Þjóðviljinn - 13.03.1984, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 13.03.1984, Qupperneq 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrigjudagur 13. mars 1984 Verkamannaflokkurinn náði í fyrra meirihluta borgarstjórnar í norðurensku borginni Liver- pool og neita borgarfulltrúar hans nú að una þeim þrönga fjárhagslega ramma sem I- haldsstjórnin hefur sett borgum og sveitarfélögum. Þeirsegja það sé fráleitt að skera niður félagslega þjónustu og opin- berar framkvæmdir í borg sem nú þegar býr við 20% atvinnu- leysi. Ástandið hefur gefið aukinn byr þeim róttækustu í Verkamanna- flokknum sem eru reiðubúnir til að efna til allsherjarverkfalls til að fylgja eftir fjárhagsáætlun, sem stjórnin í London mun telja ólög- lega. Á baráttufundum heyrast hróp sem þessi: Það er ekki Liver- pool sem er gjaldþrota heldur allt hið kapítalíska kerfi! Seldu lúxusbíla Verkamannaflokkurinn, sem hefur lengst af staðið lakar að vígi í Liverpool en flestum öðrum stærri borgum Norður-Englands, fékk í borgarstjómarkosningum í fyrra 51 fulltrúa, en íhaldið og aðrir 48. Nýi meirihlutinn lagði borgarstjór- aembættið niður þegar í stað, gaf skrautvagn borgarinnar á safn og seldi einn Rolls Royce og einn Daimler-lúxusbíl. • • ' Baráttufundur í St.Georges Hall í Liverpool: á að neyöa okkur til að segja upp 5000 manns i 20% atvinnuleysi? Ograr stjórn Thatchers með ólöglegri fjárhagsáætlun Þetta þótti mörgum góðs viti. En svo kemur að því að framkvæma kosningaloforðin og þá eru engir peningar til. Og ríkisstjórn Marg- aret Thatcher hefur minna en eng- an áhuga á að greiða fyrir skelfi- legum rauðliðum í Liverpool. íhaldspressan hamast reyndar mjög á því upp á dag hvern, að borgarfulltrúar Verkamannaflok- ksins séu hallir undir Militants, m.ö.o. Trotskistahreyfingu sem forysta Verkamannaflokksins hafi lýst í bann. Allt er þetta málum blandið, en hitt mun ljóst, að Verkamannaflokkurinn í Liverpo- ol er lengra til vinstri en tíðkast annarsstaðar í Bretlandi. Borgarstjórn sett af? í lok þessa mánaðar á að leggja fram fjárhagsáætlun fyrir reikn- ingsár sem byrjar fyrsta apríl. Verkamannaflokkurinn í borginni segir að um tvo kosti sé að velja. Annaðhvort að fara eftir fyrirmæl- um stjórnarinnar í London til borg- arstjóra og leggja fram fjárhagsá- æltlun sem felur í sér niðurskurð á ýmislegri þjónustu sem þegarhefur orðið fyrir ýmsum skakkaföllum. Ellegar þá að leggja fram fjárhags- áætlun sem ekki er innistæða fyrir á tekjuliðum - en það er ólöglegt. Meirihlutinn nýi vill fara seinni leiðina þótt mörg ljón liggi þar í leyni. Menn vita satt að segja ekki hvað getur gerst. Talað er um að borgarfulltrúar Verkamanna- flokksins verði lögsóttir og gerðir persónulega ábyrgir fyrir greiðslu- hallanum. Það er allútbreidd trú, sem samt mun röng, að stjórnin hafi vald til að senda „kommisara" til borgarinnar og yfirtaka fjár- málastjórnina. Slíkt væri ekki hægt nema með sérstakri löggjöf. Og af mörgum ástæðum er ekki beinlínis freistandi fyrir stjórn Járnfrúarinn- ar að fara þá leið. Hrikaleg vandamál Hitt er svo víst og satt að vanda- mál Liverpool eru hrikaleg. Af 540 þúsund tbúum eru um 60 þúsundir atvinnulausar eða 20%. 