Þjóðviljinn - 13.03.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.03.1984, Blaðsíða 16
DJÚÐVIUINN Þriðjudagur 13. mars 1984 Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í algreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 m* m - mmmammmmmmmmmmmmmmm mm 81663 ÍSAL gengið í Félag íslenskra iðnrekenda Allar undanþágur úr segir Örn Friðriksson trúnaðarmaður „Við vissum auðvitað af þessu áður en við undirrituðum síðasta kjarasamning og lýstum því þá strax yfir að það þyrfti að endur- skoða þær sérstöku undanþágur sem ÍSAL hefur haft í sambandi við framkvæmd á verkföllum og þá sérstaklega samúðarvinnu- stöðvanir“, sagði Örn Friðriksson aðaltrúnaðarmaður í álverk- smiðju Alusuisse í Straumsvík. Fyrir skömmu gekk íslenska álfélagið í Félag íslenskra iðnrek- enda en eins og menn muna lá sú ákvörðun fyrir áður en nýgerðir kjarasamningar við starfsmenn verksmiðjunnar voru undirritaðir. Olli tilkynningin um að ISAL hygðist ganga í FÍI talsverðu fjaðrafoki á samningafundum og við lá að upp úr viðræðum slitnaði. Við spurðum Örn hvort starfs- menn hefðu verið undir inngöng- una búnir. „Við náðum fram endurskoðun á þessum ákvæðum í nýgerðum kjarasamningum. Helstu breyting- arnar eru þær að í stað fjögurra vikna aðlögunartíma áður en til fullrar framleiðslustöðvunar kem- ur gefa starfsmenn nú aðeins tveggja vikna aðlögunartíma. Einnig var ákvæði um undantekn- ingu varðandi samúðrvinnustöðv- anir við álframleiðslu. Það kvað á um að samúðarvinnustöðvanir yrðu boðaðar með minnst 3ja vikna fyrirvara eftir að vinnustöðv- un hefði hafist annars staðar. Þessi fyrirvari styttist nú í eina viku“, gUdi sagði Örn ennfremur. „Með þessu gerist í raun það að sömu ákvæði verða nú í gildi hvað þessi atriði varðar og gildir með aðra innan Félags íslenskra iðnrek- enda. Með þessu mismunum við ekki þeim atvinnurekendum". Örn sagði að það yrði að koma í ljós hvort þessi innganga ÍSAL þýddi að umboð fyrirtækisins færi sjálfkrafa yfir til félagsins þegar viðræður um kjarasamninga færu næst fram. - v. Þessi fallega blárefslæða er búsett austur á Héraði, nánar tiltekið á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá. Feldurinn á henni leggur sig á tæpar 1500 krónur ef miða má við uppboðsverðið í Danmörku. Ljósm.:- Ál. Refaskinnauppboð í Danmörku: Mjög gott verð segir framkvœmda- stjóri SÍL „Meðalverðið var mjög gott, eða 1470 krónur íslenskar fyrir hvert skinn og hafði hækkað um 25% frá í febrúar“, sagði Jón Ragnar Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra loðdýrarækt- enda, í gær, en í fyrri viku fór fram skinnauppboð í Danmörku. Þar voru seld um 2500 íslensk hlárcfa- skinn og er nú búið að selja um <85% af skinnunum sem fóru til Danmerkur í haust. Jón Ragnar sagðist ekki vera bú- inn að fá endanlegt verð á íslensku skinnunum, en verðið hefði verið frá 1160 krónum upp í 1873 fyrir blárefinn eftir stærð og gæðum. Shadow-skinnin fóru að meðaltali á 1573 krónur. Markaðurinn hefur ;að sögn Jóns farið batnandi frá ára- mótum en í desember var verðið mjög lágt. Nú er aðeins eitt uppboð eftir í Danmörku og verða þá seld skinn í undirflokkum. Jón Ragnar sagðist ekki geta borið þetta verð saman við verðið sem fékkst fyrir íslensku skinnin í Hudson Bay uppboðinu fyrir skömmu en hann átti ekki von á að þetta verð væri nokkuð lakara. _____________________-ÁI. Húsbruni á Vatnsleysu- strönd Býlið Þórustaðir á Vatnsleysu- strönd skemmdist illa í eldsvoða sl. föstudag. Það var skömmu fyrir kl. 14.00 á föstudag að bóndinn á Þórustöðum Páll V. Jónsson varð var við reyk í kyndiklefa og síðan' eld í þaki við stromp. Slökkvilið frá Keflavík var kvatt á staðinn og var þá orðinn töluverður eldur í húsinu. Tókst að ráða niðurlögum eldsins um kl. 16.00. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Húsið er illa skemmt af eldi og vatni og allt innbú ónýtt. Engin slys urðu á fólki en Páll bjó ásamt eigin- konu sinni í húsinu. - lg. Sókn undirritaði samninginn fyrir helgi Félagsfundur hjá Sókn í Starfsmannafélagið Sókn hefur náð samkomulagi við Vinnumála- nefnd ríkisins, Reykjavíkurborg og sjálfseignarstofnanir um nýjan sér- kjarasamning og var hann undir- ritaður s.l. fimmtudag. Þjóðviljinn náði tali af Óttari Magna Jóhannssyni sem átt hefur sæti í sexmanna samninganefnd Sóknar og innti hann álits á samn- ingnum. „Þessi samningur er nán- ast samhljóða ASÍ-VSI samningn- um, og staðfestir þ.a.l. þá miklu kjaraskerðingu sem orðið hefur, ég skrifaði ekki undir þennan samn- ing og ég mæli með því að hann verði felldur á félagsfundinum í kvöld". Ennfremur benti Óttarr Magni á að ekki hafi fengist skýr svör varðandi eldri deilumál eins og réttindi Sóknarfólks til að setja börn sín á barnaheimili ríkisinsspít- alanna. Einnig taldi hann það at- hyglisvert að á sama tíma og ráða- menn þjóðarinnar viðurkenndu að enginn gæti lifað á 15.000 kr. á mánuði væru aðilar vinnumarkað- arins að semja um 12.000 kr. lág- markslaun. „Þetta samkomulag gengur of skammt og er algjörlega óaðgengi- legt fyrir ungt fólk og aðra sem eru neðarlega í launastiganum. Ég trúi því að hægt sé að ná fram frekari leiðréttingu á kjörum fólks og mæli því með að samkomulagið verði fellt svo að deiluaðilar geti sest nið- ur að nýju og komið sér saman um lífvænleg laun“, sagði Óttarr kvöld Magni að lokum. Þjóðviljinn hafði samband við Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur vegna samningsins en hún vildi ekkert segja um málið fyrr en að loknum félagsfundi í Sókn. Þess skal getið að Félagsfundurinn verður kl. 20.30 í kvöld í Hreyfilshúsinu. -Rþ. Hvenær varð Magnús forstjóri talsmaður ASÍ? Forstjórinn hefur í hótunum í nafniASI, segir Guðmundur J. Guðmundsson „Framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins virðist vera orð- inn sjálíkjörinn talsmaður verka- lýðshreydngarinnar að cigin mati“/ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson við Þjóðviljann í gær er við bárum undir hann þau ummæli Magnúsar ^Gunnarssonar fckvstj. VSI að þau verkalýðsfélög sem felldu samníng VSÍ og ASI væru með því að koma aftan að öðrum verkalýðsfélögum, sem hefðu sam- þykkt samninginn. „Ég hef aldrei vitað til þess fyrr“, sagði Guðmundur J. Guðmunds- son, „að forstjóri Vinnuveitenda- sambandsins tæki að sér að túlka afstöðu Alþýðusambandsins eða hafa í hótunum í þess nafni. Ég þykist sjálfur vera í miðstjórn Al- þýðusambandsins og ég frábið mér þennan málflutning sem stjórnar- maður þar.“ Þess má geta að Pétur Sigurðs- son forseti Alþýðusantbands Vestfjarða og formaður verkalýðs- félagsins Baldurs mótmælti þessum ummælum framkvæmdastjóra VSÍ í viðtali við Alþýðublaðið s.l. fimmtudag, en samningur ASÍ og VSÍ var samþykktur í hans félagi með 41 atkvæði gegn 12 á meðan 71 skiluðu auðu. „Viðhöfumekkertá1 móti því að einstök félög reyni að ná samningum án þess að fylgjai heildarsamtökunum, við höfum einmitt oft bent á að slíkt sé væn- legt tii árangurs", sagði Pétur sem sagðist jafnframt vilja mótmæla því að VSI væri að „hengja hatt sinn hjá verkalýðshreyfingunni á þenn- an hátt“, eins og Magnús Gunnars- son hefði gert með yfirlýsingu sinni. ólg. Magnús Gunnarsson-hver kemur aftan að hverjum?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.