Þjóðviljinn - 22.02.1984, Page 12
24 SÍÐA — ÞJÓÐVIIJINN Miðvikudaeur 22. febrúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Vestmannaeyjum
Viðtalstímar
Framvegis veröur Garðar Sigurðsson alþingis-
maður með viðtalstíma að Bárugötu 9, síðasta
laugardag t mánuði kl. 16-19. Næsti viðtalstími
verður laugardaginn 25. febrúar. Kaffi á könnunni.
- AB Vestmannaeyjum.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Ðæjarmálaráð
heldurfund miðvikudaginn 22. febrúarkl. 20.30 í Þinghóli. Dagskrá: 1)
Stofnfjáráætlun Kópavogskaupstaðar. 2) Önnur mál. Athugið að
fundurinn hefst kl. 20.30. - ABK.
Húsvíkingar -Þingeyingar
Alþýðubandalagiö á Húsavík auglýsir árshátíð sína sem haldin verður
laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimili HúsavfKur.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið opnað kl. 19.30.
Steingrímur og Stefán koma og verða með ef færð og veður leyfa.
Skemmtiatriði við allra hæfi. Látið skrá ykkur sem allra fyrst í símum
41813 og 41397.
Athugið: Hátíðin er ætluö öllum Allaböllum í Þingeyjarþingi. Hafiö
samband. - Nefndin,
Alþýðubandalag
Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur verður haldinn laugardaginn 25. febrúar í Al-
þýðubandalagi Selfoss og nágrennis. Fundurinn verður haldinn að
Kirkjuvegi 7, Selfossi og hefst kl. 14. Dagskrá auglýst síðar. - Stjórn-
in.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Fundur
í starfshópi um húsnæðismál, skipulagsmál og umferðarmál verður
haldinn miðvikudaginn 22. febrúar kl. 20.30 í Skálanum Strandgötu
41-ABH.
Alþýðubandalagið á Akureyri
KONUR
Við stofnum kvennahóp!
Konur í Alþýðubandalaginu og aðrar sem áhuga hafa eru hvattar íii að
mæta á rabbfund í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, sunnudaginn 26.
febrúar kl. 20.30. Kaffiveitingar. Áhugasamar konur
Æskulýösfylking Alþýðubandalagsins
Fimmtudaginn
23.febrúarkl.
20.30 höldum
við félagsfund í
Æskulýðsfylk-
ingunniað
Hverfisgötu
105.
Dagskrá:
Kjaramálin. Framsaga: Óttarr Magni Jóhannsson.
Uppgjöf eða aðgerðir. Framsaga: Ragnar A. Þórsson.
Skýrsla stjórnar. Guðbjörg Sigurðardóttir.
Verkefni næstu daga og tillaga um stofnun Æskulýðsfylkingarinnar í
Reykjavík.
Stjórn ÆFAB.
Skreiðarframleiðendur
Hagsmunanefnd skreiðarframleiðenda boð-
ar til fundar með framleiðendum föstudaginn
24. febrúar n.k. kl. 13.30, að Hótel Hofi,
Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Björgvin Jónsson gerir grein fyrir því sem
gerst hefur í málefnum skreiðarframleiðenda
frá síðasta hausti og ræðir um stöðuna nú.
Hagsmunanefndin
Félagsfundur
Guðbjörg Ragnar
Óttarr
Garðar
Reykjavíkurmótið
Ferðaskrifstofuveldið rofið
Sveit Úrvals varð Reykjavík-
urmeistari í sveitakeppni 1984,
eftir úrslitaleik við sveit Ólafs Lár-
ussonar. Fyrir þann leik hafði sveit
Úrvals 35 stig en sveit Ólafs 24 stig.
Þeir fyrrnefndu sigruðu 13-7 og
tryggðu sér þar með Reykjavíkur-
hornið í ár.
I sveit Úrvals eru: Karl Sigur-
hjartarson, Ásmundur Pálsson,
Hjalti Elíasson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Örn Arnþórsson.
Sveit Úrvals var vel að sínum
sigri kominn.. Hún vann alla leikina
og tapaði raunar aðeins einum
hálfleik, þeim síðasta á móti sveit
Ólafs.
í 1. umferð gersigraði sveit Úr-
vals sveit Þórarins Sigþórssonar
með 20 gegn mínus 1. Þó var staðan
jöfn í hálfleik í þeim leik. Á sama
tíma vann sveit Samvinnuferða
sveit Ólafs 12-8, eftir að hafa haft
yfirburðastöðu í fyrri hálfleik.
f 2. umferð vann svo Úrval inn-
byrðisuppgj ör ferðaskrifstofuveld-
anna með 15-5, mjög örugglega.
Sveit Ólafs vann sveit Þórarins
með 16-4, einnig nokkuð örugg-
lega.
