Þjóðviljinn - 13.03.1984, Side 7
Þriðjudagur 13. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Bjarnfríður Leósdóttir skrifar:
Kvenna- og
unglinga-
samningar
Hvernig getur á því staðið að
launafólk á fslandi er að sam-
þykkja yfir sig áframhaldandi
kjaraskerðingu? Og þeim mun
meiri skerðingu, sem launin eru
lægri?
Auðvitað gengu ríkisstjórn og
verkalýðshreyfing á undan með
sömu prósentuhækkun yfir alla lín-
una, þrátt fyrir stóru orðin og
miklu yfirlýsingarnar. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra fær
nú 3.670.00 kr. út úr þessari óveru-
legu prósentuhækkun á sín mánað-
arlaun, þegar að láglaunafólkið fær
6-700 kr. á sín laun.
Við verðum samt öll, að kaupa
t.d. mjólkina á sama verði, sem var
verið að hækka nú á dögunum,
áður en samningarnir hafa tekið
gildi, svona rétt til að minna fólk á
að fara nú ekki að bruðla með þess-
ar 6-800 kr. sem það á von á núna á
næstunni. Vonandi verður grautur
forsætisráðherra mjólkurmikill,
jafnvel rjómablandaður, og vel
soðinn, því þó að rafmagnið komi
til með að hækka einhverja óveru á
næstunni, þá kemur það vonandi
ekki við eldamennskuna á þeim
bæ.
... verra
er þeirra réttlœti
í góðri bók er haft eftir fátækum
manni um yfirvöld síns tíma:
„Vont er þeirra ranglæti, en
verra er þeirra réttlæti“.
Þegar þessir háu herrar standa
nú framan í alþjóð með allt rétt-
lætistalið á vörurunum, eru þeir að
svívirða fátækt fólk hvað mest, og
þeir hika ekki við að storka öllum
almenningi með allskyns óhófs líf-
erni, sem þeir sýna okkur með
Blaserum og öðru slíku, meðan
þeir telja almenningi trú urn að
þjóðin verði að spara, og þrengja
frægu sultarólina.
Með þessu eru þeir að sanna
okkur, að í þessu landi eigi annars-
vegar að vera Blaser-fólk, sem býr
við alsnægtir. hins vegar tötralýð-
ur, sem þiggur millana af alls-
nægtaborði þeirra. Og þeir leika
sér að okkur eins og köttur að mús.
Sumir gera það að gamni sínu að
taka próf, sem löggilda þá sem fífl,
samanber iðnaðarráðherra sem féll
á Z prófinu, og hlæja að öllu saman
upp í opið geðið á okkur.
Og þeim
virðist óhœtt
Alþýðan beygir sig undir réttlæti
hinna háu herra. Nú þegar þurfti
yfir 40% kauphækkun til að ná
kjaraskerðingunni frá því í vor, er
gengið til þessara smánarsamn-
inga. Vísitalan send út í hafsauga,
draumur verslunarauðvaldsins um
frjálsa verslunarálagningu að ræt-
ast, stóra gatið í fjárlögunum hans
Alberts óútíyllt, en eins og gefur að
skilja er það almenningur, sem á að
fylla út í götin. Skattar í allskonar
myndum, ýmist hækkaðir, eða
fundnir aðrir nýir, nema náttúrlega
á stóreignamönnum og fyrirtækj-
um, þeir skulu lækkaðir. Þetta
virðast vera forsendur sem verka-
lýðshreyfingin hefur sem haldreipi
gegn verðbólgu, og til þess að
halda þeim litla kaupmætti, sem al-
menningur hefur.
Öfug formerki
Já frelsið lengi lifi. En hverra?
Hvert er frelsi fátæks manns? Ætli
því séu nokkrar skorður settar hjá
því fólki, sem á að framfleyta sér á
12 - 13 þús. á mánuði, og þaðan af
minna? Svari sá sem veit.
En fólk hefur frelsi til að sam-
þykkja eða fella þá kjarasamninga,
sem verkalýðsforustan hefur skrif-
að undir og rétt okkur, og næstum
skipað okkur að samþykkja, og
lagt við heiður sinn að svo yrði
gert. Eða hvað er á bak við þá hót-
un formanns Verkakvennafélags-
ins Framsóknar í Reykjavík, að
hún myndi segja af sér ef samning-
arnir yrðu ekki samþykktir? Og
hvað er Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir að drótta að okkur, sem
erum í samtökum kvenna á vinnu-
markaðinum, þegar við fylgjum
eftir því grundvallarmarkmiði sam-
taka okkar að fylgjast með samn-
ingum, skýra þá út og vara við
þeim, ef við álítum þess þurfa, eins
og núna? Þessi samtök hafa það á
stefnuskrá sinni, að vera til styrktar
þeim konum sem um samningamál
fjalla. Ef að þær hafa þurft að
skrifa undir samninga sem þær
telja óviðunandi, vegna þess að
þær hafa ekki treyst félögum sínum
og umbjóðendum til að taka upp
þá baráttu sem þarf til að knýja
fram betri samninga, þá eiga þessi
samtök einmitt að vera til að
styrkja þær og hvetja konur til
dáða, og láta sig varða um kjör sín
og barna sinna.