1 þeim borgarhverfum sem verst eru sett er atvinnuleysið 50-60% og nær hver einasti ungur maður atvinnu- laus. Hin mikla höfn borgarinnar er ekki nema svipur hjá sjón, skip- asmíðastöðvar eru í rúst, fyrirtæki hafa flutt á brott. Og foringi Verkamannaflokksins í borginni, John Hamilton, segir: Neyðará- stand krefst sérstakra aðgerða - eða með öðrum orðum: Nauðsyn brýtur lög. Refsiakvæöi Verkamannaflokkurinn vill leggja fram fjárhagsáætlun upp á 250 miljónir punda, en ríkisstjórn- in (sem hefur í vaxandi mæli skert sjálfstæði borga- og sveitarstjórna) sættir sig ekki við nema 216 miljón punda útgjöld. Þar með er ekki hálf sagan sögð. Borgin nýtur, sem kreppusvæði, mikils beins ríkis- styrks. En ef borgin fer um 30 milj- ón pund yfir ramma ríkisstjórnar- innar missir hún um helming af þeim styrk samkvæmt tiltölulega nýlegum refsiákvæðum. Þetta þýð- ir m.ö.o. að ef allt færi að reglum og vilja íhaldsstjórnarinnar, þá þyrfti þessi fátæka borg að inn- heimta 76 miljónum punda meira í sköttum nú en í fyrra. Refsiákvæðin eru aðferð íhaldsstjórnarinnar við að halda niðri opinberum útgjöldum hvað sem það kostar. Á að gera mig að glæpamanni? Hvað eigum við að taka til bragðs? spyr John Hamilton á bar- áttufundi í St. Georges Hall. Við viljum hjálpa fólki hér í borg en okkur er hótað refsingum. A að neyða okkur til að þrefalda útsvar- ið, á að neyða okkur til að segja upp 5000 starfsmönnum borgar- innar í öllu þessu atvinnuleysi? Ég hefi ávallt verið löghlýðinn maður, á nú að gera mig að glæpamanni vegna óréttlátra laga? Úrslit í þessu máli fást undir næstu mánaðamót sem fyrr segir. Minnihluti Verkamannaflokksins er valtur og má vera að einhverjir fulltrúar gugni á „lagabrotum“. En þá verða Ihaldið og Frjálslyndir að bera fram sín fjárlög, sem benda eitthvað í þá átt sem Hamilton talar um - og munu þeir verða skamma stund því verkefni fegnir. ÁB. tók saman. Sigurganga Gary Harts:______ Hann sýnist yngri og róttækari en hann er Gary Hart: Er óráðlegt að vera háður hagsmunasamtökum? Sigrar Garys Harts yfir Walter Mondale í forkosningum um for- setaefni Demókrata í hinum ýmsu ríkjum Bandaríkjanna eru þær fréttir, sem einna mest fer fyrir um þessar mundir. Eftir að menn höfðu hamast við að spá daufri kosningabaráttu sem væri fyrir- fram ráðin, hefur nýju andliti skotið upp á þann himinn sem saumaður er saman úr sjónvarps- skermum og Gary Hart hefur náð svipuðu fylgi í skoðanakönnun- um og Mondale meðal stuðnings- manna Demókrata og miklu meiri meðal óháðra og óráðinna. Eins og fyrri daginn eru menn ekki sammála um það, að hve miklu leyti fjölmiðlarnir skapa Gary Hart öldungardeildarþing- manni velgengni í kosningaslagn- um og hve mikið hann á eigin ágæti og pólitískum viðhorfum að þakka. Um þetta segir breska blaðið Guardian m.a. á þessa leið: Tekur sig vel út „Það er erfitt að meta það hve mikið það hjálpaði hr. Hart að hann tekur sig vel út í