Úrval og Ólafur spiluðu síðan
hreinan úrslitaleik og eftir fyrri
hálfleikinn var nokkuð útséð
hverjir stæðu uppi sem sigurvegar-
ar. Ólafs-menn klóruðu þó aðeins í
„bakkann" í seinni hálfleik og náðu
að halda 2. sætinu, því á sama tíma
vann sveit Samvinnuferða sveit
Þórarins með 13-7. Lokastaða
sveitanna varð þessi:
1. sveit Úrvals 48 st.
2. sveit Ólafs Lárussonar 31 st.
3. sveit Samvinnuf.-Landsýnar 30 st.
4. sveit Þórarins Sigþórssonar 10 st.
Er þetta fyrsti sigur sveitar Úr-
vals (Karls Sigurhj.) í meiri háttar
móti, um árabil. Sennilega orðnir
„hungraðir" eftir titli, sveinarnir í
sveitinni (eða Ásarnir...).
Sveit Ólafs má vel við una að ná
2. sætinu, enda spilaði sveitin ágæt-
is bridge, ef undanskilinn er fyrsti
hálfleikur mótsins. í sveit Ólafs
spiluðu auk hans: Hermann Lárus-
son, Jónas P. Erlingsson og Hrólf-
ur Hjaltason. Auk þeirra eru í
sveiþnni: Hannes R. Jónsson og
Páll Valdimarsson.
Sveit Samvinnuferða/Landsýnar
missti niður „dampinn“ í seinni
hálfleik á móti sveit Ólafs og náði
sér aldrei vel á strik eftir það. Hins-
vegar mega þeir vel við una að ná
30 stigum útúr þessu móti en lenda
samt í 3. sæti.
Sveit Þórarins er stórt spurning-
armerki. Eini árangur hennar síð-
an til hennar var stofnað er íslands-
meistaratitillinn í fyrra. En það er
þó nokkur árangur og sennilega
þess virði fyrir hana að reyna að
endurtaka leikinn í ár, þó útlitið sé
ekki ýkja bjart í þeim efnum. Allt
gerist þó í bridge, það sannar ár-
angur sveitar Þórarins í þessu móti.i
Aðeins 10 stig af 60 mögulegum er
frekar vont hlutfall, ekki satt Þór-
arinn?
í sambandi við Reykjavíkurmót
framtíðarinnar vill þátturinn beina
því til forráðamanna Reykjavíkur-
sambandsins, að koma þessum
málum á hreint, þannig að ein-
hverjir Jónar úti í bæ fari ekki að
skipta sér af framkvæmdinni. Það
er ill þolandi að hringlað sé með
fyrirkomulag á mótshaldi, þannig
að enginn viti fyrirfram hverjir
andstæðingar manns verða í næstu
umferð. Spurningar um töfluröð
ög önnur smáatriði verða að vera á
hreinu, áður en mót hefst og kepp-
endur eiga heimtingu á að vita hver
sú skipan er.
Keppnisstjóri var Aðalsteinn
Jörgensen. Stóð hann sig vel.
Bridgehátíð 1984
Skráning í sveitakeppnina á
Bridgehátíð 1984gengurekki nógu
vel. Skorað er á spilara að vera
með í þessu einstæða móti, þarsem
Belladonna og Garozzo verða
með. Fyrirkomulag mótsins verður
með ágætu sniði. 16-spila leikir, 7
umferðir og Monrad-kerfi, sem
þýðir að allir geta „slysast" til að
Umsjón
Ólafur
Lárusson
spila við nv. eða fv. heimsmeistara,
sjálfa stórmeistarana frá Ítalíu.
Þátttökugjald á sveit er aðeins
kr. 2.000. Menn geta haft samband
við Jón Baldursson á skrifstofu
B.í. eða litið við í B.R. í kvöid og
látið skrá sveit sína. Pör geta
myndað sveitir, því nauðsynlegt er
í sveitakeppni með Monrad-sniði,
að fjöldi sveita sé mikill.
Frá TBK
Síðastliðinn fimmtudag var ann-
að kvöldið spilað af Aðalsveita-
keppni félagsins og má segja að
formið á henni geri hana mjög
jafna eins og var búist við. Nú er
staða efstu sveita þessi:
1. Gestur Jónsson 33 st.
2. Gísli Steingrímsson 30 st.
3. Gunnlaugur Oskarsson 30 st.
4. Bernharð Guðmundsson 27 st.
5. Auðunn Guðmundsson 24 st.
6. Þorsteinn Kristjánsson 22 st.
7. Anton R. Gunnarsson 22 st.
8. Baldur Bjartmarsson 20 st.
Þess skal getið að sveitirnar spila
saman eftir röðinni hér að ofan, 1
við 2 o.s.frv. en á því byggist
Monrad-kerfið. Fimmtudaginn 23.
febr. verður keppninni svo áfram
haldið í Domus Medica að venju,
og spilarar eru beðnir um að mæta
stundvíslega fyrir kl. 19.30.
Sjáumst hress, bless.
