Þjóðviljinn - 13.03.1984, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. mars Í984
Fjórum japönskum fiskmatsmönnum vísað frá Eyjum:
„Ekki hægt að
vinna með þeim
segir Viktor Helgason verkstjóri.
„Það var ekki hægt að vinna með
Japönunum og því ekki um annað
að ræða en láta þá fara“, sagði
Viktor Helgason verkstjóri í Fiski-
mjölsverksmiðjunni í Vestmanna-
eyjum, en þar hafði komið upp á-
greiningur um gæðamat á milli jap-
anskra eftirlitsmanna og forsvars-
manna fiskimjölsverksmiðjunnar.
„Við höfum sterkan grun um að
Japanarnir geri mismunandi gæða-
kröfur til framleiðenda og dæmi
hrognin misjafnlega á milli ára.
Við seldum 500 tonn til Japan 1981
og voru þau talin mjög góð, síðan
höfum við endurnýjað allan
hreinsunarbúnað. Það var útilokað
að vinna með Japönunum og því
ekki um annað að ræða en að láta
þá fara, við höfum stórskaðast á
því að við þurftum að henda tölu-
verðu magni af hrognum sem við
teljum að uppfylli gæðakröfur ann-
arra hrognakaupenda“, sagði Vikt-
or. Aðspurður um framhaldið
sagði Viktor Helgason að fram-
leiðslu yrði haldið áfram á ábyrgð
fiskimjölsverksmiðjunnar.
R.A.Þ.
Stjórn Æskulýðsfylkingar Húsavíkur og nágrennis, efri röð frá vinstri: Bjarni
Pétursson, Óli Björn Einarsson, Páll Guðmundsson og Aðalsteinn Baldurs-
son. Neðri röð frá vinstri: Elfa Osk Jónsdóttir, Kristján Eiðsson og Margrét
Höskuldsdóttir.
Húsavík og nágrenni
Vopnafjörður
Hrepps-
Æskulýðsfylking
stofnuð nýlega
stjóri
kvaddur
Miðvikudaginn 7. mars, fór
fram athöfn í húsnæði sýslumanns-
emhættisins á Vopnafirði, að við-
stöddum sýslumanni Norður-
Múlasýslu, Sigurði Helgasyni,
Rúnari Valssyni, lögregluvarð-
stjóra, og fleiri gestum. Tilefnið var
að heiðra Friðrik Sigurjónsson
fyrrverandi hreppsstjóra, sem er
86 ára að aldri en hann er búinn að
vera hreppsstjóri Vopnafjarðar-
hrepps samfleytt í 50 ár, eða frá
árinu 1933, við einstakar vinsældir
sveitunga sinna.
Sigurður Helgason sýslumaður
ávarpaði Friðrik hlýjum orðum og
þakkaði honum mikil og góð störf í
þágu Vopnfiröinga og Norð-
Mýlinga. Færði hann honum
skrautritað heiðursskjal frá sýslu-
nefnd Norður-Múlasýslu, og er
hann fyrsti maðurinn, sem slíkt
skjal hlýtur. Friðrik hafði áður ver-
ið sæmdur riddarakrossi fyrir fé-
lagsmálastörf, árið 1982. Um síð-
ustu áramót lét Friðrik af störfum,
en Birna Einarsdóttir frá Bustar-
felli hefur gegnt störfum sem settur
hreppsstjóri síðan. Birna Einarsd.
er 25 ára, dóttir hjónanna Einars
Gunnlaugssonar og Elínar Metus-
alemsdóttur á Bustarfelli. Birna
hafði áður starfað sem skrifstofu-
maður hjá útiendingaeftirlitinu og
Lögreglustjóra í Reykjavík, frá ár-
inu 1977.
Hinn aldni heiðursmaður flutti
að lokum þakkarorð, minntist
gamalla tíma og samferðamanna,
sem honum voru minnisstæðir frá
F iskeftir litsmenn
í kynnisför
Fyrir nokkru cru komnir heim
úr kynnisför til Bandaríkjanna 6
starfsmenn Sjávarafurðadeildar
SÍS, sem allir starfa að gæðaeftir-
litsmálum. Dvölu þeir í viku hjá
Iceland Seafood Corporation og
kynntu sér þar framleiðslumál,
gæðaeftirlit og þróun nýrra vöru-
tegunda. Fararstjóri hópsins var
Halldór Þorsteinsson deildarstjóri.
Slíkar heimsóknir hafa lengi ver-
ið árviss þáttur í starfsemi gæðaeft-
irlits Sjávaráfurðadeildar. Er til-
angurinn með þeim að tryggja að
eir, sem að gæðaeftirlitinu starfa,
fylgist sem best með þeim kröfum,
sem markaðurinn gerir hverju
sinni.
—mhg
Sigurður Helgason sýslumaður, Birna Einarsdóttir hreppsstjóri og Friðrik
Sigurjónsson fyrrum hreppsstjóri.
liðnum embættisárum. Kona ir, lést 1983, á nítugasta og þriðja
Friðriks, Oddný Metusalemsdótt- aldursári.
