/Uber Cup,
einu sterkasta badmintonmóti sem
haldið er í heiminum, i Belgíu um
næstu helgi. Þetta er undankeppni
og komast þrjár þjóðir úr Thomas
Cup, sem er karlakeppni, og tvær
úr Uber Cup, sem er kvenna-
keppni, í sjálft aðalmótið sem hald-
ið verður síðar.
Karlalandsliðið leikur í riðli með
Skotum, Vestur-Þjóðverjum og
Belgum í C-riðli í Thomas Cup, en
15 þjóðir taka þar þátt. Átta þjóðir
taka þátt í Uber Cup og andstæð-
Olafur og
Ingvar með
Hólmara
Ólafur Sigurðsson og Ingvar
Jónsson hafa tekið við þjálfun 3.
deildarliðs Snæfells úr Stykkis-
hólmi í knattspyrnu. Þeir félagar
eru heimamenn og hafa leikið með
liðinu undanfarin ár. Snæfell hefur
fengið góðan liðsstyrk þar sem er
Sævar Geir Gunnleifsson, fram-
herjinn fljóti úr Breiðabliki, en Sæ-
var er Hólmari að upplagi.
-gsm/VS
ingar íslensku stúlknanna eru
geysisterkir, eða Danir, Hollend-
ingar og Svíar.
Landsliðið er skipað 10 leik-
mönnum sem allir koma frá TBR.
Þeir eru eftirtaldir: Elísabet Þórð-
ardóttir, Inga Kjartansdóttir,
Kristín B. Kristjánsdóttir, Kristín
Magnúsdóttir, Þórdís Edwald,
Broddi Kristjánsson, Guðmundur
Adolfsson, Jóhann Kjartansson,
Sigfús Ægir Árnason og Þorsteinn
Páll Hængsson. Með í förinni verða
Hrólfur Jónsson þjálfari og Elín
Agnarsdóttir fararstjóri.
-VS
Unglingamót íslands í fim-
leikum var haldið í Laugardals-
höllinni um helgina, laugardagog
sunnudag. Þátttaka var meiri en
nokkru sinni fyrr, 109 keppendur
mættu til leiks, og þá voru áhorf-
endur óvenju margir, um 350 er
mest var.
Úrsiit á mótinu urðu sem hér
segir:
Fyrri dagur - saman-
lagt -
Stúlkur
10 ára og yngri:
1. Linda S. Pétursd. Björk....30,60
2. Eva Hilmarsd. Björk........23,40
3. Llnda B. Logad. Gerplu.....20,95
11-12 ára:
1. HannaL. Frlöjónsd.Gerplu...36,25
2. Vilborg Hjaltalin, Ármanni.31,45
3. Birna Einarsd. Ármanni.....30,80
13-14 ára:
1. Bryndís Ólafsd. Gerplu..35,65
2. Hlín Bjarnad. Gerplu....34,25
3. Hjördfs Bachman, Ármanni.31,20
15-16 ára:
1. Dóra S. Óskarsd. Björk.....35,65
2. SfgríðurÓlafsd. Ármanni...33,00
3. Alda Hauksdöttir, Ármanni.30,85
Drengir
10 ára og yngri:
1. AnthonyVernhard, Ármanni....36,95
2. Markús Þórðarson, Björk...34,65
3. Andrl Einarsson, Ármanni..29,15
11-12 ára:
1. Aöalsteinn Finnbogas. Gerplu 41,05
2. Sigurður Ólason, Akureyri.39,10
3. Krlstján Stefánss. Björk..38,80
13-14 ára:
1. Guðjón Guðmundss. Ármanni 52,40
2. JóhannesSlguröss.Ármanni 50,65
3. Stefán Stefónsson, Akureyri ....49,00
15-16 ára:
1. ArnórDiegó, Ármanni.....51,90
2. Baldvin Hallgrímss. Akureyri ...44,25
3. Biöm Guðmundss. Ármanni ....39.05
Síðari dagur - úrslit
Stúlkur
Stökk:
1. Bryndis Ólafsd. Gerplu...8,80
2. Dóra Sif Óskarsd. Björk..8,70
3. Hanna L. Friðjónsd. Gerplu.8,45
Tvfslá:
1. Hanna L. Friðjónsd. Gerplu.9,55
2. Dóra Sif Óskarsd. Björk..9,55
3. Bryndfs Ótafsd. Gerplu...9,40
Slá:
1. Sigrfður Ólafsd. Árm.......9,45
2. Hanna L. Friðjónsd. Gerplu.9,35
3. Dóra Sif Óskarsd. Björk....9,35
Gólf:
1. HannaL. Frlðjónsd. Gerplu..8,90
2. BryndisÓlatsd. Gerplu....8,35
3. Dóra Sif Óskarsd. Björk..8,25
Drengir
Gólf:
1. GuðjónGuðmundss.Ármanni 17,60
2. Arnór Diegó, Ármanni....17,05
O I X L. . ^ ^ A O I M ■ .. k ÁKM-nHHI 4 c A n
Bogahestur:
1. Jóhannes Sigurðss. Ármanni 17,05
2. ArnórDiegó, Ármanni......16,70
3. Guðjón Guðmundss. Ármanni 15,75
Hringir:
1. Guðjón Guðmundss. Ármanni 17,65
2. Amór Diegó, Ármanni......17,35
3. Stefán Stefánsson, Akureyri.... 16,65
Stökk:
1. Amór Díegó, Ármanni......18,55
2. Stefán Stefánsson, Akureyri.... 18,15
3. Jóhannes Sigurðsson, Ármannl
18,00
Tvíslá:
1. GuðjónGuðmundss. Ármanni 18,40
2. Arnór Diegó, Ármanni....18,10
3. Stefán Stefánsson, Akureyri ....47,25
Svifrá:
1. Guðjón Guðmundss. Ármanni 17,85
2. Stefán Stefánss. Ármanni.16,55
3. Jóhannes Sigurðsson Ármanni
16,45
-vs
Landsliðin í badmin-
ton fara í sterk mót