Þjóðviljinn - 13.03.1984, Síða 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. mars 1984
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS
KELDNAHOLTI - 110 REYKJAVÍK - SlMI 83200
NÁMSKEIÐ
IIÐNAÐI
Fræðslumiðstöð iðnaðarins vekur athygli á eftirtöld-
um námskeiðum á næstunni.
MÁLMIÐNAÐUR:
Vökvakerfí
60 stunda námskeið um uppbyggingu vökvakerfa,
viðhald, bilanaleit og viðgerðir. Hefst: 15. mars kl.
18.00, í Iðnskólanum í Reykjavík. Þátttökugjald: kr.
3.500,- Innritun í síma: 26240, Iðnskólinn í Reykjavík.
Ryðfrítt stál og ál
75 - 80 stunda námskeið í suðu og efnisfræði, 55
stundir verklegar æfingar í MIG/MAG og TIG-suðu.
Hefst: 5. apríl, kl. 17.00, í Iðnskólanum í Reykjavík.
Þátttökugjald: kr. 5.000,- Innritun í síma: 83200/165.
Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Fræsing I
30 - 40 stunda undirstöðunámskeið í fræsingu. Hefst:
28. apríl, kl. 8.30, á skólaverkstæði Fjölbrautaskólans
í Breiðholti. Þátttökugjald: kr. 2.000,- Innritun í síma:
83200/165. Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Loftstýringar
40 stunda undirstöðunámskeið um loftstýrikerfi. Hald-
ið: í vor (nánar auglýst síðar), í Vélskóla íslands í
Reykjavík. Þátttökugjald: kr. 2.500.- Innritun í síma:
83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
BYGGINGARIÐNAÐUR:
Viðgerðir á steypuskemmdum
60 stund námskeið um eðli og orsakir steypu-
skemmda, viðgerðirog áætlanagerð. Hefst: 27. mars,
kl. 8.30, á Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins,
Keldnaholti. Þátttökugjald: kr. 5.500.- Innritun í síma:
83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Útveggjaklæðningar
30 - 40 stunda námskeið um val og frágang
útveggjaklæðninga, markað og kostnað. Hefst: 3. apr-
íl, kl. 16.00, á Rannsóknastofnun byggingariðnaðar-
ins, Keldnaholti. Þátttökugjald: kr. 3.000,- Innritun í
síma: 83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaöarins.
Niðurlögn steinsteypu
1 dags námskeið. Hefst: 16. mars kl. 8.30, á
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Keldna-
holti. Þátttökugjald: kr. 700.- Innritun í síma: 83200/
165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Viðgerðir á gömlum timburhúsum
16 stunda námskeið. Haldið: 27.-28. apríl, í Stykkis-
hólmi. Þátttökugjald: Auglýst síðar. Innritun: Hjá
Byggingarþjónustunni í Reykjavík.
Malningarefni
30 stunda námskeið í hagnýtum efnisfræðum fyrir
málara. Hefst: 28. mars kl. 16.00, í Skipholti 70. Þátt-
tökugjald: kr. 2.500.- Innritun í síma: 83200/165, hjá
Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Loftræsti- og hitakerfi
25 stunda námskeið um viðhald og rekstur loftræsti-
og hitakerfa. Haldið: 2., 3. og 4. maí, í Borgartúni 6.
Þátttökugjald: kr. 2.500.- Innritun í síma: 83200/165,
hjá Fræðslumiöstöð iðnaðarins.
Virðisgreining
12 stunda námskeið um leiðir tilkostnaðarlækkunar
með virðisgreiningu. Haldið: 14. og 15. maí, frá kl.
13.00 -18.00, í Borgartúni 6. Þátttökugjald: kr. 1.000,-
Innritun í síma: 83200/165, Fræðslumiðstöð iðnaðar-
ins.
Bás með sögu tónlistarinnar á iýðveldisárunum. Ljósm. : eik
Nýr nytjafiskur fundinn - loðnan árið 1966. Ljósm. : eik
Lýðveldið 40 ára
Litið inn í Fossvogsskóla en þar var um helgina sýning
er allir nemendur skólans hafa unnið að í hálfan mánuð
Bítlahljómsveitin Leppalúðar. Bítlatímabilið setti sitt mark á 7. áratuginn.
Lýðveldishátíðin. Hér gefur m. a. að líta mynd af Kári Arnórsson með forláta eftirlíkingu af opnu úr
Kristjáni X., síðasta konungi íslands, og ríkis- gömlu handriti sem einn hópurinn gerði. Ljósm. :
stjórninni 1944. eik
Mannfjöldinn á íslandi 1944 og 1984.
Einnafgrunnskólum Reykjavíkurer
Fossvogsskóli og hann er tilraunaskóli.