sjónvarpi. Hann hefur mjög leikið á þá strengi, - svipað og Kennedy gerði, að hvetja nýja kynslóð til að taka völdin og hann hefur var- ið mikilli orku í það að setja æsku sína upp sem andstæðu við gamL an og þreyttan feril Mondales. f raun og veru er ekki nema tíu ára aldursmunur á þeim, en mynda- vélarnar sýna Hart yngri en 46 ára og síður útjaskaðan af á- hyggjum en hann er í raun og veru. Áhersla hans á „nýjar hug- rnyndir" láta hann einnig sýnast allmiklu róttækari en hann hefur nokkru sinni reynst í Öldunga- deildinni". Þessi klausa, ein af mörgum svipuðum, er næsta fróðleg: það er gengið út frá því sem vísu, að sjónvarpsmyndin af forsetaefn- inu skipti gífurlega miklu - og það er mikils virði að „sýnast“ ungur og dálítið róttækur - eins þótt hvortveggja sé vafasamt. Gagnrýni á Pentagon Gary Hart hefur til þessa eink- um verið þekktur fyrir gagnrýni sína á hermálaráðuneytið, Penta- gon, ekki síst fyrir það sem hann telur úrelta vígbúnaðarstefnu og mikla og heimskulega sóun á peningum skattborgarans. Hann hefur verið á móti MX eldflauga- kerfinu og B-1 sprengjuflugvél- inni, en það mun ekki þýða að hann sé afvopnunarsinni eða eitthvað í þá veru. Hinsvegar finnst honum heimskulegt að reikna saman skriðdreka gegn skriðdreka og flugvél gegn flug- vél í samanburðinum við Sovét- menn og allsendis fráleitt að veðja á jafn dýr og auðveld skot- mörk og stór flugvélamóðurskíp, eins og Reagn hefur gert. Staða Mondales Þessi gagnrýni hefði sjálfsagt dugað skammt til að skapa þá vinsældarbylgju sem ber núna fram Gary Hart. Það er ekki síst Walter Mondale sjálfur, sem hef- ur hjálpað til, segja bæði Guardi- an og Washington Post. Mondale hefur komið sér upp öflugri vél stuðningsmanna og hann hefur tryggt sér stuðning verkalýðs- samtakanna (AFL-CIO) og kvennasamtaka og fleiri slíkra aðila. Kosningabaráttan nú sýn- ist benda til þess, að vinsemd slíkra „þrýstihópa" dugi skammt, að minnsta kosti í bandarísku samhengi. Mjög margir þeirra sem studdu Gary Hart í nýliðnum forkosningum hafa lýst því yfir, að þeir hafi stutt hann einmitt vegna þess, að hann væri „ekki háður utanaðkomandi sam- tökum“ eins og það er orðað. Þar að auki tekst verkalýðssamband- inu ekki að skila þeim stuðningi sem Mondale var lofað. Skil- greiningar á úrslitum forkosning- anna hafa meðal annars leitt það í ljós, að Gary Hart hefur fengið 37% af atkvæðum meðlima verkalýðsfélaga, en Mondale 32%. En mestu skiptir þó, að Gary Hart nýtur góðs af kyn- slóðabilinu, ef svo mætti að orði kveða. Hann hefur mikla yfir- burði yfir Walter Mondale, var- aforsetann fyrrverandi, meðal þeirra fjölmörgu kjósenda úr „fæðingasprengjunni miklu“ sem eru enn ekki orðnir fertugir. Enn eru úrslit ekki fengin í þessum slag. En það er ljós, að æ fleiri stuðningsmenn Demókrata gera sér það ljós, að ef þeir leyfa öflugri kosningavél Mondales að sigra, þá er Reagan nokkuð viss um sigur í haust. En ef Gary Hart mætir honum er miklu líklegra að það takist að fella hann. áb tók saman.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.