„Þeim œtti að vera
það Ijóstað þessir
samningar eru nœr
eingöngu œtlaðir
konum og ungling-
um “ - aðrir œtla sér
stœrri hlut, segir
Bjarnfríður Leós-
dóttir í grein sinni.
En nú virðist þetta vera með öf-
ugum formerkjum, nú virðast þess-
ar konur vilja þessa samninga fyrir
sína untbjóðendur, og það á bara
að vera afskiptasemi, jafnvel ó-
skammfeilni að samtök um
launamál kvenna fjalli um þessi
mál og láti til sín heyra.
Allt sem þarf
Þeim ætti að vera það ljóst að
þessir samningar eru nær eingöngu
ætlaðir konum og unglingum. lðn-
aðarmenn tóku ekki þátt í þeim,
verkamenn í Álverinu búnir að
semja upp á allt önnur býti. Ríkis-
verksmiðjurnar að sernja, og það
sem mest er um vert Dagsbrún og
verkalýðsfélögin í Vestmannaeyj-
um felldu þessa samninga. Og
mörg önnur félög frestuðu at-
kvæðagreiðslu um þá og eru að
semja, Húsavík búin, um miklu
hærra kaup fyrir sitt verkafólk.
Það er ánægjulegt að heyra tón-
inn í því fólki, sem þorði að standa
upp úr. Það er gaman að fylgjast
með konunum í Vestmannaeyjum
núna þessa dagana, eða heyra tón-
inn í Dagsbrúnarmönnum. Égóska
Guðmundi jaka til hamingju með
kallana sína og þeim Jóni og Jó-
hönnu í Vestmannaeyjum með sitt
fólk, og Kidda á Húsavík.
Heiður sé þeim sem felldu þessa
samninga, og ég vona að það verði
til að sanna verkafólki að vilji og
samtakamáttur er allt sern þarf.
Bjarnfríður Lcósdúttir
Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise
Síðasta þekkta
heimilisfang
Síðasta þekkta heimilisfang -
Dernier domicile connu - heitir
frönsk lögreglumynd sem sýnd
verður í Kvikmyndaklúbbi Al-
liance Francaise í Regnboganum
kl. 20.30 14., 15., 21. og 22. þessa
mánaðar. Myndin er gerð árið 1970
af José Giovanni eftir skáldsögu
Josephs Harringtons. Kvikmynda-
tökuna annaðist Etienne Becker,
og tónlistin er eftir Francois de
Roubaix. í helstu hlutverkum eru
Lino Ventura, Marléne Jobert og
Michel Constantin.
Marceau Léonette er lögreglu-
maður sem ekki hefur hlotið neina
menntun en hefur komist í stöðu
aðstoðarfulltrúa eingöngu vegna
eigin verðleika. Dag einn hand-
tekur hann drukkinn bílstjóra sem
reynist vera sonur þekkts mála-
flutningsmanns. Sá síðarnefndi
skerst í leikinn og starfsframi
Marceaus er að engu gerður. Hann
er færður yfir á litla hverfisstöð þar
sem hann, ásamt ungri konu sem
einnig starfar í lögreglunni, annast
minni háttar verkefni...
Þangað til einn dag að sérstök
deild innan lögreglunnar felur
Marceau og Jeanne, ungu kon-
unni, að hafa upp á Roger nokkr-
um Martin en vitnisburður hans er
Marléne Jobert.
nauðsynlegur til þess að knésetja
morðingja. En rannsóknin hefur
staðið yfir í fimm ár og Martin er í
felum því að hann óttast að verða
ráðinn af dögum af leiguþýi hins
ákærða.
Málið á að koma fyrir rétt eftir
nokkra daga og Marceau og Je-
anne hafa því aðeins takmarkaðan
tíma til þess að finna Martin...
Sakamálmynd þar sem sögu-
þráðurinn er þétt og listilega ofinn
og myndin verður í senn næm, til-
finningarík, ljóðræn og fínleg.
Attu m
að stríða?
Engin
samskeyti
Betokem SUM gólfílögn
Betokem gólílögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á góltið eftir 24 tíma. SUM gólfílögn hefur
verið í þróun í Þýskalandi, Svíþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru í upphafi og siðar hafa
komið fram.
Það hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfilögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
FILLC0AT
h ''
EP0XY - G0LF
gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ílagningarefnum sem þola ótrúlegt
alag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið í sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.
HAFNARFIRBI SÍMI S0S38