Um helgina var haldin geysiviðamikil
sýning í skólanunr og var hún afrakstur
hálfs mánaðar vinnu sem allir nemendur
og kennarar skólans tóku þátt í heilir og
óskiptir. Yfirskrift verkefnisins var Lýð-
veldið 40 ára. Blaðamaður og ljósmynd-
ari Þjóðviljans litu inn ígær, mánudag,
og stóð þá sýningin að mestu enn uppi
þó að búiðværi aðfjarlægjasumasýn-
ingargripi úr sínu rétta umhverfi vegna
kennslunnar. Kári Arnórsson skóla-
stjóri leiddi okkur um húsið og það var
eins og að koma í ævintýraheim og
manni varð ósjálfrátt hugsað til eigin
barnaskólatíðar þar sem 30 börn sátu
við jafnmörg borð og auðir veggirnir allt
íkring.
Kári sagði okkur að geysilegur áhugi
hefði verið á þessu verkefni og krakk-
arnir hefðu farið um borgina til að afla
heimilda og í vettvangskönnun. Hann
sagði að engin ástæða væri að kvíða því
að krakkarnir fengju ekki áhuga á ís-
landssögu ef kennslan væri við hæfi
þeirra. Það þýddi ekki lengur að rétta
þeim bara bók því að miðlarnir væru
orðnir svo margvíslegir í þjóðfélaginu.
Og sýnig þessi er svo sannarlega á við
heila kennslubók í íslandssögu. Þarna
gaf að líta ótal teikningar, líkön, lág-
myndir og skrif. Lýðveldisstofnunin á
Þingvöllum skipar eðlilega stóran sess í
sýningunni, bæði hátíðarhöldin sjálf,
náttúran á Þingvöllum, og svo margs
konar samanburður á þjóðfélaginu fyrir
40 árum og nú. Fjalllað er um forseta
lýðveldisins, fánann og skjaldarmerkið
ogennfremuralþingi. Ert. d. bæði líkan
af Menntaskólanum þar sem alþingi var
háð 1846 -1881 og aljringishúsinu og
reyndar fleiri merkum byggingum þjóð-
arinnar.
10-12 ára krakkar unnu sameiginlega
og tóku fyrir ýmsa þætti sögunnar.
Þarna er t. d. stiklað á stóru í sögu þjóð-
arinnar fram að lýðveldisstofnun og svo
eru teknir fyrir atvinnuvegir, stjórn-
skipun, Iandhelgismál, íþróttirogsaga
listgreina svo að nokkuð sé nefnt. Þau
heimsóttut. d. Landhelgisgæsluna,
Stjórnarráðið og tóku viðtöl við fólk.
Einnig þáðu þau heimboð forsetans á
Bessastöðum er þau voru að vinna að
þessu fj ölþætta verkefni.
Yngri börnin, á aldrinum 6 - 9 ára,
unnu svo saman að verkefnum og tóku
m. a. fjölskyldunaog heimiliðog
breytingar á þessu sl. 40 ár, atvinnuveg-
ina, samgöngur, heilbrigðisþjónustuna
ogs. frv.
Mikið fjölmenni var á sýningunni um
helgina og Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands, var viðstödd opnunina. Og
það var líka lærdómsríkt og
bjartsýnisörvandi fyrir blaðasnápa að
skoða afrakstur hálfs mánaðar vinnu
420 nemenda og 25 kennara í Islands-
sögu lýðveldisáranna.
-GFr
Þriðjudagur 13. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Tími í samfélagsfræði. Ljósm. : eik
NÝRGIALDMIBILL 1 EK'
INN UPP HÉR Á LANDI
Jý'.Jjííjutp
Gjaldmiðilsskiptin 1981 var sögulegur atburður. Getraunin var fólgin
í því að full krukka af gömlum krónupeningum var hér og átti fólk að
geta upp á því hversu miklir peningar þetta væru i nýkrónum.
Ljósm. : eik
Hildur Jóna Bergþórsdóttir og Ágúst Ólafssson og spjald um Eim-
skipafélag íslands - óskabarn þjóðarinnar, sem yngri deildirnar
gerðu. Ágúst var í hópnum sem fór í heimsókn til Eimskips. Ljósm.:
eik
<&*<***&■***»<& ***«
«< *•<**
negm
finn
Yngri krakkarnir tóku fyrir fjölskylduna og heimilið. Hildur Jóna Berg þórsdóttir, 6 ára, snýr hakkavél af gömlu gerðinni. Ljósm. : eik
nr. (tujivrv
tv‘ 1 I lÉík'X
ý;;j.1 r f mm
ÖBlw
m.
^ .
V
| 4..B f y" . 1
1 J