Stofnfundur Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins á Húsavík og
nágrenni var haldinn 25. febrúar
sl. Á fundinn komu um 30 manns
og urðu umræður líflegar og
skemmtilegar. Mikið var rætt um
væntanlegt starf Æskulýðsfylking-
arinnar á Húsavík og hvernig best
væri að haga því.
Ætlunin var að þeir Steingrímur
J. Sigfússon alþingismaður og
Ólafur Ólafsson frá Æskulýðsfylk-
ingunni í Reykjavík kæmu á fund-
' c C41 pvi Og pwtll 1 UlIUdr
mönnum það miður.
Nýskipaða stjórn ÆF Húsavík
skipa þau Kristján Eiðsson for-
maður, Margrét Höskuldsdóttii
ritari, Óli Björn Einarsson gjald-
keri, Aðalsteinn Baldursson
meðstjórnandi og Páll Guðmunds-
son meðstjórnandi. Til vara í stjórn
eru þau Elfa Ósk Jónsdóttir og
Bjarni Pétursson.
-v.
* «
Við viljum mannsæmandi laun, hrópuðu konurnar fyrir utan alþingishúsið, 8. mars. (Mynd Atli).
Forstöðumaður borgarskipulags:
Mælt með Þorvaldi S.
Minnihluti skipulagsnefndar sat
hjá í gær þegar greidd voru at-
kvæði um umsækjendirr um stöðu
forstöðumanns Borgarskipulags.
Samþykkti meirihlutinn með 3 at-
kvæðum að mæla með Þorvaldi S.
Þorvaldssyni arkitekt í stöðuna.
Borgarráð fjallar um málið í dag.
Skipulagsnefnd fékk aðeins
þrjár umsóknir til skoðunar því
borgarráð dæmdi þá fjórðu ógilda,
en hún var frá Haraldi V. Haralds-
syni arkitekt og barst of seint. Á
þriðjudag í fyrri viku þegar um-
sóknir voru kynntar var þeim
öllum fjórum vísað til skipulags-
nefndar, en síðan var eins og
snurða hlypi á þráðinn hjá meiri-
hlutanum því aukafundur var boð-
aður í borgarráði sl. föstudag til
þess að hafna umsókn Haraldar.
Sigurjón Pétursson lagði þá til að
staðið yrði við fyrri ákvörðun og
umsókn Haraldar send með hinum
en á það var ekki fallist.
í bókun minnihluta skipulags-
nefndar sem sat hjá við afgreiðsl-
una í gær er það harmað að um-
sækjendur skuli ekki hafa neina
reynslu af skipulagsvinnu. Nýr for-
stöðumaður tekur við 1. apríl.
-ÁI
Jafntefli
og biðskák
Einvígi þeirra Garry Kasparov
og Vasili Smyslov hófst sl. laugar-
dag og er teflt í Litháen. Fyrstu
skákinni lauk með jafntefli. I gær
var svo önnur skákin tefld og fór
hún í bið og þykir mjög tvísýn.
Kasparov lenti í miklu tímahraki,
þar sem hann þurfti að eyða drjúg-
um tíma í nýjung sem „gamli" mað-
urinn kom með, en teflt var
„Drottningarbragð". Kasparov
náði samt að jafna taflið og ef eitt-
hvað er, þá er staða hans talin
betri.
Veltan
eykst
Veltutölur Innflutningsdeildar
SIS fyrir sl. ár liggja nú fyrir var
heildarsala deildarinnar 1.309,0
milj. kr., jókst um 75.7% frá árinu
1982. Af heildarsölunni var lager-
sala 856,3 milj. kr., jókst um
76,5%. Umboðssala var 452,7
milj., hækkaði um 74,2% milliára.
Af undirdeildum Innflutnings-
deildar var Birgðardeild veltuhæst,
salan 499,2 milj., jókst um
116,5%. Fóðurvörudeild seldi fyrir
282,8 milj., 79% meira en árið
áður. Sala Byggingavöruheildsölu
var 210,1 milj. og Byggingavöru-
smásölu 108,6 milj. Búsáhalda-
deild seldi fyrir 112,1 milj, og vefn-
aðarvörudeild fyrir 62,0 milj. _mhg
Flugleiðir hf
Áfram ríkisstyrktar
Meirihluti fjárhags- og við-
skiptanefndar, Neðri-deildar Al-
þingis, þeir Geir Hallgrímsson,
Friðrik Sophusson, Sverrir Sveins-
son og Þorsteinn Pálsson, leggja til
að ríkisstyrkurinn til Flugleiða hf.,
í formi niðurfellingar lendingar-
gjalda á Keflavíkurflugvelli varð-
andi Norður-Atlantshafsflugsins,
verði áfram.
Heimildin gildir frá 1. október
sl. til ársloka 1984. Hér er um að
ræða upphæð sem nemur 27 milj-
ónum króna til Flugleiða en þar
sem þessi niðurfelling nær einnig til
Cargolux hækkar upphæðin í tæpar
30 miljónir kr.
-S.dór.