Tafl- og bridgeklúbburinn.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Eftir 22 umferðir af 43 í aðaltví-
menningskeppni félagsins, er staða
efstu para þessi:
Guðmundur Pétursson
- Sigtryggur Sigurðsson 341
Sigurður Sverrisson
- Valur Sigurðsson 324
Jón Ásbjörnsson
- Simon Símonarson 231
Júlíus Snorrason
- Sigurður Sigurjónsson 208
Ásgeir P. Ásbjörnsson
- Guðbrandur Sigurbergsson I9S
Bragi Erlendsson
- Ríkharður Steinbergsson 166
Aðalsteinn Jörgensen
- Runólfur Pálsson 163
Valgarð Blöndal
- Þórir Sigursteinsson 152
1. sv. Magnúsar Torfasonar 112
2. sv. Guðmundar Theódórssonar 107
3. sv. Sigmars Jónssonar 102
4. -S. sv. Björns Hermannssonar 96
4.-S. sv. Guðrúnar Hinriksdóttur 96
Þátttakendur í
tvímenningskeppni
2. og 3. mars
1. Hermann Láruss.^Ólafur Láruss.
2. Jón Þorvarðars.-Ómar Jónss.
3. Sigurður Sverriss.-Valur Sigurðss.
4. Gunnar Þórðars.-Kristján Gunn-
arss.
5. Aðalsteinn Jónss.-Sölvi Sigurðss.
6. Jón Ásbjörnss.-Símon Símonars.
7. Ásgrímur Sigurbjörnss.-Jón Sig-
urbjörnss.
8. Ásgeir Ásbjörnss.-Guðbrandur
Sigurbergss.
9. BjörnEysteinss.-GuðmundurHer-
mannss.
10. Kristján Kristjánss.-Þorsteinn
Ólafss.
11. Gísli Steingrímss.-Sverrir Krist-
inss.
12. Helgi Jóhannss.-Logi Þormóðss.
13. Soldano DeFalco-Santia
14. Rúnar Magnúss.-Stefán Pálss.
15. Guðlaugur R. Jóhannss.-Örn Arn-
þórss.
16. Georgio Belladonna-Benito Gar-
ozzo
17. Guðmundur P. Arnars.-Þórarinn
Sigþórsss.
18. Arnar G. Hinrikss.-Kristján Har-
aldss.
19. Tommy Gullberg-Hans Göthe
20. Steve Lodge - Tony Sowter
21. Vilhjálmur Sigurðss.-Vilhjálmur
Vilhjálmss.
22. Hrólfur Hjaltas.-Jónas P. Erlingss.
23. Aðalsteinn Jörgensen-Runóifur
Pálss.
24. Mark Molson - Alan Cokin
25. Jón Baldurss.-Hörður Blöndal
26. Vilhjálmur Pálss.-Þórður Sig-
urðss.
27. Eiríkur Jónss.-Páll Valdimarss.
28. Jón Páll Sigurjónss.-Sigfús Árnas.
29. Hörður Arnþórss.-Jón Hjaltás.
30. Guðmundur Sveinss.-Þorgeir
Eyjólfss.
31. Guðmundur Péturss.-Sigtryggur
Sigurðss.
32. Gestur Jónss.-Ragnar Magnúss.
33. Sævar Þorbjörnss.-Torsten Bernes
34. Jón Hilmarss.-Oddur Hjaltas.
35. Gunnlaugur Kristjánss.-Þorfinnur
Blöndal
36. Georg Sverriss.-Kristján Blöndal
37. Stefán Guðjohnsen-Þórir Sig-
urðss.
38. Leif Österby-Jón Hauksson
39. Alan Sontag-Steve Sion
40. Ásmundur Pálss.-Karl Sigurhjart-
ars.
41. Ingvar Haukss.-Orwell Utley
42. Andres Richtcr-Peter Teisen
43. Pétur Guðjónss.-Stefán Ragnarss.
44. Gylfi Baldurss.-Sigurður B. Þor-
steinss.
Frá Bridgedeild
Skagfírðinga
Nú er aðeins eftir að spila eina
umferð í sveitakeppni og er röð
efstu sveita þessi:
Varapör:
1. Ágúst Helgas.-Gísli Hafliðas.
2. Sigurður Vilhjálmss.-Sturla
Geirss.
3. Valgarð Blöndal-Þórir Sigur-
steinss.
1X2 1X2 1X2
24. leikvika - leikir 18. febrúar 1984.
Vinningsröð: 1 21-x2x-xxx-1 22
1. Vinningur: 11. réttir - kr. 195.570.-
39129(4/10)+ 162129(7/10)+ (10 vikna seðill)
2. Vinningur: 10 réttir - kr. 2.841.-
364+ 1055 9297 36737+ 44426+ 53847 94804+ 162128(2/10) +
374 1061 10637 37272 48801 61161 95660+ 43219(2/10)
1006 1526 12436 37625+ 49339 61313+ 161782 Úr 23 viku'
1013 2646 16751 39128+ 49929+ 87977+ 162052+61717+
1015 6453 17573 40441 53168 89234+ 162175 + 61726 +
1052 7106 35783+ 44398+ 53571 93534+ 61735+
Kærufrestur er til 12. mars kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta
lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni
eða senda stofninn og fullar uppiýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir iok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK